Morgunblaðið - 01.02.1977, Síða 47
MOROIINBT AÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 1. FEBRUAR 1977
47
Þorrablót AA-manna í Eyjum:
Þurfti ekki einu
sinni að sópa gólf
AA-samtökin f Vestmannaeyjum
héldu ’árlegt þorrablót sltt fyrir
skömmu í Samkomuhúsi Vest-
mannaeyja. Mikill veizlukostur
var á borðum að vanda og fjöl-
breytt skemmtiatriði, flest úr
hendi heimamanna sjálfra. Var
skemmtunin fjölsótt, hátt á
þriðja hundrað manns og dunaði
dans langt fram eftir nóttu við
leik hinnar kunnu og vinsælu
hijómsveitar Loga úr Eyjum.
Meðal skemmtiatriða var söngur
ýmissa aðila, fegurðarsamkeppni
og fleira, en fegurðarsamkeppnin
fór þannig fram að nokkrir AA-
félagar dubbuðu sig upp f bað-
strandarklæðnað samkvæmt nýj-
ustu tfzku og liðu þannig um
salinn við feikilegan fögnuð
þorrablótsgesta. Fegurðardfsin
sem sigraði vó 250 pund og fór
létt með.
Það sem var sérstætt við þessa
fjölmennu skemmtun var m.a.
það hve fólk skemmti sér feikn
vel án dropa af áfengi og einnig
það hvernig umgengnin var f
Samkomuhúsinu, en það þurfti
ekki einu sinni að sópa gólf salar-
ins eftir þessa fjölmennu
skemmtun.
Þorlákshöfn:
••
Onnur tilraun gerð
til að fínnaheitt vatn
Þorlákshöfn, 31. jan.
NU er hafin hér öðru sinni borun
eftir heitu vatni til hitaveitu fyrir
Þorlákshöfn að Bakka f ölfusi.
Unnið hefur verið með höggbor
að forborun s.l. viku og nú er
borinn Narfi frá Jarðborunum
rfkisins kominn á staðinn, en
hann kemur frá velheppnaðri
borun fyrir hitaveitu á Hvamms-
tanga. Áætlað er að bora niður á
1500 metra dýpi.
Eins og menn rekur eflaust
minni til var borað eftir heitu
vatni fyrir Þorlákshöfn árið 1975
í landi Litla-Lands í ölfusi, sem er
6 km frá Þorlákshöfn. Þá var haf-
in borun 31. mal það ár með risa-
bornum Jötni, sem þá var nýkom-
inn til landsins frá Texas, og var
þetta fyrsta verk hans hér á landi.
Borað var niður á rúma 2000
Unnar fiskvör-
ur og harðfisk-
ur hækka í verði
RlKISSTJÓRNlN staðfesti á
fundi f gær samþykkt verðlags-
nefndar frá þvf f fyrri viku um
verðhækkun á unnum fiskvörum
og harðfiski.
Fiskbollur hækka I smásölu um
12,5%. Heildós hækkar úr 272
krónum f 306 krónur og hálfdós
úr 177 krónum I 197 krónur. Fisk-
búðingur hækkar um 14,1%, heil-
dós úr 389 krónum í 444 krónur
og hálfdós úr 227 krónum f 259
krónur.
Harðfiskur hækkar mismun-
andi. Ysa hækkar i smásölu úr
265 krónum i 325 krónur, eða
22,6% en þorskur úr 265 krónum
í 290 krónur eða9,4%.
Þessar hækkanir stafa allar af
hækkun almenns fiskverðs á
dögunum.
metra. Af þessu verki varð eng-
inn árangur, öllum til sárra von-
brigða, þvi mikill hiti virtist vera
I holunni og reyndar vatn lika.
Þá leitaði hreppsfélagið til
nokkurra bænda I ölfusi um leyfi
til að láta athuga möguleika á
heitu vatni I löndum þeirra, sem
þeir gerðu sfðan frumsamning
um, er hljóðaði upp á miðað við
100 stiga heitt vatn fengi viðkom-
andi landeigandi einn sekúndu-
lftra til eigin þarfa eða greiðslu
sem þvf svaraði.
