Morgunblaðið - 11.11.1976, Qupperneq 18
18
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 11. NÓVEMBER 1976
Orkumál á Alþingi;
Sveitarfélögeigi hita-
rétt að varmaveitum
Háhitafrumvarpið flutt í sjötta sinn
Frumvarp f lutt
í sjöttasinn
Magnús Kjartansson (Abl)
mælti I gær (í neðri deild) fyrir
frumvarpi til breytinga á orkulög-
um, sem hann flytur (í 6. sinn)
ásamt fleiri þingmönnum stjórn-
arandstöðuflokka. Hann sagðist
sannfærður um að þetta frum-
varp nyta meirihlutafylgis, bæði
þjóðar og þings. Engu að síður
hefði tekizt fimm sinnum að
svæfa málið; koma í veg fyrir að
þingmenn fengju að taka afstöðu
til fumvarpsins í atkvæða-
greiðslu. Hann sagði að hitarétt-
indi á háhitasvæðum, eins og
frumvarpið tilgreindi þau, væru
sama eðlis og andrúmsloft og
sólarljós, frá almennu sjónarmiði
séð. Slík réttindi væru þjóðar-
eign, sem ættu að vera f höndum
ríkisvaldsins en ekki einstakl-
inga.
Magnús deildi harkalega á þá,
sem hann kallaði „olíufursta" á
Suðurnesjum, sem tekizt hefði að
kría út fjármuni út á hitarétt í
iðrum jarðar. Það fordæmi ætti
eftir að skapa framtíðar erfið-
leika. Hann deildi á ótilgreindan
þingmann, sem ætti hitaréttindi á
Suðurnesjum, og hygðist hafa
fjárhagslegan ábata af. Hann
deildi á núverandi orkuráðherra
fyrir að bregða fæti fyrir fram-
gang frumvarpsins, sem og iðn-
aðarnefnd deildarinnar, sem
svæft hefði málið, einkum for-
Kjartansson.
maður hennar, Ingólfur Jónsson.
Hann tíndi og til ýmis fleiri mál,
sem hann taldi iðnaðarráðherra
hafa lagzt á. Þá hirti hann
Morgunblaðið, sem væri það blað-
ið, sem sízt vildi hafa sannleikann
á síðum sínum, enda hefði blaðið
sagt að þetta mál hefði famm sinn-
um verið fellt, þegar málið hefði
verið svæft. Hugsunarháttur
landeigenda væri i þessu efni ljót-
ur og óþjóðhollur. Ræðumaður
hvatti forseta deildarinnar til sjá
nú til þess að iðnaðarnefnd
gegndi þeirri skyldu sinni að skila
málinu af sér hið fyrsta til af-
greiðslu deildarinnar.
Alþingi í gær:
Vegalög og dvalar-
heimili aldraðra
Halldór E. Sigurðsson, sam-
gönguráðherra, mælti fyrir
stjórnarfrumvarpi að vegalögn-
um i efri deild Alþingis i gær.
Sjá frétt um efnisatriði frum-
varpsins á bls 3 I Morgunblað-
inu í fyrradag. Nokkrar umræð-
ur urðu um málið.
I neðri deild var frumvarpi
Karvels Pálmasonar um skóla-
kostnað (rfkishluta í byggingu
sundlauga) vísað til nefndar og
annarrar umræðu.
Þá mælti Benedikt Gröndal
(A) fyrir frumvarpi uum stofn-
kostnað byggingarheimila fyrir
aldraða. Frumvarpið gerir ráð
fyrir því að rikið standi undir
1/3 slíks stofnkostnaðar, eins
og var fyrir þá breytingu í verk-
efnaskiptingu ríkis og sveitar-
félaga, sem gerð var 1975, er
þessi verkþáttur var færður all-
ur yfir á sveitarfélögin. Bene-
dikt benti m.a. á að slik dvalar-
heimili væru byggð í Reykjavík
og Hafnarfirði fyrir happ-
drættisfé, sem önnur sveitar-
félög ættu ekki kost á að fá,
a.m.k. enn sem komið væri.
Minni sveitarfélög ættu þess
ekki kost að veita þessa þjón-
ustu vegna fjárskorts, þann
veg, að aldraðir úti á lands-
byggðinni neyddust til að leita
dvalar fjarri heimabyggðum.
