Morgunblaðið - 25.06.1977, Blaðsíða 33

Morgunblaðið - 25.06.1977, Blaðsíða 33
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 25. JUNl 1977 33 félk í fréttum Hann hefur etið heil- an elg + Þessi litli norski drengur, sem þarna er með foreldrum sinum, heitir Thomas og er tveggja ára. Maturinn, sem er á diskinum fvrir framan hann, er elgskjöt, en það er eini matur- inn sem Thomas getur borðað án þess áð'verða illt af. Thomas þjáist af ofnæmi, en læknarnir vita ekki enn hvað veldur því og Thomas er of ungur til að gangast undir ofnæmispróf. „Við verðum að vernda hann gegn öllu mögulegu," segir móðir hans. „Við getum hvorki haft teppi á gólfunum eða blóm í gluggunum.“ Thomas þolir ekki hveiti, rúgmjöl, haframjöl eða maís. Ekki mjólk, kartöflur eða kjöt, ekki grænmeti eða ávexti. Foreldrar hans komust að því fyrir tilviljun, að honuni verður gott af elgskjöti og nú fær Thomas litli það á hverjum degi. Ilann borðar um það bil eitt kíló á dag af því, vmist soðið eða hakkað, einnig drekk- ur hann 1.6 lítra af sérstakri steinefnaupplausn og hálfan millilítra af vítamínupplausn fær Thomas líka á hverjum degi. Thomas hefur ekki lækn- ast af ofnæminu þótt hann borði elgskjöt og þeirri spurn- ingu er enn ósvarað af hverju það stafi en honum verður gott af kjötinu og það er fyrir mestu. En elgskjöt er mjög dýrt í Noregi og nú hefur faðir hans fengið levfi til að skjóta sjálfur elg þegar hann þarf að fá kjöt handa Thomasi. APA UPPELDI + Faðir hans varð heimsfræg- ur fyrir að verða fyrstur manna til að fljúga einn yfir Atlants- hafið, en sjálfur býr hann í afskekktri 400 ára gamalli höll I Suðvestur-Frakklandi þar sem hann elur upp apa. í fjög- ur ár hafa Scott Lindberg og hin franska kona hans alið upp fjöldann allan af öpum sem Scott ætlar síðar að skrifa bók um. Scott er eins og faðir hans, sem dó árið 1974, mikill nátt- úruunnandi. „Við vorum mjög nánir vinir og faðir minn hafði mikinn áhuga á þessu starfi mínu,“ segir Scott. „Ég væri sennilega banka- eða fjármála- maður ef ég hefði búið í USA en ég valdi Frakkland. Trúlega fer ég til USA til að gefa út bókina ef ég skrifa hana en ég vil ekki búa þar. Eg er ham- ingjtisamur í Frakklandi. Á daginn eru aparnir frjálsir ferða sinna og það eru engin vandamál með þá. Þeir borða hvorki plast eða annað rusl eins og apar í dýragörðum gera. Þeir gera það af því að þeim leiðist. Apar sem eru lokaðir inni í dýragörðum verða hálf ruglaðir. Lindberg-fjölskyldan lifði ntjög rólegu lífi og fra-gð föðurins hafði engin áhrif á börnin. Scott hitti Aniku konu sína í París og þau hafa verið gift í átta ár. Hún rnálar surr- ealistiskar myndir og fyrir- myndirnar eru flestar úr nátt- úrunni. Er hún var spurð hvort þau ættu börn svaraði Anika: „Já, alla apana okkar, þeir eru 40.“ íslendinga- dagurinn + Caroline Gunnarsson, á að vera Fjallkonan á ís- lendingadeginum í Mani- toba i sumar. íslendinga- dagurinn er fastmótaður siður í Manitoba og hefur verið það allt frá því að íslendingar settust þar að. Á síðari árum hefur hátíðin staðið i tvo til þrjá daga og mun svo verða i ár. Hún verður haldin dag- ana 30., 31. júli og 1. ágúst. Margt verður til skemmtunar svo sem - iþróttir, leiksýningar og fjöldamargt annað. Caro- line Gunnarsson, sem lengi var ritstjóri Lögbergs- Heimskringlu, var tiu ára gömul er hún fór vestur með foreldrum sinum, Gróu og Gunnari Gunnars- syni, sem bæði eru látin. Hún ólst upp á bændabýli föður sins en fluttist síðar til Winnipeg. Sr. Óskar J. Þorláksson: Minnisverð kirkjuhátíð í Siglufirði Dagana 13.