Morgunblaðið - 01.02.1977, Page 21
Örn Oskarsson — leikur með Kr næsta keppnistímabil
ÖRNI'KR
„KR að brjóta nýtt blað í sögu íslenzkrar
laiattspymu," segir form. knattspymuráðs ÍBV
ÞAÐ MUN vera frágengið
að Örn Óskarsson knatt-
spyrnumaður í Vest-
Þróttur vann
Fram og
Valur Víking
SEX leikir voru háðir i afmælismóti
HKRR um helgina og meðal annars
sigruðu Valsmenn lið Vikings með
27 mörkum gegn 25 i baráttuleik.
Þá sigraði Þróttur lið Fram næsta
auðveldlega, úrslitin urðu 30:22.
Ármenningar áttu hins vegar i mestu
efriðleikum með þriðju deildarlið
Aftureldingar og munurinn á liðun
um varð ekki nema 2 mörk í lokin,
22:20 fyrir Ármann. FH fór létt með
Fylki 30:15, KR vann Stjörnuna
28:21 og Grótta sigraði Breiðablik
29:24. Landsliðsmenn félaganna eru
ekki með i mótinu.
mannaeyjum skipti um
félag og gangi yfir í KR.
Verður gengið formlega
frá félagaskiptunum á
næstunni og leikur Örn
með sfnu nýja félagi í sum-
ar. Hann hefur sem kunn-
ugt er verið markhæsti
leikmaður ÍBV undanfarin
ár.
Morgunblaðið ræddi I gær við
Hermann Jónsson, fráfarandffor-
mann knattspyrnuráðs ÍBV, um
félagaskiptin. Hermann sagði:
„Með þessum félagaskiptum er
KR að brjóta nýtt blað f sögu
íslenzkrar knattspyrnu og við
Eyjamenn erum ekkert undrandi
á þvi að örn skuli hafa látið
freistazt af því sem i boði var.“
Þegar blaðamaður spurði Her-
mann hvort hann ætti þarna við
að KR væri að fara út I atvinnu-
mennsku, svaraði Hermann: ,,Ég
ætla ekki að upplýsa hvað um var
samið milli Arnar og forráða-
manna KR. Menn geta bara lagt
saman tvo og tvo og fá þá væntan-
lega rétt svar út úr orðum þinum
að frarnan."
Hörð átök í júdómótinu. Sigurður Jóhannsson dómari fylgist með að farið sé að settum reglum.
FJARVERA ÞEIRRA STERKUSTU
SKYGGÐIÁ AFMÆLISMÓT JSÍ
ÞAR SEM nokkrir af sterkustu
júdómönnum okkar voru forfall-
aðir var ekki eins mikil reisn yfir
fjórða afmælismóti Júdósam-
bandsins á sunnudaginn eins og
búast hefði mátt við. Þannig vant-
aði þá Viðar Guðjohnsen, Svavar
Carlsen og Benedikt Pálsson. Þeir
júdómenn, sem mesta athygli
vöktu um helgina, voru þeir Jón-
as Jónasson, sem sigraði Halldór
Guðbjörnsson í millivigtinni —
einum flokki ofar en Halldór
keppir venjulegast í, Jóhannes
Haraldsson, sem nú keppti að
nýju og sigraði i léttvigtinni, og
siðast en ekki sizt Bjarni Friðriks-
son, sem er mjög lofandi júdó-
maður.
Alls voru 40 þátttakendur i
þessu móti og var keppt í 6 flokk-
um. Taka júdómótin nú orðið það
mikinn tima að full ástæða er
fyrir forystumenn Júdósam-
bandsins að taka upp einhverja
skiptingu á meiri háttar mótum,
til að mótin verði ekki eins lang-
dregin fyrir áhorfendur. Fimm
félög áttu þátttakendur á þessu
móti og meðal annars mætti til
mótsins stór hópur frá Reyni á
ísafirði.
