Morgunblaðið - 11.11.1976, Side 38

Morgunblaðið - 11.11.1976, Side 38
38 MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 11. NÖVEMBER 1976 LIVERPOOL BURSTAÐI LEICESTER 5-1 ISLENDINGAR hafa til þessa ekki sótt gull f greipar Austur-Þjóðverja ð handknattleikslandsleikjum, og róðurinn verður ugglaust erfiður f leikjunum f desember. Spurningin er hvort pólski landsliðsþjálfarinn kýs að nota þá tvo leikmenn sem hér sjást f baráttu f landsleik við Þjóðverjana, Ölaf H. Jónsson og Axel Axelsson, f fslenzka liðið, en þeir leika sem kunnugt er með þýzka liðinu Dankersen. LEICESTER — jafnteflis- liðið mikla í ensku I. deild- ar keppninni í knattspyrnu fékk slætnan skell í fyrra- kvöld er það fðr í heim- sókn til Liverpool á Anfield og mætti þar heimamönnum i 1. deildar keppninni. 5:1 fyrir Liver- pool urðu úrslit leiksins og John Toshack — skoraði fallegt mark f fyrrakvöld. Stjórn KSI hefur ákveðið að halda ráðstefnu fyrir 1. og 2. deildar félögin um málefni þess- ara deilda. Verður ráðstefna þessi haldin á Hótel Esju 13. nóvember n.k. og hefst kl. 13.30. Eftirtalin mál verða þar á dag- skrá: 1. Mótafyrirkomulag 1976 og 1977. 2. Landsliðsmál. Liverpool hefur nú gðða forystu í 1. deildar keppn- inni, er með 22 stig eftir 14 leiki. Leikur þessi átti að vera á laugardaginn, en vegna landsliðs- undirbúnings Englendinga verð- ur mikil röskun á leikjunum sem þá áttu ~að vera. Verða flestir þeirra færðir fram og fóru tveir þeirra fram í fyrrakvöld. Auk leiks Liverpool og Leicester áttust þá við Coventry og Queens Park Rangers og urðu úrslit f leik þeim þau, að Coventry sigraði 2:0. Leicester byrjaði leik sinn f fyrrakvöld vel gegn meisturunum og komst fljótlega f 1:0 með marki Franks Worthington. Sú dýrð stóð þó ekki lengi þar sem Steve High- way jafnaði skömmu seinna fyrir lið sitt og rétt fyrir leikhlé bætti John Tochack öðru marki við fyr- ir Liverpool. I seinni hálfieiknum náði Liverpool svo mjög góðum leik — lék gesti sína hreinlega sundur og saman og skoraði þrjú mörk. Þeir sem gerðu þau voru Phil Neal og Kevin Keegan úr vítaspyrnum og Joey Jones. I Coventry sóttu heimamenn mun meira f leik sfnum gegn Queens Park Rangers og upp- skáru tvö mörk. Barry Powell skoraði fyrra markið á 15. mfnútu og stóð þannig 1:0 fyrir Coventry unz örfáar mínútur voru til leiks- loka að Donald Murphy bætti öðru marki við. Þá fór fram einn leikur í 2. deild í fyrrakvöld og áttust þar við Bolton Wanders og Burnley. Lauk leiknum með sigri Bolton 2:1. I þriðju deildar keppninni áttust svo við tvö kunn lið f fyrra- kvöld: Sheffield Wed og Crystal Palace og lauk leiknum með sigri Sheffield-liðsins 1:0. 3. Unglingamál. 4. Dómaramál. 5. Aganefndarmál. 6. Tækninefndarmál. 7. Uppgjör og skýrslugerðir. 8. Kannanir á leikdögum og að- göngumiðaverði. 9. Samningar atvinnumanna. Stjórn KSI æskir þess að við- komandi félög sendi einn fulltrúa á ráðstefnuna. (Frétt frá KSI). Tveir leikir Þjóðverja í N(J hefur verið ákveðið að Islend- ingar leiki tvo landsleiki f hand- knattleik við Austur-Þjóðverja 10. og 11. desember n.k. og munu leikir þessir fara fram f Austur- Þýzkalandi. 1 sömu ferð munu Isiendingar einnig leika lands- leik við Dani f Kaupmannahöfn. Hins vegar er enn óvfst hvort Danir geta komið hingað í deseni- berbyrjun, eins og frá var skýrt f Morgunblaðinu á þriðjudaginn, en þau mál munu væntanlega skýrast á næstu dögum. Axel Sigurðsson, framkvæmda- stjóri Handknattleikssambands Islands, sagði í viðtali við Morgunblaðið í fyrrakvöld, að hann hefði þá fengið staðfestingu á því að Þjóðverjarnir væru til- búnir til þess að taka á móti íslenzka landsliðinu, en sem við Austur- desember kunnugt er hafði upphaflega verið gert ráð fyrir þvf að Islend- ingar tækju