Morgunblaðið - 01.02.1977, Side 2
2
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 1. FEBRUAR 1977
var lokað í gær
30 afgreiðslustúlkur af 153 atvinnulausar
MJÓKURSAMSALAN hætti I gær
rekstri allra mjólkurbúða sinna
fyrir utan þá sem er til húsa að
Laugavegi 162, sem rekin verður
áfram með sama sniði og verið
hefur. Að sögn Guðlaugs-
Björgvinssonar, framkvæmda-
stjóra Mjólkursamsölunnar, voru
mjólkurbúðirnar hinn 1. október
sl. alls 66, en á föstudag var 12
búðum lokað og I gær var öðrum
42 lokað, 32 búðum í Reykjavfk,
einni I Keflavlk, tveimur I Vest-
mannaeyjum, 4 á Akranesi og
tveimur á Snæfellsnesi, þannig að
í dag verður aðeins þessi eina búð
að Laugavegi áfram starfrækt.
Að þvi er Guðlaugur sagði f
samtali við Morgunblaðið í gær
störfuðu alls 153 afgreiðslustúlk-
ur í þessum búðum í byrjun októ-
ber, en samkvæmt nýlegri könn-
un kom í ljós að af þeim höfðu 86
stúlkur ráðið sig annað eða sagt
upp störfum. Við athugun á at-
vinnumöguleikum hinna 57 sem
þá voru eftir hefur komið á dag-
inn að Kaupmannasamtök Íslands
telja sig geta ráðið 26—27 þeirra
til vinnu þegar i stað, en þá eru
enn eftir um 30 stúlkur sem ekki
er útséð með vinnu fyrir á næst-
unni. Hins vegar liggur fyrir yfir-
lýsing frá Kaupmannasamtökun-
um um að þær stúlkur skuli hafa
forgang að störfum í verzlunum
félagsmanna þeirra þetta árið.
Þá barst Lífeyrissjóði Mjólkur-
samsölunnar erindi stjórnar
stéttarfélags afgreiðslustúlkn-
anna um að greiðslum til þeirra
yrði breitt í ljósi hinna nýju við-
horfa, og að sögn Guðlaugs féllst
stjórn Mjólkursamsölunnar á það
fyrir sitt leyti að koma til móts við
þetta erindi á þann hátt að elztu
starfsstúlkunum á aldrinum
56—70 ára skyldi greiddur
lifeyrisstyrkur þar til hinn eigin-
legi lifeyrissjóður tæki við þeim
þegar sjötugsaldri væri náð.
INNLENT
Laekkar verð
mjólkur við
lokun mjólk-
urbúðanna?
SEXMANNANEFND hefur sam-
fara breytingum á fyrirkomulagi
á dreifingu mjólkur og mjólkur-
vara í smásölu ákveðið skiptingu
á sölukostnaði milli heildsöluað-
ila og smásöluaðila. Engar breyt-
ingar verða á útsöluverði
mjólkurvara af þessum sökum
fyrst um sinn. Alagning kaup-
manna, sem hingað til hafa selt
mjólk i smásölu hefur verið mis-
jöfn, en hefur nú verið ákveðin af
sexmannanefnd 11.1% á heild-
söluverð. Hliðstæð sölulaun til
kaupmanna voru samkvæmt
ákvörðun Mjólkursamsölunnar
13.2%. Heildsölukostnaður
mjólkur hækkar sem svarar þess-
ari lækkun en sexmannanefnd
hefur óskað eftir þvf við Mjólkur-
samsöluna að hún láti nefndinni I
té upplýsingar um dreifingar-
kostnað eftir breytinguna, fyrir
næstu verðákvörðun á landbúnað-
arvörum 1. marz n.k. og reynist
heildsölukostnaður áætlaður of
hár, er ætlunin að sá mismunur
mæti að einhverju leyti þeim
Framhald á bls. 47
Góð loðnuveiði síðasta sólarhring;
57 skip með
13000lestir
GÓÐ loðnuveiði hefur verið
undan Austfjörðum frá þvf 1
fyrrakvöld, er veður lægði eftir
nokkurra daga hrælu hjá loðnu-
skipunum. Þegar skipin byrjuðu
að kasta í fyrrakvöld var loðnan
um 40 mflur réttvisandi austur af
Kambanesi og hefur loðnan þvi
gengið hratt suður á bóginn sið-
ustu fimm sólarhringana. Um kl.
22.30 i gærkvöldi höfðu 57 loðnu-
skip tilkynnt um einhvern afla
frá þvi kl. 20 i fyrrakvöld, samtals
um 1300 lestir. Skipin fóru öll til
Austfjarðahafna með aflann og
eru allar þrær nú fullar þar.
