Morgunblaðið - 29.07.1977, Blaðsíða 2

Morgunblaðið - 29.07.1977, Blaðsíða 2
2 MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 29. JCLl 1977 Sveik út tvær milljónir með gír ó - ávísunu m Rannsóknarlögregla ríkisins vinnur nú að rannsókn fjársvika- máls og hefur maður verið úr- skurðarður f allt að 30 daga gæzluvarðhald vegna rannsóknar- innar. Að því er Njörður Snæhólm, yfirlögregluþjónn, tjáði Morgun- blaðinu í gær liggur fyrir að mað- urinn hefur svikið út verulega fjármuni nú um nokkurra mán- aða skeið með giróávísunum, en Njörður taldi ekki rétt að útlista frekar hvaða ráðum maðurinn hefði beitt i þessu skyni. Fjárhæð- in, sem maðurinn hefur svikið út með þessum hætti, er i kringum 2 milljónir króna, en ekki er Ijóst hvort öll kurl eru þar komin til grafar. 33 erlend fiski- skip við landið ÞRJÁTtU og þrjú erlend veiði- skip voru við tsland í gærmorgun, að þvf er Þröstur Sigtryggsson, skipherra f stjórnstöð Landhelg- isgæzlunnar, tjáði Morgunblað- inu í gær. Flest, skipanna eða 16, voru v- þýzkir togarar þar af voru tveir á siglingu. Þá voru 6 belgískir tog- arar að veiðum allir við djúp- kantinn úti fyrir Suðurlandi. 4 færeyskir togarar voru við landið, tveir voru að veiðum á Stranda- grunni og ætla ekki að vera við þorskveiðar 2. til 8. ágúst, 1 var á ufsaslóðinni suður af öræfa- grunni og 1 var á heimleið. Þá voru þrír færeyskir handfærabát- ar við landið, tveir voru í höfn og 1 á heimleið, ennfremur var 1 færeyskur linuveiðari á heimleið. 2 norskir linuveíarar voru að veiðum, annar var á Stokksnes- grunni, en hinn á Reykjanes- hrygg, 1 norskur linuveiðari var á leið á miðin. Samið við blaða- menn í gærmorgun Óskar Ólafsson, yfirlögregluþjónn, ásamt tveimur lögreglumönnum við hauginn af gjafapökkunum Lögreglan gjafmild um verzlunarmannahelgina Um verzlunarmannahelgina hyggst lögreglan f Reykjavík f samvinnu við Umferðarnefnd borgarinnar verðlauna um 1600 börn, sem verða f aftursætum bifreiða er halda út úr borginni um helgina, en eins og kunnugt er þykir það brýnt öryggis vegna að börn séu ekki í fram- sætum bifreiða. Börnin fá f verðlaun Iftinn bíl og orðsend- ingu, sem þau eiga að koma áleiðis til þess sem undir stýri situr. I fyrra hafði lögreglan sama háttinn á nema hvað þá voru verðlaunin sælgæti. Um verzl- unarmannahelgina í fyrra voru ökumenn einatt ekki undir þessi afskípti lögreglunnar búnir, og höfðu þá sett sig í stellíngar að svara óþægilegum spurningum og voru jafnvel með ökuskírteinin á lofti. Þeg- ar lögreglumenn stöðvuðu bíla þeirra. Þá eins og nú átti lög- reglan ekki annað erindi en að færa börnunum í bílum þeirra lítiðræði í vegarnesti og óska þeim sem i bifreiðunum voru góðrar ferðar. SAMNINGANEFNDIR Blaða- mannafélags tslands og Félags blaðaútgefanda f Reykjavfk náðu samkomulagi um kaup og kjör blaðamanna á sjöunda tímanum f gærmorgun, en þá hafði samn- ingafundur staðið samfleytt frá klukkan 10 árdegis f fyrradag. Samkomulagið er f meginatriðum byggt á rammasamningi ASÍ og vinnuveitenda með þeirri undan- tekningu þó að aðeins er um pró- sentuhækkanir að ræða i samn- ingnum, upphafshækkun og áfangahækkanir. Hlutur þorsks í afla Vestur- þýzkra togara 5,4% til 24,7% STARFSMENN Land- helgisgæzlunnar fóru um borð í 4 v-þýzka tog- ara í fyrradag til að rannsaka veiðarfæri og aflasamsetningu. Við skoðun kom i ljós, að vörpur togaranna voru allar löglegar, þ.e. 155 mm möskvi. Þá kom í ljós, að hlutur þorsks í afla var frá 5,4% upp í 24,7%. Meðalafli togar- anna i sólarhring hafði verið frá 6 tonnum upp í 11,4 tonn.