Morgunblaðið - 11.11.1976, Blaðsíða 23

Morgunblaðið - 11.11.1976, Blaðsíða 23
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 11. NOVEMBER 1976 23 Veiting lyfsöluleyfa: 9 lyfsöluleyfi veitt í tíð núverandi ráðherra Matthías Bjarnason, heil- brigðisráðherra, svaraði nýverið fyrirspurn frá Magnúsi Kjartans- syni (Abl.) um veitingu lyfsölu- leyfa í hans ráðherratíð (M.Bj.). Ráðherrann sagði m.a. efnislega: 1 viðkomandi lögum er gert ráð fyrar því, að umsóknir um lyfsölu- leyfi skuli leggja fyrir 2ja manna nefnd, er Apótekarafélag Islands °g Lyfjafræðingafélag Islands skipa f. Nefndin lætur landlækni í té rökstudda umsögn um um- sækjendur, sem að hennar áliti eru hæfir til starfans, og skipar beim í töluröð, en þó aðeins þremur hinum hæfustu, ef um- sækjendur eru fleiri en þrfr. Telji nefndin einhvern umsækjenda óhæfan skal hún geta þess. Land- læknir sendir síðan ráðh'erra rök- stutt álit um það, hverja af um- sækjendum hann telur hæfasta, einnig f töluröð. Sfðan gerði ráðherra grein fyrir 9 veitingum lyfsöluleyfa. 1) Hafnarf jörður: Þar vóru um- sagnaraðilar frá apótekarafélagi, •yfjafræðingum og landlæknir sammála og veiting eftir því. 2) Akranes: Þar vóru um- sagnaraðilar ekki á einu máli. Önnur röðun hjá landlækni en fulltrúum greindra félaga. Ég veitti stöðuna þeim sem apótekarar og lyfjafræðingar settu í fyrsta sæti en landlæknir í annað. ALBERT Guðmundsson (S) hef- ur flutt tillögu til þingsályktunar um athugun á áhrifum starfsemi Éramkvæmdastofnunar rfkisins °g einkum lánveitinga Byggða- sjóðs á atvinnu- og byggðaþróun í iandinu. Tillagan er svohljóð- andi: Alþipgi ályktar að fela ríkis- stjórninni að láta kanna hvaða áhrif fjárhagsleg fyrirgreiðsla Éramkvæmdastofnunar ríkisins, sérstaklega Byggðasjóðs, hefur haft á atvinnu- og byggðaþróun í landinu. Sérstaklega skal kannað, hvaða áhrif þessi fyrirgreiðsla hefur haft á búsetu fólks, tekju- Matthfas Bjarnason, heilbrigðis- ráðherra. 3) Vestmannaeyjar: Staðan veitt samkvæmt samhljóða um- sögn allra aðila. 4) Stykkishólmur: Staðan veitt samkvæmt samhljóða umsögn allra aðila. 5) Iðunnarapótek, Reykjavfk: Þar voru umsagnaraðilar ekki á einu máli. „Þar var mikill ágreiningur milli umsagnaraðila, apótekara og lyfjafræðinga annars vegar og landlæknis hins- vegar, og sfðan stórs hluta apótekara (Félag apótekara f strjálbýli). Þar veitti ég embættið skiptingu eftir landshlutum og aðstöðumun fyrirtækja eftir stað- setningu og starfsgreinum. Til samanburðar skal höfð í huga þróun sömu mála í Reykjavík og nágrannabyggðum hennar þau fimm ár, sem liðin eru frá þvi að lög nr. 93 24. des 1971, um Fram- kvæmdastofnun ríkisins, tóku gildi. Fyrstu niðurstöður þessarar könnunar skulu birtar því Al- þingi, er nú situr. Endanlegar nið- urstöður skulu lagðar fram, þegar Alþingi kemur saman haustið 1977 þeim aðila, sem hafði lengstan starfsaldur að baki og landlæknir setti í annað sæti f sinni röðun. 6) Borgarnes: Samkomulag um veitingu. 7) Ingólfsapótek. Þar vóru í fyrsta og öðru sæti i röðun menn með áþekkan starfstíma sem lyfjafræðingar. Sá sem við- komandi félög settu í fyrsta sæti, var talinn eiga meiri rétt vegna búsetu úti á landi. Landlæknir setti í 1. sæti lyfsala hér á höfuð- borgarsvæðinu. Mér fannst óeðli- legt, sagði ráðherra, að skipta um lyfsöluleyfi við lyfsala hér innan höfuðborgarsvæðisins. Ég skipaði þvf aðila, sem hafði verið settur í 1. sæti af apótekurum við umsókn um Iðunnarapótek. Hæfni hans ætti að vera söm, hvort sem um er að ræða Ingólfsapótek eða Ið- unnarapótek. 