Þar við bættist að sveitarfélög
hefðu ráðizt i byggingarfram-
kvæmdir meðan fyrri lög giltu
og í trausti þar til greindrar
ríkisþátttöku, en sætu nú uppi
með framkvæmdir, sem þeim
væri um megn að Ijúka.
Þá var rætt um orkumál og
eru þær umræður raktar hér á
þingsiðunni.
) Iðnaðarnefnd
sammála um
að bíða nýs
frumvarps
Ingólfur Jónsson (S) sagði vít-
ur Magnúsar á iðnaðarnefnd
ómaklegar. I hatteðfyrra hefði
nefndin fengið umsagnir Stéttar-
félags bænda, Búnaðarfélag Is-
lands og Búnaðarþings, sem allar
hefði falið I sér, að breytingar
þyrfti að gera á frumvarpinu. Á
síðasta þingi hefði iðnaðarnefnd
orðið sammála um, án sérsjónar-
miða fulltrúa einstakra flokka, að
rétt væri að bfða nýs frumvarps
um þetta efni, sem núverandi iðn-
aðarráðherra hefði boðað, að væri
1 vinnslu, og búast mætti við, að
fram kæmi á þessu þingi. Eðlilegt
væri að undirbúningur slíks
frumvarps tæki nokkurn tfma,
enda snerti það eignarrétt, sem
verndaður væri i stjórnarskrá lýð-
veldisins.
Ingólfur sagði að gild-
andi lög gerðu kleift að taka
eignarnámi landsvæði, sem sam-
félagslegir hagsmunir réttlættu
að tekið yrði til virkjunar. Engu
að síður væri hann sammála því
að setja þyrfti ítarlegri lög um
þetta efni. Hins vegar mætti ef-
laust betur að standa en ráðgert
væri f frumvarpi Magnúsar, enda
nú unnið að frumvarpsgerð í mál-
inu.
Ingólfur mótmælti öllum að-
dróttunum f garð iðnaðarnefndar
deildarinnar, sem hefði afgreitt
öll mál frá sér, utan þetta eina, og
til þess lægju fullgildar ástæður.
) Einfaltmál,
sem ljóst
liggur fyrir
nipinci niÞinci
imnci niÞinci
| Bezt að sveitar-
félögin þurfi
ekkert undir
rfkið að sækja
Ólafur G. Einarsson (S) sagði
það einkennilega valinn tfma hjá
Magnúsi Kjartanssyni að hefja
árásir á iðnaðarráðherra að hon-
um fjarstöddum. Umrætt frum-
varp hefði upphaflega verið flutt
gegn eigendum Svartsengis. Nú
hefði hins vegar náðst farsælir
samningar um hitaveitumál
Suðurnesja. Verð fyrir hitarétt-
indi og tilheyrandi land hefði ver-
ið byggt á sanngjörnu mati. Hér
væri um að ræða 100 hektara
lands, sem viðkomandi sveitar-
félög hefðu keypt á 87 krónur
fermetrann, með hitaréttindum
inniföldum. Það væri allur ógnar-
gróðinn. Hann spurði, hvort land
fengist annars staðar á sambæri-
legu verði, jafnvel þótt engin
hitaréttindi væru innifalin.
Þá sagði Ólafur að landeigend-
ur hefðu boðið land sitt á mun
lægra verði í tíð M.Kj. sem ráð-
herra eða á 50 krónur hektarann.
Hver kom í veg fyrir að því boði
var tekið, sem tafði hitaveitu-
framkvæmdir á Suðurnesjum,
spurði hann.
Ólafur sagði að frumvarpið
gerði ekki ráð fyrir því, hvaða
verði sveitarfélög þyrftu að sækja
hitaréttindi I hendur rfkisvalds-
ins, ef öll hitaréttindi kæmust á
þess herðar. Heppilegast væri að
sveitarfélögin gætu keypt og átt
þessi hitaréttindi, eins og raunin
hefði á orðið á Suðurnesjum, og
þyrftu ekkert undir rfkisvaldið að
sækja. Ég þekki engin dæmi þess,
sagði hann, að sveitarfélög hafi
fengið verðmæti ókeypis úr hönd-
um ríkisvaldsins. Ég hygg að
Suðurnesjamenn séu ánægðir
með að öll hitaréttindi f Svarts-
engi eru nú óumdeilanlega í
þeirra höndum en ekki ríkisvalds-
ins, eins og verið hefði samkvæmt
þessu frumvarpi.
