Morgunblaðið - 30.01.1977, Side 17
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUIIAGUR 30. JANUAR 1977
17
m/s Baldur
fer frá Reykjavik fimmtudaginn
3. febrúar til Breiðafjarðarhafna
Vörumóttaka: alla virka daga til
hádegis á fimmtudag.
Hef opnað lækningastofu
að Laugavegi 43,
Upplýsingar í síma 211 86.
Daníel Daníelsson, læknir.
Kjólar — Kjólar
Höfum fengið nýja sendingu af síðum og hálfsíðum kjólum. Verð á
siðum er kr. 7.300 - seljum eldri siða kjóla á kr. 3.900,- verð á
hálfsiðum er frá kr. 4.000 - i öllum stærðum.
Höfum ennfr. fengið Peysusett önnur með rúllukraga verð kr. 2.800 -
settið skyrtur í mörgum litum verð kr. 1,500 - Pils á kr. 3.000 -
Vetrarkápur á kr. 8.000 - með skinnum kr. 1 0 þúsund.
Dalakofinn Tizkuverzlun.
Reykjavíkurveg 1 Hafnarfirði.
SKIPAUTGtRÐ KIKISINS
m/s Hekla
fer frá Reykjavik miðvikudaginn
2. febrúar austur um land í
hringferð. Vörumóttaka: til há-
degis á þriðjudag til Vestmanna-
eyja, Austfjarðahafna, Þórshafn-
ar, Raufarhafnar, Húsavíkur og
Akureyrar. _____________
Góð
ryðvörn
tryggir endingu
og endursölu
a 81390
Öryggishjálmar
opnir og lokaðir
Eigum jafnan mikið úrval öryggishjálma, sem
hlotið hafa viðurkenningu í Evrópu og
Bandaríkjunum sem skíða-, vélsleða-, vélhjóla,
mótorhjóla- og bílarallyhjálmar.
Andlitshlífar úr glæru, reyklitu og
gulu öryggisgleri, einnig mótorhjólagleraugu
og baksýnispeglar r úrvali.
Verðið er ótrúlega lágt.
Sendum gegn póstkröfu.
öryggi á vegum og vegleysum.
lllTTL
FALKINN
Suðurlandsbraut 8
Furdu/eg
frásagnargáfa
sögumanns
— snilli söguritara
Jóhannes Helgi fer snillingshondum
um sjóferðaminningar Ólafs Tómasson
ar frá veru hans á erlendum skipum og
innlendum til striðsloka 1945 Við
sögu kemur sægur þjóðkunnra skip
stjóra og sjómanna af gamla skólanum,
þeim skóla sem hófst undir árum á
opnum bátum og lauk um borð f fyrstu
kaupskipum þjóðarinnar og augljós-
ustu sjálfstæðistáknum hennar Bókin
eykur umtalsverðum drætti við per-
sónuþátt islenskrar sjóferðasögu. þann
þáttinn sem enn hefur ekki verið
dreginn nægilega vel fram i dagsljósið
Er ekki fráleitt að framtiðin muni skil-
greina bækur af þessu tagi sem islend
ingasogur hinar nýrri.
„Laus vid sögur
af slarki
og svalli''
„Þessi farmannabók er laus við sogur
af slarki og svalli . . Olafur Tómasson-
ar er góður fulltrúi þeirra farmanna.
sem litu á sig sem fulltrúa sjálfstæðrar
þjóðar og skip sitt sem sonnun þess, að
á Islandi byggi frjáls og fullvalda
þjóð Og mér finnst að hann eigi
erindi við okkur Það erindi er ekki
bara að halda á lofti minningu liðinna
sæmdarmanna, og er það þó gott
erindi, heldur engu síður að minna á
það, sem kalla má kjarna fslenzkrar
menningar. og glæða skilning á gildi
þess." (Halldór Kristjánsson frá Kirkju-
bóli, Timinn 14 des 1976)
FARMAÐUR
i FRIÐI OG STRlot
0
„I lífshættu bæði
í svefni og vöku"
..Þessi bók verður að teljast í hópi
hinna vandaðri æviminninga og jafn-
♦ ramt mjög upplýsandi um viðhorf
islenskra sjómanna til starfsins og
þeirrar þýðingar sem það hafði fyrir
landið að eiga skip i förum. Einnig
koma þprna við sögu siglingar á striðs
árunum seinni frá sjónarhóli þeirra,
sem áttu i lifshættu bæði i svefni og
vöku. Um alla þessa frásögn er farið
mjog kunnáttusamlegum höndum, svo
bókin verður bláþráðalaus og athyglis
verð lesning sem heldur mönnum við
efnið til siðustu blaðsíðu Er það þeim
mun meiri iþrótt, þegar haft er i
hyggju, að langsiglingar eru ekki beint
spennandi atvinnuvegur. . Og yfir frá-
sögninni af félögunum hvílir falleg
birta góðra daga i hressilegum félags
skap þrátt fyrir geig stríðsáranna '
(Indriði G. Þorsteinsson, Visir 21 des.
1976)
0
„Ognþrungin
endalok skips"
,,Svo kem ég þá að þeim atriðum sem
verða mér ærið minnisstæð, enda
vöktu þau hjá mér hvort tveggja, djúpa
hryggð og einlæga aðdáun. Það er
lýsingin á ferðum Dettifoss yfir
Atlantshafið i skípalestum og frásögnin
af hinum ógnþrungnu endalokum þess
skips I þeim köflum sem um þetta
tvennt fjalla sameinast beinlínis furðu-
lega athyglis, minnis- og frásagnargáfa
sogumanns og þekking og snilli sögu-
rita rans
i bók sinni Farmaður í friði og striði
sameinar höfundur kosti sina sem rit-
hofundur ef til vill betur en i nokkurri
annarri bók sinni " (Guðmundur G
Hagalin, Mbl 17 des 1976)
„Glassi/egur
og vandaður
sig/ingastí/l"
..Þetta er ágæt bók, ekki aðeins Ijúf og
skemmtileg lesning, heldur dregur hún
upp mynd af lóngu liðnum siglingastil
Gufuskipastilnum Þetta var glæsilegur
og vandaður siglingastill. Gullfoss og
fleiri skip sigldu næstum aldarfjórðung
á verstu siglingaleiðum heims. án
tækja. án óhappa og eftir erfiða nótt i
stormi og stórsjó. myrkri og þoku,
flautuðu þau og vöktu fjorðinn, fólkið,
fjöllin og fuglana. Þau komust leiðar
sinnar án allra nútima tækja, sum af
gomlum vana, önnur vegna sagnar-
anda, eða mikillar dularfullrar kunn-
áttu " (Jónas Guðmundsson, Timinn 9
janúar 1 977)