Morgunblaðið - 17.03.1977, Qupperneq 18
18
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 17. MARZ 1977
Þjóðleikhúsið og Leikfélag Reykjavíkur:
Mjög mikil ad-
sókn þad sem
af er vetrinum
AÐSÓKN Hefur verið mjög góð
að leikhúsum I Reykjavík, það
sem af er þessu leikári. Um síð-
ustu mánaðamót höfðu um 70
þúsund manns séð sýningar í
Þjóðleikhúsinu á leikárinu að
sögn Sveins Einarssonar Þjóð-
leikhússtjóra. Tómas Zöéga,
framkvæmdastjóri Leikfélags
Reykjavfkur, upplýsti hins vegar
að sýningar LR I vetur hefðu sótt
um 35 þúsund manns og sætanýt-
inga verið vel yfir 90%.
Smyslov tapaði
tveimur skákum
SMVSLOV, fyrrverandi heims-
meistari í skák og aðstoðarmaður
Spasskys f einvfginu f Reykjavfk,
tefldi fjöltefli við bankamenn s.l.
mánudag.
Teflt var á 35 borðum, og sigr-
aði Smyslov í 18 skákum, tapaði
tveimur og gerði 13 jafntefli.
Þeir, sem sigruðu heimsmeistar-
ann fyrrverandi, voru þeir Guð-
jón Sigurðsson, fyrrverandi for-
maður Iðju, og Leifur Jósteins-
son.
Sveinn Einarsson sagði, að fjög-
ur leikrit hefðu varla verið sýnd
öðru vísi en fyrir fullu húsi í
vetur þ.e. Sólarferð, Gullna hlið-
ið, Dýrin í Hálsaskógi og
Imyndunarveikin. — Undanfarin
þrjú ár hafa leikhúsgestir verið
um og yfir 100 þúsund hjá Þjóð-
leikhúsinu og í ár er allt útlit
fyrir að aðsóknin verði jafnvel
enn meiri, sagði Sveinn Einarsson
í gær.
Tómas Zoega sagði, að uppselt
hefði verið á flestar sýningar LR í
vetur og sætanýting verið vel yfir
90%. Til loka febrúar hefðu um
35 þúsund manns sótt 134 sýn-
ingar LR, en allt leikárið í fyrra
hefðu tæp 70 þúsund séð sýningar
LR. Þá hefði sætanýting verið
93%. — Undanfarin ár hefur að-
sóknin verið mjög góð og leikhús-
ið er fyrir löngu búið að rétta úr
kútnum eftir þá erfiðleika, sem
fylgdu tilkomu sjónvarpsins,
sagði Tómas.
— Leikhúsgestir í leikhúsum í
Reykjavík hafa nálgazt að vera
200 þúsund á hverjum vetri
undanfarið og ég hef ekki trú á
öðru en það nálgist að vera heims-
met, sagði Tómas Zoega.
Rækjuafli Vestfjarða-
báta er nú orðinn helm-
ingi meiri en í fyrra
RÆKJUVEIÐAR voru stundaðar
á þrem veiðisvæðum við Vestfirði
I febrúar, og var afli óvenjulega
Alster og Smyslov
tefla við nemendur
framhaldsskólanna
AÐSTOÐARMENN
þeirra Spasskys og
Horts, þeir Smyslov og
Alster, hafa ákveöið að
tefla fjöltefli við nem-
endur í framhaldsskól-
um borgarinnar á næstu
dögum.
Á laugardag teflir AÍster í
félagsmiðstöðinni Bústöðum.
Þar er gert ráð fyrir að 2—3
fulltrúar frá 14 skólum borgar-
innar tefli við skákmeistarann.
Síðan ætlar Smyslov að tefla
við nemendur þessara sömu
skóla á miðvikudag, en alls
ætla skákmeistararnir aó tefla
á 35 borðum.
góður á öllum miðum. 65 bátar
stunduðu nú veiðar, og var afli
þeirra 1.111 lestir, en I fyrra var
afli 63 báta 543 lestir, en þess ber
þá aðgæta, að I fyrra lágu rækju-
veiðar niðri við Isafjarðardjúp
eftir miðjan febrúar vegna verk-
falls verkafólks.
Frá Bíldudal reru nú 10 bátar
og öfluðu 176 lestir, en í fyrra var
afli 10 báta aðeins 55 lestir. Afla-
hæstu bátarnir voru Pilot með
21,3 lestir, Vísir 21,2 lest og Helgi
Magnússon 21,1 lest.
Frá verðstöðvunum við Isa-
fjarðardjúp reru 42 bátar, sem
öfluðu 743 lestir, en í fyrra var
afli 38 báta til 14. febr. 265 lestir.
Aflahæstu bátarnir í febrúar
voru: Gullfaxi með 24,9 lestir,
Heppinn 23,1 lest, Bryndís 23,0
lestir, Tjaldur 22.0 lestir og
Halldór Sigurðsson 21,6 lestir.
Frá Hólmavík og Drangsnesi
reru 13 bátar og var afli þeirra
192 lestir, en i fyrra var afli 13
báta í febrúar 223 lestir. Allir
bátarnir voru nú með 14—15
lestirj mánuðinum.
Færeyingarnir eiga
um 4000 lestir eftir
FÆREYSKU loðnuskipin eiga enn eftir að veiða 4000 tonn af þeim
25.000 tonnum af loðnu, sem þau hafa leyfi til að veiða hér við land I
vetur. I gær mun ekkert færeyskt skip hafa verið á miðunum, en
einhver voru þá á leið á miðin. Myndina tók Sigurgeir Jónasson af
færeyska loðnuskipinu Durið frá Klakksvfk á loðnumiðunum fyrir
nokkrum dögum. ---------
P
SvalbarSskirkja. Ljósmyndir Mbl. Sverrir Pálsson.
