Morgunblaðið - 11.11.1976, Blaðsíða 39

Morgunblaðið - 11.11.1976, Blaðsíða 39
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 11. NOVEMBER 1976 39 Belgíumenn sóttu stanzlaust en urðu að gera sér 2- 0 sigur að góðu BELGlUMENN áttu ekki ( erfið- leikum með Norður-lra ( leik þeirra ( fjórða Evrópuriðli undankeppni heimsmeistara- keppninnar f knattspyrnu sem fram fór ( Liege í Belgfu ( gær- kvöldi. (Jrslit leiksins urðu 2—0 fyrir Belgfumennina, eftir að staðan hafði verið 1—0 ( hálfleik, en sigur Belgfumanna hefði getað orðið mun stærri hefðu þeir nýtt betur fjölmörg marktækifæri sem þeir fengu ( leiknum. Mark- vörður Iranna, Pat Jennings, leik- maður með Tottenham, var þeim einnig óþægur ljár f þúfu og varði oft stórkostlega vel I leiknum. Með þessum sigri hafa Belgfu- menn tekið forystu ( 4. riðlinum, George Best — hans var vandlega gætt í leiknum í gærkvöldi. hafa hlotið 4 stig eftir tvo leiki, Hollendingar eru með þrjú stig eftir tvo leiki, Norður-Irar með eitt stig eftir tvo leiki og Islend- ingar hafa ekkert stig eftir tvo leiki. Eftir óvænt jafntefli sem Norð- ur-írar gerðu í leik sfnum við Hollendinga í haust í Hollandi, áttu margir von á þvf að þeir myndu standa í Belgíumönnunum þótt á útivelli væri, og sjálfir gerðu Irarnir sér vonir um að ná í það minnsta jöfnu. En það kom snemma í ljós í leiknum í gær- kvöldi að heppnin yrði að ganga verulega í lið með Irunum til þess að þeir hrepptu annað stigið í leiknum. Belgíska liðið náði þeg- ar í upphafi vel saman og sýndi góða knattspyrnu. Auðséð var þó að þeir óttuðust mjög George Best, og voru fjórir varnarleik- menn oftast á höttunum á eftir honum. Hinir 30.000 áhorfendur sem fylgdust með leiknum í Liege urðu þó að bíða í 29 minútur eftir marki. irarnir höfðu þá átt sókn sem Eric Gerets náði að stöðva. Lék hann fram völlinn með knött- inn og sendi sfðan á Francois van der Elst, sem dró að sér varnar- menn íranna og sendi síðan knött- inn f eyðu til van Gool, sem var í góðu færi og brást ekki bogalistin í skoti sínu. Atti Pat Jennings enga varnarmöguleika. Eftir mark þetta réð belgíska liðið algjörlega lögum og lofum á vellinum, og fór leikurinn að mestu fram við vátateig Iranna sem reyndu að verjast þar eftir mætti. Nokkrum sinnum komst belgíska liðið þó i góð færi, eins og t.d. þegar van der Elst átti hörkuskot á markið af markteigs- línu, en Jennings sveif þá út í hornið og náði að slá knöttinn í horn. Á 52.mínútu tókst Belgíumönn- unum að skora aftur. Paul Courant, van Gool og Lambert léku þá vörn frska liðsins sundur og saman, og komst Lambert í slíkt dauðafæri að það var ekki hægt að misnota. Sem fyrr segir var það harla fátítt að Irarnir næðu sókn í leiknum. George Best var þó einu sinni nærri þvf að skora, er hann skaut óvænt hörkuskoti utanfrá vítateigslinu á belgíska markið. En Christian Piot, markvörður Belgíumannanna, og félagi As- geirs Sigurvinssonar í Standard Liege, sýndi þá hæfni sfna og náði að verja í horn. Staðan f 4. riðli að þessum leik loknum er þannig: Belgia 2 2 0 3—0 4 Holland 2 110 3—2 3 N-írland 2 0 11 2—4 1 tsland 2 0 0 2 0—2 0 Næsti leikur í riðlinum verður svo ekki fyrr en 26. marz eh þá leika Belgfa og Holland í Belgfu. 11. júnf leikur svo tsland við Norður-lrland, 31. ágúst leikur Is- land við Holland, 4. sept. leikur Island við Belgíu, 21. sept. leikur Norður-Irland við Holland, 26. okt. leikur Holland við Belgfu og 16. nóvember, eftir rúmt ár verð- ur svo síðasti leikur f riðlinum, og leikur þá Norður-lrland við Belgíu. Víkingsstúlkumar byria vel í blakinu ÍSLANDSMÓTIÐ í blaki hófst um síðustu helgi og var þá leikið f 1. deild kvenna og annarri deild karla. f kvennaleiknum áttust við lið Vfkings og Breiðabliks og lauk leikn- um með öruggum sigri Víkings-stúlknanna, 3:0. (15—2, 15—5 og 15—9) Það var aðeins í sfðustu hrin- unni sem Breiðabliks-stúlkurnar sýndu eitthvað en þá höfðu Vfk- ings-stúlkurnar lika slakað nokk- uð