Morgunblaðið - 25.06.1977, Qupperneq 31

Morgunblaðið - 25.06.1977, Qupperneq 31
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 25. JUNÍ 1977 31 Sigríður Ámadóttír frá Ytri-NJardvík—Mirming F. 27. 7. 1892. D. 14. 6. 1977. Hún fæddist og ólst upp vió Breiðafjörð, dóttir hjónanna Mar- grétar Jónsdóttar frá Þórdísar- stöðum í Eyrarsveit og Árna Snæ- björnssonar, verkstjóra og síðar kaupmanns í Stykkishólmi. Fædd var hún að Ögri, fluttist með for- eldrum sínam að Viðvík og síðar til Stykkishólms. Þau voru fjögur systkinin og kveður hún þennan heim siðust. Systkini hennar voru: Katrín, móðir undirritaðs, dáin 1919, Bjarni, dáinn 1939 og Sigrún Geira, dáin 1973. Ung fór hún að heiman, dvald- ist tvo vetur hjá Ólöfu móðursyst- ur sinni i Reykjavik og var fermd í Frikirkjunni. Þaðan lá leiðin til Isafjarðar, þar sem hún dvaldi um hríð, en hélt síðan til Stykkis- hólms aftur og vann þar um ára- bil á símstöðinni, m.a. veturinn 1918 er spænska veikin gekk i Reykjavík og þurfti þá að taka á móti margri sorgarfréttinni um ástvinamissi, en til Stykkishólms mun spænska veikin ekki hafa komið, eða mjög væg. Jafnhliða þessu varð hún að hjálpa til að gistihúsi föður síns, sem hann rak um þetta leytí, svo nógur var starfinn. Frá Stykkishólmi hélt Sigríður til Borðeyrar og vann á lands- símastöðinni þar i fjögur ár. Áður en hún hélt þangað hafði hún kynnzt tilvonandi eiginmanni sín- um, Valdemar Björnssyni, ættuð- um úr Dölunum og giftu þau sig á Borðeyri 1921. Sigríður hélt áfram að vinna á Borðeyri um tíma, en Valdemar hélt suður á land og staðnæmdist i Ytri Njarð- vik og byggði þar hús, sem hann nefndi Velli. Að Völlum kom Sig- riður strax og húsið var íbúðar- hæft og þar bjuggu þau sin beztu manndómsár og þar ól Sigríður öll börn sin. Valdemar steypti sér strax út í athafnalífið — útgerð- ina, og fékk góðan félaga til liðs við sig, nágranna sinn Einar á Borg. Það þurfti að hýsa vertíðar- menn og sjá þeim fyrir mat og þjónustubrögðum og kom það mest i hlut Sigriðar að sjá urn það, en Sigríður var hraust og dugleg kona, annars hefði þetta ekki ver- ið hægt. Það var einmitt á þessum árum, upp úr 1930, sem ég kynnt- + FRÚ GRÓA ÓLAFSDÓTTIR, Hringbraut 115, Reykjavík, andaðist að morgni 23 júni Fyrir hönd barnabarna og annarra ættingja, Erna Bragadóttir. + Móðir mín og tengdamóðir SVEINBJÖRG SKÚLADÓTTIR, Bólstaðarhlið 8. lézt í Vífilstaðaspítala aðfaranótt 24 júni Guðmundur Sigurbjörnsson Steinunn Guðmundsdóttir. t Eiginmaður minn og faðir STEFÁN BJARNASON. Njálsgötu 52. verður jarðsunginn frá Fossvogskirkju mánudaginn 27 júní kl 3 e.h Helga Eiríksdóttir, Margrét Stefánsdóttir. + Eíginmaður minn og faðir okkar, EINAR PÁLSSON. Álftamýri 58, verður jarðsunginn frá Fossvogskirkju mánudaginn 27. júnl kl 10 30 Þeim, sem vildu minnast hans, er vinsamleg^ bent á að láta líknarstofn- anir njóta þess Matthildur Haraldsdóttir Einar Örn Einarsson Sigrún Einarsdóttir Margrét Heidi Einarsdóttir Grube Stefán Einarsson. + Maðurinn minn, faðir okkar, tengdafaðír og afi BJÖRN GÍSLASON. frá Sauðárkróki. Hátúni 1 0 A, verður jarðsunginn frá Dómkirkjunni mánudag nn 27 júni kl 1 0 30 Hólmfríður Jónsdóttir, Erna Jónsdóttir, Steingrímur Björnsson, Elsa Einarsdóttir, Jóhannes Björnsson, Esther Svavarsdóttir, Dagrún Björnsdóttir, Valdimar Gunnarsson og barnabörn. Sigvarður Pétursson á Brú — Minning L ist heimili þeira Sigríðar og Valdemars bezt. Á þeim árum var frændsemi rækt betur en nú tíðk- ast og notaði ég hvert tækifæri til að heimsækja frændfólkid yfir- leitt. Heimilið að