—15. maí s.l. minnt- ust siglfirðingar þess, að liðin voru 45 ár frá því, að kirkjan í Siglufirði var reist og þótti því gefast sérstakt tækifæri til hátiða- halda, þar sem farið hafði fram gagngerð viðgerð á kirkjunni og hún prýdd á ýmsa lund, ekki síst með þvi að setja í hana steinda glugga, en áður háfði kirkjaa fengið ýmsa góða gripi, svo sem pípuorgel, stundaklukku og klukkuspil í turninn, en það kom í sambandi við 100 ára afmæli sr. Bjarna Þorsteinssonar tónskálds 1961. Þá hefur kirkjan nýlega fengið vandað hljómburðartæki og nokkurt plötusafn og fallega kirkjustóla. Má segja, að siglfirðingar hafi með öllu þessu sýnt kirkju sinni alveg sérstaka ræktarsemi og um- hyggju enda hefur gott og áhuga- samt fólk valist til forystu í saln- aðarmálum þar á staðnum. Til hátiðahaldanna hafði sér- staklega verið boðið fyrrverandi sóknarprestum og konum þeirra. Voru þarna viðstaddir 5 fyrrv. sóknarprestar, auk núverandi sóknarprests, en prestaskipti hafa verið þar alitið, eftir að sr. Bjarni lét þar af þjónustu 1935 eftir 47 ára þjónustu. dugnaði æft allan söng fyrir þessi hátiðahöld. Um kvöldið var kvöldsamkoma i kirkjunni með fjölþættri dag- skrá, þar sem prestarnir, meðal annars, röktu nokkuð minningar frá prestsskaparárum sínum í Siglufirði. Einn af fulltrúum sóknarnefnd- arinnar, Skúli Jónasson, tré- smíðameistari, flutti erindi um kirkjur í Siglufirði, og kirkjukór- inn söng og sr. Kristján Róberts- son söng einsöng. Július Július- son, safnaðarfulltr. stjórnaði sam- komunni. Bæði hátiðarmessan og kirkju- kvöldið voru prýðilega sótt og vart mun færri en 3—400 manns hafa verið á samkomum þessum, hvort sinn. Gestrisni siglfirðinga var frábær, aðkomufólkið gisti á einkaheimilum góðra vina. Okkur hjónunum veittist sú ánægja, að vera gestir læknis- hjónanna Ólafs Þ. Þorsteinssonar og frú Kristinar, sem verið hefur formaður sóknarnefndarinnar unt nokkurra ára skeið. Ólafur á langa þjónustu að baki sem sjúkrahúslæknir í Siglufirði. A sjötugsafmæli sínu s.l. ár var hann kjörinn heiðursborgari Siglufjarðar fyrir langa og far- isssts* Þessir fyrrv. presta voru þarna viðstaddir: sr. Óskar J. Þorláks- son, Reykjavik, sr. Ragnar Fj. Lárusson, Reykjavik, sr. Kristján Róbertsson, Þykkvabæ, sr. Rögn- valdur Finnbogason, Staðarstað, sr. Birgir Ásgeirsson, Mosfelli. Auk hins nýskipaða sóknarprests sr. Vigfúsar Þ. Árnasonar. Mun telja það fremur fátítt, að svo rnargir fyrrv. prestar hafi getað komið saman og verið við hátíöa- höld sem þessi. Aðal hátiðahöldin fóru frarn, sunnudaginn 15. mai, á hinum almenna bænadegi þjóðkirkjunn- ar. Hátíðarguösþjónusta fór frant i kirkjunni kl. 2. Þar voru sungnir hátiðasöngvar sr. Bjarna Þor- steinssonar. Tóku allir hinna við- stöddu presta þátt í guðsþjónust- unni, en hinn elsti þeirra (sr. Ó.J.Þ.) og sá sem lengst hafði þjónað i Siglufirði, prédikaði. Mun prestunum, sem þarna voru þátttakendur og söfnuðinum í heild, hafa þótt þessi guðsþjón- usta hátíðleg og eftirminnileg. Allt hafði verið vel undirbúið af hendi meðhjálparans, Guðbrands Magnússonar og konu hans, söng- urinn var áhrifamikill undir stjórn organleikarans, Páls Helga- sonar, en hann hafði af miklum sæla þjónustu i þágu bæjarins. Fer vel á þvi, þegar mætum mönnum er sýndur verðskuldað- ur heiður og þakklæti fyrir óvenjulega mikil og vel unnin störf i þágu samborgara sinna. A laugardagskvöldinu, var aö- Jkomufólkið og heimafólk gestir prestshjónanna á Hvanneyri, i myndarlegu kvöldverðarboði, og siðar um kvöldið hélt Systrafélag kirkjunnar, kirkjukórinn og sókn- arnefnd kaffiboð og kvöldsam- kornu í Alþýðuhúsinu með skemmtilegri dagskrá, þar sent frú Kristine Þorsteinsson, forni. sóknarnefndar flutti ávarp, kirkjukórinn söng, og Július Júlíusson, safnaðarfulltrúi, sýndi garnlar og nýjar rnyndir frá Siglu- firði. Á sunnudeginum var aðkomu- fólkið gestir læknishjónanna og átti þar áriægjulega stund, og á mánudeginum bauð bæjarstjórn Siglufjarðar gestunum til kvöld- verðar á Hótel Höfn, og því hófi stjófnaði Knútur Jónsson, forseti bæjarstjórnar. Má þvi segja, að siglfirðingar hafi keppst um að sýna aðkomugestunum sem mesta gestrisni og góðvild. ★ Það er ekki úr-vegi i þessu Framhald á bls. 38

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.