Morgunblaðið - 11.11.1976, Page 31
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 11. NÖVEMBER 1976
31
Óslóarsamkomulagið:
Árétting íslenzks sigurs
Gils segir stjórnarflokkana undir-
búa frekari samninga vid EBE-þjódir
Jóhann Hafstein (S) hafði
framsögu fyrir meirihluta utan-
ríkismálanefndar I sameinuðu
þingi í fyrradag, sem mælti með
samþykkt þingsályktunar til
staðfestingar á svokölluðu Óslóar-
samkomulagi. Er ræða hans birt f
heild f Morgunblaðinu f dag.
Natotryggðin ræður ferð.
Gils Guðmundsson (Alb.)
mælti gegn tillögunni. Hann
gagnrýndi að hún skyldi fyrst
fram borin nú, þegar Óslóarsam-
komulagið væri senn á enda runn-
ið. Slíkt væri vítaverð málsmeð-
ferð, sem jaðraði við stjórnar-
skrárbrot. Samningar við Breta
hefðu verið óþarfir, þar sem upp-
gjöf þeirra hefði verið í augsýn í
hæsta lagi innan nokkurra
mánaða, þegar Óslóarsamkomu-
lagið var gert. Gils sagði fram-
ferði Natoflota Breta hafa opnað
augu Islendinga fyrir fánýti Nato-
aðildar, sem væri „hrikaleg póli-
tísk blekking". Þar af leiddi að
Óslóarsamkomulag þótti óhjá-
kvæmilegt í augum Natosinna til
að eyða tortryggni vaxandi fjölda
Islendinga f þess garð. Sjálf-
stæðisflokkurinn hefur raunar
alltaf tekið Natohagsmuni fram-
yfir þjóðarhagsmuni — og Fram-
sóknarflokkurinn hefur naumast
lengur sjálfstæða afstöðu á þeim
vettvangi.
Ósióarsamkomulagið hefur sfna
kosti, sagði Gils. Höfuðkosturinn
er sá, að það tókst að tryggja frið
á miðunum. Það var óneitanlega
mikils virði. Með því að fá Breta
til að lúta íslenzkum reglum um
veiðarfæri og friðuð svæði, tókst
að minnka verulega sókn þeirra f
smáfiskinn. Það, sem stjórnar-
sinnar telja höfuðkost samkomu-
lagsins, meinta formlega viður-
kenningu á 200 mílunum, tel ég
minna virði. I fyrsta lagi er aðeins
um óformlega viðurkenningu að
ræða. I annan stað er nú sýnt, að
Bretar telja sag eiga kröfu til
nýrra eða framhaldssamninga.
Það sem skiptir þó mestu máli
0000
EIGENDUR^
S Volkswagen-, Golf-, Passat- og Audi
Látið smyrja bílinn reglulega.
SMURSTÖÐIN ER OPIN
frá kl. 8 f.h. til kl. 6 e.h.
HEKLA hf.
Laugavegi 1 70—1 72 — Sími 21240
var, að brezkur ósigur var í
seilingarfjarlægð, þegar Oslóar-
samkomulagið var gert, og undir-
búningur þeirra og EBE-rfkja á
eigin útfærslu í 200 milur að fara
af stað. Þar var spurningin um
vikur og f hæsta lagi mánuði. Það
rak þvi ekkert eftir Óslóarsam-
komulagi.
Gils sagði stjórnarliða leita með
logandi ljósi eftir einhvers konar
átyllu til að gera framhalds-
samninga, sennilega við EBE.
Hvort tveggja væri þó staðreynd,
að við hefðum ekkert að bjóða,
eins og ástand fiskistofna væri, og
EBE ríki ættu engan gagn-
kvæman rétt, sem marktækur
væri. Sfldarstofninn væra að
ganga til þurrðar í Norðursjó,
nema veiðibann kæmi þar til, og
ördeyða væri á þorskmiðum við
Grænland. Hér þyrfti sterkur
þjóðarvilji að setja stjórninni
stólinn fyrir dyrnar.
Fullnaðarsigur með
Óslóarsamkomulagi.
Einar Ágústsson, utanrfkisráð-
Gils
Guðmundsson.
Einar
Ágústsson.
herra, sagði þetta mál svo marg-
rætt af sinni hálfu og annarra, að
þar þyrfti f raun litlu við að bæta.
Fullnaðarsigur hefði unnizt i
landhelgisbaráttu okkar með
Öslóarsamkomulaginu, enda
viðurkenndi Gils, að þorska-
stríðinu hefði þá lokið, sem og
ýmsa kosti samkomulagsins.
Friður á miðunum hefði verið
Framhald á bls. 25
Geðdeild Landspítala:
Málefni vangefiima og fjölfatlaðra
Ragnhildur Helgadóttir (S)
hefur borið fram fyrirspurnir
til heilbrigðisráðherra um
málefni geðdeildar Landspftala
og málefni vangefinna og fjöl-
fatlaðra. Fyrirspurnirnar eru
svohljóðanda:
A) Hvað líður framkvæmd
þingsályktunar frá 16. mai 1975
um hjálparstofnanir vegna van-
géfinna, sem dveljast í heima-
húsum, og aukningu hjúkr-
unarrýma)
B) 1. Hvað liður byggingu geð-
deildar Landspítalans?
2. Hve mörg sjúkrarúm fyrir
geðsjúka skortir og hvenær
verður hægt að taka sjúkrarúm
væntanlegrar geðdeildar i notk-
un?
3. Hvenær áætlar rfkisstjórnin
að geðdeildarbyggingunni
verði lokið?
V ölundar-hur ðlr
Valin efni — Vönduð smíð
&
Gulláltmur
W
Eitt mesta úrval landsins af fallegum innihurðum í mörgum
gerðum. Stuttur afgreiðslufrestur og góðir greiðsluskilmálar.
ALLRA SÍÐUSTU FORVÖÐ AÐ PANTA HURÐIR FYRIR JÓL.
Komið og skoðið í sýningarsal
okkar, Skeifunni 19
^ TIMBURVERZLUNIN VðLUNDUR hf.
Skeifunni 19.
Úrvalið er hjá okkur
f ÍUSVI.3 SkEIFAt/
15
SKE/FAV!5
MlKLA/lR*ur
HUSGAGNAVERZLUN
GUÐMUNOAR GUÐMUNDSSONAR
HAGKAUPSHÚSINU Sími 82898