Við athugun kom i ljós að beztu
skilyrðin voru f landi Hjalla, en
þau næst beztu f landi Bakka, en
það er lengri leið. En vegna erfið-
leika á samningum við eiganda
jarðarinnar Hjalla, sem vildi
ganga lengra f hlunnindum sér til
handa en aðgengilegt þótti og um
var talað í upphafi, var horfið frá
frekari tilraunum til samninga
við hann, og samið við eiganda
Bakka, sem eru 12 km frá Þor-
lákshöfn. Er þá miðað við
skemmstu leið.
Menn vonast nú sannarlega eft-
ir góðum árangri af þessari til-
raun eftir undangengið þóf og
vonbrigði f sambandi við hita-
veitumál Þorlákshafnarbúa.
—Ragnheiður.
Listamannalaun
— leiðrétting
I FRÁSÖGN Morgunblaðsins sl.
laugardag af úthlutun lista-
mannalauna féll niður nafn
Gunnars M. Magnúss úr efri
flokki. Leiðréttist þetta hér með.
— Starfsemin
brot á lands-
lögunum
Framhald af bls. 1.
mönnum andófsmanna var gefinn
kostur á að fara f útlegð til
Austurrfkis, en allir höfnuðu
boðinu. Sex menningarnir voru
auk Hajeks og Patocka, Milan
Huebl, Pavel Kohout Ludvik
Vaculik og Frantisek Kriegel.
1 Prag er litið á 'akvörðun
norsku stjórnarinnar um að draga
til baka boðið til Barakc
viðskiptaráðherra um að koma til
Óslóar sem mikið áfall fyrir
tékkóslóvakísku stjórnina, en
Barake átti að koma til Noregs f
dag til að undirrita viðskipta-
samning.
Diplómatar f Prag hafa lýst
áhyggjum sfnum yfir að endur-
uppbyggingarþróunin í landinu
eftir innrás Sovétrfkjanna 1968
kunni að verða fyrir miklu áfalli
ef yfirvöld um tekst ekki að finna
viðunandi lausn á þessu
mannréttindamáli.
Bruno Kreiski kannslari
Austurrfkis sagði f dag, að hann
vænti þess að kommúnistaflokkar
f V-Evrópu lýstu yfir stuðningi
sfnum við mannréttindabaráttuna
f Tékkóslóvakfu. Kreisky lét svo
ummælt, er hann kom aftur heim
frá Stokkhólmi, þar sem hann
ræddi við þá Olof Palme, formann
sænska jafnaðarmannaflokksins,
og Willy Brandt, formann V-
þýzka jafnaðarmannaflokksins,
en hann og Brandt heimsóttu
Palme f tilefni fimmtugsafmælis
hans f gær. Kreisky var að þvf
spurður hvort þeir þrfr hefðu
samið einhverja áætlun um
aðstoð, en hann sagði að það væri
sfn skoðun að kommuNistar I V-
Evrópu ættu að styðja andófs-
mennina.
— Lækkar verð
Framhald af bls. 2
hækkunum, sem eiga að verða á
mjólkurvörum 1. marz n.k.
Gunnar Guðbjartsson, einn full-
trúa bænda í sexmannanefnd,
sagði að nefndin hefði talið rétt
að lækka nokkuð álagningarpró-
sentuna f smásölu, þvf auk þess,
sem kaupmenn fengju aukná
veltu við sölu á mjólkurvörum,
fengju þeir til sölu þær brauðvör-
ur og sælgæti, sem áður hefðu
verið seldar f verslunum Mjólkur-
samsölunnar, en á árinu 1975 gaf
sala á brauðvörum og sælgæti 90
aura f tekjur á hvern innveginn
mjólkurlítra og áætlað væri að
þessar tekjur yrðu 1.20 krónur á
hvern lftra 1976. Gunnar sagði, að
talið hefði verið réttlátt að hækka
nokkuð heildsölukostnað, þvf
Mjólkursamsalan yrði að taka á
sig hærri kostnað við dreifingu,
þvf opnunartfmi verslana væri
annar en verið hefði hjá mjólkur-
búðunum.
