Morgunblaðið - 17.03.1977, Qupperneq 32
32
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 17. MARZ 1977
VIÐSKIPTI
Umsión: Pétur J. Eiríksson
Framleiðslustöðvun
Tandbergs í Noregi
NORSKA raftækjafyrir-
tækið Tandberg á nú f
miklum erfiðleikum vegna
skorts á rekstrarfé og
minnkandi sölu og verður
framleiðsla í öllum verk-
smiðjum fyrirtækisins f
Noregi lögð niður i fimm
vikur eftir páska. Eftir að
starfsemin verður tekin
upp að nýju verður aðeins
unnið f jóra daga vikunnar.
Stjórn fyrirtækisins hefur sagt,
að ef ekki verður söluaukning í
sumar verði að grípa til frekari
framleiðslustöðvana. Þessar að-
gerðir hafa áhrif á næstum 3.000
starfsmenn.
Andreas Skogvold, aðalfram-
kvæmdastjóri Tandbergs, sagði
að verulega hefði dregið úr sölu
litsjónvarpstækja, sérstaklega í
Skandinaviu, og þvi væri sam-
drátturinn óumflýjanlegur. ÍJt-
flutningur á hljómburðartækjum
hefur einnig minnkað og fallandi
verðgildi pundsins hefði enn
frekar aukið á erfiðleikana.
Tandberg hefur sótt um aðstoð
frá ríkinu í formi lána, en talið er
að opinber aðstoð verði háð þeim
skilyrðum ap ríkið fái eignaraðild
að fyrirtækinu.
3,5% hag-
vöxtur
HAGVÖXTUR I heiminum verð-
ur ekki nema 3.5% á þessu ári,
aðallega vegna verðbólgu I vest-
rænum rfkjum, að því er Chase
Manhattan Bank sagði í dag.
í fréttabréfi bankans, Business
in Brief, segir að verðhækkanir
sem verða rúmlega 7% að meðal-
tali gefi litið svigrúm til efnahags-
örvunar í flestum iðnríkjum.
Segir að í flestum löndunum
verði aðallega þrjú atriði sem
dragi úr vexti. Lítill vilji rikis-
stjórna til að beita örvandi að-
gerðum, áframhaldandi lægð í
einkafjárfestingum og vandamál-
ið við að aðlagast nýju fjármagns-
flæði i heiminum, sem stafar af
miklum olíuverðshækkunum síð-
an árið 1973.
í fréttabréfinu segir að efna-
hagur Bandaríkjanna, Vestur-
Þýzkalands, og Japans séu sterk-
astur en ekki er ljóst hvernig
þessar þjóðir geta dregið efnahag
annarra rikja með sér. Innflutn-
ingur Bandaríkjanna verður að
stærstum hluta frá nokkrum fá-
um rikjum, aðallega Arabarikjun-
um, en Japanir munu aðallega
flytja inn frá Asiuríkjum.
.. ......................- ~ . '
Á TÍMABILINU frá 10. mars 1967 til sama tfma 1977 hefur Flugfrakt tekið á móti
15.500 lestum af vörum sem flugvélar Flugfélags tslands og Loftleiða hafa flutt til
landsins.
Flugfragt 10 ára
UM ÞESSAR mundir eru 10 ár liðin sfðan Flug-
frakt var stofnuð og tók til starfa að Sölvhólsgötu 2.
Reyndar má segja að þarna hafi orðið fyrsti vfsir-
inn að samvinnu og sameiningu flugfélaganna
tveggja, Loftleiða og Flugfélags islands, og sem á
sfnum tíma bætti stórum aðstöðu þeirra sem flytja
vörur f flugi, svo og félaganna til betri þjónustu við
viðskiptamenn, segir I frétt frá Flugleiðum.
Það voru þeir Einar Helgason frá Flugfélagi
lslands og Olafur Erlendsson frá Loftleiðum, sem
komu hinu nýja fyrirtæki á laggirnar, fengu þvf
stað að Söivhóisgötu 2, og þar voru allar vörur sem
fluttar voru til landsins með flugi afgreiddar.
Að Sölvhólsgötu 2 var einnig tollaafgreiðsla, sem
var til mikils hagræðis fyrir viðskiptamenn. Eftir
því sem tfmar liðu og umsvif jukust varðandi
vöruflutninga milli landa, varð húsnæðið að Sölv-
hólsgötu of lítið og um tíma hafði Flugfrakt vöru-
geymslur á fjórum stöðum í Reykjavík, þ.e.a.s. að
Sölvhólsgötu 2 og i Klettagörðum, en á báðum þeim
stöðum voru afgreiðslur, og ennfremur voru
geymslur i Hafnarhúsinu og á Reykjavíkurflug-
velli.
