Morgunblaðið - 11.11.1976, Blaðsíða 1

Morgunblaðið - 11.11.1976, Blaðsíða 1
40 SÍÐUR 262. tbl. 63. árg. FIMMTUDAGUR 11. NÓVEMBER 1976 Prentsmiðja Morgunblaðsins. 50 ára afmælis krýningar Hirohitos keisara (fyrir miðju) minnzt í Budokan-salnum f Tokyo. 7.000 gestir sðttu athöfnina, þar á meðal embættismenn stjórnarinnar og fulltrúar erlendra rfkja. Japans- keisari hylltur Tokyo, 10. nóvember. AP. Reuter. JAPANIR minntust I dag 50 ára afmælis valdatöku Hiro- hitos keisara sem hefur setið lengur á valdastóli en nokkur annar þjóðhöfðingi í heiminum og nokkur annar keisari í Japan. Afmælisins var minnzt við látlausa athöfn sem 7.000 gestir sóttu í Budokan-salnum í Tokyo, en flestir fulltrúar sóslalista. kommúnista og ann- Framhald á bls. 22 Sýrlendingar sækja án mótspyrnu inn í Beirut Beirút, 10. nóvember. AP. Reuter. SVRLENZKI herinn sótti inn f Beirút úr þremur áttum f dag án þess að mæta mótspyrnu og hertók borgina til að binda enda á 19 mánaða borgarastrfð f Líbanon f samræmi við friðaráætlun æðstu manna Arabalandanna. Skæruliðar vinstrimanna og hægrimanna sáust hvergi þegar sýr- lenzki herinn umkringdi Beirút með stuðningi skriðdreka og stór- skotaliðs og f jarlægði tugi götuvfgja á vegum umhverfis borgina. Þegar Sýrlendingar sóttu inn f suðurhverfin var geysihörð stórskota- árás gerð á yfirráðasvæði vinstrisinna f vesturhluta Beirút og að minnsta kosti tveir biðu bana og 30 særðust, en verið getur að þetta hafi verið sfðasta meiriháttar skothrfðin í borgarastrfðinu. strangri og hlutlausri stefnu. Enn er mörgum spurningum ósvarað eftir borgarastríðið sem hefur kostað um 40.000 manns lífið. Leiðtogar hægri manna spyrja hvort Sýrlendingar muni snúa við þeim baki. Vinstrisinnar spyrja hvað verði um vonir þeirra um stjórnmálaumbætur. Palestinskir skæruliðar eru tor- tryggnir í garð gæzluliðsins þar sem Sýrlendingar hafa tögl og hagldir í því. Hermenn deiluaðila hafa ekki verið afvopnaðir. Þeir hafa aðeins falið vopn sín og bíða átekta. Nýir bardagar i Suður-Líbanon hafa auk þess dregið úr vonum um skjótan frið. ísraelskt herlið hefur tekið sér stöðu rétt innan við landamærin og gert varúðar- ráðstafanir að sögn israelska út- varpsins. Herlið Unita á undanhaldi Hraðlest ók á bíl — 10 fórust Zagreb, 10. nóvember. Reuter. TÍU BIÐU bana og 29 slös- uðust þegar hraðlest rakst á hópferðabifreið sem ók yfir járnbrautarlínu skammt frá Zegreb í Júgó- slavíu í dag. Þeir sem biðu bana voru ailir úr bílnum og allir þeir sem slösuðust nema einn. 1 bílnum voru verka- menn og skólabörn. Hlið sem bifreiðin ók gegnum átti að vera lokað þar sem lestin nálgaðist en stóð opið. Járnbraut- arstarfsmaður sem bar ábyrgð á því hefur verið handtekinn. Lestarstjórinn sagði að skyggni hefði aðeins verið 50 metrar vegna þoku þegar áreksturinn varð. Lestin var að koma frá hafn- arborginni Rijeka við Adriahaf. Japanir vilja frest á útfærslu Tokyo, 10. nóvember.AP. ÁTTA japanskir verkalýðs- fulltrúar gengu í dag á fund aðstoðarutanrákisráðherra Bandarikjanna, Rozanna L. Ridgway, og fóru þess á leit að Bandarikjamenn frestuðu áformum sinum um útfærslu bandarisku fiskveiðilögsög- unnar í 200 mflur 1. marz. Frú Ridgway er formaður bandarískrar sendinefndar sem komin er til Japans til að semja um framtlð fiskveiða Japana á bandariskum miðum. Verkalýðsfulltrúarnir sögðu frú Ridgway að útfærsla bandarísku lögsögunnar yrði til þess að 100.000 Japanir mundu missa atvinnu sina í japönskum sjávarútvegi og að Framhald á bls. 22 Borgarbúar veifuðu til sýr- lenzku hermannanna þegar þeir sóttu inn í borgina og fögnuðu fyrsta hernámi Beirút síðan bandarískir landgönguliðar stigu þar á land 1958 til að binda enda á aðra borgarastyrjöld. Þegar á dag- inn leið var ljóst að ekkert afl í Líbanon gat hnekkt gifurlegum hermætti Sýrlendinga. Fréttaritari Reuters