Morgunblaðið - 25.06.1977, Blaðsíða 37
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 25. JUNÍ 1977
37
'.u ^ ^ - jj
VELVAKANDI
SVARAR í SÍMA
0100 KL 10 — 11
FRÁ MÁNUDEGI
l.W/ióOTffVWiMI
til annars hnattar, að loknu lifinu
hér, en það væri fengur að þvi að
heyra álit manna á því máli.
En úr því að farið er að tala um
eilifðarmálin er ekki úr vegi að
taka hér næst bréf frá öðrum
manni er stundum áður hefur
lagt orð í belg um þessi mál, en
það er Sigurður Draumland:
# Orð
„Barn var sent niður af lofti
til þess að kalla á afa sinn, sem
bjó í herbergi niðri. Það átti að
biðja hann að koma til kvöldverð-
ar. En barnið kom aftur og sagðist
ekki komast inn í herbergið til
afa, þvi að það væri fullt af engl-
um. Fullorðna fólkið var hissa á
tali barnsins. Einhverjir fóru þá
niður og fundu þar afa sitja and-
aðan i hægindastólnum. Hvað var
það sem barnið sá? — „Og er þær
skildu ekkert í þessu stóðu altt I
einu tveir menn hjá þeim i skin-
andi klæðum.“ Var það ekki hið
sama, sem gerðist við gröf
Krists?“ (Haraldur Níelsson: Við
gröf Krísts í afturelding, —
prédikun í Frikirkjunni 1921).
„Er nú ekki kominn timi til að
flengja þetta dót?“ (Heimir
Steinsson, sbr. Kirkjuritið.)
„Ljónin öskra eftir bráð og
heimta æti sitt af Guði“. (Gamla
testamentið, Sálm. 104, 21).
Hér eru þrjú sýnishorn af rúm-
lega ellefuhundruð tilvitnunum,
sem ég hefi týnt saman í skrifbók
mína, viðsvegar að úr sögu
mannsandans. Höfundar þeirra
eru frá öllum timum, :f öllum
stigum stétta og tegundum hugar-
fars og á öllum aldri frá börnum
til aidraðra. Einum manni hefi ég
sérstaklega með vilja gengið
framhjá: Jeremía spámanni, sam-
nefnara heimsvaldastefnunnar í
þjóðbaráttu nútimans.
Ef spádómsbók Jeremia er bor-
in saman við Fjallræðu Krists,
sést greinilega munurinn á refsi-
lögmáli hefnigjarns stjórnmála-
manns og loganum helga (trú,
von og kærleik). Sæki kennimað-
ur hugljómun ræðu sinnar í
predikunarstólnum til logans á
hann ekki að þurfa að berjast um
í þungum móði svo sem heyrst
hefir. Allt að þvi að hlustendur
forði sér út eða loki viðtæki. Blær-
inn yfir boðun og framsögn er
meginafl helgistunda og gjörspill-
ir þeim ef hann er neikvæður.
Hverjum manni er stilltur streng-
'ur í brjósti. Því skynjar hann
hversu satt eða ekki satt orðin
hljóma. Oft er umkomusmáum
trú það sem þroskuðum er vissa.
Bregst ekki stundum þeim sem af
alhug hlýða messu von sín og trú?
„Og konungurinn mun svara og
segja við þá: Sannlega segi ég
yður, svo framarlega sem þér haf-
ið gjört þetta einum minna
minnstu bræðra, þá hafið þér
gjört mér það.“ (Matt. 25,40).
Sigurður Draumland."
0 Um greiðslu
tryggingarbóta
„Velvakandi góður.
Getur þú komið þvi til réttra
aðila fyrir mig hvernig það sé
með greiðslu á tryggingarbótum.
Hér á Raufarhöfn er borgað
annan hvern mánuð og hefur ver-
ið borgað núna tvisvar á þessu ári.
Eru það ekki lög að þetta beri að
greiða mánaðarlega? Þvi sitjum
við ekki við sama borð og aðrir i
þessu efni.
Ég hringdi i tryggingarnar á
Húsavik og sá sem svaraði mátti
ekki vera að að gefa mér neinar
upplýsingar og það fannst mér
ekki nógu góð þjónusta.
Mig langar að fá að vita hvort
beri að greiða tryggingarbætur
mánaðarlega eða annan hvern
mánuð?
Ein óánægð."
Þessum spurningum er hér með
komið á framfæri við viðkomandi
aðila i þeirri von að þeir sjái sér
fært að svara þessari konu á
Raufarhöfn.
S1
01
01
01
U Bingó kl. 3 í dag. 1
lal Aðalvinningur vöruúttekt fyrir 25.000.— kr.
