Morgunblaðið - 11.11.1976, Side 2
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 11. NÓVEMBER 1976
Gott verð á minnkaskinnum;
2000 ísl. skinn á
uppbodi í London
A SKINNAUPPBOÐI Hudson
Bay I London 15.—22. des. n.k.
verða boðin upp um 2000 íslenzk
minkaskinn, en samkvæmt upp-
lýsingum Skúla Skúiasonar, um-
boðsmanns Hudson Bay, er mjög
gott verð á minkaskinnum um
þessar mundir og I vetur er reikn-
að með hæsta verði. Aðalsalan á
íslenzku skinnunum verður á
uppboði 16.—24. febr. n.k., en þá
verða boðin upp um 25 þtis. skinn ,
frá tslandi og hafa þau aldrei
verið fleiri.
Ágæt loðnuveiði þrátt
fyrir mikið tunglskin
ÁGÆT loðnuveiði var í
fyrrinótt, þrátt fyrir mikið
tunglskin svo til alla nótt-
ina. Þrír bátar héldu til
lands í gærmorgun eftir
nóttina, allir með svo til
fullfermi, önnur skip sem
voru á miðunum fengu
einnig nokkurn afla.
Mikið tunglskin var á
loðnumiðunum í fyrra-
kvöld og af þeim sökum
hélt loðnan sig það neðar-
lega, að bátunum gekk illa
að ná henni. Af og til dró
þó fyrir, og þá gátu bátarn-
ir kastað og fengu sæmileg-
an afla.
Þegar birti var Gísli Árni RE
kominn með 400 tonn, sem hann
fór með til Bolungarvíkur, Kap 2.
VE var með 300 tonn og Ársæll
Sigurðsson 200 tonn. Þessir bátar
fóru einnig til Bolungarvíkur.
Aðrir bátar, sem voru á loðnu-
miðunum fengu einnig afla, en
ekki það mikið að þeir færu í
land.
UPPLAG
MORGUNBLAÐSINS
I TILEFNI af frétt í Þjóðviljan-
um I gær, þar sem staðhæft er, að
Morgunblaðið hafi að undan-
förnu tapað þúsundum áskrif-
enda og pressumenn bornir fyrir
þessari fullyrðingu vill Morgun-
blaðið taka eftirfarandi fram:
1. Meðaltalsupplag Morgunblaðs-
ins í októbermánuði var 40.194
eintök á dag. Nýting þessa
upplags hefur aldrei verið
betri og greiddur eintakafjöldi
aldrei meiri.
2. Blaðamenn Þjóðviljans hafa
ekki talað við nokkurn starfs-
mann í prentsal Morgunblaðs-
ins. Það ásamt frétt blaðsins
um upplag Morgunblaðsins er
þvl uppspuni frá rótum.
3. Morgunblaðið er nú sem fyrr
reiðubúið til að standa að því
ásamt öðrum dagblöðum að
tekið verði upp strangt eftirlit
með fjölda greiddra eintaka
blaðanna, sem byggist á upp-
lýsingum úr bókhaldi blað-
anna, en slíkt fyrirkomulag er
ríkjandi í nágrannalöndunum.
Þess er að vænta að Þjóð-
viljinn skorist ekki undan því,
né önnur dagblöð. Morgun-
blaðið hefur alltaf verið þess
hvetjandi að slík starfsemi fari
fram.
ísland í 20. sæti
BANDARÍKIN urðu
Ólympíumeistari í skák
1976. Hlutu Bandaríkja-
menn 37 vinninga á mótinu
í Haifa, en Hollendingar
höfnuðu í öðru sæti með
36V6 vinning. Islenzka
sveitin varð i 20. sæti með
27 vinninga.
Eins og fram kom í Mbl. i gær,
hafði bandaríska sveitin hlotið 37
vinninga þegar 13. og sáðustu um-
ferð mótsins lauk í fyrrakvöld.
Hollenska sveitin hafði hlotið 35
vinninga og átti tvær óútkljáðar
biðskákir gegn Finnlandi. Timm-
an vann biðskák sína gegn
Westerinen, þegar haldið var
áfram með biðskákirnar í gær, en
Frans Kuijpers á 4. borði hol-
lensku sveitarinnar náði aðeins
jafntefli gegn Finnanum Ilkka
Saren eftir að kapparnir höfðu
setið yfir taflinu í 10 klukku-
stundir og leikið 112 leiki. Reyndi
Hollendingurinn að flækja taflið
og kreista fram vinning, en það
tókst ekki. Hálfur vinningur til
viðbótar hefði dugað Hollending-
um til sigurs í mótinu.