CJrslit i einstökum flokkum
urðu þessi:
YFIRÞUNGAVIGT (yfir95 kg)
Gfsii Þorsteinsson Á
Kristmundur Baldursson UMFJ
Hákon örn Halldórsson JFR
LÉTTÞUNGAVIGT (78 —86 kg) Kári Jakobsson JFR LÉTTMILLIVIGT (60—65 kg) Jóhannes Haraldsson UMFG
Bjarni Friðriksson A Gunnar Guðmundsson UMFK
Finnur M. Finnsson Reyni Styrmir Sigurðsson A
MILLIVIGT (71—78 kg) BANTAMVIGT (Undir 60 kg)
Jónas Jónasson A Þórarinn ólafsson UMFK
Halldór Guðbjörnsson JFR Rúnar Guðjónsson JFR
Jón Kristjánsson Reyni Einar ólafsson Reyni
Ólafur Jónsson skorar f landsleik við Pólverja. Hann átti góðan leik
með Dankersenliðinu gegn sovézka liðinu MAI.
r
- Olafur átti góðan leik, en
Axel Axelsson kom ekkert inn á
VESTUR-þýzka liðið Dankersen
sem þeir Ólafur H. Jónsson og
Axel Axelsson leika með keppti
við sovézka liðið MAI f Evrópu-
bikarkeppni bikcrhafa nú um
helgina. Fór leikurinn fram á
heimavelli Dankersen f Minden
og lauk með sigri heimamanna,
24—19, þannig að Dankersen ætti
að eiga mjög góða möguleika á
þvi að komast áfram f Evrópubik-
arkeppninni að þessu sinni. Má
ólfklegt teljast að liðið tapi með
meira en 5 marka mun ( seinni
leiknum sem verður f Moskvu 11.
febrúar n.k., jafnvel þótt vitað sé
að Sovétmenn eru alltaf erfiðir á
heimavelli.
Ólafur H. Jónsson átti mjög góð-
an leik með Dankersen-liðinu á
móti MAI, og skoraði hann þrjú
mörk, auk þess sem hann var
bezti maður liðsins i vörn, og
hafði sérstaka gæzlu á hættu ieg-
asta leikmanni sovézka liðsins,
Vladimir Makimov.
Axel Axelsson kom ekkert inn á
i leiknum, og mun ástæðan hafa
verið sú, að hann hefur ekki náð
sér eftir þau meiðsli sem hann
varð fyrir i landsleik íslands og
Póllands á dögunum. Þau meiðsli
munu þó ekki hafa verið alvarleg,
og Axel mun geta beitt sér á fullu
á æfingum með islenzka landslið-
inu á næstunni.
Spánverjar sigursælir í Frakklandsmótinu
Spánverjar sem væntanlega
verða mótherjar Islendinga f
B-heimsmeistarakeppninni i
handknattleik f vetur, hafa
unnið tvo fyrstu leiki sfna f
handknattleiksmóti þvf sem
fram fer þessa dagana f Frakk-
landi. Mættu þeir Frökkum f
Nancy á laugardaginn og sigr-
uðu 18—14, eftir að hafa haft
eitt mark yfir f hálfleik 9—8.
Leikur þessi þótti mjög góður,
og sérstaklega af hálfu Spán-
verjanna. Á sunnudag kepptu
Spánverjar svo við Hollendinga
og sigruðu 22—19 í hörkuleik.
Komu Hollendingar á óvart en
svo virðist sem landslið þeirra
hafi tekið stórstfgum framför-
um að undanförnu.
Á laugardaginn fékk hof-
fenzka liðið þó slæman skell er
það mætti pólska landsliðinu,
þvf hinu sama og keppti hér á
dögunum. Sigruðu Pólverjar f
leiknum 19—6. Á sunnudag
urðu Pólverjar hins vegar að
gera sér 20—20 jafntefli að
góðu f leik sfnum við Frakka.
Meðal þeirra sem fylgjast
með leikjunum f Frakkfandi er
fslenzki landsliðsþjálfarinn
Janusz Cerwinski, og aflar
hann þar örugglega dýrmætrar
vitneskju um spánska liðið.
Austur-Þjóðverjar sem leika
með tslendingun. f riðli f B-
keppninni voru einnig að
keppa um helgina. Fengu þeir
Svisslendinga f heimsókn og
iéku við þá f Magdeburg á
laugardaginn og Halle á sunnu-
daginn. 1 leiknum f Magdeburg
unnu Þjóðverjarnir sigur 24—
20, eftir að staðan hafði verið
13—9 þeim f vil f hálfleik. 1
seinni leiknum unnu Þjóð-
verjarnir einnig sigur eftir
mikinn baráttuleik, þar sem
Svisslendingar höfðu lengi for-
ystu. Var staðan f hálfleik 16—
15 fyrir Sviss, en Þjóðverjarnir
náðu upp mjög góðum varnar-
leik f seinni hálfleik og sigruðu
25—20.