Morgunblaðið - 01.02.1977, Side 28
28
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 1. FEBRUAR 1977
Mynd þcssi sýnir Derek Hales skora fyrir Derby í leik liðsins við Newcastle um fyrri helgi, en þann leik
vann Derby 4—2. A laugardaginn lenti Derby í erfiðleikum í leik sínum við 4. deildar liðið Colchester.
Jafntefli varð, 1 — 1. Mark Derby í þeim leik skoraði einnig Derek Hales.
DERBY OG EVERTON
LENTU í ERFIÐLEIKUM
- EN ÚRSLIT í FJÚRÐU UMFERÐ FLEST SEM VÆNTA MÁTTI
FJÓRÐA umferð ensku bikarkeppninnar í knattspyrnu fór fram s.l.
laugardag. Ekki verður sagt að nein úrslit I leikjum þessarar umferðar
hafi komið verulega á óvart, nema ef vera skyldi f leik 4. deildar
liðsins Colchester United við 1. deildar lið Derby County, en þar varð
jafntefli 1—1, og I leik Swindon Town sem er lið f 3. deild, við Everton,
en einnig í þeim leik varð jafntefli 2—2. Margir leikjanna á laugar-
daginn voru hins vegar mjög skemmtilegir og spennandi, eins og
bikarleikir f Englandi eru oftast, enda mikið f húfi fyrir liðin að
komast áfram, bæði hvað varðar heiður og fjármuni.
Eitt lið sem er utan deilda
komst í 4. umferðina að þessu
sinni. Var það Northwich
Victoria, sem fékk 2. deildar liðið
Oldham Athletic sem mótherja I
umferðinni. Átti að leika leik
þennan á heimavelli Northwich,
en fljótlega kom í ljós að áhugi
fólks á leik þessum var langtum
meiri en svo að unnt væri að láta
leikinn fara þar fram, enda rúmar
völlur félagsins ekki nema rösk-
lega 4 þúsund manns. Varð að
ráði að flytja leikinn til Manchest-
er og fór hann þar fram á velli
Manchester City að viðstöddum
hvorki fleiri né færri en 28.600
áhorfendum. Svo margir hafa
aldrei séð leik hjá Northwich fyrr
né sfðar og gefur þessi aðsókn
þessu fátæka félagi verulega
peninga.
Leikmenn Northwieh Victoria
voru óspart hvattir í leiknum
gegn Oldham, en það kom fyrir
ekki. Annarrar deildar liðið sýndi
hver var hin sterki og hafði góð
tök á leiknum frá upphafi þrátt
fyrir baráttu leikmanna North-
wich. Vic Halom skoraði tvö mörk
fyrir Oldham, en Carl Valentine
þriðja markið. Mark Northwich
skoraði hins vegar Jim Collier, og
var sérlega skemmtilega að þvi
marki staðið — vörn Oldham bók-
staflega leikin sundur og saman.
Forystuliðið í 1. deild.
Liverpool, fékk 2. deildar liðið
Carlisle United sem mótherja og
átti ekki í neinum erfiðleikum
með að „ganga frá“ því. Fyrsta
mark leiksins skoraði Kevin
Keegan eftir hornspyrnu á 17.
mínútu. Á 34. mínútu bætti svo
John Toshack öðru marki við.
Toshack lék nú með Liverpool-
liðinu aftur eftir að hafa verið frá
um nokkurn tíma vegna meiðsla,
og sýndi að hann er einn bezti
maður liðsins. Hvað eftir annað
setti hann vörn Carlisle í mikil
vandræði og tvívegis var skotum
frá honum bjargað á línu. 1 seinni
hálfleik var um hreina einstefnu
að marki Carlisle að ræða, en
markvörður liðsins, Martin
Burleigh, varði þá oft frábærlega
vel og var sannkölluð hetja liðs
síns. Hann kom þó engum vörnum
við þegar Steve Heighway komst i
gott færi á 69. mínútu. og skoraði
þriðja mark Liverpool I leiknum.
Áhorfendur að leik þessum voru
45.358.