Þar með rufu Bandaríkin 24 ára
óslitna sigurgöngu Sovétrikjanna
á Olympíuskákmótum, en banda-
nska sveitín hefur aldrei fyrr
borið sigur úr býtum í Ólympíu-
móti, Sovétrikin tóku ekki þátt í
mótinu að þessu sinni, né önnur
austur-evrópsk rlki, eins og marg-
sinnis hefur komið fram I frétt-
um.
Myndin var tekin við vfgslu Þorlákshafnar s.l. sunnudag þegar
Herjólfur opnaði höfnina formlega og það er flaggveifa frá skipinu
sem þyrlast þarna í myndinni, en á bryggjunni er bllamergð og fjær
sést vel hve stórgrýtt jörð er notuð í hafnargarðana og dolosarnir
skarta sfnu fegursta, en alls voru steyptir 2900 dolosar til hafnargerð-
arinnar. Ljósmynd Mbl. — á.j.
Fundur
um áfengLsmál:
Alþingismönn-
unum er sér-
staklega bodid
1 KVÖLD, fimmtudagskvöld,
gengst Afengisvarnarráð og
Landssambandið gegn áfengisböl-
inu fyrir fundi um áfengismál.
Verður fundurinn haldinn að
Hótel Loftleiðum og hefst kl.
20.30.
Fundurinn er öllum opinn og
hefur alþingismönnum verið sér-
staklega boðið. Frummælendur
verða Jóhannes Bergsveinsson yf-
irlæknir, Tómas Helgason próf-
essor og Ólafur Haukur Arnason
áfengisvarnaráðunautur.
Að loknum erindum munu
verða umræður og frummælend-
ur munu svara fyrirspurnum.
Frétt af fiskimálaráðstefnu í N-Þýzkalandi:
EBE mun ekki beita
íslendinga þvingunum
Bandaríkin Ólym-
píumeistarar í skák
DAGANA 3.—6. nóvember var
haldin ráðstefna um fiskimál I
bænum Husum f Norður-
Þýzkalandi. Þátttakendur, 25 að
tölu, voru háttsettir embættis-
menn á sviði fiskimála hinna
fjögurra fylkisrfkja Vestur-
Þýzkalands, sem eiga aðgang að
sjó, en það eru Schleswig-
Holstein, Niedersachsen, Bremen
og Hamborg. Ennfremur komu
fiskimálafulltrúar sendiráða
Bretlands og Noregs f Bonn á
fundinn, ásamt öðrum fulltrúum
frá Danmörku og Hollandi.
Josef Ertl, landbúnaðarráð-
herra Vestur-Þýzkalands, setti
ráðstefnuna og ræddi um væntan-
lega útfærslu EBE-landanna I 200
mílur 1. janúar n.k. Kvað hann
útfærsluna leiða til þess að
bandalagið hefði betri samnings-
aðstöðu gagnvart ríkjum eins og
Islandi og Noregi. Honum varð og
tíðrætt um ofveiði I Norðursjón-
um og nefndi þar sérstaklega
ufsa, sild og rauðsprettu. Sagði
hann að sóknin I ufsa og síldar-
stofnana væri orðin svo mikil, að
vlsirdamenn hefðu mælt með því
að friða þessar fisktegundir al-
gjörlega á næsta ári. Utfærslan I
200 mílur kæmi þvl verndun fisk-
stofnanna að miklu gagni.
Næst flutti fiskimálaráðherra
Danmerkur, Poul Dalsager, er-
indi sem fjallaði aðallega um of-
veiðina I Norðursjónum. Taldi
hann, að Danir væru reiðubúnir
að slaka eitthvað á veiðum sínum
til að stuðla að verndun fiskstofn-
anna.
Næsta erindi var um mikilvægi
fiskveiða fyrir íslendinga og
flutti það dr. Sverrir Schopka, i
Hamborg. Rakti hann I stórum
dráttum sögu islenzkra fiskveiða
og sýndi fram á mikilvægi fiskiðn-
aðarins fyrir land og þjóð og
nauðsyn þess að vernda fisk-
stofna þá sem vaxa upp á miðun-
um við landið. Tvö hundruð milna
fiskveiðilögsaga væri þvl lífs-
nauðsyn fyrir þjóðana.
Á eftir erindi hans fóru fram
tæplega tveggja tlma umræður og
átti málstaður Islands mjög mikl-
um skilningi að mæta, að því er
fregnir af fundinum herma. Er
óhætt að segja að blaðið hafi nú
alveg snúist við, sé miðað við
fundinn, sem Bandalag Islend-
inga I Norður-Þýzkalandi hélt I
Bremerhaven sumarið 1972, en
þar var ráðist harkalega á vænt-
anlegar aðgerðir Islendinga.