OSSSSIEIEIEIEIEIEIEIEIEIEIEIEIEIBIGISÍ
Þessir hringdu . . .
Sjá einnig ÞESSIR
HRINGDU á bls. 28 í
blaðinu f dag.
0 Góðar gjafir
Sjúklingur, sem nú liggur á
Hvitabandinu, hafði samband við
Velvakanda og vildi fá að koma að
þakklæti fyrir gjöf, sem spitalan-
um hefur borizt. Er það útvarp
með hátölurum og hægt er einnig
að spila kasettur, snældur, og með
gjöfinni fylgdu með allmargar
snældur, sem bæði er búið að
leika inn á og einnig nokkrar, sem
ekki er búið að leika inn á, þannig
SKÁK
Umsjón:
Margeir Pétursson
Á skákmóti i Tsjeljabinsk í
Sovétrikjunum í ár, en mótið var
jafnframt undanrásariðill fyrir
Skákþing Sovétrikjanna, kom
þessi staða upp í skák þeirra
Petrushins, sem hafði hvítt og átti
ieik, og Belovs:
• b c d • f o h
17. IIxd6! — Rd7 (Eftir
17. . . .Bxd6 18. Dxd6 — Rd7, 19.
Rd5 verður svartur mát) 18.
Hxd7! — Bxd7, 19. Rxe5 — 0-0
(Eða 19.. . Be6 20. Bxe6 — fxe6
21. Dxe6 — Hd8, 22. Rd5) 20.
Rxd7 — Had8, 21. IId3 — H:c8,
22. Re5 og svartur gafst upp.
Petrushin varð sigurvegari á mót-
inu. Hann hlaut 9 v. af 13 mögu-
legum, en vinningi neðar komu
þeir Panchenko og Filipenko.
að sjúklingar geta tekið upp eitt-
hvert efni ef þá langar til. Sagði
þessi sjúklingur á Hvitabandinu,
að þetta væri mjög kærkomin gjöf
og nú sætu sjúklingar, sem það'
gætu, öllum stundum við útvarpið
og snældutækið og spiluðu tónlist
og hlustuðu. Væri tækið í gangi
nærri allan daginn og fram i
kvöld þar til sjúklingar þyrftu a!
ganga til náða. Ekki kvaðst hann
vita hver gefandinn væri, en vildi
fá að koma á framfæri þakklæti
til hans með þessum orðum.
HÖGNI HREKKVÍSI
Við ætlum bara að slá á milli — og engan í
dómarasætið!
Bíll til sölu
Honda Civic
Til sölu er Honda Civic sjálfskipt, árgerð
1 977 ekin 7000 km. Til sýnis að Sigtúni
31,1. hæð, laugardaginn 25. júní frá kl.
1.00. Tilboð óskast.
GRUNDTVIGS
H0JSKOLE
FREDERIKSBORG 3400nnerod
Danskur lýðháskóli (35 km. fyrir nordan Kaup-
mannahöfn) með sérstökum deildum í norrænum
greinum og þjódfélagsfræði, sálfræði, skapandi
greinar. 35 greinar eru kenndar innan skólans.
4—8 mán. frá sept. 6 mán frá nóv og 4 mán frá
jan.
Hring/ð eða skrifið
eftir stundaskrá
forstander Sv. Erik Bjerre
tlf. 03-268700 - 3400 HillerOd
Frá Stýrimannaskólanum
í Reykjavík
Umsóknafrestur um skólavist fyrir nýja nem-
endur er til 15. ágúst.
Inntökuskilyrði í 1 . bekk eru:
1 . Gagnfræðapróf eða hliðstætt próf.
2. 24 mánaða hásetatimi eftir 1 5 ára aldur.
Þá þurfa umsækjendur að leggja fram augn-
vottorð frá augnlækni, heilbrigðisvottorð og
sakavottorð.
Fyrir þá, sem fullnægja ekki skilyrði 1 . er haldin
undirbúningsdeild við skólann. Einnig er heim-
ilt að reyna við inntökupróf í 1. bekk í haust.
Prófgreinar eru: Stærðfræði, eðlisfræði, ís-
lenska, enska og danska.
Haldin verða stutt námskeið í þessum greinum
og hefjast þau 14. september.
Inntökuskylirði í undirbúningsdeild eru 1 7
mánaða hásetatími auk fyrrgreindra vottorða.
1. bekkjardeildir verða haldnar á eftirtöldum
stöðum ef næg þátttaka fæst: Akureyri, ísafirði
og Neskaupstað.
Skólastjóri.