sá að minnsta kosti 100 sovézksmíðaða skriðdreka og þúsundir sýr- lenzkra hermanna. Fleiri skrið- drekar og hermenn bættust við síðar og á eftir fylgdu stórskota- vopn og stórir eldflaugaskotpallar í löngum röðum. Sýrlendingar opnuðu veginn frá-Beirút til Damaskus þegar þeir sóttu frá yfirráðasvæði sínu í austri og sýrlenzkir skriðdrekar tóku sér stöðu gegnt Beirút- flugvelli og á strandveginum bæði sunnan og norðan við höfuð- borgina. Yfirmenn sýrlenzka herliðsins segja að þeir muni gera að engu allar tilraunir sem verði gerðar til að hefja nýja styrjöld. Alls verður friðargæzlulið Arabalandanna skipað 30.000 mönnum en sýr- lenzku hermennirnir verða lang-| fjölmennastir. Yfirmaður friðar-i gæzluliðsins verður Elias Sarkis forseti og því er ætlað að fylgja Oshakati, 10. nóvember. Reuter. SKÆRULIÐAR hreyfingarinnar Unita, sem hafa átt í hörðum bar- dögum við angólska stjórnarher- inn og kúbanskt herliðundan- farna fimm daga, reyna að flýja til skógar vegna yfirburða and- stæðinganna i skriðdrekum og stórskotaliðsvopnum að sögn suð- ur-afrfskra embættismanna f dag. Flóttamenn sem hafa streymt yfir landamærin til Suðvestur- Afriku (Namibiu) frá bardaga- svæðunum segja að stjórnarher- inn vilji brjóta mótspyrnu Unita á bak aftur fyrir eins árs afmæli sjálfstæðis Angola á morgun. Hermenn Unita munu senni- lega reyna að flýja til austur- héraðanna og skóglendis skammt frá svokallaðri Caprivi-landræmu og landamæra Zambiu. Þaðan gætu skæruliðarnir reynt að halda áfram aðgerðum sínum gegn angólsku stjórninni undir forystu dr. Jonasar Savimbi. Bardagarnir héldu áfram í dag og flýjandi liðsmenn Unita réðust að sameiginlegum liðsafla Kúbu- manna, angólsku stjórnarinnar og frelsishreyfingar Suðvestur- Afriku, SWAPO. Flóttamenn segja að herlið stjórnarinnar skilji eftir sig sviðna jörð og eyði uppskeru og búpeningi á stóru svæði. Stjórnarherinn reynir að loka landamærunum að Suðvestur- Afríku til að stöðva flóttamanna- strauminn og hann hefur stöðvazt að mestu. Flóttamenn hafa verið skotnir þegar þeir hafa reynt að klifra yfir girðinguna á landa- mærunum og lík þeirra hafa verið Framhald á bls. 22 Nóbelsverðlaunin í bókmenntum: V oru þau veitt vegna rangra upplýsinga? Samtal Morgunblaðsins við argentínska skáldið Borges vegna fullyrðinga þess efnis JORGES Luis Borges er sem kunnugt er eitt helzta skáld á spænska tungu um þessar mundir og nýtur virðingar bókmennta- og menningarmanna um heim allan. Sumir telja hann mesta rithöfund á spænska tungu i lausu máli og ennfremur eitt mesta Ijóðskáldið. Borges er Argentinumaður. Ung- ur tók hann ástfóstri við íslenzka menningu og hefur skrifað bók um fornnorrænar og fslenzkar bókmenntir. Hann hefur sagt I samtali að Snorri sé mesti höf- undur, sem hann þekki og jafnvel tekið hann fram yfir sjálfan Shakespeare. Borges hefur tvisvar komið til Islands og vinnur nú að bók um Snorra Sturluson. Kom það fram í samtali, sem Moi^gunblaðið átti við Borges nú fyrir skömmu, en blaðið hringdi til Buenos Aires, þar sem hann býr. Ástæðan til þess að Morgunblaðið átti þetta símtal við Borges, var sú, að fregnir hafa borizt frá Svíþjóð þess efnis, að Borges, sem mörg undanfarin ár, hefur verið einn helzti keppandi um bókmennta- verðlaun Nóbels, hafi ekki hlotið þau nú í haust, vegna þess að sænsku Akademiunni hafi borizt til eyrna, að hann hafi sagt i sjón- varpsviðtali í Madrid ekki alls fyrir löngu, að stjórn Francos sé sú bezta, sem Spánverjar hafi Jorge Luis Borges haft síðastliðin fjögur hundruð ár. Sænska Akademian mun að mestu hafa verið sammála um, að Borges ætti að hljóta Nóbelsverð- launin, þar til þessar fregnir bár- ust henni, en þá hafi hún breytt afstöðu sinni, þvi að ekki væri unnt að láta skáld, sem hefði Framhald á bls. 22

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.