Morgunblaðið - 04.01.1977, Blaðsíða 10
10
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 4. JANtJAR 1977
c7* c& c& c^cJ^ c&c^ /^/7t/7>/7V/7^/7J
~ ~ ~----------------- 4
í,
í,
t,
í.
í.
í.
í.
?.
í.
í.
í.
t,
t,
t.
í,
í,
í,
?.
í,
S,
$
C,
t,
r,
I/
í.
í,
t,
í.
í.
5,
í.
í.
5
í>
í.
í,
S,
í.
í,
s,
s
5,
í,
í.
s,
í,
5.
í.
6
&
í,
5
5
í,
?.
í.
5,
í,
í,
26933
Sörlaskjól
2—3 herb. 70 fm. ibúð i kjallara, litið
niðurgrafin, ibúðin er mjög góð með sérhita
og sér inngangi. Verð 5.2 m. útb. 4.0 m.
Hraunbær
2ja herb. ágæt 60 fm. ibúð á 3. hæð,
suðursvalir, verð 6.2 m útb. 4—4.4 m.
Hraunbær
3ja herb. 96 fm. íbúð á 2. hæð, mjög vel
innréttuð, suðursvalir, verð 7.5 m útb. 5.5
m.
írabakki
3ja herb. 85 fm. íbúð á 3. hæð, sér þvotta-
hús, tvennar svalir. Verð 7.5 m útb. 5.0 m.
Kleppsvegur
4ra herb. vönduð 108 fm. ibúð á efstu hæð í
blokk, fallegt útsýni, suðursvalir, verð 9.7 m
útb. 6.5 m.
Háalertisbraut
4—5 her. ibúð á 2. hæð endaibúð, 3 svefnh.
2 saml. stofur, bílskúr. Þetta er glæsileg ibúð
á einum besta stað í bænum. Verð 13.0 m
útb. aðeins 9.0 m.
Hraunbær
4ra herb. 100 fm. ibúð á 3. hæð í ágætu
standi, verð 9.5 m útb. 7.5 m.
Austurberg
4ra herb. 100 fm. íbúð á 2. hæð, sér þvotta-
hús, verð 9.5 m útb. 7.0 m.
Dúfnahólar
5 herb. 135 fm. mjög góð íbúð á 6. hæð, 4
svefnh. stofa og hol, sérstaklega fallegar
innrétt. Bílskúrsréttur. Laus nú þegar. Verð
11.8 m útb. 8.5 m.
Gaukshólar
Stórglæsileg 160 fm. íbúð á tveim hæðum
(penthouse) 3 svefnh. 3 stofur, 40 fm. svalir.
Bílskúr. Verð 15 m. útb. 10 m. Hugsanleg
skipti á 3—4 herb. ibúð
Bollagata
120 fm. sérhæð ásamt 2ja herb. íbúð í kj. í
þríbýlishúsi, þetta er ágæt hæð með bíl-
skúrsrétti. Fæst í skiptum f. 4—5 herb. ibúð
i háhýsi við Espigerði.
Bragagata
Nýstandsett einbýlishús sem er 2 hæðir og
kj. 50 fm. grunnfl. Bilskúr fylgir. verð 13.0
m. útb. 8.0 m.
Einbýlishús
Glæsilegt einbýlishús i austurborginni, 300
fm. alls. bílskúrsréttur fylgir.
Sefgarður, Seltj.
125 fm. einbýlishús ásamt 30 fm. bilskúr
selt fokhelt m. frág. þaki.
Smiðjuvegur
Á jarðhæð 560 fm. iðnaðarhúsnæði, selst
fokhelt.
Einbýlishús — Fossvogur
Fokhelt 1 90 fm einbýlishús í Fossvogi. Húsið
getur afhents nú þegar. Eign í algjörum
sérflokki.
Janúar-söluskráin er komin út. Það léttir
yður leitina að eigninni að fá söluskrána
heimsenda.
Kvöld- og helgarsími: 74647 og 27446
Sölumenn:
Kristján Knútsson og Daníel Árnason.
Eigne
mark
aðurinn
ý, Austurstræti 6 simi 26933 Jón Magnússon, hdl. s
EF ÞAÐ ER FRETT-
NÆMTÞÁERÞAÐÍ
MORGUNBLAÐINU
Áramétaræða Geirs Hallgrímssonaiy forsæfisráðherra
„Það er löng leið frá íslandi til himnarlkis.
Það má nú segja, það er löng og erfið leið",
segir Davið Stefánsson okkur I Gullna hliðinu.
í karli og kerlingu birtast þverstæður I ís-
lensku þjóðareðli, kostir og gallar, sem við
þekkjum af sjálfum okkur enn I dag.
í sögu þeirra, kerlingar og kotbónda, má
greina lífsferil fyrri kynslóða og ráðningu þeirrar
gátu, að íslensk þjóð lifir enn. Líftaugin milli
lands, fólks og fyrirheits brast aldrei.
Árið 1976 hefur verið okkur gott ár og mun
minnst svo lengi sem islensk þjóð byggir land-
ið. %
Viðurkenning 200 milna fiskveiðilögsögu
hljómar eins og ævintýri, fullnaðarsigur I langri
baráttu þjóðarinnar fyrir óskoruðum yfirráðum
yfir náttúruauðlindum sínum til lands og sjávar.
