Morgunblaðið - 25.06.1977, Qupperneq 25
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAC.UR 25. JUNI 1977
25
smáauglýsingar — smáauglýsingar — smáauglýsingar — smáauglýsingar
Munið sérverzlunina
með ódýran fatnað.
Verðlistinn Laugarnesvegi
Laxveiðileyfi
fæst keypt. Ávísanir ekki
teknar. Sími Ljárskógar um
Búðardal.
Ástríður Hansdóttir, Ljárskóg-
um.
Grindavík
Til sölu 70 ferm. einbýlishús
I góðu standi. Ræktuð og girt
lóð, bílskúr. Uppl. í síma 92-
8286.
Nýjar teppamottur
Teppasalan Hverfisgötu 49.
Aftanívagn óskast
Vil kaupa aftanívagn og
skýfu.
Uppl. í síma 85064.
Halló bændur,
á suðurlandi.
Ég vil gjarna komast í sveit.
er með eitt barn. Upplýsingar
gefnar í sima: 74213 á
kvöldin, næstu viku.
Samkoma fellur niður sunnu-
dagskvöld vegna almenna
mótsins í Vatnaskógi.
Hjálpræðisherinn
Sunnudag kl. 1 1 helgunar-
samkoma.
Kl. 20.30 hjálpræðissam-
koma.
Bridgader Óskar Jónsson
stjórnar.
Allir velkomnir.
Filadelía
Guðsþjónustur helgarinnar
verða á sumarmóti Fíladelfíu
Keflavik.
SÍMAR. 11798 OG 19533. •
Laugardagur 25. júní.
Kl. 13.00 Gönguferð í
Blikdal, sem er í vestur-
hlíðum Esju. Létt ganga. Far-
arstjóri: Einar Halldórsson.
Verð kr. 1 000 gr. v/bílinn.
Sunnudagur 26. júní.
1.. kl. 09.30 Göngu-
ferð um Svínaskarð.
Gengið frá Kjós að Hrafnhól-
um, m.a. á Trönu og
Móskarðshnúka. Fararstjóri.
Ástvaldur Guðmundsson.
Verð kr. 1200 gr. v/bilinn.
2. Gönguferð að Tröllafossi
og nágrenni. Létt ganga. Far-
arstjóri: Þorgeir Jóelsson.
Verð kr. 800 gr. v/bílinn.
Farið frá Umferðamiðstöðinm
að austanverðu.
Næsta Esjuganga verður 2.
júli.
Sumarleyfisferðir
1.—6. júlí. Borgar-
fjörður eystri-
Loðmundarfjörður.
1. —10. júlí Húsavík-
Fjörðu-Víkur og til
Flateyjar.
2—10. júlí Kverk-
fjöll-Hvannalindir.
2. —10. júlí. Aðalvík-
Slétta-Hesteyri.
Nánari upplýsingar á
skrifstofunni.
Ferðafélag íslands.
UTIVISTARFERÐiR
Laugard 25/6 kl. 13.
Vlfilsfell. Fararstj. Kristján
M. Baldursson. Verð 800 kr.
Sunnud. 26/6.
Kl. 10 Rjúpnadyngjur.
Fararstj. Kristján M. Baldurs-
son. Verð 1 000 kr.
Kl. 13 Helgafell-
Dauðudalahellar. Hafið
góð Ijós með. Fararstj. Friðnk
Daníelsson. Verð 800 kr.
Frítt f. börn m. fullorðnum.
Fanð frá B.S.Í., vestanverðu.
Útivist.
raðauglýsingar — raöauglýsingar — raðauglýsingar
fundir — mannfagnaðir
h|AU PM AN N ASAMTÖK
D ÍSLANDS
Kaupmenn athugið
Kaupmannasamtök íslands, halda al-
mennan félagsfund, mánudaginn 27.
júní nk kl. 20.30 í Kristalsal Hótel Loft-
leiða.
Fundarefni:
Nýgerðir kjarasamningar.
Stjórnin.
Aðalfundur
Vélbátaábyrgðarfélagsins
Heklu
verður haldinn að Hótel Selfoss, Selfossi
laugardaginn 25. júní n.k., kl. 3 e.h.
Stjórnin.
tilboð — útboð
Útboð
Tilboð óskast í lagningu 3. áfanga dreifi-
kerfis Hitaveitu Akureyrar. Útboðsgögn
verða afhent á skrifstofu Hitaveitu Akur-
eyrar, Hafnarstræti 88 B, Akureyri, frá og
með 22. júní 1 977, gegn 10.000 kr.
skilatryggingu.