Völlum hafði sérstakt aðdráltarafl, og þótt ann- ir væru alltaf miklar, var þar æfinlega heilbrigð lífsgleði, timi til að taka í spil, taka lagið, fara í leiki um hátíðar o.s.frv. Aldrei heyrði ég Sígríði fjargviðrast yfir vinnuálagi, þó\t það væri greini- lega oft of mikið. Börnin voru strax vanin við að vinna, enda sáu þau ekki annað fyrir sér og það hefur orðið þeim gott veganesti siðar i lifinu. Sigríður var hamingjukona i lífi sinu, hún hafði góða lund, tók öllu með jafnaðargeði, sem að höndum bar. Þaö segir sig sjálft, að á nær 85 ára lifsferli blæs stundum á móti, en þá er að haga seglum eftir vindi og það kunni hún. Sigríður var kona sérstak- lega hreinskilin og hispurslaus, svo sumum þótti nóg um, en þessi eiginleiki hennarvarð aðall henn- ar, þannig var hún — hún kom til dyranna eins og hún var klædd. Frá Völlum fluttu þau 1938 til Keflavíkur í hús, sem þau byggðu þar og 1947 til Reykjavíkur, þar sem þau ilentust til 1954. En forn- ar slóðir drógu þau tii sin aftur, og nú byggðu þau i Njarðvikun- um, þar sem þau bjuggu svo lengi sem heilsan entist. Árið 1970 fluttust þau til Fjólu dóttur sinn- ar og höfðu hluta af húsinu til umráda. Árið 1972 dó Valdemar og hefur Sigríður síðan verið til húsa hjá Fjólu og hennar fjöl- skyldu, þar sem hún hefur unað hag sinum mjög vel, enda við göða andlega og líkamlega heilsu þar til í marz s.l. að heilsan bilaði snögglega og var hún þá um tima • á spitalanum í Keflavik, en komst þó aftur heim við sæmilega heilsu, þar til kallið kont tiltölu- lega snögglega. Hér hefur veriö stiklað á stóru í lifi merkrar konu. Þau Sigriður og Valdemar eignuðust fjögur börn, sem öll lifa. Þau eru: Árni, vélstjóri við Elliðaárstööina, kvæntur Dómhildi Guðmunds- dóttur frá Reykjavik. Hörður, rekur bifreiðaþjónustu í Kefla- vík, kvæntur Sigurrós Sigurðar- dóttur frá Hafnarfirði. Margrét, gift Guðjóni Steingrímssyni hrl. Hafnarfirði og Fjóla, gift Halldóri Alfreðssyni, bifreiðastjóra í Keflavík. Börn, tnegdabörn, barnabörn og barnabarnabörn Sigríðar þakka skaparanum fyrir líf þess- arar góðu konu. Hópurinn er orð- inn stór, sem i dag drýpur höfði í sorg við gröfina, en urn leið í þakklæti fyrir að hafa átt hana svona lengi fríska og káta. Guðmundur Hannesson. F. 31. ágúst, 1884. I). 17. júní 1977. Nú er Sigvarður Pétursson á Brú á Jökuldal genginn til feðra sinna i hárri elli, á93. aldursári. Með Sigvarði hverfur ákveðinn hluti af gamla tímanum á Jökul- dalnum. Sigvarður var elsti ibúi hreppsins. Hann var fróður, stál- minnugur og svo vandaður í frá- sögn, að fágætt má telja. Hann fræddi þess vegna um langan ald- ur ser yngri menn um fjölda- margt, sem hann vissi betur deili á en adrir, og svo mikið traust höfðu menn á fróðleik hans, að þar var yfirleitt haft fyrir satt, sem Sigvarður sagði. En sá hængur var á, að Sigvarð- ur tranaöi sér aldrei fram með fróðleik sinn, og þvi mun niargt hafa glatast við fráfall hans, sem engir kunna nú full skil á. Sigvarður var fyrst og frenist bóndi af gamla skólanum. Fyrir honum vakti það framar öllu öðru að afla nægra heyja fyrir búpening og nægra adfanga til heimilis á haustnóttum, þannig að hvort tveggja entist eins og til var ætlast, heyin með aðgætni í gjöf og heimilisföng með nýtni og hagsýni i notkun. Sigvarður þekkti ekki almanna- tryggingarkerfið eða samneyslu- hugtakiö, nteðan hann bjó sinum búskap. Hann leyfði sér ekki þá óforsjálni að láta meðalmennsk- una nægja við forsjá heimilisins. Honum nægðu ekki þau rök, sem margur maðurinn beitir nú til dags, að dugi ekki