Morgunblaðið - 25.06.1977, Síða 11
MORGl NBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 25. JÚNÍ 1977
11
Kannabis hefur mismunandi útlit, eins og sýnin
hér bera vitni um. Efst til vinstri er það grófasta,
þar fyrir neðan er kannabis steypt i mola, í miðju
fínt kannabisduft og loks úrvals varan í neyt-
endaumbúðum með konunglegum gæðastimpli
frá Nepal (Ljósm. ÓI.K.Mag)
hafði tekið róandi lyf, sem gat þá
gefið skýringu á bílveltunni.
Þegar okkur bar að garði í rann-
sóknastofu { lyfjafræði í Háskól-
anum stóð þar einn af starfs-
mönnum rannsóknastofunnar við
tæki og var að greina alkohól i
blóðsýnum úr 46 mönnum, sem
grunaðir höfðu verið um ölvun
við akstur helgina á undan. Blóð-
sýni úr ökumönnum, sem rann-
sóknastofan fær til ákvörðunar á
innihaldi eru liðlega 2000 á ári.
Og sýnir sú tala betur en nokkuð
annað hvert er vægi áfengis-
neyslu i samanburði við neyslu
annarra vimugjafa yfirleitt. Sá
þáttur í starfi rannsóknastof-
unnar er undir stjórn Jóhannesar
Skaftasonar lektors i lyfjafræði.
En Jóhannes er einnig að rann-
saka dreifingu ýmissa eiturefna i
lífríkinu.
Þörfin á rannsóknum á eitur-
efnum fer sifellt vaxandi. í upp-
hafi greinarinnar var þess getið
að stúlka frá Rannsóknastofnun
fiskiðnaðarins hefði einmitt
þennan dag verið að vinna með
tæki rannsóknastofunnar, er
okkur bar að. Er nánar var spurt
um hennar viðfangsefni, kom í
Ijós að hún yar að greina magn
eiturefna í loðnumjöli, svo sem
DDT og fleira. En nýlega hafa
þýzkir kaupendur loðnumjöls
gert þá kröfu að vörunni fylgi
upplýsingar, byggðar á greiningu,
um magn ellefu tiltekinna efna í
mjölinu. Og hefur Rannsókna-
stofa í lyfjafræði veitt fisk-
íðnaðarfólkinu nokkra aðstöðu til
þeirrar greiningar.
Það er sýnilega mikið og sívax-
andi starf, sem leyst er af hendi í
rannsóknastofu i lyfjafræði
læknadeildar H.í. á sviði grein-
ingar ávana— og fíkniefna. Má,
ef að likum lætur, reikna með að
það fari enn vaxandi. Erþvi nauð-
Þetta er LSD, ofurlitlir daufir blettir á þerri-
2 pappír, sem tæpast greinast með berum aug-
um, nema í litaða sýninu lengst til vinstri. LSD
má svo leysa úr pappírnum í kaffi eða öðrum
drykkjum.
synlegt að gefa þeim þætti máls-
ins gaum í tíma, i þeirri baráttu
við fikniefnanotkun, sem að öll-
um líkindum er framundan hér
sem annars staðar i heiminum og
er raunar þegar hafin — E.Pá.
Greining á hasssýni. Þrjú efni eru
greind, þ.e. 1. kannabídíól, 2. tetra-
hýdrokannabínól og 3. kannabínól, og
4. viðmiðunarefnið metyltestósterón.
Línuritið sýnir magnið af þessumefnum,
en þegar slíkt sýni er metið til sakar,
er það efnið 3. tetrahýdrokanna
bínólið sem ræður úrslitum.
Kirkjudagur
Kálfatjarn-
arkirkju
A morgun, sunnudaginn 26.
júni, verður hinn árlegi kirkju-
dagur i Kálfatjarnarkirkju, og
hefst hann með hátíöarguðþjón-
ustu kl. 14 i Kálfatjarnarkirkju.
Preslur er séra Páll Þórðarson,
sóknarprestur í Njarðvikursókn,
og Haukur Þórðarson syngur ein-
söng með kór kirkjunnar.
Að kirkjuathöfninni lokinni
mun kvenfélagið Fjóla selja kaffi-
veitingar i Glaöheimum, Vogum,
til ágöða fyrir kirkjusjóð sinn.
Þar mun formaður sóknarnefnd-
ar, Jón Guðbrandsson, flytja
ávarp og minnast safnaðarstarfs-
ins á síðsta ári.