Fyrstu skipin lögðu af stað til
Hafnar í Hornafirði með loðnu i
gærkvöldi og upp úr kl. 22 voru 4
skip lögð af stað þangað.
Gylfi Þórðarson, formaður
loðnunefndar, sagði I samtali við
Morgunblaðið í gærkvöldi, að
senn lægi fyrir hjá skipunum að
sigla með loðnuna alla leið til
Vestmannaeyja, þ.e. ef veður
spillti ekki veiði. Þá væri einnig
hugsanlegt að einhver færu til
Raufarhafnar, ef veður væri gott,
en að undanförnu hefur hörð
norðanátt komið i veg fyrir slíkt.
Á tfmabilinu frá þvi kl. 20 i
fyrrakvöld þar til kl. 06 i gær-
morgun tilkynntu 35 loðnuskip
um afla, samtals 7140 lestir, og I
gærkvöldi höfðu 17 skip tilkynnt
um afla, samtals 5100 lestir. Af
þessum skipum hafði Guðmundur
RE mestan afla, 770 lestir.
Annars voru eftirtalin skip með
300 lestir eða meira: Loftur Bald-
vinsson EA 400 lestir,
Guðmundur Jónsson GK 420,
Grindvfkingur GK 450, Börkur
NK 450, Súlan EA 350, Ásberg RE
320, Eldborg GK 480, Árni Sig-
urður AK 300, Guðmundur RE
770, Fifill GK 570, Albert GK 550,
Kap 2. VE 500, Bjarni Ólafsson
AK 480, Pétur Jónsson RE 400,
Helga 2. RE 300, Jón Fipnsson GK
300 og Gunnar Jónsson VE 300.
Samtök sem berjast gegn lokun mjólkurbúðanna gengust fyrir mótmælastöðu bæði fyrir utan
Alþingishúsið og Mjólkursamsöluna í gær. Ljósm. Fiíðþjófur
Víðtækt rafmagns-
leysi á Austfjörðum
RAFMAGNSTRUFLANIR halda
áfram að hrjá Austfirðinga, að
þvi er Albert Kemp, fréttaritari
Mbl. simaði I gærkvöldi. Raf-
magnslaust varð f fyrrakvöld við
það að strengur I háspennuvirki
bilaði f Stöðvarfirði og þar með
varð Breiðdalsvfk rafmagnslaus
frá þvf f fyrrakvöld þar til f gær-
kvöld, svo og sveitin fyrir sunnan
Nýr biskupsritari
KIRKJUMÁLARÁÐHERRA, Ól-
afur Jóhannesson, hefur að ósk
hr. Sigurbjörns Einarssonar
biskups sett sr. Magnús Guðjóns-
son í embætti biskupsritara. Sr.
Magnús er fimmtugur að aldri.
Hann var um árabil sóknarprest-
ur á Eyrarbakka.
Fólkið bjargaðist
naumlega áður en
húsið varð alelda
iBUÐARHtJSIÐ Bræðraborg f
Garðinum á Suðurnesjum
skemmdist mikið f eldsvoða, og
heimilisfólkið bjargaðist
naumlega úr húsinu áður en
það varð alelda. Fólkið fékk
aðkenningu reykeitrunar og
var flutt f sjúkrahús en það
mun ekki hafa verið alvarlegs
eðlis.
Tilkynning barst um eldsvoð-
ann litlu fyrir kl. 5 og þegar
lögregla og slökkviliðið korn á
staðinn stóðu logarnir út um
glugga og útidyr. Tvær ibúðir
eru í húsinu og bjuggu fimm
manns í þeim hluta hússins er
eldurinn kom upp i en tvennt í
hinni íbúðinni. Sprenging mun
hafa orðið fljótlega eftir að
eldurinn kviknaði og vaknaði
heimilisfólkið við hana f tima,
og tókst að komast út. Sjónar-
vottur telur að eldurinn hafi
verið magnaðastur i kyndi-
klefa, sem er nánast i miðju
húsinu og hallast menn að þvf
að eldurinn hafi átt upptök sín
þar.
Fáskrúðsfjörð, Breiðdalurinn all-
ur og Beruf jarðarströnd.
Tókst að gera við þessa bilun á
Stöðvarfirði i gærdag en þegar
hleypa átti á rafmagni frá Grims-
árvirkjunarsvæðinu um Gagn-
heiðarlfnu reyndist vera bilun
þar, þannig að í gærkvöldi voru
diselvélar á Fáskrúðsfirði keyrð-
ar til rafmagnsframleiðslu fyrir
Breiðdalsvik, en skömmtun höfð
á Fáskrúðsfirði og loðnubræðsla
þar þvi stöðvuð.