8) Egilsstaðir: Þar vóru 5 um- sækjendur. Nefndin skilaði sinni röðun. I ljós kom að sá, sem settur var í 2. sæti, var eldri í starfi sem lyf jafræðingur. Rökin fyrir röðun í 1. sæti vóru sögð þau, að við- komandi hefði „ýtt undir að stofn- uð yrði lyfjabúð“ I strjálbýli. Lengri starfsaldur réð veitingu minni I þetta embætti. 9) Neskaupstaður: Um- sækjendur vóru 3. 2 vóru taldir hafa meiri rétt sökum lengri starfsaldurs. I umsögn segir: „Eins og sjá má er nefndinni mik- ill vandi á höndum að velja á milli (nöfn umsækjenda). Starfsaldur þeirra er nákvæmlega hinn sami ...“ Hér þurfti þvi úrskurður ráð- herra að koma til enda veitinga- valdið óumdealanlega í hans höndum — og báðir viðkomenda taldir jafn hæfir af umsagnar- aðilum. AIÞinGI Albert Guðmundsson: Athugun á áhrifum Pramkvæmdastofnun- ar og byggðasjóds Þingfréttir í stuttu máli Biskupsstóll aö Hólum í Hjaltadal. Endurflutt hefur verið stjórn- arfrumvarp til laga um biskups- embætti hinnar íslenzku þjóð- hirkju, sem Ármann Snævarr hæstaréttardómari hefur samið aé tilhlutan kirkjumálaráðuneyt- •sins. Aðalefni frumvarpsins er Það, að biskupsdæmi hinnar •slenzku þjóðkirkju skuli vera työ, Skálholtsbiskupsdæmi (er taki yfír Suðurland, Vesturland °8 Vestfirði, frá Skaftafells- Pröfastdæmi að Isafjarðarprófast- ^*mi, að báðum meðtöldum) og Rélabiskupsdæmi (er nái yfir ^orðurland og Austurland, frá ‘‘únavatnsprófastdæmi til Aust- fjarðaprófastdæmis, að báðum IT|eðtöldum). Skálholtsbiskup skal sitja í Reykjaik en Ilólabisk- UP að Hólum í Hjaltadal. Skotvopn, sprengiefni og skoteldar, Þá hefur verið lagt fram á ný stjórnarfrumvarp til laga um skotvopn, sprengiefni og skot- elda. Frumvarpið er óbreytt frá því það var lagt fram á sl. þingi, nema hvað þær breytingar, sem efri deild gerði þá á frumvarpinu, hafa verið felldar inn í það. Frumvarpið kveður á um skýrari reglur í þessu efni en verið hafa í gildi hér á landi. Kostnaður við byggingu sundlauga. Karvel Pálmason, Jónas Arna- son og Sighvatur Björgvinsson flytja frumvarp til laga um breyt- ingu á lögum um skólakostnað. Þar er lagt til, að ríkissjóður greiði 75% áætlaðs stofnkostnað- ar þeirra sundlauga, sem eru í byggingu og ekki hefur verið gengið formlega frá samningum um kostnaðarskiptingu — og ávallt í byggðarlögum, sem hafa innan við 4000 íbúa. Tölvutækni og persónulegir hagir manna. Ragnar Arnalds, Steingrímur Hermannsson, Benedikt Gröndal, Sigurlaug Bjarnadóttir og Magnús T. Olafsson flytja tillögu til þingsályktunar, þar sem skor- að er á rikisstjórnina að skipa nefnd til að semja frumvarp til laga um verndum einstaklinga gagnvart því að komið sé upp safni upplýsinga um skoðanir þeirra eða aðra persónulega hagi með aðstoð tölvutækni. Notaðar Mazda bifreiðar til sölu: 929 Hardtop 1975 ekinn 17. þús. Verð 1.640 þús. 929 station 1976 ekinn 19.000 verð 1.880 þús. 929 station 1975 ekinn 55.000 verð 1.580 þús. 929 4ra dyra 1975 ekinn 20.000 verð 1.580 þús. 929 4ra dyra 1976 ekinn 40.000 verð 1.650 þús. 929 Hardtop 1975 ekinn 22.000 verð 1.580 þús. 616 4ra dyra 1974 26.000 verð 1.250 þús. RX-4 1976 ekinn 7.000 verð 2.050 þús. Skipti hugsanleg á ðdýrari bil. BÍLABORG HF. Borgartúni 29 sími 22680 Fréttir fra yogue Stórkostlegt úrval af sængirfataefnum og rúmteppum. H öguc^ Á fjórtán vikna námskeiði er farið yfir fjölbreytt verkefni, sem ætlað er til þess að meðfæddir hæfileikar þinir njóti sin sem best. Rætt erm.a. um: it Fljóta og auðvelda aðferð til að skýra frá hugmyndum þínum it Hvetja til framkvæmda á jákvæðan hátt. it Vinna bug á áhyggjum og kvíða. Ná betri árangri á fundum. if Þjálfa minni. it Ná betri árangri í mannlegum samskiptum. it Byggja upp trú á sjálfan þig og aðra. í dag er þitt tækifæri. Innritun og upplýsingar í síma 82411 Dale Carnegie námskeiðin STJÓRNUNARSKOLINN

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.