__________ / Utlánaþakið til ágústloka t FRAMHALDI af fréttum Morg- unblaðsins um stöðvun útlána að mestu hjá viðskiptabönkunum hafði Mbl. samband við Davfð Ólafsson seðlabankastjóra í gær og spurði hann hve lengi núver- andi útlánaþak gilti. Sagði hann, að núverandi útlánaþak væri til loka ágústmánaðar. Yfirleitt væri stefna i lánamál- um ákveðin þrisvar á ári og þá til fjögurra mánaða i senn. Sagði Davíð að sem stæði væru ekki til nýjar tölur um útlánaaukningu bankanna, en þær yrðu tilbúnar fljótlega upp úr mánaðamótun- um. I samningnum, sem gildir frá 1. júlí síðastliðnum til 1. desember 1978 er endurskoðunarákvæði um samræmingu launa blaðamanna við laun fréttamanna rikisút- varpsins. Aðilar urðu sammála um að skipa 10 manna nefnd, 5 frá hvorum aðila, sem fjalla skuli um samræminguna. Hún skal hafa lokið störfum fyrir 20. janú- ar og komist hún ekki að sam- komulagi samhljóða, er hvorum aðila um sig heimilt að segja upp samningnum með viku fyrirvara. Upphafshækkun blaðamanna- samninganna er 20,95% og er þar sérkröfuafgreiðsla innifalin, sem kemur sem flöt prósenta á alla launataxta Blaðamannafélagsins. Við endurskoðunina er Blaða- mannafélaginu siðan heimilt að ráðstafa sérkröfuprósentunni með sama hætti og tiðkaðist í heildarkjarasamningum aðila vinnumarkaðarins frá 22. júní. Afangahækkanir eru siðan 4.3% hinn 1. desember 1977. 4.1% hinn 1. júní 1978 og 3.2% hinn 1. sept- ember 1978. Vísitöluákvæði samningsins eru hin sömu og í samningunum frá 22. júní. Félagsfundur Blaðamannafé- lagsins um samningana verður haldinn í Nausti í dag klukkan 15.30. Fékk tundurdufl í vörpuna 7 sml. suður af Reykjanesi Tundurhólkurmn var heill „>HÐ vorum á humarveiðum um 7 sjómílur suður af Reykjanesi þegar tundurdufl kom upp i einu halinu. Við sáum fljótt að belgur- inn utan um það var allur rifinn, þannig að við slökuðum því niður á dekkið og gengum frá þvf þar, og héldum sfðan áfram veiðum í tæpan sólarhring áður en við héldum til hafnar,“ sagði Jóhann Pétursson, skipstjóri á Hegra KE 107, I viðtali við Morgunblaðið í gær, en í gærmorgun kom Hegri tii hafnar með tundurduflið. Lög- reglan í Keflavfk kannaði fyrst duflið, en sfðan tók sprengideild varnarliðsins það í sína vörzlu, þegar i Ijós kom að tundurhólkur duflsins var enn heill. Jóhann Pétursson skipstjóri sagði í viðtalinu við Morgunblaðið að þeir hefðu strax séð að belgur duflsins var svo illa rifinn og ryðgaður að duflið hefði verið skotið á kaf á sínum tíma. Þeir Kæra - og gagnkæra „STJÓRN Læknafélags Islands hefur reynt að halda sem mest að sér höndum f hinu svonefnda læknatnáli sem nú er, en vegna þess sem komið hefur fram f fjöl- miðlum sfðustu daga ræddi stjórnin málið bæði f gær og f morgun. Þykir stjórn Læknafél- ags fslands leitt að svona alvar- legt mál skuli upphef jast og enn- fremur mjög alvarlegt að læknir skuli hafa uppi alvarlegar ásak- anir á hendur starfsbróður f fjöl- miðlum á meðan málíð er f athug- un hjá réttum aðilum," sagði Tómas Jónasson læknir, formað- ur Læknafélags fslands, þegar Morgunblaðið bað hann að segja álit stjórnar Læknafélagsins á kæru Birgis Guðjónssonar læknis vegna ráðningu Þórðar Harðar- sonar f stöðu yfirlæknis á lyf- lækningadeild Borgarspftalans. „Stjórn Læknafélagsins hefur kynnt sér málavexti eftir föngum og gerði það þegar í nóvember s.l. án þess að aðhafast nokkuð þá og núna aftur, vegna þess að það hefur komið fram kæra og gagn- kæra til stjórnar L.