Morgunblaðið - 01.02.1977, Page 5
Klukkan 22.05:
„Þegar
Fidel
Castro
sveik
loforðið
um viðtal”
Á dagskrá sjónvarpsins í kvöld
er mjög athyglisverð mynd um
ferð tveggja manna til Kúbu.
Mynd þessi er alveg ný af nálinni
og taldi þýðandi og þulur, Stefán
Jökulsson, að hún hefði verið
gerð siðastliðið vor.
Höfuðpersónur myndarinnar
eru Jeff Stirling, sem er
kanadiskur og eigandi margra
útvarps- og sjónvarpsstöðva I
Kanada. Með honum eru kvik-
myndamenn frá fyrirtæki, sem
heitir The National Film Board.
Svo og er fyrrverandi forsætisráð-
herra Nýfundnalands, Joseph
Smallwood. Hann hitti upphaf-
lega Fidel Castro á Gander-
flugvelli í Nýfundnalandi og
æskti þess að fá viðtal við Castro
um leið og gerð yrði heimilda-
mynd um Kúbu.
sem ALLIR hafa beöið eftir
Fidel Castro lét biða árangurs-
laust eftir sér.
I erífullum gangi í3 verzlunum
Joseph Smallwood er sósialisti
og Castro veitti honu góðfúslega
heimild til að koma til Kúbu og
taka viðtal við sig um leið og gerð
yrði heimildamynd um land og
þjóð.
En þegar þeir Stirling, Small-
wood og fylgdarmenn koma til
Kúbu virðist Castro hafa gleymt
loforðinu um vjðtal og gengur þvi
myndin út á árangurslausa bið
þeirra félaga, sem ekki eru þó af
baki dottnir og hefjast handa um
gerð kynnismyndar um land og
þjóð.
Mest halda þeir til i höfuðborg-
inni, Havanna, þar sem þeir heim-
sækja geðsjúkrahús og ræða við
sjúklinga, svo og heimsækja þeir
skóla og ræða þar til dæmis við
formann stúdentasamtaka.
Einnig halda þeir út á lands-
byggðina og kanna þar háttu fólks
og liferni. Að sögn þýðanda
myndarinnar virðist fólk þar, sem
þeir taka tali, siður en svo
óánægt.
í myndinni koma fram tvö
athyglisverð sjónarmið, sem fel-
ast i umræðum Jeff Stirlings, sem
er fulltrúi frjáls einkaframtaks
og deilir hart á þjóðfélags-
skipulag Kúbu og svo og forsætis-
ráðherrans fyrrverandi, Josephs
Smallwood, sem í alla staði reynir
að réttlæta skipan mála þrátt
fyrir svikin loforð Castros, sem
ber við önnum, sérstaklega út af
opinberri heimsókn Honeckers,
forsætisráðherra Austur-
Þýzkalands. Sögumaður i mynd-
inni er einn af kvikmyndatöiAi-
mönnunum frá The National
Film Board.
Að þvi er Stefán Jökulsson
sagði, er myndin í alla staði mjög
athyglisverð og lýsir ágætlega
þeim breytingum, sem ferðalöng-
unum finnst þeir verða varir við á
eyjunni eftir að Fidei Castro
komst til valda.
QflmtímÍQ
r