Morgunblaðið - 01.02.1977, Blaðsíða 45
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 1. FEBRUAR 1977
45
-I^
VELVAKANDI
SVARAR Í SÍMA
0100KL. 10—11
FRÁ MANUDEGI
jtfyfövníoi’ujzr/ju
öðrum þjóðfélögum og þéna á
þeim með ýmsum brögðum og
ekki sízt með hinum hræðilega
glæp — eiturlyfjasölu.
Ekki er það náttúran og um-
hverfið sem breytzt hefur af
sjálfu sér heldur hefur maðurinn,
mannkynið breytt því — og sjálfu
sér. Hví treysta menn ekki hver
öðrum og hætta að leggja fram
þessar ógnarháu upphæðir í víg-
búnaðarkapphlaupið, til að
standa betur að vígi en náunginn.
Hugsið ykkur hve slikar fjárhæð-
ir gætu gert margt gott til styrkt-
ar þeim sem minna mega sin og í
mikilvægum vísindum í þágu frið-
ar.
„Eins og maðurinn sáir, svo
mun hann og uppskera," sagði
Jesús.
Við sjáum að þessi setning segir
okkur að illt leiði af illu og gott af
góðu. Sáum því í frjósama jörð og
skerum upp góða uppskeru.
Virðingarfyllst,
Einar Ingvi Magnússon,
Heiðargerði 35.“
£ Gott efni
í útvarpi
„Velvakandi góður.
Oft er skammazt mikið yfir
þeirri dagskrá sem okkur er boðið
upp á í útvarpi og sjónvarpi, en
miklu sjaldnar er það að því sé
hælt sem vel er gert. Sérstaka
athygli hafa vakið að mínum dómi
í dagskrá útvarpsins í vetur þætt-
irnir um látna leikara, sem báru
nafnið „Þau stóðu í sviðsljósinu"
Alls munu þetta hafa verið 12
þættir og voru þeir í alla staði vel
unnir og skemmtilegir og vissu-
lega höfðu þeir menningarsögu-
legt gildi. Nú ias ég það nýverið í
blöðunum að bráðlega mundi
hefjast í útvarinu framhaldsleik-
rit um ævi og starf Jesú Krists, Ég
hlustaði á nokkra af þessum þátt-
um á sínum tíma í brezka útvarp-
inu, en þar vöktu þeir mikla at-
hygli. Ég er útvarpinu þakklát
fyrir slíka dagskrá og vænti þess
að það haldi áfram á sömu braut
með vandaða og vel undirbúna
dagskiá. Hclga Magnúsdóttir."
Þessir hringdu . .
£ Ekki prenthæft
orðbragð
Reynir Sverrisson, verzlunar-
stjóri:
— Varðandi skrif nemenda úr
Kópavogi um viðskipti sin við
KRON-verzlun, vil ég fá að taka
fram nokkur atriði. Nemendur
telja að þeir hafi verið reknir út
úr umræddri verzlun á freklegan
og dólgslegan hátt. Þessu mót-
mæli ég algerlega, við höfum
aldrei viðhaft dónaleg orð í þeirra
garð. Aftur á móti er ekki allt
prenthæft sem þeir hafa látið sér
um munn fara, a.m.k. sumir
hv%rjir. Ég kannast heldur ekki
við þá fullyrðingu þeirra að það
hafi verið sagt við þau, að krakk-
ar steli svo miklu, ekki síðustu
fjóra mánuði, þann tíma sem ég
hef verið hér verzlunarstjóri. En
ég vil taka undir það sem Velvak-
andi bendir réttilega á, að nem-
endur sjálfir ættu að kosta kapps
um að hreinsa af sér óorðið, það
er lítill hópur svartra sauða innan
um.
Það mætti nefna það í leiðinni,
að verzlunin var máluð í haust, en
þess sér ekki lengur nein merki,
allt er útkrotað og við höfum
SKAK
Umsjón:
Margeir Pétursson
I flokkakeppni skákmanna í
Marokkó á síðasta ári kom þessi
staða upp I skák Bakkali, sem
hafði hvítt og átti leik, og Meftuk.