Þessi sigur er enn sætari fyrir þá sök, að
hann vannst fyrst og fremst með rökum og
réttri málafylgju og að lokum með samningum.
Að'" unnum þessum sigri höfum við einnig
fagnað því að sjá helstu andstæðinga okkar i
hafréttarmálum snúa frá villu síns vegar og
taka sjálfir upp þá stefnu, sem við höfum áður
lengi fylgt.
Nú fer saman í fyrsta sinn nauðsyn okkar og
viðurkenndur réttur til að nýta 200 mílna
fiskveiðilögsögu i eigin þágu. Um leið er það
skylda okkar að rækta svo miðin, að hámarks-
nýting fiskstofna komi sveltandi heimi í góðar
þarfir, engu síður en okkur sjálfum. Sérhags-
munir, sundurlyndi og skammgóður vermir má
ekki spilla skynsamlegum ráðagerðum um fisk-
vernd og fiskveiðar, sem eru á okkar valdi.
Við vitum, að fiskar virða engin mörk en
synda milli hafsvæða, svipull er sjávarafli,
mengun flyst frá einu sjávarsvæði til annars,
eins og fréttir herma, heimurinn er á hreyfingu,
sjórinn ekki síst og lífið í honum. Almenn
fiskvernd og umhverfisvernd er i okkar þágu.
Enginn lifir sjálfum sér. Frjáls samskipti á
jafnréttisgrundvelli og gagnkvæm áhugamál
og hagsmunir eru skilyrði hvers konar sam-
komulags og samninga milli einstaklinga og
þjóða. Þegar að okkur kemur og timabært
þykir, leggjum við á slik úrlausnarefni sjálf-
stætt, fordómalaust mat. Annað er ekki sæm-
andi fullvalda þjóð, sem taka vill ábyrga af-
stöðu í samfélagi þjóðanna. *
Eftir nokkur erfið ár, erfiðari en komið hafa
lengi, hefur einnig rofað til í efnahagsmálum
þjóðarinnar á árinu 1976.
Á árinu hafa ráðstafanir okkar sjálfra og
batnandi ytra verslunarárferði lagst á sömu
sveif til þess að rétta verulega viðskiptahalla
landsins og hagvöxtur er að glæðast á ný.
Eftirleikur erfiðu áranna er þó svo vandasam-
ur að við verðum að gæta hófs I kjaramálum á
næsta ári. Á okkur hvílir þung byrði erlendra
skulda og við glímum við verðbólguna, sem nú
má kalla „landsins forna fjanda", og enn er
síður en svo að velli lögð.
Fteynsla liðins árs hefur sýnt okkur, að efna-
hagslegt andstreymi dregur ekki dug úr þjóð-
inni til langframa, og hún kann að mæta vanda
af því tagi, þegar á herðir.
Fremur hefur verið dregið í efa, að við
værum þess megnug að leysa vandamál vel-
megunarinnar og að við kynnum okkur hóf,
þegar birti í lofti.
Ljóst er, að það er prófsteinn sjálfstæðrar
þjóðar að standa í skilum og vera óháð lána-
drottnum sínum. Annar prófsteinn bíður
þjóðarinnar. Verðbólgan er slíkur vágestur að
allra áliti, að fyrir löngu er tími til kominn að
sýna að alvara fylgir orðum og reka hann á dyr
með samstöðu og sjálfsaga landsmanna á nýju
ári.
Þriðji prófsteinninn er að skipta þjóðartekjun-
um með réttsýni og samkomulagi milli landsins
barna, þannig að meiru sé ekki skipt en aflað er
og þeim sé fyrst og best sinnt, sem minnst hafa
fyrir sig að leggja
Hér hef ég rakið gamalkunnan þráð úr þjóð-
málaumræðunni, sem ég spinn ekki frekar á
þessu síðasta kvöldi ársins. Mörgum finnst
raunar nóg um, hve mataráhyggjur eru þungar
í umræðum manna á meðal. Það skiptir íslend-
inga fleira máli en efnisleg gæði.
Óneitanlega hefur fallið skuggi á liðið ár af
ýmiss konar alvarlegum afbrotum og vafasöm-
um viðskiptum, sem hafa verið, og eru, í
umfangsmikilli rannsókn. Menn tala um sið-
ferðilega upplausn og spyrja um orsakir. Sá
skortur á siðgæðisvitund, sem er undirrót þess-
ara mála, á að minni hyggju að nokkru upptök
sín í þeirri tískutrú, að mannlegur þroski felist i
því að láta allt eftir sér, veita öllum tilfinningum
og hvötum útrás, án tillits til þess hverjar þær
eru og hvort þær horfa til góðs eða ills. Með
Reykjavík
Brautarholt 4, simi 20345 — 24959.
Drafnarfell 4 (Breiðholti), simi 74444.
Félagsheimili Fylkis (Árbæ), simi 38126.
Kópavogur sími 38126
Seltjarnarnes simi 38126.
Hafnarfjörður sími 381 26.
Keflavík
Innritun í Tjarnarlundi mánudaginn 10. jan-
úar kl. 1 —3 og i síma 1 690.
Selfoss
Innritun i Tryggvaskála mánudaginn 10. jan-
úar kl. 1 —3 og í sima 1 408.
DANSKENNARASAMBAND ÍSLANDS 000
SÍÐASTI INNRITUNARDAGUR
FÖSTUDAGINN 7. JANÚAR.