Seint í gærkvöldi fékk Morgun-
blaðið síðan þær fréttir að raf-
magnstruflanirnar eystra væru
enn víðtækari, þannig að Aust-
firðirnir allir væru meira og
BíÍIók
ábát
Akranesi, 31. janúar.
ÞRÁTT fyrir öryggismálafundi
og áskoranir um hægari og há-
vaðaminni akstur, aka menn enn
út af vegum og jafnvel hafnar-
garðinum hér á Akranesi.
Aðfaranótt sunnudags óku t.d.
tveir ungir menn á ofsahraða nið-
ur á hafnargarðinn, og misstu þar
stjórn á ökutækinu. Fyrst lentu
þeir á loðnuskiljara, sem
skemmdist mikið, en af honum
þeyttist billinn fram af hafnar-
garðinum og lenti ofan á þilfari
vs. Haralds, sem lá við garðinn.
Bíllinn sem er stór amerískur
Ford Torino, skemmdist mjög
mikið, en ökumaðurinn og farþegi
hans sluppu með skrámur og þyk-
ir það ganga kraftaverki næst.
Sjónarvottur sem fylgdist með
ferð bilsins á hafnarbakkanum
tilkynnti lögreglunni að þarna
hefði orðið stórslys. — júiíus.
minna rafmagnslausir, en sima-
samband austur var af þessari
ástæðu mjög erfitt, og tókst
Morgunblaðinu ekki að fá þetta
staðfest hjá viðkomandi aðilum á
Egilsstöðum né frekari skýringar
á orsökum þessa.
Góður afli
rækjubáta
Hvammstanga, 31. janúar
FJÓRIR bátar stunda nú rækju-
veiðar héðan og er afli þeirra
unninn hér á Hvammstanga. Láta
mun nærri að helmingur þess
veiðikvóta, sem Hvammstanga er
úthlutað, hafi verið veiddur, en
kvótinn er afls um 316 tonn.
Gæftir hafa verið nokkuð góðar,
og rækjan sem veiðist er ágæt.
Ótíð hefur þó spillt veiðum nokk-
uð nú sfðustu daga. Veruleg eftir-
spurn er eftir rækjunni og selst
hún jafnóðum að segja má. Þá
landa hér tveir bátar að staðaldri,
sem veiða fyrir Blönduóssverk-
smiðjuna. — Kari.
Frekari
handtökur?
ÞEGAR Morgunblaðið hafði sfð-
ast fregnir f gærkvöldi, var
bandarfski strokufanginn,
Cristopher Barbar Smith, ennþá
ófundinn. Morgunblaðið hafði
spurnir af þvf f gærkvöldi, að
handtökur hefðu átt sér stað
vegna rannsóknarinnar á hvarfi
strokufangans, en Howard
Matsson, blaðafulltrúi varnarliðs-
ins á Keflavfkurflugvelii, kvaðst
ekkert geta um þetta mál sagt
vegna herreglna, sem bönnuðu
slfkt.
Listdans
í Þjóð-
leikhúsinu
1 KVÖLD og annað kvöld verður
endurtekin listdanssýning f Þjóð-
leikhúsinu, sem var um mánaða-
mótin nóvember — dcsember.
Það var fyrsta sýning sem Natalja
Konjus, hinn nýji ballettmeistari
Þjóðleikhússins, stendur fyrir og
nú er það annar sænskur bailett-
dansari sem tekur þátt f sýning-
unni, Nils-Ake Hággbom, en hann
er annar aðaldansari Stokkhólms-
óperunnar.
Sýndur verður ballettinn Les
Silfides í heild sinni og eru það
meðlimir f tslenzka dansflokkn-
um sem dansa ásamt Nils-Ake
Hággbom. Auður Bjarnadóttir og
Haggbom dansa tvö erfiðustu
atriöin úr Svanavatninu eftir
Tsjaikovski. Þá má nefna að sýnd
verða atriði úr Gosbrunninum i
Bakhcisarai, örn Guðmundsson
og Ásdís Magnúsdóttir dansa nýj-
an dans saminn af Natalja Konjus
við tónlist eftir Spilvérk þjóð-
anna, Styttur bæjarins.
Sýningar þessar verða sem fyrr
segir I kvöld og annað kvöld, 1. og
2. febrúar, í Þjóðleikhúsinu.
42 mjólkurbúðum