Morgunblaðið - 01.02.1977, Blaðsíða 41
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 1. FEBRUAR 1977
41
fclk f
fréttum
+ Það er ekki tekið út með sitjandi sæidinni að vera forsetafrú.
Hér sjáum við Rosalvn Carter forsetafrú Bandarfkjanna I einni
af sfnum fyrstu móttökum f Hvíta húsinu, en þá tóku forsetahjón-
in á móti hópi fóiks frá Georgíu sem vann að kosningasigri
forsetans. Eins og sjá má er frúin komin úr skónum og virðist að
niðurlotum kominn af þreytu.
+ Svissneski milljónamæring-
urinn, blaðamaðurinn og dýra-
vinurinn Franz Weber ætlar
að reyna að koma f veg fyrir
kópadrápið sem á hverju vori
fer fram á fsnum við austur-
strönd Kanada. Hann hefur
boðið stjórnvöldum f Kanada
75 milljónir f skaðabætur ef
hætt verður við það. Á blaða-
mannafundi f Kaupmanna-
höfn sagði hann, að ef tilboð-
inu yrði hafnað ætlaði hann að
bjóða 600 blaðamönnum viðs
vegar að úr heiminum til að
fylgjast með blóðbaðinu. Þeir
eru óneitanlega fallegir litlu
kóparnir sem hann er með á
myndinni.
+ Kaupmannahöfn er hund-
leiðinleg borg segir Frank
Zappa sem hóf tónleikaferð
sína um Evrópu f Falkonerleik-
húsinu f Kaupmannahöfn.
Þessi frægi ameríski hljóm-
listarmaður sem er nú í Kaup-
mannahöfn f 11. sinn er ekki
hrifinn af „Borginni við Sund-
ið“. „Mér leiðast bæði búðir og
söfn en ég kann að meta gott
kaffi“, segir Zappa, og það fær
hann á morgnana á Plaza
Hoteli. Hann segist aðeins
heimsækja Kaupmannahöfn af
þvf að áheyrendur þar kunni að
meta músfkina sfna.
+ Hann er sænskur og
heitir Christer Nyman.
Hann fæddist með þrjá
fætur, tvöfalda mjaðmar-
grind og tvenn kynfæri
og við fæðingu töldu
læknar að hann ætti ekki
langt líf fyrir höndum. í
dag er Christer 25 ára og
talinn læknisfræðilegt
undur. Strax eftir fæð-
inguna var Christer skor-
inn upp og í þrjá mánuði
börðust læknarnir við að
halda lffi f honum og það
var fyrst eftir fjóra
mánuði og 20 uppskurði
að móðir hans fékk að sjá
hann. Hann fór þá að
taka eðlilegum framför-
um en læknarnir sögðu
að hann myndi aldrei
geta eignazt börn. En
þeim skjátlaðist því hér
sést Christer ásamt konu
sinni og nokkurra
mánaða gamalli dóttur
sinni.
EGA
RAFMAGNS-
GUFUKATLAR
Há og lágspenntir.
Stærðir frá 300 kw upp í 30.000 kw
Framleiða ca 1,4 kg af gufu pr. kwh.
Leitið nánari upplýsinga.
BRÆÐURNIR ORMSSON %
LÁGMÚLA 9 SÍMI 38820
dutch
fímeuit
®INTERNATIONAL
MULTIFOODS
Fœst í kaupfélaginu