Morgunblaðið - 01.02.1977, Side 1
48 SÍÐUR MEÐ 8 SÍÐNA ÍÞRÓTTABLAÐI
23. tbl. 64. árg.
ÞRIÐJUDAGUR 1. FEBRÚAR 1977
Prentsmiðja Morgunblaðsins.
Hörð afstaða gegn
íhaldssömum her-
foringjum á Spáni
Þessi mynd var tekin í borginni Buffalo í New York í gær og sýnir lögfræðing á
leið í vinnu sína á skíðum en nær allar götur borgarinnar eru ófærar vegna snjóa.
Madrid, 31. janúar. Reuter.
YFIRVÖLD á Spáni tóku I dag
harða afstöðu gegn fhaldssömum
yfirmönnum hersins, sem hafa
látið f ljós óánægju með hvernig
stjórnin hefur haldið á málum f
óeirðum undanfarinna vikna.
Brezkur ráð-
herra í þingræðu:
Stöðugt
minni líkur
á samkomulagi
við Island
London, 31. janúar. AP.
DAVID Owen, aðstoðar-
utanríkisráðherra Bret-
lands, sagði í neðri
málstofu þingsins í dag,
að líkurnar á fiskveiði-
samkomulagi milli ís-
lands og EBE minnkuðu
með hverjum deginum
sem liði. Hann sagði að
Bretar gætu ekki fallist
á tillögur íslendinga um
þorskkvóta nema þeir
vissu hvað væri að ger-
ast á íslandi. Hann
skýrði ekki frekar hvað
hann ætti við með þess-
um ummælum. Owen
sagði að lokum, að samn-
ingarnir við íslendinga
yrðu ræddir á fundi ut-
anríkisráðherra EBE á
fundi 8. febrúar nk.
Heimildir f Madrid hermdu f dag,
að Carlos Menendez foringja f
spánska sjóhernum hefðu verið
veittar opinberar ákúrur fyrir
deilur, sem hann lenti f við Mella-
do aðstoðarforsætisráðherra á
laugardag. Kallaði foringinn, er
Mellado var að reyna að þagga
niður hópi mótmælenda gegn
stjórninni: .Jleiður skiptir meira
máli en reglur og aðhald.“
Margir lögreglumenn og þjóð-
varnarliðsmenn tóku undir með
hægrisinnuðum borgurum við út-
för lögreglumannanna þriggja í
fyrradag og hrópuðu á ríkisstjórn-
ina að segja af sér og margir
hrópuðu „Franco Franco" og
„Meiri stjórn minna lýðræði". 1
Barcelona heyrðist kallað á götum
Framhald á bls. 47
Veðrið ógnar efna-
hagslegri endurreisn
segja bandarískir hagfræðingar — Tugir manna létust af kulda um helgina
New York og Washlngton, Reuter — AP.
BANDARlSKIR hagfræð-
ingar hafa varað við, að hið
gifurlega kuldakast, sem
gengið hefur yfir nær %
hluta Bandarfkjanna und-
anfarnar 6 vikur, ógni
efnahagslegri endurreisn f
landinu f kjölfar krepp-
unnar 1974—75. Heim-
skautaveðráttan, sem
hrjáð hefur íbúa mið-
vesturrfkjanna og fbúanna
á A og NA-strönd landsins,
hefur kostað 50—60 manns
lífið sfðustu daga og 2
milljónir manna hafa
misst atvinnu sfna. Þús-
undir verksmiðja og iðn-
fyrirtækja hafa neyðst til
að loka vegna orkuskorts,
sem stafar af því að mjög
hefur gengið á birgðir af
jarðgasi.
RIKISSAKSÓKN-
ARINN í PRAG:
inda
77
Prag, Vín og Washington,
31. janúar. Reuter.
RlKISSAKSÖKNARINN (
Tékkóslóvaklu sagði I dag, að
yfirlýsingar og starfsemi samtak-
anna „Mannréttindi 77“ í landinu
væru brot á lögum og þeir sem
slfka starfsemi stunduðu mættu
eiga von á að verða sóttir til saka.
Þetta kom fram f tilkynningu,
sem Ceteka-fréttastofan f Prag
sendi út. Þar sagði einnig að tveir
af forystumönnum samtakanna,
Jiri Hajek fyrrum utanrfkisráð-
herra og Jan Patocka prófessor,
hefðu verið kallaðir til viðtals á
skrifstofu rfkissaksóknarans, þar
sem þeir hefðu fengið opinbera
viðvörun um að yfirlýsingar sam-
takanna og andófsstarfsemi
þeirra heima fyrir og erfendis
væru brot á gildandi lögum f
Tékkóslóvakfu.
