Morgunblaðið - 11.11.1976, Side 27

Morgunblaðið - 11.11.1976, Side 27
MORGUNBLÁÐIÐ, FIMMTUDAGUR 11. NÖVEMBER 1976 27 Elliðaárdalurinn i nágrenni Breiðholts verður friðað útivistarsvæði, en yfir hann verður þó lögð tengibraut, Höfðabakki, sem tengir hverfin Árbæjarhverfi. Það er þó ekki á áætlun næsta árs og tímasetning verksins óákveðin. frjálsu félögum og sé hlutverk æslulýðsráðs að ná til þeirra. Þó það takist vafalaust misjafnlega, þá sé enginn vafi á því að réttlátt sé að verja einhverju fé til þess. Borgin byggi félagsmiðstöðvar þannig að frjálsu félögin geti fengið inni fyrir sfna starfsemi, þvf húsnæðismálin séu oft erfið- ust. Þannig að ekki væru felldar niður eða dregið úr f járveitingum til þeirra. Sigrún Indriðadóttir spurði um dagheimili í Fellum og Hólum, og svaraði borgarstjóri því aftur. Áslaug F. Jónsdóttir spurði hvenær vænta mætti þess að gengið yrði frá gangstétt f Arnar- bakka, nánar til tekið Bakkaborg og upp eftir í átt að Breiðholts- kjöri. Borgarstjóri sagði að ætlun- in hefði verið að ganga frá stéttar- gerð innan Breiðholts I á þessu ári, en orðið hefði að fresta fram- kvæmdum. En því yrði lokið á næsta sumri. Dagheimilisbygging að hefjast og samningar um skóladagheimili ásamt 4 öðrum þjónustufyrirtækj- um, kvartaði undan skorti á lög- gæzlu í hverfinu. Unglingar hefðu brotið hverja einustu rúðu í aðalinngangi þessarar verzlunarmiðstöðvar, sumar meira að segja 4—5 sinnum. M.a. hefði á föstudagskvöldi verið brotnar rúður fyrir á 3. hundrað þúsund krónur. Aðeins tveir lögreglumenn séu á vakt í þessu hverfi, þar sem Akureyri með færri íbúa, eða 11000, hefði 4 og upp í 9 lögregluþjóna á vakt. Unglingar á vélhjólum væru á gangbrautum nánast allan sólar- hringinn og minnti Helgi á slys, sem varð af þeim sökum fyrir ári. Kvað hann suma í verzlunar- húsinu vera farna að gera þvi skóna að múra upp í glugga og kveðja hverfið. Baldur Gfslason spurði hvort borgarráð hefði tekið ákvörðun um gangbrautina við Suðurhóla. Hún sé hættuleg yfirferðar nú. Einnig hver beri ábyrgð á skipu- lagsmistökum, svo sem þeim sem orðið höfðu við byggingu raðhús- anna, sem standa alveg við Vesturbergið að austan og mynda 6 blindhorn við þessa götu. Sigfried Ólafsson spurði hvort möguleikar væri á fleiri göngu- stígum milli hverfa, svo sem Breiðholts III og Breiðholts I. Einnig hvort búið sé að tímasetja næsta áfanga í byggingu Hóla- brekkuskóla. Hilda Björk Jónsdóttir spurði hvort íþróttafélögin og æskulýðs- ráð gætu ekki fengið fjármagn borgarinnar, þ.e. 60 millj., og skipt þvl svo á milli sfn og haft gott samstarf. Borgarstjóri kvaðst sérstaklega hafa beðið um skýrslu um áfengisneyslu f Fellahelli frá starfsmönnum þar, sem fullyrði að þar innan dyra sé engin áfengisneysla við starfsemi æsku- lýðsráðs. Ekki vilji þeir að vfsu þvertaka fyrir að gestir geti kom- ið inn í húsið undir áhrifum áfengis. Ekki fullyrði þeir heldur hvernig er þegar aðrir hafi hús- næði á leigu, eins og stundum er, þar sem starfslið hefur þá ekki eftirlit, en þeir telja drykkjuskap mjög ólíklegan. Benti borgar- stjóri á að þarna gæti gerst það, sem sums staðar annars staðar gerist, að unglingar sem ekki komast inn vegna þess að þeir eru drukknir, haldi sig á næstu grös- um og óreglan tengist staðnum að þvf leyti. Sagðist hann telja starf- semina þarna mjög þýðingar- mikla og mikilvæga og reynt hefði verið að koma upp sem flestum slíkum félagsmiðstöðvum sem víðast í borginni. Þá vék borgarstjóri að löggæslu í Breiðholtum og sagði að borgar- stjórn hefði engin afskipti af lög- gæslumálunum