þátt í móti f Austur- Þýzkalandi í desember. einhverjum ástæðum tóku Þjóð- verjarnir Ungverja í stað Islend- inga inn i mót þetta, en buðust í þess stað að leika tvo landsleiki. Síðar var þeam leikjum aflýst en hafa nú verið settir á aftur, og er vonandi að það standi. Islenzka landsliðið mun halda frá Þýzkalandi til Danmerkur og leika við Dani í Brönbyhallen f Kaupmannahöfn 12. desember og sennilega við úrvalslið frá Sjá- landi 13. desember, þannig að liðið fær sennilega fjóra leiki í þessari keppnisferð sinni. Um áramótin er svo áformað að fslenzka landsliðið fari f keppnis- ferð til Berlínar og taki þar þátt f handknattleiksmóti, með m.a. lið- um frá Júgóslavíu. ÞOR S0TTI4 STIG SUÐUR KSÍ með ráðstefnu Skór úr góðmálmi EINS OG skýrt hefur verið frá f Morgunblaðinu var Liverpoo! valið „lið ársins 1975—1976“ af franska knattspyrnutfmaritinu France Football, og fékk félagið að launum mjög stóran og falleg- an verðlaunagrip. Meðfylgjandi mynd var tekin er verðlaun þessi voru afhent, en fyrirliði iiðsins, Emlyn Hughes, tók við þeim. Er hann lengst tii hægri á myndinni. Með honum eru markakóngur Evrópuknattspyrnunnar. Lengst til vinstri er Sotiris Kaiafas sem leikur með Kýpurliðinu Omonia, en hann hlaut fyrstu verðlaun — gullskóinn, þá er Carlos Bianchi sem leikur með Reims með silfur- skóinn og Peter Risi sem likur með Zurich sem hlaut bronsskó- inn. Verðlaun þau sem knatt- spyrnumennirnir halda á, þykja einhver þau eftirsóknarverðustu sem veitt eru knattspyrnúmönn- um. UM SlÐUSTU helgi voru leiknir nokkrir leikir f 2. deild og einn í þriðju deild í körfuknattleik. I annarri deild léku f Njarðvík UMFG og Þór frá Akureyri og lauk þeim leik með sigri Þórs, 79—70. Þórsarar léku svo einnig við Snæfell og lauk þeim leik einnig með sigri Þórs, 63—60, svo að segja má að Þór hafi gert góða ferð að þessu sinni og örugglega ætla þeir sér að endurheimta 1. deildarsæti sitt éftir nokkuð hlé. Hins vegar blæs ekki byrlega fyrir Snæfelli en það lið féll niður f aðra deild eftir síðasta keppnis- tímabil, þvf að auk þess sem liðið tapaði fyrir Þór með 3 stigum lék það við Laugvetninga og tapaði þá með einu stigi, 58—59, og er hætt við þvf að þeir verði áfram f annarri deild. Þá var leikinn einn leikur í þriðju deild, þar sigraði Ungmennafélagið Skallagrímur frá Borgarnesi eitt af nýju liðun- um í deildinni, Létti, með 67—49. HG. Finnska frjálsíþrótta- sambandið launar sitt fólk SJÖ frjálsfþróttamenn fá hæsta styrk finnska fþróttasambandsins f ár, en alls mun sambandið launa tæplega tuttugu manns á næsta keppnistfmabili. Eru launin mjög mismunandi og er farið eftir þvf hvaða árangri viðkomandi fþrótta- menn náðu á s.l. keppnistfmabili. Laun þau, sem finnska frjálsíþrótta- sambandið greiðir sínu fólki, eru nefnd æfingastyrkir, en allt það íþróttafólk, sem valið er til keppni á Ólympíuleik- um eða í landskeppni, fær að auki greiðslu fyrir vinnutap vegna æfinga og keppni, þannig að um er að ræða umtalsverða upphæð sem frjálsíþrótta- sambandið veitir sínu fólki. Hefur sam- bandið góð efni á slíku, þar sem það er hið öflugasta og hefur gífurlegar tékjur m.a. af frjálsíþróttarhótum sem mikið eru sótt í Finnlandi Þau sjö sem fá hæstu laun hjá sam- bandinu eru Lasse Viren, Tapio Kantanen, Antti Kalliomáki, Hannu Siitonen, Seppo Hovinen, Jorma Jaakola, Pirjo Hággman og • Riitta Salin. Fá þau upphæð sem svarar til 600 þúsund íslenzkra króna Aðrir fá svo minni laun. Þannig fá Lasse Orim- us, Hákan Spik, Susanne Sundqvist og Reijo Stálberg upphæð sem svarar til 400 þús. islenzkra króna og Mona-Lisa Pursianen, Stig Lönnqvist og Stefan von Gerich fá upphæð sem svarar til 250 þúsutrd íslenzkra króna

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.