Morgunblaðið - 11.11.1976, Page 33

Morgunblaðið - 11.11.1976, Page 33
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 11. NÓVEMBER 1976 33 fclk í fréttum Nýjasta nýtt frá París Simca 1100 LX + Hann náði þvf ekki að komast á biöð sögunnar hann Helge Nielsen I Gislev á Fjóni, sem sést hér æfa af kappi áður en hann ieggur til atlögu við heimsmetið f stultu- gangi. Heimsmetið setti Frakki nokkur árið 1894 og gekk hann samtals 349 km. Frakkinn setti metið á afftiarkaðri braut þar sem hann gekk hvern hringinn á fætur öðrum en Helge ætlaði að slá metið á sjálfum þjóðvegunum. Helge gekk f 10 daga og komst rúma 200 kilómetra en þá spilltist veður með hvössum sunnan vindi svo að hann varð að hætta við svo búið. + Claude Bell, áttræður öldungur frá Kalifornfu, hefut nú lokið við að reisa sér þann bautastein sem hann ætlar að lengi muni standa. I 12 ár hef- ur Claude unnið að smfði fornaldareðtu og varið til hennar um 90 milljónum króna. Skepnan er úr járnbentri steinsteypu og um það bil þrisvar sinnum stærri en fyrir- myndin var í lifanda lífi. Ekki fylgir það fréttinni hvað fyrir Claude hefur vakað með þessu handa- verki sínu. Blómaföndur Lærið að meðhöndla blómin og skreyta með þeim. Lærið ræktun stofublóma. Innritun í síma 42303, eftir kl. 1 9. + Maria Zuchowska heitir tfzkuteiknari og fatahönn- uður f Englandi sem þykir vera mjög efniieg og ætiar sér enda stóra hluti f framtíðinni. Hér á þessari mynd ktæðist Maria örfitfu sýnishorni af framteiðslu sinni, reyndar aðeins örtitlu þvf að Maria vill ekki fara of geyst af stað; telur að sígandi lukka sé bezt. * + Það þykir tfðindum sæta ef pardusdýr og hlébarði fella hugi saman og geta af sér afkvæmi en þó gerðist það fyrir nokkru f Chester- dýragarðinum f Englandi. Ávöxturinn varð svo þessir tveir kettlingar og þeir heita náttúrutega „Bletta“ og „Surtur“. (hrokkin) jersey efni einiit og röndótt. Sérstaklega falleg í fínni kjó/a fyrir ungar konur. ógue*™ Wökull hf. X ÁRMÚLA 36.REYKJAVÍK Nýjasta nýtt frá París SIMCA 1100 LX Þetta er nýjasta gerðin af hinum vinsælu Simca 1100 bílum frá Chrysler France. Allur frágangur er samkvæmt nýjustu frönsku tískunni. Simca 1100 GLS og Simca 1100 LE til afgreiðslu strax. Hafið samband við okkur. Sími 84366 - 84491 + Kafaranum Richard Price fannst sem dagar sfnir væru taldir fyrir nokkru þegar þessi 15 metra langi hákarl synti að honum með ginið upp á gátt. Þetta gerðist I sjónum við Hjaltland þar sem Price var að huga að gömlu skipsflaki. Price til mikils léttis lét hákarlinn hann alveg afskiptalausan enda er hann með öllu tannlaus og lifir eingöngu á svifi og öðrum smádýrum þó að ekki sé hann árennilegur álitum.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.