Morgunblaðið - 04.01.1977, Blaðsíða 29
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 4. JANUAR 1977
29
— Afmæliskveðja
Framhald af bls. 8
margar greinar í blöð, sem gefin
eru út á Akranesi. Hann hefur í
þessum greinum bent á ýmislegt
sem betur má fara í bæjarrekstr-
inum og styður jafnan mál sitt
með köldum staðreyndum, sem
ekki er svo auðvelt að hrekja.
Hann hefur glöggt auga fyrir því
skoplega sem fyrir augu ber og er
þekktur fyrir sín hnittnu tilsvör.
Bezt þekki ég Kalla af samskipt-
um við hann á hans góða heimili.
Það er gott að koma til þeirra
hjóna Pöllu og Kalla. Þau eru
samhent um að taka á móti þeim
gestum sem að garði ber og ekki
verður svo minnst á Kalla að
Pöllu sé ekki getið. Hún er dóttir
hjónanna Þuríðar Árnadóttur og
Sigurðar Jónssonar í Bæ á Akra-
nesi og er yngst af 15 systkinum.
Palla annaðist sina foreldra þar
til þau dóu í hárri elli af stakri
prýði. Fá heimili hefi ég þekkt
þar sem gestagangur er eins mik-
ill og var ímörg ár í Bæ. Þeir voru
ekki fáir sem fengu kaffisopa á
þeim árum í Bæ. Það er stór hóp-
ur ættingja og vina sem hugsar
hlýtt til þeirra Kalla og Pöllu með
þakklæti fyrir liðnu árin. Ég er
einn i þeim stóra hópi. Það er sagt
með réttu ,,að sá er vinur sem i
raun reynist". Við systkinin mun-
um seint gleyma þvi þegar móðir
okkar dó árið 1939 frá 8 börnum.
t-----------;----------------\
Fáum nýja sendingu af
SUBARU
fyrir miðjan janúar
VINSAMLEGAST ENDURNÝIÐ PANTANIR
BÍLLINN — SEM ALLIR
TALA UM
framhjóladrifsbíll
sem verður
handtaki inni í bílnum —
sem þýðir að þú kemst
nærri hvert sem er á
hvaða vegi sem er.
SUBARU
fjórhjóladrifsbíllinn, sem klifrar eins og geit,
vinnur eins og hestur en er
þurftalítill eins og fugl.
VERÐ CA. KR. 1,950 ÞÚSUND
INGVAR HELGASON
Vonarlandi v/Sogaveg — Símar 84510 og 8451 1
Þá buðu þau okkur að vera inni á
heimili sinu sumarlagt þar til úr
rættist fyrir okkur. Fyrir þetta vil
ég þakka um leið og ég flyt vini
mínum Karli innilegar hamingju-
óskir á þessum timamótum i lífi
hans. G.A.
— Rætt við
Hilmar
Framhald af bls. 13
ferð og kostar flugfarið 49.800
kr.
— Þessi ferð þarf nokkuð
langan undirbúning og vil ég
því hvetja þá sem áhuga hafa á
henni á láta bóka sig sem fyrst.
Við munum útvega gistangu og
efnum til alls kyns skoðunar-
ferða um þessar Islendinga-
byggðir vestanhafs.
Þá sagði Hilmar að efnt yrði
til Kaupmannahafnarferða og
ferða til sólarlanda eins og fyrr
segir. Eru ferðir á þessa staði I
hverri viku, og sagði hann að
ferðaskrifstofan myndi veita
nánari upplýsingar um allar
þessar ferðir, svo og skrifstofa
Sjálfstæðisflokksins.
Eins og áður sagði eru þessar
ferðir skipulagðar af Lands-
málafélaginu Verði og er sjálf-
stæðisfélögum um allt land á
þann hátt gefinn kostur á ódýr-
um og hagkvæmum utanlands-
ferðum.
— Umhorf Framhald af bls. 16
pottþétt, en hvað gott sem segja má um lýðræðisleg-
an meirihluta í t.d. ákvarðanatöku á stjórnmála-
sviðinu, þá trúi ég ekki á að meirihlutinn geti
ákveðið hvað sé list. Gæðín eru sjaldnast sama og
vinsældir. Það hlýtur að vera mjög persónulegt mat
og reynsla hvers og eins sem ræður afstöðunni til
listaverks eða listamanna, en þetta er líka spurning
um næmleika manna, menntun, umhverfi, uppeldi
og margt fleira, eins og ég hef áður sagt.
Listgagnrýn-
endur gagnrýndir
Oft heyrist sagt um listgagnrýnendur, að dómar
þeirra stafi af annarlegum hvötum, að þeir hafi í
rauninni ekkert meira vit á list en hver annar
o.s.frv. Eina konu heyrði ég segja, að ef einn
tiltekinn gagnrýnandi skrifaði jákvætt um eitt-
hvert leikrit, þá færi hún áreiðanlega ekki að sjá
það. Þetta finnst mér ekki aðeins vera yfireinföld-
un á hlutunum, heldur lýsa algerum skorti á skiln-
ingi á hlutverki þessa fólks og virðingarleysi fyrir
menntun þess. Þeirra hlutverk er að móta smekk
fólks og þroska hann og sem slikir bera þeir mikla
ábyrgð.
Markmið og
árangur
Hvort ég eigi von á árangri af Vöku-þáttunum er
erfitt að svara. Fólk hrífst af bíómynd, en þegar
spurt er hvers vegna, þá verður oft litið um svör.
Mér finnst að það gæti verið skemmtilegt verkefni
og markmið í sjálfu sér að reyna að fá fólk til að tjá
tilfinningar sínar gagnvart list, ekki bara „voða
gott“ eða „ómögulegt". Fólk þarf líka að skilja
hvers vegna listamaður er að mála myndir frekar
en t.d. að vera á sjónum eða að vinna í banka. Þegar
„músíkant" spilar lag sem vekur athygli okkar, þá
gerir ekkert til að vita hvers vegna maðurinn spilar
á hljóðfæri frekar en t.d. að byggja hús. Það er til
annað verðmætamat en það sem felst í veraldlegum
hlutum svo sem steinsteypu.
Ef Vaka verður til þess að fólk fer i leikhús eða á
málverkasýningu með aðeins opnara hugarfari en
áður — þá væri ég ánægð og fyndist að einhver
árangur hefði orðið.
MEGRUNARLEIKFIMI
\ '
Nýtt námskeið
Gufa
Vigtun — Mæling
Ljós — Kaffi — Nudd
Innritun og upplýsingar í síma 83295 alla virka
daga kl. 1 3 — 22.
Júdódeild Ármanns
Ármúla 32.
Leðdimisskóli Hafdísar Amadóttur sf.
Lindargötu 7
0 4ra mánaða námskeið í músikleikfimi hefst
miðvikudaginn 6. janúar
0 Byrjenda- og framhaldsflokkur kvenna.
^ Framhaldsflokkur karla —- Kvöldtímar.
0 Stúlkur 7 ára og eldri
£ Músikleikfimi og fimleikar í byrjenda- og fram-
haldsflokkum.
0 Síðdegistímar.
Kennarar. Guðrún Gísladóttir, Ragna Karlsdóttir
Elín Birna Guðmundsdóttir.
Innritun 4. og 5. janúar
sími 43345 fyrir hádegi
sími 34245 eftir kl. 18
——————
Uifetorial luifetoria
Útsa/a Útsa/a
Útsalan hefst þriðjudaginn 4. janúar
Aðeins fáir dagar
30%—50% verd/ækkun
VERZL. VIKTORIA
LAUGAVEGI 12