Morgunblaðið - 25.06.1977, Blaðsíða 13

Morgunblaðið - 25.06.1977, Blaðsíða 13
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 25. JUNI 1977 13 ár að sögn Erlings Hann var í sjöunda himni yfir hve vel hefði tekist til, enda tæpar 6 milljónir ísl króna í húfi fyrir hann Sagði hann okkur að nú væri ekkert því til fyrirstöðu að byrja að undirbúa kaupá 50—60 þúsund seið- um frá íslandi á næsta ári Seiðunum sleppt Þegar seiðunum er fyrst sleppt í sjó, eru þau losuð úr pokunum í ker á hafnarbakkanum með rennandi vatni, en úr kerinu liggur breið plastpípa út í nót við hafnarbakkann. sem stöðugt er dælt í vatni þannig að um 1 50 cm vatnsborð myndast ofan á söltum sjón- um Eru seiðin látin vera nokkra sólarhringa við þessar aðstæður eða þar til þau eru öll lögst í botninn á nótinni, en þá er hann opnaður og þau byrja lifið i sjónum. Byrjað er að gefa þeim strax og eru þau til að byrja með fóðruð á sérstöku laxafóðri, en siðan er farið að gefa þeim hakkaða loðnu og rækjuúrgang úr verksmiðjunni auk þess sem reglulega er gefið sérstaklega vítaminblandað fóður Þegar seiðin eru farin að vaxa dálitið. er nótin dregin út á fjörðinn. þar sem 12 nætur liggja bundnar hver utan á annarri og þar er eldinu haldið áfram í 2 Vi ár eða þar um bil en laxarnir eru settir á markað 4—9 kg að stærð og fást allt að 2500 ísl kr. fyrir kg af stærsta fiskinum, er hann er kominn á markað í Bretlandi eða Frakklandi Að sögn Erlings er hagnaður af eldinu yfirleitt 30—40% og stundum meiri ef sérlega vel gefur til eldisins. Næst verður stöngin með Hann fór með okkur Júlíus á hrað- báti út á fjörðinn til að sýna okkur laxana, sem voru að komast í sölu- stærð og enginn orð fá lýst furðu okkar Franihald á bls. 25 5. bindi íslenzks ljóðasafns kemur út hjá Bókaklúbbi Almenna bókafélagsins MORGUNBLAÐINU hefur borizt eftirfarandi frétta- tilkynning frá Almenna Bókafélaginu: Út er komið hjá Al- menna bókafélaginu 5. bindi íslenzks ljóðasafns, 4. bókin hjá Bókaklúbbi AB þetta ár. Ritstjórn, val ljóða og alla umsjón verks- ins hefur Kristján Karls- son annazt. Hér er um að ræða úrval þýddra ljóða, hið fyrsta sinnar tegundar á íslandi, þar sem valið er úr öllum ljóðum sem þýdd hafa ver- ið á íslenzku. Alls eru þýð- endur ljóða í bókinni 42, hinn fyrsti Jón Þorláksson á Bægisá og hinn síðasti Aðalsteinn Ingólfsson fæddur 1948. Höfundar ljóða í bókinni eru samtals 133 frá 27 löndum. Kristján Karlsson segir í formála m.a. á þessa leið: „Kvæðin eru flokkuð eft- ir þýðendum. Með því fyrirkomulagi vildi ég taka af skarið um það, að hér er engin tilraun gerð til þess að veita yfirlit um ljóða- gerð annarra þjóða né verk einstakra erlendra höf- unda. Slíkur tilgangur væri úrvalinu ofviða og sjálfsblekking að hafa hann í huga. Ég hefi enga þýðingu tekið með vegna höfundarnafns, heldur ein- ungis kvæði sem mér virt- ust góður skáldskapur á ís- lenzku. Eða þegar bezt læt- ur frumlegur skáldskapur á íslenzku. Ég fór eftir þeirri trú, að ekki sé til allsherjar mælikvarði á gildi kvæða. Allt úrval er gjörræði. Ég leyfi mér aft- ur á móti að vænta þess, að úrvalið megi veita sæmi- lega hugmynd um þýðing- ar sem grein íslenzkrar ljóðagerðar undanfarin hundrað og fimmtíu til tvö hundruð ár. Bindið hefst á köflum úr Paradísarmissi, sem kom út árið 1828, en lýkur á kvæði, sem birtist 1975. Bókinni fylgir, auk for- mála ritstjórans og tvö- falds efnisyfirlits, æviágrip þýðenda og skrá yfir höf- unda eftir þjóðernum þeirra svo og greint frá hvenær þeir voru uppi og hvar í bókinni þá sé að finna. Framhald á bls 22 ByrjaS aS afferma I Tromsö. Kristmundur flugstjóri og Lárus flugvélstjóri huga aS farþegunum á leiSinni. július hugar aS seiSunum i nótinni, en Erling blessar seiSin. Aðstaða Á tveggja manna herbergjum með handlaug og þriggja manna her- bergjum með sér snyrtingu og sturtu. Almenningssturtur, gufu- bað, Iþróttasalur og 1 5 mín. akstur I sund Útvarp og allur rúmfatnaður á herbergjum Orlofstímar Fæði: Hálft fæði 9000 krónur Fullt fæði 1 4 000 kr Börn: Frítt fæði og uppihald fyrir börn yngri en 8 ára 1/2 gjald fyrir 8—12 ára börn I fylgd með for- eldrum. 2 m. herb. 3 m. herb. 27.—4. júlí 7 dagar ..... 19.800 29.700 4. —11. júli 7 dagar...... 19.800 29.700 11. —18. júlí 7 dagar ........ —Uppselt — 18. — 25. júlí 7 dagar ..... 19.800 29.700 25. — 1. ágúst 7 dagar ....... — Uppselt — 1-— 8. ágúst 7 dagar ..... 19.800 29.700 8. —15. ágúst 7 dagar ..... 19.800 29.700 15. — 22. ágúst 7 dagar ...... 19.800 29.700 22. — 27. ágúst 5 dagar....... 12.600 18.900 /latur og kaffi: Fyrir starfshópa, fjölskyldufagnaði og hópferðir ‘antanir og upplýsingar: I Bifröst alla virka daga 9—19 Innlend orlofsdvöl Sumarheimilið Bif röst Borgarfirði ...........iiitr uvrtf.y.»

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.