Geir Þorsteinsson, einn fulltrúa
neytenda í sexmannanefnd, sagði,
að heildsölukostnaðurinn væri f
raun þáttur, sem ætti eftir að
reyna endanlega á hvað yrði mik-
ill og hefði f þvf sambandi verið
óskað eftir gögnum frá Mjólkur-
samsölunni. — Ef það sýnir sig
að kostnaður Mjólkursamsölunn-
ar við að dreifa mjólkinni til smá-
söluaðila er minni en við áætlum
við þessa verðákvörðun nú, getum
við lækkað heildsölukostnaðinn
og verður þá sá mismunur notað-
ur til að greiða niður þá hækkun,
sem verður á mjólkurvörum 1.
marz n.k., sagði Geir.
— Iscargo
Framhald af bls. 48
Islands og Bandarfkjanna en með
ofangreindum takmörkunum, og
var þannig tekið tillit til mótmæla
Pan American.
Morgunblaðið hefur heimildir
fyrir þvf að Iscargo hafi áfrýjað
þessum úrskurði. Telja forráða-
menn félagsins óeðlilegt að
Iscargo eitt skuli háð takmörkun-
um, sem ekki ná yfir önnur
erlend flugfélög, sem fljúga frá
Evrópu til Bandaríkjanna.
— Snjóflóða-
hætta . . .
Framhald af bls. 48
skemmunnar sem svo er nefnd, og
stökk fram af þakinu í snjóskafl
fyrir neðan, að snjóhengja af þak-
inu féll ofan á hann, sem að hann
grófst 2—3 metra undir snjófargi.
Von bráðar dreif þó fullorðna
menn að og tókst þeim að grafa
drenginn upp á skömmum tíma.
Annar drengur varð fyrir þvf
óhappi er hann stökk á sama hátt
að lenda á girðingarstólpa á kafi í
snjó, svo að hann skaddaðist
nokkuð á fæti. Báðir piltarnir
voru fluttir f sjúkrahús. — Matthias.
— Nýtt hassmál
Framhald af bls. 48
stólinn, sagði f gær, að mennirnir
væru grunaðir um ffkniefnameð-
höndlun, en meira væri ekki hægt
að segja að sinni, þar sem málið
væri á frumstigi.
Nú sitja inni samtals fjórir
menn vegna þriggja fikniefna-
mála. Auk fyrrnefnda málsins
stendur enn yfir rannsókn ffkni-
efnamálsins mikla, og situr einn
maður f gæzluvarðhaldi vegna
þeirrar rannsóknar. Þá situr einn-
ig maður f gæzluvarðhaldi vegna
fikniefnamáls, sem uppvfst varð
um fyrir nokkrum dögum. Var
þar um að ræða nýlegan innflutn-
ing á fíkniefnum frá Evrópu.
— Sænska sjón-
varpið kaupir . . .
Framhald af bls. 48
mæðir á Guðrúnu Asmundsdóttur
og Steindóri Hjörleifssyni og auk
þess koma fram Róbert Arnfinns-
son, Pétur Einarsson, Guðrún
Stephensen Sigrún Björnsdóttir
og Þóra Borg.
Auk þess er að geta 18 ára
stúlku Þóru Sigurþórsdóttur, sem
fæst þarna I fyrsta sinn við leik,
og mun framlag þessarar óreyndu
stúlku koma ýmsum á óvart er
marka má orð þeirra, sem séð
hafa kafla úr myndinni. „Við vor-
um að svipast um eftir filmfsku
andliti f eitt hlutverkið f mynd-
ina,“ sagði Reynir þegar hann var
spurður hvar hann hefði fundið
Þóru, „og fundum hana þar sem
hún sat á búðarborði f einni tfzku-
verzluninni." Alls koma milli tíu
og tuttugu leikarar fram f mynd-
inni.