Hinn 1. nóvember 1975 voru allar vörugeymslur
sameinaðar i Bíldshöfða 20, og afgreiðsla flugfylgi-
bréfa flutti úr Sölvhólsgötunni í Hótel Esju, Suður-
landsbraut 2. Þar er nú farmsöludeild og afgreiðsla
fylgiskjala til húsa. Afgreiðsla vöru sem flytja skal
til útlanda er á Reykjavíkurflugvelli en verður
einnig innan skamms opnuð að Bíldshöfða 20.
Starfsmenn Flugfraktar eru nú 17, þar af starfa
sex manns i afgreiðslu fylgibréfa, sjö í vöru-
geymslu og fjórir í farmsöludeild. Forstöðumaður
Flugfraktar og farmsölustjóri er Sigurður Matt-
hiasson.
SCANDINAVIAN FASHION WEEK:
Icelook jakki frá Samhandinu. Gráfeldur og Sambandið sýna yfirhafnir úr
mokkaskinnum.
r
Islendingar opna stærstu
vörusýningu sína erlendis
I DAG verdur vörusýningin Scaninavian Fashion Week
opnuð f Beiia Center f Kaupmannahöfn, en Islendingar
hafa þ:r stærsta sýningarsvæði, sem þeir hafa nokkru
sinni haft á vörusýningu erlendis. Það eru sjö fsienzk
fyrirtæki sem sameinast um 350 fermetra stórt sýning-
arsvæði þar sem þau sýna tilbúinn fatnað úr u 11 og
skinnum.
Þessi fyrirtæki eru Álafoss, Hilda, Iðnaðardeild Sam-
bandsins, Prjónastofa Borgarness, Alfs, Prjónastofa
Önnu Þórðardóttur og Gráfeldur, en Utflutningsmiðstöð
iðnaðarins hefur annazt undirbúning sýningarinnar.
Islenzk fyrirtæki hafa tekið
þátt iScandinavian Fashion
Week, sem haldin er fjórum sinn-
um á ári, allt frá árinu 1969 og i
fyrravetur tóku sex fslenzk fyrir-
tæki þátt í henni en þá hvert með
sinn sýningarbás.
Mikið hefur verið lagt í undur-
búning þátttöku islenzku fyrir-
tækjanna, sem tekið hefur langan
tima. Gert er ráð fyrir að um átta
milljónum króna hafi verið varið í
kostnað vegna þátttökunnar. Mik-
ið verður um að vera á íslenzka
sýningarsvæðinu dagana, sem
sýningin stendur. Haldnir verða
blaðamannafundir og tízkusýn-
ingar verða þrisvar á dag.
Alls eru það 765 fyrirtæki frá
20 löndum sem sýna á Scandinav-
ian Fashion Week, en þátttaka
hefur aldrei verið jafn mikil og
nú í 23. sinn, sem sýningin er
haldin. Frá Norðurlöndunum
sýna 439 fyrirtæki.
Auk Scandinavian Fashion
Week hafa lslendingar tekið þátt
f mörgum vörusýningum í Bella
Center, enda hafa sýningar þar
reynzt mikilvægt tæki til kynn-
ingar og markaðssköpunar fyrir
íslenzkar iðnaðarvörur. A sfðasta
ári tóku fslenzk fyrirtæki þátt í
sex sýningum I Bella Center, nú
sfðast í desember á sýningu á hús-
gögnum fyrir stofnanir og fyrir-
tæki.
Scandinavian Fashion Week
lýkur á sunnudaginn.
Aftur
hagnaður
hjá
Alusuisse
ALUSUISSE-samsteypan er
nú aftur farin að sýna hagnað.
Á sfðasta ári varð hagnaður
fyrirtækisins 81.5 milljónir
svissncskra franka (1.39 mill-
jarðar kr) borið saman við
20.9 milljóna franka tap (1.57
milljarðar kr.) árið 1975.
Velta Alusuisse jókst um 24%
og varð 4.8 milljarðar franka
(330 milljarðar króna) en var
3.9 milljarðar franka 1975
(292 milljarðar króna). Aðal-
fundur Alusuisse verður hald-
inn 20. apríl.