Morgunblaðið - 01.02.1977, Qupperneq 13
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 1. FEBRUAR 1977
13
ALYKTUN ut
af Víkurfundi
BLAÐINU hefur borist eftir-
farandi fréttatilkynning:
Á fundi hreppsnefndar
Hvammshrepps, sem haldinn var
I Vík 21. janúar s.l. var samþykkt
eftirfarandi ályktun og ákveðið
að senda hana á öll heimili i
hreppnum:
1. Hreppsnefnd Hvammshrepps
mótmælir harðlega framkomnum
fullyrðingum, sem nokkrir íbúar
hreppsins hafa skrifað undir, —
og skrifum þess efnis, að sveitar-
stjórnir I Hvamms- og Dyrhóla-
hreppi hafa boðið fram land
undir álver við Dyrhólaey. Hér
með er þvl lýst yfir að hvorki
hefur neitt verið samþykkt né
boðið varðandi þetta, af hálfu
hreppsnefndar, og verður ekki
gert án undangenginnar almennr-
ar atkvæðagreiðslu meðal allra
hreppsbúa.
2. Hinn 8. janúar s.l. var hald-
inn fundur i Vík að frumkvæði
formanns og framkvæmdastjóra
Samtaka sveitarfélaga i Suður-
landskjördæmi. Til fundarins
voru boðaðir allir sveitar-
stjórnarmenn i Hvamms-
Dyrhóla- og Austur-
Eyjafjallahreppi, oddvitar allra
hreppa austan Mýrdalssands,
Einar Oddsson sýslumaður og Jón
Helgason alþingismaður. Á
fundinum voru ræddar hug-
myndir um hafnargerð við Dyr-
hólaey eða annars staðar á Suður-
landi með tilliti til stóriðju og
bygging álvers helzt nefnd sem
forsenda hafnargerðar.
3. Lengi hafa Skaftfellingar
þráð að eignast höfn og með
henni séð þann draum rætast að
þurfa ekki lengur að horfa á eftir
unga fólkinu til annarra lands-
hluta sökum fábreytts atvinnulifs
I heimabyggð. Margt bendir hins
vegar til þess að seint eða aldrei
verði byggð örugg ný höfn á
suðurströnd landsins nema til
komi annað og meira en útræði.
Sveitarstjórnarmenn I Hvamms-
hreppi hafa auk þessa haft þung-
ar áhyggjur af þvi alvarlega
ástandi, sem skapast um næstu
áramót, þegar starfsemi loran-
stöðvarinnar I Reynisfjalli verður
lögð niður. Fyrir Víkurkauptún
með sína tæpu 400 Ibúa yrði það
ekki ósvipað og verksmiðjur Sam-
bandsins á Akureyri hættu starf-
semi sinni. Hreppsnefndin hefur
þegar gert opinberum aðilum
grein fyrir þessu en gerir jafn-
framt þá sjálfsögðu kröfu til
sjálfrar sin og heimamanna allra
að fresta ekki lengur að leita i
Framhald á bls. 33
ERUM FLUTTIR I NYJA
p°b
FRYGGVABRAUT 18-20
BÓKAFORLAG ODDS BJÖRNSSONAR
AKUREYRI PÓSTHÓLF 558 SÍMI (96)22500
Okkar salur er ekki dýrari...
enhamereimságkesilegasti!
Næst þegar þér þurfið á húsnæði að halda fyrir veislur eða
hverskonar mannfagnað, skuluð þér athuga hvort Þingholt
hentar ekki þörfum yðar. Leitið upplýsinga. Sími 21050.
BERGSTAÐASTRÆTI 37
SÍMI 21011
81
S 2
Z '5
0
Eftir gagngerar breytingar opnum við aftur
bensínafgreiðsluna að Brúarlandi í Mosfellssveit
Bílaperur, bónvörur, ferðavörur, rafkerti,
verkfæri, vetrarvörur, þurrkublöð og öryggi.
Starfsfólk okkar aðstoðar þig við vöruval.
ESSO þjónusta Ártúnshöfða Borgartúni Brúarlandi Hafnarstræti Nesvegi Reykjavíkurvegi Stórageröi