meðalálagiö til lifsframfæris, skuli sjálfgert að krefjást þess, sem á vantar, af öðrurn. Sigvarður mun hafa litið svo til, að velferð hans sjálfs og fjölskyld- unnar væri undir eigin dugnaði, elju og útsjónarsemi kornin, og að engum öðrum bæri skylda til.að hlaupa undir bagga, þegar eitl- hvað bjátaði á. Miklu fremur mun hann hafa litið svo á, að sér bæri skylda til að vera reidubúinn að rniðla öðrum, ef eitthvað lægi við. Þetta mætti á nútimamáli kalla að búa við neikvæða tryggingu, þar sem ávinningurinn er fólginn i þvi að mega leggja öðrum lið, þegar neyðin kallar að. Brú á Jökuldal er ein landmesta jörð landsins. Afréttarlönd Brúar, svokallaðir Brúardalir, eru geysileg flænti og ekki heiglum hent að ná fé santan af þeirri óraviðáttu. Vegna fjar lægða er jörðin mjög óhæg til búskapar, en á móti vegur, að fé verður þar vænna en á flestum öðrum stöðum á landinu. + Eiginmaður minn, GUÐMUNDUR STEFÁNSSON, Borgarvegi 2. Njarðvik, verður jarðsunginn frá Innri-Njarðvikurkirkju, mánudaginn 27 júni kl 2 Fyrir hönd vandamanna, Ingibjörg Danivalsdóttir. Tún var lítið og engjar snöggar í búskapartið Sigvarðar, og þö að heyskapur væri sóttur fast, varð eftirlekjan aldrei mikil. Sigvarður komsl þannig að ordi við mig fyrir fáum áruni, að áður en vélaöld hófst, hafi alltaf þurft að spara hey tii hins ítrasta. Þaö sem heyjaðist untfram meðallag í góðum heyskaparárum, gerði ekki betur en mæta þvi, sem á vantaði í grasleysis- eða óþurrka- árum. Sigvarður treysti þess vegna á beitina, eins og fyrirrennarar hans þar i sveit alll frá landnáms- tíð hafa gert. En beitarbúskapnum fvlgdi áhætta í baráttunni við hörð veð- ur, erfiði, þegar sækja þurfti með fé langl frá bæ á beit í vondri færð, og áhyggjur af þvi, hvernig af myndi reiða, þegar langvinn jarðbönn gerði. Það þarf andlegt og líkamlegt þrek til að standast það álag, sem f.vlgir því að búa beitarbúskap við óraviddir öræfanna. Sigvarður var gæddur andlegu þreki i þeim ntæli, að þess varð aldrei vart, að hann bæri kvið- boga fyrir komandi degi, hversu iskyggilegt sem útlitið var, og likamlegt þol hans i erfiði var me ólikindum. Sigvarður var hversdagslega fremur fámáll og seintekinn ókunnugum, en greiður í svörum og gagnorður, þegar til þurfti að taka. 1 gleöskap í gööra vina hópi var hann hins vegar hrókur alls fagnaðar, iðandí af glettni og fjöri, hnittinn i tilsvörum og bein- skeittur, ef á þurfti að halda. Vin- um sínum var hann tryggdatröll, og það var haft fyrir satt, að ekk- ert mælti hann aumt sjá án þess að leggja því lið, enda þött hann dyldi viðkvæmni sína vel á bak við hrjúft, vedrad og meillað svip- mót. Sigvarður var mótaður og hert- ur af langri, en farsælli baiáttu við náuúruöflin. Fordæmiö, sem hann gaf mörg- um hinum yngri Jökuldælingum með kjark sínum, áræði og lífs- ánægju, á án efa verulegan þátt í þvi, að margt ungt, ána’gt og óbugad fólk býr nú blómlegum búskap á Jökuldal og horfir björt- um augum frani á veginn. Það er hverri sveit gott að hafa átt nienn eins og Sigvarð l’éturs- son á Brú. Stefán Aðalsteinsson Birting afmælis- og minning- argreina ATIIYGLI skal vakin á því, að afmælis- og niinningargreinar verða að berast blaðinu með góðum fyrirvara. Þannig verð- ur grein, sem birtast á i mið- vikudagsblaði, að berast f síð- asta lagi fvrir hádegi á mánu- dag og hliðsta-tt með greinar aðra daga. Greinar mega ekki vera í sendibréfsformi eða bundnu máli. Þa-r þurfa að vera vélritaðar og með góðu linubili. AIGLYSINGA SÍMLXN ER: 22480

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.