á. Aarrar deildar leikurinn var svo á milli a- og b-liðs Breiðabliks. Var leikurinn fremur tilþrifalít- ill, sérstaklega í upphafi, en þeg- ar líða tók á leikinn sótti b-liðið sig mjög um leið og a-liðið dalaði og tókst b-liðinu að vinna tvær hrinur og litlu múnaði í þeirri síðustu, en hún endaði 15:12 a- liðinu í vil. Annars urðu úrslit einstakra hrina þe'ssi: 15—2, 15—13, 13—15, 11 — 15, 15—12 a- liðinu í vil. H.G. Nýi golfskálinn f Herjólfsdal. Ljósmyndir Mbl. Sigurgeir. Nýr golfskáli í GOLFKLÚBBUB Vestmannaeyja tók fyrir skömmu f notkun nýjan og glæsilegan golfskála við Herjólfsdal. Með tilkomu nýja skálans batn- ar mjög aðstaða kylfinga í Eyjum til félagsstarf- semi og þeir horfa einnig fram á betri tfma varðandi aðstöðu fyrir golfiðkun, en sfðan um gos hefur verið mjög erfitt um vik að iðka golf vegna ösku á gamla golfvellinum f Herjólfsdal. Að öllum Ifkindum munu golfarar geta snúið aftur á heimavfgstöðvarnar ( Herjólfsdal næsta Herjólfsdal vor eftir 4 ára útlegð, en þeir komu sér þó skjótt upp 6 holu bráðabirgðavelli vestán við Sæfell. Nýi golfskálinn var reistur á einni vku og sfðan var tekið til við að innrétta af fullum krafti. Þegar sfðasta mót sumarsins var haldið fyrir skömmu, bændaglfman, var húsið einmitt klárt til tilþrifa og þangað komu allir 36 kepp- endurnir úr bændaglfmunni auk gesta og húsið var tekið formlega f notkun með tilheyrandi hátfðahöldum og barst þvf fjöldi gjafa. — á.j. Föngulegur hópur kylfinga mætti til síðasta móts sumarsins, bæði heimagolfarar og góðir gestir af fastalandinu. Víkingur - FH Fram - Haukar - í Laugardalshöllinni í kvöld TVEIR leikir fara fram f tslandsmótinu f handknattleik f kvöld, báðir f Laugardalshöllinni. Leika þar fyrst Fram og Haukar og síðan Vfkingur og FH, þannig að ætla má að mikil spenna og barátta verði í þessum leikjum, og Ifklegt verður að teljast að úrslit f þeim geti haft mikil áhrif á endanlega röð liðanna f mótinu f vetur. Haukar hafa nú hlotið 6 stig eftir 4 leiki og eru f þriðja sæti f mótinu, en Framarar hafa hins vegar ekki hlotið nema þrjú stig ennþá. Hins vegar verða Framarar að teljast sigurstranglegri f leiknum f kvöld. Þeir hafa nú endurheimt Pálma Pálmason f lið sitt, og eins hafa H:ukar aldrei náð jafngóðum leikjum f Laugardalshöllinni og þeir hafa náð f Hafnarfirði, en þar hafa þeir hlotið öll stig sfn til þessa. Víkingur — FH verður svo ugglaust gffurlegur baráttuleikur, og verður stóra spurningin f þeim leik hvort Vfkingum tekst að ná aftur jafngóðum leik og þeir sýndu á dögunum er þeir sigruðu Valsmenn með einu marki. Staða þessara tveggja liða er nú jöfn f mótinu — bæði hafa hlotið 4 stig og tapað fjórum. Hvert stig sem tapast getur þvf riðið baggamuninn fyrir liðin. Leikir Vfkings og FH hafa löngum verið harðir baráttuleikir og var það jafnvel svo meðan FH var að berjast á toppnum en Vfkingur á botninum, hér á árum áður. Óhugsandi er að spá neinu um úrslit þessa leiks, öðru en því að hann mun bjóða upp á átök og baráttu. Enska knattspyrnan EFTIRTALDIR leikir fóru fram í Englandi og Skotlandi i gær- kvöldi: Leeds — Stoke 1—1 Manch. Utd. — Sunderl. 3—3 Norwich — WestHam 1—0 2. deild: Cardiff — Southampton 1—0 3. deild: Chesterfield — Chester 1—0 Wrexham — Peterborough 2—0 Skotland — úrvalsdeild: Hearts — Aberdeen 2—1 Skotland 1. deild: Dumarton — Dundee 1—1 KR vann ÍS 67-44 Á LAUGARDAGINN var leikinn einn leikur f fyrstu deild kvenna f körfu- knattleik og áttust þá við KR og ÍS. KR stúlkurnar unnu þennan leik örugglega, eða með 67—44, og réðu ÍS-stúlkurnar ekkert við stffa pressu og hraðaupphlaup KR- stúlknanna, sem þarna hefndu grimmilega tapsins gegn ÍS í Reykja- vfkurmótinu, en þá vann ÍS með 10 stiga mun. En Reykjavfkurmótinu er enn ekki lokið þvf að þrjú lið urðu efst og jöfn (KR, ÍR og ÍS) og hafa úrslitaleikirnir enn ekki farið fram, en það verður væntanlega mjög fljót- lega. HG.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.