Tilboð verða opnuð á skrifstofu Akureyr-
arbæjar, mánudaginn 4. júlí 1977 kl.
14 00.
Akureyri 16. júní 1977
Hitaveita Akureyrar
| nauðungaruppboð
Nauðungaruppboð að kröfu cnnheimtu rikcss|öðs, Matnartcroi,
innheimtu Hafnarfjarðarbæjar, ýmissa lögmanna og stofnana
verður haldið nauðungaruppboð i áhaldageymslu Hafnar-
fjaTðarbæjar við Flatahraun, Hafnarfirði laugardaginn 2. júlí
n.k. kl. 1 4.00
Selt verður: Bifreiðarnar G-279, G-496, G-1324, G-1491,
G-1800, G-1878, G-2729, G-3385. G-3944. G-4061, G-
5379, G-5449, G-5545. G-5945, G-6474, G-6505, G-
7503, G-8479, G-8324, G-9033, G-9440, G-9606, G-
9761. G-9938, Y-909, Y-3707, Y-3534, M-1860, R-
19272, R-20983, R-3 1 184, R-41890, R-44106, R-44297,
F0-56360, kranabifreið Húsgögn, heimilistæki, sjónvörp,
reikncvélar, Ijósritunarvél, peningaskápur, skjalaskápur, ritvél,
skrifborð, plötuspilari, Ijósmyndavél, plastgerðaráhöld og mót,
bandsög, keðjubor, vélsög, fræsari, borvél, loftþ]appa.
Hlutafjáreign Kristjáns P. Vilhelmssonar I Sportmagasímnu
Goðaborg h.f. við Grensásveg að nafnverði kr. 1 100 000.
Vixill að fjárhæð 772 500. - i eign Skiphóls h.f., ofl
Uppboðshaldarinn i Hafnarfirði.
Útboð
Tilboð óskast í lagningu aðveituæðar fyrir í
hitaveitu Akureyrar:
Steyptur stokkur og pípulögn, um 1.1
km. á lengd.
Útboðsgögn eru afhent á skrifstofu hita-
veitu Akureyrar, Hafnarstræti 88 B, Akur- j
eyri, gegn 10 þús. kr. skilatryggingu.
Tilboðin verða opnuð í skrifstofu Akureyr-
arbæjar Geislagötu 9, Akureyri þfiðjudag- I
inn 28. júní 1977 kl. 14.
!
Hitaveita Akureyrar
16. júní 1977.
tilkynningar
Samkvæmt ákvæðum kjarasamnings
verzlunarmanna verða allar verzlanir
lokaðar á laugardögum
á tímabilinu 20. júní til ágústloka.
VERZLUNARMANNAFÉLAG KAUPMANNASAMTÖK
REYKJAVlKUR (SLANDS
— Póker...
Framhald af bls. 16
sá ég þar bæði ljósu og dökku
hliðarnar á pókerspilinu. Ef um
ádeilu er að ræða i þessu verki,
þá er eingöngu til umfjöllunar
smáangi af heimsvaldapólitík-
inni allri.
Ég er á móti her. Öllum her,
hverju nafni, sem hann nefnist.
Ég er hræddur við byssur, kann
ekki á byssur. Þetta er ekki
pólitisk stefna mín heldur lifs-
stefna."
Ekki kvaðst Björn Bjarman
vita hvenær leikritið yröi tekið
til sýninga eða hvenær þvi yrði
fulllokið. Sýningartími verður
að öllum líkindum ein klukku-
stund, og tímasetning leikrits-
ins er í núinu.
Hvort þema verksins höfðaði
til áhorfenda í dag og hvort
höfundur áliti ádeilu þessa
frumlega, svarar Björn
Bjarmann játandi.
„Mér finnst þetta gott efni og
þarft. Ég vil vekja fólk til um-
hugsunar um hvort ekki sé tími
til kominn að stánda'upp frá
spilaborðinu. Eða ætlum við að
halda áfram að tapa?“
Tapa hverju? Tapa i póker?