Ólafur sagði spurninguna um
eignarrétt borgaranna skipta
miklu máli í þessu sambandi.
Flutningsmenn þessa frumvarps,
sumir hverjir, litu á frumvarp
þetta sem spor að settu marki.
Hver yrði næsta yfirtaka á eignar-
rétti manna? Hvar á að setja
mörkin?
Ólafur sagði að það væri fært
fram sem rök í þessu máli, að
ríkið annaðist allar hitarannsókn-
ir. Um hitt væri þagað, til að villa
um fyrir mönnum, að til slíks
væri tekið tillit, er landréttindi
væru metin til verðs.
Ný þíngmál
Benedikt Gröndal (A) sagði að
hér væri um einfalt mál að ræða,
sem Ijóst lægi fyrir: hvort háhita-
svæði skyldu vera þjóðareign eða
gróðalind einstaklinga. Frum-
varpið gerði ekki ráð fyrir yfir-
töku rfkis á lághitaréttindum,
sem nægðu til búskapar bænda,
s.s. ylræktar, heldur háhita, sem
aðallega yrði nýttur tíl hitunar
heilla byggðarlaga. Að vfsu hefði
tekizt samkomulag á Suðurnesj-
um, sem tryggt hefði örfáum
mönnum miiljónatugi. Slfkt sam-
komulag hefði hins vegar ekki
tekizt í Borgarfirði. Hann benti á
ummæli Ólafs Jóhannessonar og
Bjarna heitins Benediktssonar
um háhitarétt, sem hann teldi
hliðholl meginatriðum frumvarps
þess, sem til umræðu væri.
Sjónvarp til
fiskimiða.
Karvel Palmason SFV) hefur
flutt frumvarp til laga þess efnis,
að ríkisstjórnin feli Ríkisútvarp-
inu að láta reisa endurvarpsstöð
fyrir sjónvarp á fjallinu Barða
milli önundarfjarðar og Dýra-
fjarðar, til að skapa móttökuskil-
yrði fyrir sjónvarp á fiskimiðum
úti af Vestfjörðum. Skal ríkis-
stjórninni heimilt, samkvæmt
frumvarpinu, að taka allt að 20
m.kr. lán til þessara fram-
kvæmda.
Endurhæfing felld
að heilsugæzlukerfi.
Magnús Kjartansson (Abl) flytur
eftirfarandi tillögu til þingsálykt-
unar um endurhæfingu.
Alþingi ályktar að skora á rfkis-
stjórnina að- breyta reglugerð um
Stjórnarráð tslands þannig að lið-
urinn C. 3. í 4. gr.: Félagsmála-
ráðuneyti: „Endurhæfingu,
læknisfræðilega og starfslegá,
vegna skertrar starfshæfni,
endurhæfingarstöðvar, styrktar-
sjóði vangefinna, fatlaðra og
blindra svo og erfðafjársjóð"
færist til 7. gr.: Heilbrigðis- og
tryggingamálaráðuneyti.
Jafnvel skorar Alþingi á heil-
brigðis- og tryggingamálaráð-
herra að stofna nefnd sem skipuð
sé sérfræðingum og fulltrúum
fatlaðra, til þess að vinna að laga-
breytingum og nýjum lögum er
felli endurhæfinguna að heilsu-
gæslu- og heilsuverndarkerfinu,
þó þannig að starfsgrundvöllur
áhugamannafélaga verði í engu
skertur.
Nefndinni skulu tryggðir fjár-
munir til þess að ráða sér starfs-
mann.
— Leiklist
Framhald af bls. 12
um taugakerfi fiska, sem þótti
frábært verk þess tíma.
Sú nýjung er f leikritinu
Vojtsek miðað við þann tíma sem
verkið verður til á, að Buchner
skopast að yfirstéttinni i alvöru
sinni, en Ieggur áherzlu á
manneskjur úr almúganum,
alþýðunni sem í verkum þess tfma
var fremur notuð til þess að kalla
fram hlátur hinnar grunnsigldu
yfirstéttar.