í borginni, að öðru leyti en þvf, að auðvitað væri reynt að halda góðu samstarfi við lögreglustjóra og lögreglu. Ríkið taki allar ákvarðanir um lög- gæsluna. Borgarstjóri kvaðst vita að lögreglustjóri hefði barist fyrir þvi f nokkur ár að fá að byggja lögreglustöð í Breiðholti. Á árun- um 1974—76 hefðu verið áætlað- ar til þess samtals 9 millj. kr. og f fjárlögum 1977 hefði verið óskað eftir 25 millj, en verið lækkað niður f 15 millj. í fjárlagafrum- varpinu, eins og það liggur fyrir nú. Þvf lægju nú fyrir 24 millj. til að byggja lögreglustöð í Breið- holti. Hefði verið gert ráð fyrir lögreglustöð í Mjóddinni. En til að reka slíka lögreglustöð, þyrfti að mati lögreglustjóra 20 lögregluþjóna til viðbótar við lögreglulið borgarinnar, og eina lögreglubifreið f viðbót. Þetta sé háó fjárveitingavaldinu, hvort Al- þingi samþykki á fjárlögum næsta árs nægilega miklar fjár- veitingar. Páll Gfslason spurði um gang- braut við Suðurhóla. Kvaðst borgarstjóri telja að hér væri átt við ósk framfarafélagsins f Breið- holti II um að svipaðar aðgerðir verði við Suðurhóla eins og við Norðurfellið, á móts við Fella- skóla, en þar er gatan þrengd og hækkuð upp á 15 m kafla til að knýja bíla til að hægja ferðina. Því aðeans einn bíll komist yfir f einu. Sagði borgarstjóri þetta áreiðanlega mikið öryggi fyrir börnin á leið í skólann, þvf öku- menn dragi verulega úr ferð þarna, virði gangbrautarréttinn betur og það hafi raunar ekki valdið teljandi erfiðleikum fyrir almenna umferð. Nú lægi fyrir jákvæð umsögn umferðarnefndar um að þetta verði einnig gert við Suðurhóla. Að vísu sé óvfst að það verði hægt héðan af í haust, en örugglega næsta sumar. Raf- magnsveitan er að setja upp sér- stakan ljósabúnað við þessa gang- braut við Suðurhóla og kvaðst borgarstjóri vona að ástandið lag- ist við það. Um hver bæri ábyrgð á skipu- lagsmistökum eins og þeim er orð- ið hefðu við raðhúsin við Vestur- berg, kvaðst borgarstjóri fúslega viðurkenna að þegar slíkt væri komið útfært í landinu búið að byggja þá hefði hann kosið að raðhúsin stæðu lengra frá göt- unni. En ábyrgð á skipulagi borgarinnar bæru borgarráð og borgarstjórn, sem endanlega sam- þykkja skipulagið. Að vísu væru sérstaklega fengnir arkitektar og skipulagsstofur úti f bæ, sem leggja fram sínar tillögur eða val- kosti, en borgarráð og borgar- stjórn tækju endanlega ákvörðun og samþykktu tillögurnar. Átak í göngustfgamálum Sigfried Ólafsson spurði um fleiri göngustíga milli hverfa. Erna Jóhannsdóttir spurði um göngubraut úr Seljahverfi í Fella- hverfi og Jóhanna Geirsdóttir spurði hvenær væri von á göngu- stíg úr efra Breiðholti f neðra Breiðholt. Borgarstjóri sagði, að skv. skipulagi um göngustíga og leiðir milli hverfa væri áætlað að geng- ið yrði um undirgöng í Reykjanes- brautinni milli Breiðholti II og Breiðholts III. Það ætti langt f land, enda um dýrt mannvirki að ræða. Þangað til yrði að reyna að bæta aðstöðuna til göngu við brautina. Reiknað væri með að gera mikið átak f göngustígamál- um, sem raunar hefði verið gert í Breiðholti III á þessu ári. Og haldið yrði áfram að vinna að gerð göngustígs. Greiðari göngu- leiðir væru nauðsynlegar milli hverfa og kvaðst borgarstjóri von- ast til að þess verði ekki langt að bíða að það geti orðið. Um tímasetningu á næsta áfanga Hólabrekkuskóla sagða borgarstjóri, að búið væri að grafa grunn annars áfanga skól- ans, en ekki alveg fullráðið hvort botnplata og sökklar verði steypt- ir strax eða beðið eftir heildarút- boði á skólanum í heild, sem er á næsta leiti. Gæti reynzt