Morgunblaðið - 01.02.1977, Page 14
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 1. FEBRÚAR 1977
14
French
Connection II
Að því kemur, að menn Frog
One ná Popeye á sitt vald og
gera hann að heróinista í þeim
tilgangi að fá hjá honum upp-
lýsingar þegar eitrið er orðið
aðalatriðið í lífi hans, og pina
hann þannig til sagna. Eftir að
þeir sleppa honum, lokar
franska lögreglan Popeye inni
á meðan eitrið er að fara úr
likamanum. Þetta atriði,
draumur hvers leikara, er
einstaklega vel gert af Hack-
man og vel skrifað. Þvi að i
þjáningarausinu er Popeye
látinn skýra bakgrunn sinn og
innri mann.
Áhersla hefur verið lögð á
það að reyna að jafna hinn
fræga eltingarleik i F.C. I. að
þessu sinni eltir Popeye uppi
strætisvagn, á tveimur jafn-
fljótum og etur síðan kappi við
seglskútu á leið út úr höfninni.
Um leik annarra en Hack-
mans er fátt að segja. Fresson
er vel skapaður í hlutverk sitt
sem hinn franski aðstoðar-
maður Popeyes. Aristókratinn
Fernando Rey, sem alltaf er
eftirtektarverður (sérstaklega i
myndum Bunuels), sést hér
varla.
John Frankenheimer leik-
stýrir af kaldri nákvæmni, hans
langbesta mynd um árabil. Það
besta sem Frankenheimer gerir
þó i myndinni er tvimælalaust
siðasta atriðið, sem ekki verður
lýst hér nánar — en fékk áhorf-
endur til að súpa hveljur. Og
það ekki að ástæðulausi^.
sv.
NVJA BÍÓ: FRENCH
CONNECTION II. * * *
Leikstj.: John Frankenheimer.
Handrit: Alexander Jacobs,
Robert og Laurie Dillon. Kvik-
myndataka: Claude Renoir.
Tónlist: Don Ellis. Aðalhlut-
verk: Gene Hackman, Bernard
Fresson, Fernando Rey, Jean-
Pierre Castaldi og Cathleen
Nesbitt. Sýningart.: 119 mín.
Endurgerðir mynda eru oft-
ast mislukkaðar og hvimleiðar
tilraunir kvikmyndaframleið-
enda til að trekkja inn á vin-
sældir frummyndarinnar. Á
síðustu árum hafa kvikmynda-
húsgestir þó orðið vitni að
tveimur heiðarlegum undan-
tekningum; THE GOD-
FATHER PART II og FRENCH
CONNECTION II.
F.C. (I) var um marga hluti
frábær mynd. Einstaklega vel
skrifað handrit af Ernest Tidy-
man (eftir endurminningum
lögregluþjóns I New York),
leikstýrð af William Friedkin, 1
af sannkölluðum glæsibrag. Og
leikurinn, sérstaklega hjá Gene
Hackman og Roy Scheider, j
ógleymanlegur. Enda hefur
tæpast nokkur mynd i allri I
kvikmyndasögunni valdið jafn j
miklum straumhvörfum. j
Næstum hver einasti framleið-
andi ætlaði sér að græða á sinni 1
eigin útgáfu af F.C. — og mörg-
um tókst það.
í miðjum þessum flaumi
kemur svo framhald frum-
myndarinnar og þótt lygilegt
sé, þá gefur hún henni lítið
eftir. F. C. II. er einfaldlega
einn sá mest spennandi
Jacobs, Robert og Laurie
Dillon. Þau hafa greinilega ein-
beitt sér að aðeins einum aðila:
Popeye. F.C. I. gaf okkur inn-
sýn i lif lögreglumannsins i
New York, og útskýrði litið eitt
lifsmynstur borgarinnar. Um
ekkert slíkt er að ræða hér, F.C.
II. er atburðarás byggð i
kringum Popeye. Hann er send-
ur I sérstökum erindagerðum
til Marseilles, til að vinna með
frönsku lögreglunni (sem
honum er meinlega við, enda
mállaus með öllu). Ætlunin er
að handsama Frog One (Fern-
ando Rey), sem komst undan i
F.C. I. Án þess að gera sér grein
fyrir því er Popeye notaður
sem agn til þess að fá Frog One
og félaga fram úr skúmaskotum
cínnm
Auglýsingaplakat F. C. II.
lögregluþriller sem hér hefur
sést lengi, og heldur áhorfend-
um langtímum saman á yztu
brún áhorfendabekkjanna.
Sem fyrr er það Hackman
sem er þungamiðja kvik-
myndarinnar, hinn kjaftfori og
einstrengingslegi eiturlyfjalög-
reglumaður, sem nú er á eftir
erkióvini sínum, „Frog One“, i
umhverfi þess siðarnefnda,
Marseilles, Frakklandi. Allar
hans hreyfingar; hvernig hann
étur, drekkur, eltir uppi óvini
sína, opinbera þessa írsku New
York-löggu, sem fyrir heppni
lenti réttu megin laganna. Ef
„Popeye" ætlaði sér að gerast
afbrotamaður, þyrfti hann i
engu að breyta sér, aðeins
skipta um skotmörk.
Handritið er skrifað af
Besti karlleikarinn: Dustin Hoffman
Besti kvennleikarinn: Audrey Ilepburn
Besti vestrinn: THE SHOOTIST
Besta mynd ársins: NET WORK
Verðlauna-
afhending
Films and
Filmings
í JANÚARBLAÐINU ár
hvert birtist val gagnrýn-
enda breska kvikmynda-
mánaðarritsins FILMS
ANO FILMING á því besta
og versta sem gerst hefur í
kvikmyndaheiminum árið
áður. Hér á eftir kemur
smá-úrtak af verðlauna-
höfundum i ár:
Besta mynd ársins:
NETWORK (Usa leikstýrð
af Sidney Lumet)
Besti leikstjórinn: Milos
Forman (ONE FLEW...)
Besti kvenleikarinn:
Audrey Hepburn (ROBIN
AND MARIAN)
Besti karlleikarinn: Dustin
Hoffman (MARATHON
MAN)
Besta bresk-gerða myndin:
THE MAN WHO FELL TO
EARTH (Nicolas Roeg)
Besta handritið: Paddy
Chayefsky NETWORK
Besta kvikmyndatakan:
John Albott (BARRY
LYNDON)
Besti vestrinn: THE
SHOOTIST (Usa, Don
Siegel)
Besti þrillerinn: THE
MARATHON MAN
Oflofaðasta mynd ársins:
TAXI DRIVER (USA, Martin
Scorsese)