Hinn marksækni Malcolm Mac-
Donald lék aðalhlutverkið í leik
Arsenal og Coventry. Skoraði
hann tvö mörk í leiknum og hefur
nú gert samtals 20 mörk á þessu
keppnistfmabili. Fyrsta mark
leiksins skoraði Frank Stapleton
með skalla á 25. minútu, en Mac-
Donald breytti stöðunni í 2—0
þegar fimm minútur voru til loka
fyrri hálfleiks. Tommy
Hutchinson kom Coventry á blað
með skallamarki á 55. minútu, en
MacDonaid svaraði þvf marki
tveimur minútum síðar með
fallegu skallamarki. Áhorfendur
voru 41.078.
Leeds United þótti sýna gamla
meistaratakta I leik sinum við
Birmingham. Leikurinn var
nokkuð jafn framan af og var
staðan 0—0 i hálfleik. Á fyrstu 17
minútum seinni hálfleiks skoraði
Leeds svo tvivegis og var mjög
fallega að þeim mörkum unnið.
Fyrra markið skoraði Joe
Jordan með skalla, eftir að
Frankie Gray og Trevor Cherry
höfðu leikið vörn Birmingham
sundur og saman og Gary átti
einnig mestan þátt að öðru
markinu sem Allan Clarke skor-
aði svo. Kenny Burn skoraði svo
eina mark Birmingham í leiknum
þegar niu mínútur voru til leiks-
loka. Áhorfendur voru 38.000.
Gifurleg barátta og spenna var í
leik Ipswich við 2. deildar lið
Wolverhampton Wanderes.
Staðan í hálfleik var 1—0 fyrir
Ulfana og hafði John Richards
skorað það mark á 31. minútu. 1
seinni hálfleiknum sótti svo Ips-
wich af mikiili ákveðni og fljót-
lega fékk Paul Mariner tvö góð
marktækifæri sem hann misnot-
aði. í sóknarákefð sinni gleymdi
Ipswich svo stundum vörninni,
þannig að jafnan var stórhætta á
ferðum þegar Ulfarnir náðu upp-
hlaupum. Það var loks á 75.
minútu sem Ipswich tókst að
jafna og var Mariner þar að verki.
Adam var þó ekki lengi i Paradis
þeirra Ipswich manna, þvi marki
þessu svaraði Richards skömmu
síðar með fallegu skoti. Var allt
útlit á þvi að Ulfarnir myndu
bera óvæntan sigur úr býtum.
Leiktíminn var að renna út og
dómarinn farinn að horfa á
klukku sína. Þá átti Mariner skot
að marki Úlfanna. Gary Pierce,
markvörður, sló knöttinn vel frá,
en Burley kom aðvifandi og skaut
viðstöðulaust I mark Úlfanna við
gífurleg fagnaðarlæti 32.996
Framhald á bls. 27
St. Mirren burstaði Dundee Utd.
ÞRIÐJA umferð skozku bikarkeppninnar í knattspyrnu fór fram á
laugardaginn, og komu úrslit nokkurra leikja á óvart — engin þó
eins og stórsigur 1. deildar liðsins St. Mirren yfir úrvalsdeildarlið-
inu Dundee United. Eftir að Paul Sturrock hafði skorað fyrsta mark
leiksins fyrir Dundee United, sneri St. Mirren leiknum algjörlega
sér I vil. Bobby Torrance skoraði fljótlega jöfnunarmark, og í
seinni hálfleik bættu þeir Frank McGarvey og Billy Stark þremur
mörkum við.
Celtic keppti einnig við 1. deildar lið, Airdrie, og lenti í hinum
mestu brösum. Airdrie náði forystu á 27. mínútu leiksins er Jim
March skoraði, og var langt liðið á leikinn er Johnny Doyle tókst að
jafna.
Glasgow Rangers átti hins vegar ekki f erfiðieikum með mótherja
sinn, Falkirk, hafði yfirburði og vann 3—1. Sá sigur hefði eftir
atvikum átt að vera mun stærri. Rangers stendur nú nokkuð höllum
fæti i úrvalsdeildarkeppninni, og hefur liðið örugglega hug á þvf að
verja bikarmcistaratitil sinn, og viðhalda þannig þeirri hefð að það
hljóti annaðhvort meistaratitil eða hikarmeistaratitil.