Svalbarðskirkju
berast góðar gjafir
Úr SvalbarBskirkju
Akureyri, 13 marz.
SVALBARÐSKIRKJU á
Svalbarðsströnd bárust I
haust tvær dýrmætar gjafir.
Hin fyrri barst 10 október I tilefni
100 ára afmælis Björns Líndals 5.
júni 1976 Þá komu tvær dætur
Björns að Svalbarði ásamt skylduliði
sinu og færðu kirkjunni forkunnar-
fagran kaleik úr silfri með igreyptum
islenzkum steinum til minningar um
smiðaði stólana og skar þá út í
stjórn Kvenfélags Svalbarðsstrandar
eru Anný Halldórsson, Sveinbjarnar-
gerði, Sigríður Guðmundsdóttir,
Svalbarði, og Herdís Jónsdóttir,
Vaðlafelli
Sóknarnefnd Svalbarðskirkju
veitti gjöfunum viðtöku með þakk-
læti, en formaður hennar er Kjartan
Magnússon, Mógili
Sv.P.
BrúSarstólarnir I Svalbarðskirkju
Björn Lindal. Berthu konu hans og
börn þeirra fimm, sem látin eru
Gefendur eru Helena Maria Lindal
og börn hennar, Jóhanna Margrét
Lindal og Guðmundur Árnason og
börn þeirra. Björn Berthel Llndal,
Sigriður Guðmundsdóttir og börn
þeirra *
Hin gjöfin er fjórir vandaðir og
útskornir brúðarstólar, sem gefnir
voru til minningar um Kristjönu
Ingibjörgu Halldórsdóttur frá Neðri-
Dálksstöðum, sem lézt 10
nóvember 1975 Stólarnir voru af-
hentir á afmælisdegi hennar 11
nóvember 1976.
Sjóður var stofnaður til minningar
um Kristjönu, og er hann t vörzlu
Kvenfélags Svalbarðsstrandar.
Stjórn þess lét gera stólana og gaf
kirkjunni ásamt 100 þús krónum 1
orgelsjóð Svalbarðskirkju Hjörtur
Ármannsson, smiður á Siglufirði,
Kaleikurinn, skreyttur íslenzkum
steinum.
Þjóðieikhúsið:
Endatafl
Samuels
Beckett
frumsýnt
i kvöld
Gunnar Eyjólfsson og Helgi Skúla
son f hlutverkum sínum f Endatafli
Samuels Beckett, sem frumsýnt er f
kvöld og Hrafn Gunnlaugsson leik-
stýrir.
í KVÖLD verður frumsýnt f Þjóðleik-
húsinu, neðra sviði, leikritið Enda
tafl, sem er eftir Nóbelsverðlauna-
skáldið Samuel Beckett. Leikritinu
leikstýrir Hrafn Gunnlaugsson, en
þetta er fyrsta verkið sem hann leik-
stýrir f Þjóðleikhúsinu.
Að sögn Sveins Einarssonar leik-
hússstjóra er Endataf! annað tveggja
frægustu verka Becketts. Sagði Hrafn
yrkisefnið vera gamalkunnugt, eða
húsbóndann og þjóðfélagið Væri erfitt
að útskýra yrkisefnið i stuttu máli,
sagði Hrafn, heldur yrðu menn einfald-
lega.að sjá það Sagði Hrafn Beckett
vera eiginlega að tjá hugmyndir sínar
um húsbóndann og þjóðfélagið, eins
og þær kæmu honum fyrir sjónir.
„Þetta er eins og likami og sál, þar sem
sálin er lokuð inni i likamanum og
líkaminn svínbeygir sálina. Verður
sálin að ganga i gegnum ákveðnar
pyntingar, og leikritið er eiginiega heil
Guðbjörg Þorbjamardóttir og Árni
Tryggvason þurfa að hýrast f þessum
tunnum meðan á leiknum stendur.
spurning um það hvort sálin losni úr
tygjum við líkamann," sagði Hrafn á
fundi með fréttamönnum. í leikritinu er
likaminn húsbóndinn, sem leikinn er af
Helga Skúlasyni, en þjónustufólk hans
er táknrænt fyrir sálina, að sögn
Hrafns Hrafn sagði að i raun og veru
mætti sjá margar samlíkingar út úr
leiknum, og væri þvi gífurlega erfitt að
gera sér grein fyrir hver hefði verið
eiginlegur tilgangur Becketts með
samningu leikritsins
Leikritið á að gerast i kjallara. eða
neðanjarðarbyrgi, og því er sviðið i
kjallara Þjóðleikhússins nýtt eins og
kostur er, að sögn Sveins Einarssonar.
Verða áhorfendur ekki aðgreindir frá
leikurum með grisju, eins og gert hefur
verið, og munu áhorfendur því verða í
nánari tengslum við leikarana, að sögn
Sveins.
Leikmynd leikritsins gerði Björn G
Björnsson, en þýðingin er eftir Gylfa
Baldursson og Jakob Möller Guðbjörg
Þorbjarnardóttir og Árni Trygvason
klæðast miklu gervi en það er förð-
unardeild leikhússins sem gert hefur
þau Mun það taka fjórar manneskjur
um 1 og Vi klst að koma þeim fyrir.
Leikarar eru aðeins fjórir, og tekur
leikritið um 1 og Vi klst í flutningi