Morgunblaðið - 11.11.1976, Blaðsíða 19

Morgunblaðið - 11.11.1976, Blaðsíða 19
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 11. NÓVEMBER 1976 19 Hua og Chiang í rimmu rétt eftir andlát Maos — Chiang sögð hafa stolið skjölum til að styrkja stöðu sína 1 NVJU töiublaði af bandarlska vikuritinu Neewsweek er með- al annars fjallað töluvert um valdatogstreituna I Klna og þar er sagt frá rimmu sem varð á milli Hua, núverandi flokks- leiðtoga, og Chiang Ching, ekkju Maos, sem nú hefur verið ýtt svo rösklega út I kuldann. Þar segir að Chiang Ching hafi fjarlægt eitthvað af skjöl- um Maos úr skjalasöfnum i Peking eftir andlát eigin- mannsins með það fyrir augum að breyta siðustu fyrirmælum formannsins. Sá maður sem til hennar sagði var Wang Tung- hsing, einn af yfirmönnum lif- varðarsveita Maos. Hua hafði þá engar vöflur á, heldur kvaddi ekkjuna á fund sinn og krafðist þess að hún skilaði plöggunum. Að þvi er blaðið Ming Pao, segir sem er gefið út I Hong Kong og þykir áreiðanlegt, á hún að hafa hreytt út úr sér illskulega við Hua: „Lík Maos er ekki orðið kalt.. .Er það svona sem þú ætl- ar að endurgjalda formannin- um hyllina sem þú nauzt?“ Hua sem þá hafði skipun sina i em- bætti forsætisráðherra beint frá Mao mun hafa svarað: „Þetta er einmitt min aðferð við að endurgjalda honum það sem hann hefur gert fyrir mig.“ Þá hefur Newsveek það eftir Hong Kong-blaðinu fyrrnefnda að Mao og eiginkona hans hafi búið hvort í sinu Iagi langa hrið og þegar Chiang Ching vildi ná fundi hans, varð hún að senda skriflega ósk þar að lútandi.- Þegar Mao las eina slika beiðni er sagt að hann hafi hripað á miða:„Reyndu ekki að hitta mig I eigin persónu. Þú hefur vakið I mér og öllum gremju sem er fjarska djúp.“ Og ein- hverju sinni á hann að hafa sagt: „En hvað ég öfunda Chou En-lai. Hann á svo afskaplega góða konu.“ Þar sem það er til framdrátt- ar Hua að sverta ekkju Maos sem allra mest var sannleiks- gildi þessa á sumum stöðum dregið í efa. Meðal annars barst hinum fræga blaðamanni Vict- or Zorza það til eyrna að skjal sem Chiang Ching lét í umferð Chiang Ching meðan Mao háði sitt dauðastríð — og sem augljóslega miðaði að því að styrkja stöðu hennar hafi verið nýtt ljóð eftir Mao. I því segir Mao við hana: „Þú hefur verið rangindum beitt." Og i þvi var hann sagður hvetja hana til að „ná upp á tindinn" til að fullkomna byltinguna sem hann hefði byrjað. Hann spáði einnig hættum: „Ef þér mistekst," segir hann,“ muntu steypast í hyldýpið.. .bein þín munu brotin." Jörgensen: EBE samningum vart lokið fyrr en á næsta ári Sylvia og Karl Gustaf Sylvia kona ekki einsömul? ÞRALÁTUR en óstaðfestur orðrómur um að Sylvia Svía- drottning sé nú kona ekki ein- sömul gengur fjöllunum hærra í Svíþjóð og hefur verið tekið með miklum fögnuði af þegn- um konungshjónanna. Sænsk blöð hafa skýrt frá þessu, en taka fram að ekki hafi hirðin verið fáanleg til að staðfesta þetta. Sylvia og Karl Gustaf eru nú í Frakklandi og frétt þessi fékk fyrir alvöru byr undir báða vængi, þegar drottning gekk ekki í gegnum vopna- leitarskoðun á Arlandaflug- velli áður en hjónin fóru á braut nú á dögunum. Var það túlkað svo að geislar tækisins kynnu að skaða fóstrið. Verði barnið drengur eru erfðir tryggðar, þar sem enn er svo málum háttað í Svíþjóð - þrátt fyrir allt skraf og hjal um jafnrétti þegna- að þar hafa konur ekki rétt til ríkiserfða. Kaupmannahöfn, 10. nóv. NTB. ANKER Jörgensen, for- sætisráðherra Danmerkur, gerði það lýðum ljóst í dag að samningum Efnahags- bandalagsins við lönd, sem hefðu hagsmuna að gæta þegar bandalagið færir út í 200 mílur um áramót, myndi varla verða lokið fyrr en einhvern tíma árs 1977. Arne Treholt, ráðu- neytisstjóri í hafréttar- málaráðuneyti Noregs, sagði í svari við fyrirspurn frá NTB að Jörgensen hlyti að hafa allt annað tímaskyn varðandi samn- ingana en EBE-ráðið. Segir Treholt að þegar uppkastið að samningum hefði verið rætt í Brússel hinn 3. nóv- ember, hefði verið lögð á það áherzla að ljúka samningaviðræðum við Noreg fyrir 1. janúar. Jör- gensen lagði í gær fram tillögu í danska þjóðþing- inu þar sem farið er fram á samþykkt þangs við út- færsluna. Hvað snertir Grænland og Færeyjar á útfærslan að gilda frá 1. janúar 1977. Claustre sleppt fyrir jól? Paris, 10. nóv. AP. FRANCOISE