Undanfarið hefur Reynir unnið
að lokafrágangi myndarinnar í
Svíþjóð, og um tildrög þess að
sænska sjónvarpið falaðist eftir
þvf að fá frumsýningarréttinn á
myndinni ytra sagði Reynir að
honum hefði verið ráðlagt við
reynslusýningu á myndinni að
bjóða til hennar forstjóra sænsks
kvikmyndafyrirtækis og yfir-
manni kvikmyndadeildar sænska
sjónvarpsins. Báðir hefðu þeir
lýst yfir ánægju sinni með mynd-
ina, og sfðan hefði sænska sjón-
varpið gert honum tilboð um að
kaupa frumsýningarréttinn á
myndinni. Reynir kvað kunnuga
hafa tjáð sér, að það væri mun
meira virði að fá myndina sýnda f
sjónvarpi f Svfþjóð heldur en
tekna til sýninga í kvikmyndahús-
um þar, þvf að ætlunin væri að
sýna Morðsögu á mánudagskvöldi
en sá væri háttur sænska sjón-
varpsins að sýna þau kvöld ýmsar
athyglisverðar kvikmyndir undir
sérstökum hætti og nyti þessi dag-
skrárliður töluverðra vinsælda.
Sjálfur kvaðst Reynir ánægður
með samning sinn við sænska
sjónvarpið, þvf að það greiddi
honum hæsta taxta fyrir erlendar
kvikmyndir.
Um efni Morðsögu vill Reynir
ekki fjölyrða mjög á þessari
stundu. Hann segir erfitt að setja
á myndina tiltekinn stimpill til
skilgreiningar en einna helzt falli
hún þó undir það að vera eins
konar sálfræðilegur þriller. Reyn-
ir hyggst sýna myndina f tveimur
kvikmyndahúsum hér í Reykjavfk
samtfmis og hugsanlega einnig á
Akureyri.
— Hörð afstaða
gegn herfor-
ingjum á Spáni
Framhald af bls. 1.
úti í dag, „Herinn taki völdin."
„Stjórnin segi af sér,“ föðurland-
ið er ekki til sölu.“
Juan Carlos konungur heim-
sótti í dag brynvagnaherdeild fyr-
ir utan Madrid, sem er sögð bezt
búna herdeildin f spánska hern-
um. Meðan Franco lifði var þessi
deild talin sú deild, sem Franco
myndi kalla sér til aðstoðar, ef
byltingartilraun yrði gerð. Stjórn-
málafréttaritarar benda á að þótt
engin sérstök ástæða kunni að
hafa verið fyrir heimsókn kon-
ungs f dag megi túlka hana sem
lítt dulbúna viðvörun. Konungur,
sem er hermaður að mennt, er
sterkasta aflið bak við lýðræðis-
þróunina, sem miðar að því að
koma á borgaralegri stjórn með
lýðræðislegum þingkostningum
og að herinn hætti öllum stjórn-
málaafskiptum.
1 dag var byrjað að sleppa úr
haldi hluta af þeim 200 vinstri-
mönnum, sem handteknir voru
um helgina f kjölfar óeirðanna f
vikunni, sem kostuðu 10 manns
lffið. M.a. þeirra, sem sleppt var, J
var „rauða hertogaynjan“,
Sidonia hertogaynja af Medina,
sem handtekin var ásamt syni sfn-
um og einkaritara f Baskahéruð-
unum á N-Spáni. Sem kunnugt er
veitti rfkisstjórnin öryggissveit-
um aukin völd til að handtaka
fólk og gera húsrannsóknir án
sérstaks leyfis dómstóla. Var það
liður'f aðgerðum til að reyna að
stemma stigu við ofbeldisverkum.
