Morgunblaðið - 25.06.1977, Blaðsíða 16
16
MOKGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 25. JÚNI 1977
áStAuDoPiíKeR . .
A I IV ð U C ISJONVARPI
AFGREIÐSLUSALUR Aðal-
bílastöðinni i Keflavík: Stúlka
talar í síma og um leið og hún
afgreiðir bílstjóra og kallar upp
nöfn þeirra. Hún er að tala við
vinkonu sína: „Fyrirgefðu,
þetta er svo sem ágætt þarna
upp frá ef maður passar sig á að
drekka ekki of mikið. Ferlega
varstu full i fyrrakvöld — þú
varst alveg komin á herðablöð-
in. . . “
Önnur stúlka gægist í gegn-
um afgreiðslugatiö og biður um
leigubíl. Einn leigubílstjór-
anna, sem er víð spilaborð í
biðsalnum stendur upp og seg-
ist ekki keyra ,,svona“ fólk. Það
er Erlingur Gíslason leikari.
Stúlkurnar tvær eru ungar leik-
konur, önnur nýúrskrifuð úr
Leiklistarskóla íslands og hin
enn við nám.
Þaö, sem á sér stað á Aðal-
stöðinni í Keflavík þessa dgana,
er upptaka á hundruðustu
„próduktsjón" sjónvarpsins;
inum“. Ætti því fæstum að dylj-
ast um hvað efni leikritsins
snýst, alla vega að hluta.
Björn Bjarman, höfundur
leikritsins, var nærstaddur, er
blaðamaður og ljósmyndari
reyndu að ná tali og eða mynd
af herra upptökustjóra Tage
Ammendrup við störf ásamt að-
stoðarfólki i þar til gerðu
myndstjórnarherbergi í rútunni.
Ammendrup hefur líklega
gleymt „stefnumóti” sínu við
Morgunblaöiö. Að visu eru fjög-
ur ár liðin síöan ákveðið var að
taka Póker til sýninga og því
betra að láta hendur standa
fram úr ermum, svo árin verði
ekki að áratug.
„Komið og takiö myndir
seinna stelpur," sagði upptöku-
stjórinn önnumkafni. Höfðum
við gleymt aö kynna okkur? Að
visu vorum við sjálfar að vinna
okkar störf. . .
Sigmundir Örn Arngrímsson
leikur eitt aöalhlutverkíð og
Björn Bjarman.
Helga Pálmadóttir við upp-
töku.
Leigubílstjórar að tafli: Flosi Ólafsson og Erlingur Gtsla-
son. Að baki þeim eru Ragnheiður Arnardóttir og Lísa
Pálsdóttir.
Sigmundur Örn Arngrims-
son leikur leigubílstjórann
Alla. Sitjandi eru Björn
Bjarman og Kolbrún Jarls-
dóttir „myndveljari".
sjónvarpsleikrit eftir Björn
Bjarman, sem heítir PÓKER.
Pókerinn var skrifaður árið
1972 og samþykktur af útvarps-
ráði ári síðar. Upptökur á Ieik-
ritinu hófust hins vegar ekki
fyrr en i júníbyrjun og standa
fram til sumarleyfis sjónvarps-
ins, sem hefst í byrjun júli.
Leikstjóri er Stefán Baldursson
og stjórnandi upptöku Tage
Ammendrup. Það var sá síðar-
nefndi sem Morgunblaðsmenn
mæltu sér móti við klukkan 2
eínn eftirmiðdag nú í vikunni.
Fýrir utan Aðalbílastöðina í
Keflavík stóð rúta merkt sjón-
varpinu, frá henni Iágu svo ótal
leiðslur inn í biösal byggingar-
innar, þar sem upptaka á áður-
nefndri senu fóru fram, en
Helga Pálmadóttir er sviðs-
stjóri. Þar sátu leikararnir
FIosi Ólafsson, Jón Hjartarson
og Elingur Gíslason makinda-
legir við borðjálk einn og tefldu
— líklega ekki nógu áliðið dags
til að spila póker. Afgreiðslu-
stúlkan (Ragnheiður Arnar-
döttir) þuldi hins vegar áður-
nefnda rullu og nefndi í grið og
erg hina og þessa klúbba á „Vell-
Ljósmyndir: Emilía
kom hann upp í rútuna í þann
mund, sem viö vorum að stíga
út og bað Auðbjörgu förðundar-
dömu ríkissjónvarpsins að
púðra sig áður en hann gengi
inn í upptökusalinn. Sigmund-
ur leikur leigubflstjórann Alla,
sem fluttist að vestan með konu
sinni til Keflavíkur. Hann hafði
fengið nóg af því að vera til sjós
og kýs sér annað hlutskipti.