Claustre, franski forn- leifafræðingurinn sem haldið hefur verið í gísl- ingu í Afríku hjá upp- reisnarmönnum í eyði- mörkum Chad, verður sennilega sleppt fyrir jól, að þvi er talsmaður Frelsissamtaka Chad sagði í dag. Franska út- varpið ræddi við hann í Alsír um hvort von væri til þess að Claustre yrði sleppt á næstunni og sagði hann þá að hún yrði liklega látin laus fyrir jól. Samtökin tilkynntu sömuleiðis í dag að for- ingi uppreisnarmann- anna sem rændu forn- leifafræðingnum á sin- um tima, Hissen Habre, hefði verið rekinn úr samtökum uppreisnar- mannanna. Væri Claustre nú undir verndarvæng samtak- anna sem vildu ekki líta við Habre sem foringja lengur. Borten hættir þátttöku í stjóm- málum naesta ár NORSK blöð hafa greint frá þvf að Per Borten, fyrrverandi for- sætisráðherra, hafi ákveðið að hætta öllum afskiptum af stjórn- málum næsta haust. Af þvf tilefni hefur ferill hans á stjórnmála- sviðinu verið rifjaður upp. 1 Dag- bladet segir Duleiv Forr meðal annars: „Þegar Per Borten hefur nú gert lýðum það ljóst, að hann hverfi frá stjórnmálaþátttöku á næsta hausti markar það endalok ferils sem í reynd lauk þungbú- inn marzdag fyrir fimm árum. Per Borten rétti aldrei við að marki eftir það. Hann gerði vissu- lega heiðarlega tilraun. En meira að segja hans eigin flokkur brást honum. Siðasta kjörtimabil hefur hann að vísu gegnt stöðu forseta efri deildar þingsins, en það em- bætti veitir honum engin áhrif af neinu tagi. Eftar hann beið lægri hlut I baráttunni um að vera þing- Per Borten. flokksmaður flokks sins hefur máttur hans stöðugt dvínað. Enn er of snemmt að reyna að geta sér til um, hvernig eftirmæli Borten muni fá I sögu Noregs. Þó verða þau væntanlega heldur hóg- vær og varla tekið djúpt í árinni. En hvernig sem á málin verður þó litið er ekki vafi á því að ríkis- stjórn hans vann ýmis merk verk þau fimm ár sem hún sat. Ferill Bortens hófst rétt eftar strið, þegar hann var kjörinn tals- maður i heimabyggð sinni árið 1946. Þá var hann aðeins 33 ára gamall. A^ðeins fjórum árum siðar var hann kominn inn I sali Stór- þingsins. Hann skipaði sér sess sem mestur hæfileikamaður Bændaflokksins á þeim árum. Það tók hann fimm ár að ná upp á tindinn. Hann varð formaður flokksins árið 1955 og tveimur árum seinna varð hann einnig for- maður þingflokksins. Þegar hann tók við starfi for- sætisráðherra viðurkenndi hann að hann teldi sig vanbúinn fyrir það starf. En ekki er annað hægt að segja en að hann stæði sig mjög svo skikkanlega þar til EBE- málið kom til sögunnar með sín- um afleiðingum, sem óþarft er að rekja. Fáir stjórnmálamenn þykja al- þýðlegri Borten og hann á einkar auðvelt mað að ná góðu sambandi við fólk úr hvaða stétt sem það er komið. Honum hafa borizt ótal hvatningar um að halda áfram. Meira að segja munu þeir enn til i Noregi sem vonast eftir nýrri borgaralegri ríkisstjórn sem stýrt væri af Per Borten. Mörgum finnst hann standa sem tákn um velheppnaða samvinnu borgara- flokkanna í Noregi. En ákvörðun Bortens um að draga sig í hlé kemur ekki á óvart. Hún hefur legið I loftinu lengi. Siðustu ár hefur hann verið að gera ýmsar ráðstafanir þessu til undirbúnings. Og hann ætti að nota ókomin ár meðal annars til að segja fólki sína útgáfu af veru- legum stjórnmálalegum árangri fyrir land og þjóð,“ segir Forr að lokum. Svíar veida á N oregsmidum Stokkhólmi, 10. nóv. NTB. 1 DAG var gerður rammasamn- ingur milli Norðmanna og Svia sem gerir ráð fyrir því að sænskir fiskimenn megi halda áfram að veiða innan norsku lögsögunnar þegar hún verður færð út í 200 sjómílur frá og með 1. janúar n.k. Ekki er talað um neinn ákveðinn kvóta í þessum drögum, en búist við sérstökum viðræðum um hann síðar. Argentína: 12 skæru- liðar féllu La Plata, Argentinu, 10. nóv. Reuter. TÓLF vinstrisinnaðir skæruliðar létust f tveimur bardögum við ar- gentfnska öryggisverði f dag eftir sprengingu f lögreglustöð I La Plata, en þar beið bana einn lög- reglumaður og tiu meaddust. Heimildir lögreglu segja að átta skæriliðar hafi verið drepnir þeg- ar áhlaup var gert á fbúðarhús I La Plata i kjölfar sprengjutilræð- isins á lögreglustöðinni. Fjórir aðrir skæruliðar létust í skotbar- daga við lögregluna fyrir norðan bætnn.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.