Ráðstefnan núna bar það með
sér að EBE-þjóðirnar vilja gjarn-
an komast að samkomulagi um
fiskkaup af Islendingum. Það
kom og fram að EBE mun ekki
beita þvingunum við væntanlegar
samningaumleitanir gagnvart Is-
Framhald á bls. 22
Búið að salta í
81 þús. tunnur
Sæmileg reknetaveiði sl. nótt
„Jóhanna” far-
in að herma eft-
ir höfrungunum
ENN vill háhyrningurinn Jó-
hanna Iftið annað en fslenzka
síld þar sem hún er f lauginni f
Marineland. Að þvf er Martin
Padley yfirdýratemjari tjáði
Morgunblaðinu f gær, hefur
„Jóhanna" það mjög gott og
borðar yfir 30 kfló á dag.
— Islenzka síldin er nú að
verða búin, og I þess stað höf-
um við náð I smásfld frá V-
Frakklandi, en við höfum mik-
inn hug á að reyna að ná okkur
I sfld frá íslandi, I það minnsta
til að hafa við hátíðleg tæki-
færi, sagði Padley.
Þá sagði hann, að höfrungun-
um þrem og háhyrningnum
kæmi mjög vel saman og væri
Jóhanna farin að leika sér
óspart við höfrungana.
— Ég hef haft það fyrir vana
að kasta síld eða makríl til
höfrunganna I lauginni hja Jó-
hönnu. Fyrst I stað skipti hún
sér ekkert af því, þótt verið
væri að kasta fiski til höfrung-
anna, sem þeir gripu siðan á
lofti. Fyrir nokkrum dögum
varð hins vegar sú breyting á að
Jóhanna fór að keppa við
höfrungana um að ná fisknum,
og tekur nú mikinn sprett I
hvert sann, sem fiski er kastað
út I laugina. Þá er hún að byrja
að lyfta sér upp úr vatninu.
Þetta getur ekki gengið betur,
en þegar Jóhanna verður kom-
in I fulla þjálfun og fer að sýna
listir sínar, á ég von á að hún
þurfi 40—50 kíló af fiski á dag,
sagði Padley.
SÆMILEG veiði var hjá
reknetabátum í fyrrinótt
og einnig hringnótabátun-
um, og eiga hringnótabátar
nú ekki eftir að veiða
meira en 1500 lestir, en 12
bátar hafa ekki enn lokið
veiðum.
Á laugardagskvöld mun hafa
verið búið að salta I 81 þús. lestir
af suður- og suðausturlandssíld
eftir þvl sem Morgunblaðið kemst
næst. Mest hefur verið saltað á
Höfn I Hornafirði, 17000 tunnur.
Reknetabátar frá Höfn fengu
allsæmilegan afla I fyrrinótt eða
alls um 1300 tunnur. Hvanney og
Sigurður Ölafsson voru með mest-
an afla, 170—180 tunnur, Stein-
unn SF var með 100 tunnur, Æsk-
Ávísanamálið:
Bönkunum
send ný bréf
HRAFN Bragason, umboðsdóm-
ari f ávfsanamálinu, veitti Mbl.
þær upplýsingar í gær, að hann
hefði nú þegar skrifað Lands-
bankanum bréf og óskað eftir
frekari upplýsingum um yfir-
dráttarheimildir, sem bankann
hefur veitt viðskiptavinum sfn-
um.
Þá er hann að undirbúa bréf til
Utvegsbankans og Búnaðarbank-
ans sama efnis. Eins og fram hef-
ur komið I fréttum, höfðu um-
ræddir bankar svarað fyrri bréf-
um Hrafns, þar sem óskað var
eftir upplýsingum um þessi atriði,
en Hrafn taldi svörin ófull-
nægjandi.
an SI var með 100 tunnur og
Haukafell SF með 100 tunnur.
Aðrir bátar með 50—100 tunnur.
Yfir-
lýsing
STARFSMENN f prentsal
Morgunblaðsins hafa óskað
eftir birtingu á svohljóðandi
yfirlýsingu:
Reykjavfk 10. nóv. 1976
Vegna þeirra skrifa sem átt
hafa sér stað um upplag
Morgunblaðsins, I tveim dag-
blöðum, Alþýðublaðinu fyrir
nokkru og Þjóðviljanum I dag,
viljum við undirritaðir starfs-
menn Morgunblaðsins I prent-
sal taka fram eftirfarandi.
Þar sem af þessum skrifum
má draga þá ályktun, að ein-
hver okkar hafi gefið nefndum
blöðum upplýsingar um upp-
lag Morgunblaðsins lýsum við
því hér með yfir, að blaða-
menn frá þessum blöðum hafa
aldrei rætt við okkur eða spurt
okkur um upplag Morgun-
blaðsins, þessar upplýsingar
eru þvl ekki frá okkur komnar,
enda rangar.
Virðingarfyllst:
Ragnar Magnússon
Viðar Janusson
Þórir Svansson
Örn Hallsteinsson
Ársæll Ellertsson
Sveinn Óskarsson
Arnþór Stefánsson.