Þóru konu Alla leikur Valgerð-
ur Dan. Annað stórt hlutverk er
í höndum Róberts Arnfinnsson-
ar, sem leikur kaptein í banda-
ríska varnaliðinu á Keflavíkur-
flugvelli, sem á sér ástmey f
Kópavogi. og er sú leikin af
Kristbjörgu Kjeld. „Engin upp-
taka fer fram í stúdíói, heldur
allar þar, sem þær eiga að eiga
sér stað, svo sem hér i Keflavik,
i blokk I Kópavogi, á „Vell-
inum“ og á leiðinni milli Kefla-
víkur og Reykjavikur“, sagði
Björn Bjarmann.
Og um hvað snýst svo leikrit-
ið? „Ja þetta er hugsað sem
raunsönn lýsing á ástandinu.
Því ástandi, sem skapast a því
að spila póker ög þeim póker,
sem við tökum öll þátt i. Af því
dregur leikritið nafn sitt".
Þetta er fyrsta leikritið, sem
Björn Bjarman skrifar en hann
hefur skrifað áður tvær skáld-
sögur: „Tröllin" og ,,í Heið-
inni“ auk ótal blaðagreina og
smásagna. Ein smásagna hant
heitir ,,Fjárhættuspilið“ og upp
úr henni sauð hann saman leik-
ritið.
Aðspurður um hvort Miðnes-
heiðin og aðstæður þar, séu
honum hugleikið viðfangsefni,
svarar Björn með jái og þvi
ekki. Á Keflavíkurflugvelli
hafi hann unnið lögfræðistörf
fyrir bandaríska flugherinn, i
Keflavík hafi hann einnig unn.
ið sem framkvæmdastjöri hjá
bílastöð, þannig að aðstæður
ættu að vera honum vel kunn-
ar.
Um Póker segir hann: Við
erum öll að spila póker við
ameríkanann og báðir aðilar
tapa að mínu mati, líkt og kan-
inn og leigubílstjórinn í leikrit-
inu. Sú eina, sem ber sigur úr
býtum þar er eiginkona leigu-
bilstjórans, þ.e. þegar hann
ákveður að hætta akstrinum og
pókerspilinu." segir Björn.
Blaðamaður náði að glugga i
handritið og sá þar m.a. að Þóra
leit á „Völlinn" sem einhvers-
konar' ógnvekjandi belg, sem
svelgdi Alla hennar með húð og
hári. Já, Þóra þessi að vestan
hafði náttúrulega aldrei á völl-
inn stigið og þvi ekki komiö
nálægt ástandinu á þann hátt.
Spyrjum við Björn þá, hvort
Þóra eigi að tákna fjallkonuna,
íslandið og leikritið sé ekki
bara einföld ádeila á dvöl
varnaliðsins hér. „Ég er ekkert
að halla á ameríkann i þessu
verki. Það er margt gott í fari
bandaríkjamanna og ég lærði
ýmislegt af því að vinna fyrir
þá, til dæmis að pila póker.
Spila póker og beita sálarfræð-
inni (!). En það er erfitt að
spila póker ef maöur hefur
andúð á leiknum eins og Alli
leigubílstjóri, sem verður að
taka þátt í pókerspilinu nauð-
ugur/viljugur. Pöker svipar til
eiturlyfjaneyslu, taki maður
þátt i spilinu er erfitt að kúpla
sig út úr þvi aftur.
Þegar ég vann fyrir kanann
Franihald á bls. 25
Því miður mátti upptöku-
stjórinn Tage Ammendrup
ekki vera að því að brosa
framan í Ijósopið og náðist
því aðeins í hálfmynd.
Einnig má sjá í aðra öxl
leikstjórans Stefáns
Baldurssonar.