nauðsyn- legt að steypa botnplötuna, til að grunnurinn skemmdist ekki. Fjárhagsáætlun í vetur réði því hvort skólinn yrði byggður það hratt, að einhver hluti hans verði tekinn í notkun næsta haust. Ef hann yrði byggður á tveimur ár- um, væri nauðsynlegt að setja nið- ur færanlegar kennslustofur í Hólabrekkuskóla á næsta hausti og væntanlega þá flytja stofurn- ar, sem eru í ölduselsskóla yfir í Hólabrekkuskóla. Þá vék borgarstjóri að hlutfall- inu milli starfsemi æskulýðsráðs og fþróttafélaganna og frjálsu félaganna, sem hann sagði mikið til umræðu. Auðvitað hlyti borgarstjórn að leggja megináherzlu á starfsemi hinna frjálsu félaga í borginni og reyna að styðja við bakið á þeim einnig. Hins^ vegar sé það mat þeirra manna, sem starfa í æskulýðsráði að ávallt sé einhver hluti barna og unglinga, sem ekki sé í hinum Ulfar Sveinbjörnsson spurði hvort kvöð væri um ákveðinn þak- lit í Seljahverfi. Borgarsljóri sagði, að við skipulag á nýju hverfanna hefði ákvæði verið um að þaklit skuli velja í samráði við byggingarfulltrúa, sem geri það f reynd í samráði við skipulags- höfunda viðkomandi hverfis. Hefði verið reynt að halda sig við það og sú ákvörðun í fullu gildi. Hins vegar gerðu menn sér grein fyrir þvf að á seinni stigum, þegar þyrfti að fara að mála þök í annað og þriðja sinn, þá sé erfitt fyrir borgina að halda sig við þessi ákvæði. Nú er þetta semsagt í gildi, en borgarstjóri kvaðst sfður reikna með að borgin treysti sér til að halda því til eilífðar. Gróðurbelti og hljóðmúr Hervin H. Guðmundsson spurði, hvenær verði lokið fram- kvæmdum milli Breiðholtsbraut- ar og Miðskóga. Borgarstjóri kvað Hervin lfklega eiga við bæði hljóðvegginn, sem hugsaður er þarna á milli og svæðið þar fyrir neðan, þar sem á að koma trjá- gróður í gróðurbelti. Kvaðst borgarstjóri ekki þora að fullyrða á þessu stigi hvenær þessu verði lokið. I sumar hefðu verið allmikl- ar ræktunarframkvæmdir neðar við Reykjanesbrautina, sem ekki tókst að ljúka vegna votviðris. Þetta yrði líklega framkvæmt á næstu tveimur árum. Þá væri spurt hvenær lagðir verði gang- stigar f Seljahverfi, sér í lagi í Miðskóga og Ljárskóga. Sagði borgarstjóri að á næsta sumri væri ráðgert að gera mikið átak i Seljahverfi, sérstaklega við þá gangstíga, sem tengja saman hluta hverfanna, þannig að til dæmis eigi að vera greið göngu- leið hér úr Seljahverfi yfir í öldu- selsskóla, að þeim framkvæmdum loknum. Þá spurði sami hvenær yrði úthlutað byggingalóðum i Reykjavík. Borgarstjóri sagði að innan núgildandi aðalskipulags yrði úthlutað fyrst og fremst f Seljahverfi, I Breiðholti III og á Eiðsgrandanum í Vesturbænum. Og reyndar nokkrum íbúðum í Mjóddinni og nýja miðbænum. Sigurður Hauksson spurði hvenær vegatengingin milli Efra- og Neðra Breiðholts yrði tekin i notkun. Og borgarstjóri kvað það verða mjög fljótlega. Verið væri að leggja sfðustu hönd á verkið. Jóhann Helgason spurði hverj- um beri að merkja blokkir með- fram götum. Borgarstjöri sagði, að væri átt við húsanúmer og götuheiti, þá hefði borgin tekið það að sér, þannig að ef einhverju væri ábótavant f þeim efnum, muni hann fúslega koma því áleiðis til byggingarfulltrúa, sem hafi umsjón með því verki. Mikið var spurt um gerð göngustiga milli hverfa og t hverfum i Breiðholti. Sagði borgarstjóri að reiknað væri með miklu átaki við gerð göngustiga í.Breiðholtum og hefði það raunar verið gert á sl. 'ri í Breiðholti III. Reiknaði hann með að göngustigum borgarinnar yrði lokið i Breiðholti I á næsta ári.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.