Sviðsetning Vojtseks i Þjóðleik-
húsinu er sérlega skemmtilega
unnin og sýnir mátt kunnáttu-
manna f leikhúsinu. Leikstjórinn
Rolf Hádrich með Gísla Alfreðs-
syni aðstoðarleikstjóra skilar
verki sínu feikn faglega og list-
rænt. 26 atriði leiksins renna
fram eins og kvikmynd og
tengingar atriða eru góðar.
Þó hygg ég að heilladrýgra
hefði verið að hafa skiptingarnar
á milli atriða á annan hátt, þ.e.
skipta meira með myrkvun á
sjálfu sviðinu í stað þess að draga
tjaldið svo oft fyrir sem raun bar
vitni, en þetta er að sjálfsögðu
smekksatriði. Það hefði þó stytt
talsvert sýningartímann og slfkt
hefði verið kostur við
flutninginn. I leikstjórn er
áherzla lögð á einfaldleika verks-
ins, sviðsmynd Sigurjóns
Jóhannssonar fellur vel þar að og
er mjög sterk, en búningar eru
fengnir að láni frá Þýzkalandi.
Stemmning verksins er
sterkasti þáttur þess og það
vinnur á i vangaveltunni, en þar
sem verið er að fá frumlega og
góða leikstjóra erlendis frá, hvers
vegna eru þá ekki valin stórbrotn-
ari verkefni þar sem hinir ágætu
leikarar fá betur notið sfn og
áhorfendur einnig, svo báðir
verði nokkurs vísari?
Svo mörg eru Ieikhúsverkin
sem búa yfir meiru en því að vera
einungis vel flutt.
— Aðgát skal
höfð...
Framhald af bls. 13.
það sé ekki f lagi. Ég þarf að fá að
stinga sprautu í handlegginn á
þér og taka dálitið blóð til að
skoða. Það verður svolítið sárt en
tekur enga stund.
En þótt Sigrúnu lítist ekki á
þetta og lfti kvíðin til mömmu
sinnar, sem hvetur hana til að
vera duglega, réttir hún fram
handlegginn og allt gengur vel.
Ég þekki nokkra meinatækna
og allar eru þær stúlkur liprari á
fslenskt mál en þessi hefur verið.
Sigrún fær að heyra það hjá
læknum og hjúkrunarliði öllu að
hún sé dugleg stúlka. Það hefði
ekki verið ofrausn að eitthvert
þeirra hefði lfka sagt að hún væri
afbragðs skýr og þroskuð lítil
stúlka, sem hefði hæfileika til að
taka breyttum aðstæðum og reyn-
slu með ró og skynsemi. Slík börn
eru ekki á hverju strái.
A þessum 23 blaðsíðum bókar-
innar koma þrisvar fyrir
setningar sem ég staldraði við af
því að mér féllu þær ekki.
Bls. 10 Mamma setur hitamæli í
rassinn á henni....
Bls 17 Hjúkrunarkona: Góðan
daginn Sigrún mín. Þú veist að þú
færð engar morgunmat í dag. Ég
ætla að sprauta þig í rassinn..
Bls. 19 Hjúkrunarkonan tekur
sprautu sem liggur á bakka og
sprautar Sigrúnu f rassinn.
Það getur verið að sögnin að
mæla einhvern ef hann er lasinn
sé löngu úr sögunni á sumum
heimilum. En ég er ekki vass um
að hjúkrunarkonur tjái sig eins
og hér er dæmi um ef þær ætla að
gefa barni sprautu.
Sagan er vel skrifuð og undir-
tónn hennar er hlýr.
Hún er lfka skemmtileg fyrir
það að sýna okkur mynd af þessu
gáfaða barni. En spennandi er
hún ekki að mfnu mati.
Ekki er ég viss um að hún geri
öllum börnum auðveldara fyrir að
mæta þeirri reynslu sem sjúkra-
húsvist er.
Og eftir lestur bókarinnar get
ég ekki séð á hvern hátt hún er
skrifuð í samráði við Landakots-
spítala.
Myndir eru skemmtilegar og
frágangur bókarinnar ágætur.