Hefur rfkisstjórnin endurtekið
daglega þá yfirlýsingu, að hún
muni ekkert láta koma f veg fyrir
að stefna hennar f lýðræðisátt á
Spáni nái fram að ganga. Afram-
haldandi spenna rfkir í landinu
og eru öryggisverðir við fjölda
bygginga í borgum landsins.
— Veðrið ógnar
efnahagslegri
endurreisn
Framhald af bls. 1.
misst atvinnu sfna, einkum í verk-
smiðjum, sem framleiða hluti fyr-
ir bifreiðaverksmiðjurnar i
Detroit og hefur risafyrirtækið
General Motors þegar orðið af 40
þúsund bíla framleiðslu að sögn
forstjóra þess.
Frostið i þessum fylkjum fór
niður f 35 gráður á celcíus sam-
fara miklum vindhraða og snjó-
komu. Fjöldi manna var tepptur f
bifreiðum sinum á vegum úti og
að minnsta kosti 8 manns frusu f
hel, er bifreiðar þeirra urðu elds-
neytislausar. öllum skólum f
Pennsylvanfu er lokað og borgin
Buffalo í New York var nær löm-
uð eftir mikla stórhríð. 4500
heimili eru rafmagnslaus vegna
slitinna rafmagnslfna og lögreglu-
og þjóðvarnarlið aðstoðar borgar-
ana. í New York borg var skrúfað
fyrir gas til 400 stórra fyrirtækja
og 2000 skólum var lokað. í Ohio
skýrði landbúnaðarráðherra fylk-
isins frá þvf að bændur þar helltu
nú niður 1 milljón lítra af mjólk
daglega, þvf að þeir kæmu henni
ekki frá sér og hefðu engar
geymslur.
Verð á grænmeti hefur hækkað
mjög undanfarna daga vegna
skemmda á uppskeru í Flórfda og
sama er að segja um ávexti.
Verstu fréttirnar, sem Banda-
ríkjamenn fengu í dag, voru þó
þær, að veðurfræðingar gerðu
ekkert ráð fyrir að draga myndi
úr veðrinu f febrúar.
— Richard
gafst upp
Framhald af bls. 1.
blökkumanna. Vance sagði að
hugmynd Smiths um innanrfkis-
samkomulag við þjóðernis-
sinnaða blökkumannaleiðtoga um
valdaskipti væri ekki raunhæf,
allir leiðtogar þjóðernissinna
yrðu að taka þátt f samningum
um valdaskipti, annars væri ekki
hægt að finna friðsamlega lausn á
vandamálum Rhódesfu.
Ummæli bandarfska utanríkis-
ráðherrans komu á sama tfma og
Ivor Richard, samningamaður
Breta f Rhódesíumálinu, var að
binda endi á mánaðarferð sfna
um Afrfku f tilraunum til að kom-
ast að samkomulagi. Lýkur þeirri
för án árangurs og ekkert liggur
fyrir, sem bendir á leiðir til að
koma samningaviðræðum af stað
á ný. Heimildir f föruneyti
Richards herma að aðeins aukin
þátttaka Bandarfkjanna í friðar-
umleitunum og aukinn þrýst-
ingur frá stjórn S-Afrfku geti
komið viðræðum á stað aftur.
Hermdu heimildirnar að Richard
væri svartsýnn á skjóta lausn
vandamálsins og áhyggjufullur út
af auknum hernaðaraðgerðum
skæruliða.
í tilkynningu frá Rhódesfuher f
dag sagði, að skæruliðasveitir
þjóðernissinna hefðu rænt 400
skólabörnum úr trúboðsskólum í
Rhódesfu á aldrinum 14—19 ára
farið með þau yfir landamærin til
Botswana, þar sem þau verði
þjálfuð til hernaðar gegn
Rhódesfustjórn. Þá var einnig
sagt að skæruliðarnir hefðu stolið
13000 sterlingspundum úr sjóðum
trúboðanna.