í. um brot á siðareglum lækna og lögum Læknafélags Islands," sagði Tóm- as ennfremur. Um slíkar kærur kvað Tómas gilda þær reglur, að tækist stjórn félagsins ekki að jafna ágreining væri henni skylt að visa málinu til gerðadóms. Afstaða stjórnarinnar væri eins og áður í málum sem þessu, að tjá sig ekki efnislega um mál sem gerðardómur ætti að fjalla um og dæma. hefðu verið búnir að vera með duflið á dekkinu i nokkurn tíma þegar þeir hefðu heyrt fréttir um virkt dufl austur í Þvottárskrið- um. Þá hefðu þeir haft samband við Landhelgisgæzluna, en þeirra sprengisérfræðingar hefðu þá verið staddir fyrir austan. Veðrið hefði verið það gott, að þeir hefðu tekið nokkur tog til viðbótar áður en þeir héldu inn, enda engin hætta þar sem allur ytri búnaður duflsins, eins og sprengihettur, hefði verið önýtur. Enn heldur Guðlaug uppi merki landans „ÞETTA var ekki dagur okkar Islendinganna, við töpuðum flest- ir, nema Guðlaug, hún hélt sfnu striki og vann sinn andstæðing," sagði Jón L. Árnason skákmaður þegar Morgunblaðið ræddi við hann á Norðurlandamótinu f Finnlandi f gærkvöldi. Sjálfur sagðist Jón hafa teflt við Raaste frá Finnlandi og verið með svart. Skákin hefði verið flókin lengi framan af, en síðan hefði hann leikið af sér í tíma- hraki og gefið skákina eftir 40 leiki. Helgi Ólafsson hefði hins vegar teflt við Tiavia frá Finn- landi. Skákin hefði farið í bið og væri staðan óljós. Sagði Jón, að Ásgeir, Jónas, Áskell, Haraldur og Egill hefðu tapað sinum skák- um, en Erlingur Þorsteinsson hefði náð jafntefli. Guðlaug Þorsteinsdóttir vann i gær Bengtson frá Sviþjóð og hefði því unnið allar sínar skákir, 6 talsins. Væri hún í efsta sæti í kvennaflokki ásamt Karmlin frá Sviþjóð. Staðan i meistaraflokki er nú þessi, að efstur er Raaste með 7'A vinning, þá kemur Hurme með 6 vinninga og betri stöðu i biðskák, í 3.—5. sæti er Jón L. Arnason með 6 vinninga. Nú eru 3 umferð- ir eftir af Norðurlandamótinu. BILVELTA Akurevri 28. júlt. BlLVELTA varð kl. 4 í nótt rétt sunnan við brúna yfir Þorvalds- dalsá á Árskógsströnd. Bfllinn kom sunnan þjóðveginn og þegar ökumaður sá beygjuna og brúna framundan kom á hann fát og hann missti vald á bílnum, sem valt á toppinn og skorðaðist upp við staur rétt hjá árgljúfrinu. Þar lauk ökuferðinni. Blllinn skemmdist mikið, en ökumaður meiddist ekki. Hann var ölvaður og réttindalaus og hafði tekið bíl- inn ófrjálsri hendi. Sv.p. Börkur búinn að landa um 23001 af kolmunna Neskaupslað, 28. júlí. BÖRKUR kom hingað f gærkvöldi með rösklega 100 lestir af kolmunna og er skipið nú búið að landa 2300 iestum af kolmunna frá því að veiðarnar hófust hér úti fyrir Austfjörðum um miðjan júlf. Vegna þorskveiðibanns- ins hafa trillur ekki verið á sjó þessa vikuna, en hins vegar er nægileg atvinna í frystihúsinu enn sem kom- ið er. Mjög gott veður er hér í dag og fyrir hádegi var hitinn kominn í 18 stig í forSælU. Axgeir

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.