Eins og sjá má getur hvítur unnið
skiptamun, en hann lét sér það
ekki nægja og fann þvingað mát í
stöðunni:
varla undan við að þrífa öl- og
kókómjólkurslettur af gluggum
og bifreiðum. Að síðustu vil ég
taka fram að nemendur eru af-
greiddir í hádeginu og eftir að
skóla lýkur, það er í löngu
frímínútunum sem það er erfitt
vegna umgangs sumra þeirra,
þeir eiga það til áð henda flöskun-
um hvar sem er og þá eru gler-
brotin hér og þar.—
% Ágætt salt.
Matthías Þ. Guðmundsson hjá
B.U.R.:
Það var varðandi skrif um
saltverksmiðjuna sem var i
Velvakanda nýlega, hvort saltið
væri nothæft. Ég vil gjarnan fá að
segja frá þvi, að fyrir nokkrum
árum, ég man ekki hvenær, þá
notuðum við hjá Bæjarútgerðinni
salt frá Reykjanesi með góðum
árangri, við fengum þetta til
prufu og það sem helzt var að,
var, að það þótti of fínt, óþarflega
'fínt. Én sem sagt sýnishorn af
þessu var notað hjá okkur í salt-
fiskverkunarstöð Bæjarútgerðar-
innar með góðum árangri.
DRATTHAGIBLYANTURINN
Vefnaðarvöruverzlunin
Grundarstíg 2 auglýsir
Mikið úrval af kinverzkum dúkum, broderaðir
og fíleraðir
Ennfremur mikið úrval af rúmfatnaði,
straufrítt og léreft.
Grófrifflað flauel, denim og fleira.
Ótrúlega lágt verð á útsölunni hjá okkur að
Laugavegi 49, á alls konar vefnaðarvöru og
ýmsu fleiru. Gjörið svo vel og lítið inn.
m.
Er byrjuð með
megrunarkúrana aftur
Vil vokja sérstaka athygli á 10 tima megrunarkúrum.
Megrunarnudd. partanudd og afslöppunarnudd.
Nudd — sauna — mælingar —vigtun — matseðill
Nudd- og snyrtistofa,
Ástu Baldvinsdóttur,
Hrauntungu 85 Kópavogi
Opið til kl. 10 öll kvöld
Bilastæði, Sími 40609.
=S*Í
ALLAR TEGUNDIR
IIMIMRÉTTIIMC3A
Að gera nýja fbúð úr gamaHi er mjög heillandi
og skemmtilegt verkefni Það útheimtir rikt
hugmyndaflug og hagleik. Þaö er okkur sér-
stök ánægja að leiðbeina fólki í þessum efn-
um. Viö komum á staðinn, ræðum hugmynd-
ir beggja aðila, gerum áætlanir og siðan fóst
venðtilboð A þennan hátt veit vióskiptavinur-
inn hver kostnaðurinn er og getur hagaó fjár-
hagsáætlun sinni samkvæmt því.
ELDHUSINNRETTINGAR
Ef þér þarfnist ráðlegginga eða
aóstoóar, veitum vió fúslega
allar upplýsingar.
-=Hr
KLÆDA-
SKÁPAR
SQLBEKKIR
gerum föstverOtilboö i allar
tegundir innréttinga
lUOGRR
[ aUar tegundir
iiuiréttinga
T RÉVAL HF.
Auðbrekku 55 40800
28. Dxh5 + !! — gxh5, 29. IIxh5+
— Kg6, 30. Hg5+ — Kh7, 31. Hc3!
— Kg8, 32. Bh6+ — Kh7, 33.
Hg7+ og svartur gafst upp, þvf að
eftir 33... Kxh6, 34. Hh3+ er
hann mát. Sigurvegari í keppn-
inni varð sveit skákfélagsins i
Casablanca.