1 1
1. DEILD
L Heima Úti Stig
Liverpool 25 10 2 0 29:6 4 3 6 12:18 33
Ipswich Town 22 8 4 0 25:7 5 2 3 16:13 32
Manchester City 22 7 4 1 21:9 3 6 1 12:7 30
Aston Villa 22 8 1 1 32:12 4 2 6 12:16 27
Arsenal 23 7 3 1 23:10 3 4 5 18:25 27
Middlesbrough 23 8 2 2 12:6 2 5 4 8:15 27
Newcastle United 20 7 3 0 19:7 2 3 5 15:19 24
Manchester United 22 5 3 3 21:14 4 3 4 17:18 24
Leicester City 24 4 5 2 18:16 2 6 5 10:21 23
Kirmingham City 23 5 4 3 21:15 3 2 6 16:19 22
West Bromwich Albion 22 5 4 2 22:10 2 4 5 8:17 22
Leeds United 21 2 5 3 13:16 5 3 3 14:11 22
Norwich City 23 6 3 3 16:14 2 3 6 9:16 22
Coventry City 21 5 4 3 20:15 2 3 4 6:11 21
Stoke City 21 6 1 1 10:5 0 6 7 3:18 19
Derby County 20 5 4 1 20:9 0 4 6 6:18 18
Queens Park Rangers 20 6 1 2 15:10 1 3 7 11:20 18
Everton 22 4 4 3 18:16 2 2 7 14:27 18
Tottenham Hotspur 22 5 5 3 15:13 1 0 8 14:30 17
Bristol City 20 3 3 4 13:10 2 2 6 7:14 15
West Ham United 22 3 3 6 11:15 1 2 7 9:20 13
Sunderland 24 1 3 7 4:11 1 3 9 9:25 10
2. DEILD
L HEIMA ÚTI STIG
Chelsea 24 9 3 0 29—15 4 4 4 13—17 33
Bolton Wanderes 23 9 1 1 22—10 5 3 4 20—18 32
Notthingham Forest 23 7 3 1 34—15 4 4 4 15—11 29
Blackpool 24 6 3 3 18—11 4 6 2 18—13 29
Wolverhampton Wanderes 22 6 1 3 24—11 4 7 1 27—16 28
Charlton Atletic 23 8 2 2 32—19 1 5 5 13—20 25
Millwall 22 5 3 4 20—15 5 1 4 16—16 24
Oldham Athletic 21 7 3 1 20—11 2 3 5 8—18 24
Luton Town 23 6 2 2 18—11 4 1 8 19—20 23
Notts County 21 3 2 4 8—11 6 2 4 26—23 22
Sheffield United 22 4 5 3 16—15 3 3 4 10—15 22
Bristol Rovers 25 6 4 3 21—18 2 2 8 14—26 22
Southampton 23 4 5 3 19—18 3 2 6 21—22 21
Cardiff City 23 5 4 4 19—18 2 3 5 14—18 21
IIull City 22 5 4 1 18—8 0 6 6 6—18 20
Plymouth Argyle 23 3 6 4 17—15 2 4 4 12—19 20
Fulham 25 5 4 4 22—17 1 4 7 11—24 20
Blackburn Rovers 22 5 2 3 15—10 3 2 7 8—23 20
Burnley 23 3 7 3 16—16 1 3 6 10—19 18
Carlisle United 24 4 5 4 17—22 2 1 8 8—25 18
Orient 19 2 2 4 8—9 2 5 4 11—16 15
Hereford United 21 2 3 4 14—20 1 3 8 15—30 12
Knattspyrnuúrsilt
____í...............>
ENSKA BIKARKEPPNIN 4. UMFERÐ
Arsenal—Coventry 3—1
Birmingham—Leeds 1—2
Blackburn—Orient 3—0
Cardiff — Wrexham 3—2
Chester — Luton 1—0
Colchester—Derby 1—1
Ipswich—Wolves 2—2
Liverpool—Carlisle 3—0
Manchester Utd. — Q.P.R 1—0
Middlesbrough—Hereford 4—0
Aston Villa — West Ham 3—0
Northwich—Oldham 1—3
Newcastle — Manchester City 1 —3
Notthingham—Southampton 3—3
Port Vale — Burnley 2—1
Swindon—Everton 2—2
ENGLAND 1. DEILD:
Norwich — Stoke 1—1
ENGLAND 2. DEILD:
Charlton — Notts County 1 —l
ENGLAND 3. DEILD:
Brighton—Lincoln 4—0
Bury — Reading \—0
Chesterfield — Preston 1—l
Gillingham—Oxford 1—1
Grimsby—Northampton 0—1
Peterborough—Shrewsbury 2—1
ENGLAND 4. DEILD:
Aldershot—Crewe 1—1
Barnsley—Bournemouth 3—1
Bradford — Exeter 1—1
Brentford — Halifax 2—1
Cambrigde — Darlingon 4—0
Southport—Watford 1—3
Swansea — Hartlepool 4—2
Torquay—Rochdale 2—0
Workington—Doncaster 1—1
SKOZKA BIKARKEPPNIN 3. UMFERÐ
Airdrie — Celtic 1—1
Arbroath — Brechin 1 —0
East Fife — Clyde 2—1
East Stirling — Albion Rovers 0—3
Hearts — Dumbarton 1—1
Morton — Ayr United 0—1
Motherwell—Kilmarnock 3—0
Queens Park — Alloa 0—0
Queen of the South — Montrose 3—2
Rangers — Falkirk 3—1
St. Mirren — Dundee Utd. 4—1
Stirling — Elgin 1—1
SKOTL,aND 2. Deild:
Cowenbeath — Meadowbank 3—1
Forfar—Berwick 1—0
FRAKKLAND 1. DEILD:
Lens — Lyons 2—0
Laval—Lille 1—0
Nantes — Sochaux 2—1
Valenciennes — Bastia 1—2
V-ÞÝZKALAND 1. DEILD:
VFL Bochum
—Borussia Mönchengladbach 0—0
Borussia Dortmund — Karlsruher SC 7—2
Werder Bremen — FC Saarbruecken 1—0
FC Kaiserslautern—HamburgerSV 2—0
Rot-Weiss Essen — Schalke o4 frestað
Eintracht Frankfurt — FC Köln 4—0
Hertha Berlín — MSV Duisburg 2—4
Fortuna Dusseldorf — Tennis Borussía 0—0
Eintracht Braunswick
—Bayern Munchen 1—0
ITALÍA 1. DEILD:
Catanzaro — Miian 1—0
Ceseba — Lazio 0—0
Inter — Fiorentina 0—1
Napoli—Perugia 1—1
Roma — Juventus 3—1
Sampdoria — Bologna 0—0
Torino — Foggia 1—0
Verona—Genoa 3—2
BELGtA 1. DEILD:
FC M :linois—Beringen 3—0
Ostende — Berschot 1 —1
FC Liegeois — Lokeren 0—1
CS Brúgge — Anderlecht 1 —1
Antwerpen—Courtrai 2—2
Wagerem—Lierse 1—0
Molenbeek — FC Brtigge 0—3
Beveren — Standard Liege 2—0
Winterslag—Charleroi 0—0
HOLLAND 1. DEILD:
denHaag — Sparta 1 i
PSV Eindhoven—Ajax 3 l
Haarlem—Breda 0 2
AZ 67 — VVV Venlo 6—0
de Graafschap — FC Twente 0—2
Nijmegen — Utrecht 0—2
Amsterdam — Go Ahead 1 2
Feyenoord — Eindhoven l—l
Roda — Telstar 2 1
PORTÚGAL 1. DEILD:
Benfica — Sportin 2—1
Setubal—Academíco 0—2
Boavista — Estoril 1—0
Belenenses—Braga 2—0
Guimaraes — Atletico 5—0
Portimonense — Porto 0—2
Leixoes — Montijo 1—0
BeiraMar — Varzim 0—0
SPANN 1. DEILD:
Real Sociedad — Celta 4—0
Espanol—Valencia 3—0
Elche — Zaragoza 2—0
Real Betis — Burgos 2—1
Racing — Hercules 1—1
Real Madrid — Barcelona 1—1
Malaga — Athletico Bilbao 0—3
Salamanca — Atletico Madrid 1—1
LasPalmas — Sevilla 4—2