Þá sagði saksóknarinn, að yfir-
lýsingarnar hefðu gefið erlendum
miðstöðvum tilefni til að hefja
mikla andkommúniska herferð og
herferð gegn Tékkóslóvaklu. For-
svarsmenn Mannréttinda 77
hefðu undir yfirskini varnarbar-
áttu fyrir mannréttindum að yfir-
lögðu ráðu mistúlkað sannleikann
Starfsemi mannrétt-
brot á landslögum
um lífið I Tékkósióvakíu og gefið
alranga mynd af ástandinu þar
með hatursfullu slúðri.
Stjórnmálafréttaritarar segja
að greinilegt sé að talsmönnum
samtakanna hefði nú verið til-
kynnt opinberlega túlkun lag-
anna og að frekari starfsemi
myndi leiða til saksóknar.
Ríkissaksöknarinn staðfesti í
samtölum við tvimenningana, að
skv. greinum 28 og 29 i stjórnar-
skrá landsins væri borgurunum
tryggt athafnafrelsi og réttur til
að snúa sér til hins opinbera með
kvartanir, einir sér, eða með
samtökum, en slíkt frelsi er þeim
skilyrðum bundið, að erindið
þjóni hagsmunum samfélagsins
og hins sósialiska rikis.
Erlendir stjórnmálaréttaritarar
sögðu i gær, að svo virtist sem
herferð yfirvalda í Tékkóslóvakiu
gegn andófsmönnum væri farin
að hægjast, þar sem málið væri
farið að hafa áhrif á stöðu lands-
ins á alþjóðavettvangi. Sjónvarpið
i Prag sagði í fréttum í gær, að
stjórn landsins hefði aldrei haft í
hyggju að reka nokkurn mann úr
landi. Var hér greinilega átt við
atburði sl. föstudag, er 6 forystu-
Framhald á bls. 47
Carter Bandarikjaforseti, sem I
gær fór i stutta heimsókn til Pitts-
burg í Pennsylvaniufylki til að
kynna sér ástandið, hefur sagt að
í undirbúningi séu ýmsar ráðstaf-
anir, sem muni koma illa við
marga landsmenn ef ekki hlýni
fljótlega. Carter hefur skorað á
iðnfyrirtæki að taka upp 4 daga
vinnuviku til að spara orku og
einnig hefur forsetinn skorað á
Bandarikjamenn að hafa ekki
heitara en 18 gráður á celcius i
ibúðum sinum. Svo kunni að fara
að menn verði að láta sér nægja
10 gráður. I öldungadeildinni er
nú verið að ræða frumvarp. sem
kveður á um að birgðum af jarð-
gasi skuli skipt milli fylkjanna,
en nokkurn tíma mun taka að
koma þvi frumvarpi I gegn.
Orkumálasérfræðingar segja að
orkukreppan sé nú að verða jafn-
alvarleg og hún var i oliukrepp-
unni og að framundan kunni að
vera langvarandi orkuskortur.
Ohio, Pennsylvania, Indiana,
Illinois og New York eru meðal
þeirra fylkja, sem verst hafa orðið
úti af völdum veðursins. í Ohio er
talið að 1 milljón manns hafi nú
Framhald á bls. 47
Rhódesía:
Ivor Richard gafet upp
Vance varar Smith við
Ivor Richard skoðar plantekru í Rhódesfu f vikunni.
Washington, Lusaka og Salisbury,
31. janúar. Reuter.
CYRUS Vance, ulanrfkisráðherra
Bandarfkjanna, varaði f dag
stjórn Ian Smiths f Rhódesfu við
þvf að hún skyldi ekki gera sér
nokkrar vonir um að Bandarfkja-
stjórn myndi aðstoða hana við að
koma f veg fyrir valdatöku
blökkumanna f landinu. Vance
sagði einnig að ákvörðun Smiths
um að hafna tillögum Breta um
vafdaskiptin skapaði nýja hættu f
suðurhluta Afrfku. Hann sagði að
Bandarfkjamenn styddu brezku
tillöguna, þar sem gert var ráð
fyrir að brezk sendinefnd gegndi
mikilvægu hlutverki þau tvö ár,
sem tæki að koma á stjórn
Framhald á bls. 47