Éorvitnilegt verður að sjá hvort
sjónvarpsleikrit þetta hefur til-
ætluð áhrif á hausti komandi
eða næsta vetri. Og hvort áhorf-
endur finni sig annaðhvort í
sporunt leigubílstjórans Alla,
sem er vonsvikinn eftir hvert
tapið á fætur öðru í pókerspil-
inu eða sporum eiginkonunnar
örvæntingarfullu, þeirrar einu,
sem virðist standa fyrir utan
pókerspilið og „fær fullt hús aö
lokum". Eöa hvort fólki finnist
almennt ekki til fleiri hliðar á
málinu og mannlifinu. En höf-
undar vegna er óskandi að
þessi „raunsanna lýsing" veki
einhvern til umhugsunar, ef
ekki um „heimsvaldapóker-
inn", þá um íslenzka leikrita-
gerð fyrir sjónvarp, hlutverk
hennar og stöðu. Eða eins og
Björn Bjarman sagði, að ijll
tækjum við þátt í pókerspilinu,
hann hefði lært, áð „beita sálar-
fræðinni" í póker af kananum,
hvort við gætum ekki lært að
„beita sálarfræðinni “ þá til
dæmis í gerð sjónvarpsleikrita,
svona almennt?
H.Þ.
— Síðasta
ævintýrið
Framhald af bls. 38
augum sænskra gagnrýnenda
Halldoff er hins vegar mjög upp-
tekinn af hugmyndum og hegð-
unarmynstri þjóðfélagsins og
hvernig það bitnar á einstakling-
um eins og sjá má af þeim mynd-
um, sem hér hefur verið fjatlað
um Það verður þvi fróðlegt að
fylgjast með næstu myndum hans
og sjá, hvert þessi áhugi leiðir
hann
SSP
—Þama sprakk...
Framhald af bls. 13
er hann sýndi okkur I nótina, sem
geymdi stærsta laxinn, því þarna syntu
fyrir augunum á okkur yfir 1000 laxar
frá 14—20 pund og öðru hverju
þurrkaði sig silfurgljáandi fiskur upp úr
vatninu og féll niður aftur með dynk
Við Július litum hvor á annan og
hugsuðum hið sama. ..Þvi E and.
höfðum við ekki vit á að taka með
okkur stöng' . Hétum við þvi að næsta
ár skyldi stöngin með og ekki linnt
látum fyrr en leyfi hefði fengíst til að
veiða einn eða tvo til að taka með heim
I soðið Við spurðum Erlmg hvermg á
þvi stæði að hægt væri að ná laxinum i
svo mikla stærð þetta norðarlega á
jarðkúlunni og hann sagði okkur að
lykillinn væri að yfir sumartimann
næði sjórinn upp i 20 stiga hita og þá
yrði hrein vaxtarsprenging i laxinum
Hins vegar yxi laxinn fremur litið yfir
veturinn, er kaldast væri og t d var
sjórinn aðeins 4 gráðu heitur er við
vorum þarna á ferð og snjór viða niður
! fjöru.
Nú höfðum við Július syndgað nokk-
uð upp á náðina með klukkutímann,
sem Kristmundur gaf okkur áður en
lagt yrði upp til islands á ný og ók
Erling okkur i snatri upp á flugvöll
Ekki hefði okkur legið svo, á þvi að þar
fengum við þær fregnir að heimferð
væri frestað til morguns vegna veðurs
heima Ekki verður Tromsödvölin
tiunduð frekar hér, en við lentum i
Reykjavik kl. 13,20 daginn eftir og
vorum þá 5 tima á flugi með meðvind-
inn frá deginum áður beint i nefið
Iscargomönnum og hinum félögunum
þakka ég ánægjulega ferð
— ihj.
— Borgarstjórn
Framhald af bls. 17
keniur frani, að rekstrarkostnað-
ur hefur yfirleitt hækkað inun
nieira en hjá Reykjatíkurborg,
eða um og yfir 40%, og launa-
kostnaður frá 30—40%. Sýnir
þetta glögglega, að borginni hef-
ur tekizt aö Italda utgjiildum í
lágmarki.
Nokkur umskipti urðu (il hatn-
aðar í efnahagsmálum landsins á
liðnu ári. Þótt verðbólgan væri
niikil var hún þö farin að sjatna,
og menn nokkuð vongóðir um
afturhata, enda ýmis skilyrði fyr-
ir hendi, sem bentu til lians.
Margt bendir þó til, að verðbólga
niuni enn aukast næstu mánuði.
Borgarstjórnin þarf þess vegna
óhjákvæntilega að hafa strangt
taumhald á þróun tekna og út-
gjalda borgarsjóðsins. Stöðuna
þarf að nieta að nýju nú í kjölfar
kjarasanininganna og ga>ta hóf-
semi og beita fyllsta aðhaldi í
fjármálum borgarinnar og stofn-
ana hennar."
MYIMDAMÓTA
Adolstræti 6 simi 25810