Kálfatjarnarkirkja hefur nú öll
verið endurbyggð hið ytra og
verður nú þegar hafist handa við
að endurbæta hana hiö innra.
Þar verður engu breytt, eri
reynt að ná hinu upprunalega út-
liti sem nákvæmlegast, að fyrir-
mælum og að umsjá bestu manna
á vegum þjóðminjavarðar.
A baksíðu dagskráratriöaskrár
vegna 75 ára vigsluafmælis Kálfa-
tjarnarkirkju stendur:
,,Þann 15. maí 1892 eru fermd
25 börn i kirkjunni á Kálfatjörn,
en daginn eftir var byrjað að rifa
kirkjuna, sem þá var orðin hrör-
leg. Að hinni nýju kirkjusmiði
stóðu margir ágætis menn og það
er i minnum haft, hversu mikil
sjálfboðavinna var lögð fram við
byggingu hennar.
Allt efni var t.d. flutt á dekk-
skipum hingað, en síðan var róið
til lands á árabátum og loks borið
heim. Magnús Arnason, stein-
smiður, sá um byggingu á grunni
kirkjunar og var það verk ntjög
lofað. Aðalsmiður kirkjunnar
nýju var Guömundur Jakobsson,
sem einnig teiknaði hana. Ut-
skurð og ýrnsa smíði innan húss
annaðist Þorkell Jónsson frá
Flekkuvík, en danskur rnálari,
Bertelsen, sá unt málningu alla.
Allir þessir menn og þeir aðrir,
sem að þessu verki unnu, létu
eftir sig liggja hið fegursta hús
eins og kirkjan enn sýnir. Hún
var vigð 11. júní 1893."
Það eru þessi verk sem nú er
verið að endurbæta og varðveita,
kirkja sem talin er ein sérstæð-
asta kirkja landsins.
Þessir prestar hafa þjónaö
Kálfatjarnarkirkju frá vigslu
þessa kirkjuhúss: Séra Arni Þor-
steinsson, árin 1886— 1919, séra
Árni Björnsson, árin 1919— 1932,
séra Garðar Þorsteinsson, árin
1932— 1966, og séra Bragi Frið-
riksson frá 1966.
Kirkjudagur, þessí árlegi þátt-
ur í afnaðarstarfi Kálfatjarnar-
safnaðar, hófst 1968 og hefur þeg-
ar sannað ágæti sitt, þvi ávallt
hefur verið nijög fjölmennt til
kirkjudagsins og velunnarar
kirkjunnar sýnt henni margvis-
lega velvild sína, sem hefur veriö
ómetanleg hvatning í öllu safn-
aðarstarfi.
J.
Snæfelling-
ar ferðast
EINS OG á undanförnum árum
gengst Félag Snæfellinga og
Ilnappdæla fyrir hópferð til Mall-
orea na-sta haust. Lagt verður af
stað 7. okt. og dvalist á Mallorca í
3 vikur. Búið verður á íbúðahót-
eli. í þessa ferð eru ennþá nokkur
sæti laus.
Þá er fyrirhugað að efna til
tveggja daga ferðalags um Breiða-
fjarðareyjar og Snæfellsnes. Lagt
verður af stað frá Reykjavik
föstudaginn 1. júlí og gist i
Stykkishólmi. Á laugardaginn
verður siglt urn Breiöafjörö og
eyjar skoöaöar og komið til
Stykkishólms um kl. 19.00.
Frá Stykkishólmi veröur farið
sunnudaginn 3. júli kl. 9.00 og
ekið að Búðum, þar gefst fólki
kostur á að fá sér hressingu. KI.
13.00 lagt af stað frá Búðum og
tekið vestur Breiðuvík með við-
komu á Arnarstapa og Hellnum
og síðan til Hellissands og þaðan
um Ólafsvik og sunnan heiða til
Reykjavíkur.
Upplýsingar gefur stjörn og
skemmtinefnd félagsins. Þátttaka
i Snæfellsnesferðina tilkynnist til
Þorgils Þorgilssonar, Lækjargötu
6 A, Reykjavík sími 19276 i síö-
asta lagi fyrir 28. þ.m. •
Meó stærra og rúmbetra husnæöi er okkur unnt aó veita mun betri
þjónustu en áóur.
Verió velkomin, lítið inn eöa hringió, símanúmerin eru þau sömu
24460 * 28810
Bílaleigan GEYSIR