Morgunblaðið - 29.07.1977, Blaðsíða 8
8
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 29. JULI 1977
Stefán A. Jónsson, Kagaðarhóli:
Hvað er gagnrýni?
Athugasemd við ummæli stjórnarformanns SIS
Þann 29. júní s.l. er birt í Morg-
unblaðinu ályktun sem samþykkt
var samhljóða á aðalfundi Sölu-
félags Austur-Húnvetninga á
Blönduósi í vor. 1 ummælum
stjórnarformanns S.Í.S., Eysteins
Jónssonar, sem birt eru í fram-
haldi af þessari ályktun sam-
kvæmt samtali hans við blaðið,
segir hann m.a. varðandi Búvöru-
deild S.Í.S.
Að haldnir væru sérstakir fund-
ir með fulltrúum þeirra kaupféi-
aga, sem við deildina skiptu og
þar væru gefnar upplýsingar um
starfsemi hennar. Þetta fyrir-
komulag var ekki gagnrýnt á aðal-
fundinum (aðalfundur S.l.S.)
heldur aðeins spurst fyrir um
þessa ályktun, en hvort við leggj-
um fram einhverjar endanlegar
tillögur fyrir aðalfundinn 1978
get ég ekki sagt um enda þarf
ekki endilega að leggj það fyrir
aðalfundinn þótt breytingar verði
á þessu sagði Eysteinn að lokum“
(Tilvitnun í Morgunblaðið lýk-
ur).
Þau ummæli stjórnarformanns
S.Í.S. að stjórnarfyrirkomulag
Búvörudeildar hafi ekki verið
gagnrýnt á aðalfundi S.Í.S. 1977
get ég ekki sætt mig við. Tel ég
ekki annað fært en gera þar at-
hugasemd við minnugur þeirra
orða að skylt er hverjum manni
að hafa það er sannara reynist.
Á aðalfundi S.Í.S. spurðist ég
fyrir um ályktun aðalfundar Sölu-
félags Austur-Húnvetninga, en
hennar var að engu getið í skýrsl-
um forstjóra eða formanns.
Kynnti ég umrædda ályktun og
las hana upp á fundinum. 1 henni
felst bæði gagnrýni á núverandi
fyrirkomulag hjá Búvörudeild og
þó fyrst og fremst ósk um breytt
stjórnarfyrirkomulag Búvöru-
deildar. í þessari ályktun segir
m.a.
„Eigi að siður telur fundurinn
(aðalfundur Sölufélags Austur-
Húnvetninga) nauðsynlegt að árs-
reikningar Búvörudeildar séu
sendir félögum sem eru beinir
viðskiptaaðilar hennar og óskar
eindregið eftir að fá senda árs-
reikninga ársins 1976 sem og eft-
irleiðis.“
Siðar í ályktuninni segir:
„Ennfremur leggur aðalfundur
S.A.H. til að stjórn S.I.S. kanni
möguleika á að breyta stjórnar-
fyrirkomulagi Búvörudeildar
S.1.S.“ I lok tillögunnar er lagt til
að stjórn S.Í.S. leggi tillögur um
það efni fyrir aðalfund Sam-
bandsins 1978.
A aðalfundi S.I.S. ræddi ég
þessi mál nokkuð og taldi ákvarð-
anir teknar af Búvörudeild eins
og t.d. um gærusölu (framleiðsla
ársins 1975) óviðunandi. Og orð-
rétt sagði ég: „Það eru fleiri atriði
sem ég sem stjórnarmaður hjá
Sölufélagi Austur-Húnvetninga
hef talið þurfa athugunar við".
Drap ég síðan á að skil Búvöru-
deildar á afurðaverði væru betri
það sem er af þessu ári en s.l ár,
VINSÆLIR
VANDAÐIR
Enskir
karlmanna
skór
Svartir
og brúnir
Verð kr. 7.900.-
Skóverzlun Péturs Andréssonar,
Laugavegi 74, sími 17345.
Skóverzlunin Framnesvegi 2.
SLAIÐ
I EINU
HÖGGI
Irland
17.-31. ágúst. , ^ ,
Verðkr.72.000,-
Fjölbreyttir
ferðamöguleikar
14 daga draumaferð
vinnuferöir
Austurstræti 12 Rvk. simi 27077
en hvernig kostnaði deildarinnar
væri jafnað niður á útflutt kjöt og
kjöt selt innanlands taldi ég sér-
mál sem ekki væri ástæða til að
ræða á þessum fundi (aöalfundi
S.I.S) þar sem hér væru margir
sem málið snerti ekki beint og
hvorki hefðu áhuga né hagsmuna
að gæta í því sambandi.
I framhaldi af því reifaði ég þá
skoðun sem kemur fram i ályktun
Sölufélags Austur-Húnvetninga
i að mál Búvörudeildar þyrfti að
ræða á fundum þar sem mættir
væru kjörnir fulltrúar frá þeim
félögum sem skipta við hana.
Lagði ég áherslu á þetta atriði,
þar sem mörg erfið og viðkvæm
mál kæmu þar til úrlausnar sem
bændur sjálfir hafa töluverða
þekkingu á úr starfi sínu og eiga
að fá að hafa áhrif á.
Ég hef nú í stuttu máli rakið
hvernig ég ræddi málefni Bú-
vörudeildar að ég taldi með hóf-
samri gagnrýni og jákvæðum
ábendingum til úrbóta. Rétt er þó
að skýra þetta nokkru nánar til
þess að menn átti sig betur á um
hvað málið snýst.
Sá háttur hefur verið hafður á
hjá Búvörudeild að hún boðar
kaupfélagsstjóra á sérstaka fundi
er hún heldur, en aðrir frá þeim
samvinnufélögum, sem skipta við
hana eru ekki boðaðir. Engir
kjörnir fulltrúar — engir bændur
— hafa rétt til að sitja þessa fundi
Búvörudeildar, sem samkvæmt
ársskýrslu S.Í.S. veltir afurðum
bænda fyrir 6.700 millj. kr. s.l. ár
og Kjötiðnaðarstöð til viðbótar
fyrir 427 millj. kr. eða alls fyrir
7.100 millj. kr. 1976. Lætur nærri
að þessi velta sé sem svarar 1.5
millj. kr. á hvern meðalbónda í
landinu. Bændur eru sem sagt
útilokaðir frá því að hafa bein
áhrif á gang mála hjá Búvöru-
deild og eiga ekki aðgang að þeim
upplýsingum, sem gefnar eru á
þessum fundum Búvörudeildar
þar sem kaupfélagsstjórar mæta.
Meira að segja stjórnir þeirra fél-
aga sem skipta við Búvörudeild fá
ekki ársreikninga hennar. I^annig
eru nú tengslin við framleiðend-
urna orðin þótt félagsmenn í sam-
vinnufélagi séu. Þarf nokkurn að
undra þótt talin sé þörf breytinga.
Þá vík ég aftur að aðalfundi S.l.S.
Þar taldi ég ekki þörf að fara
mjög náið út f öll atriði er tiliaga
Sölufélags Austur-Húnvetninga
hafði að geyma. Sum þessara atr-
iða skýrðu sig sjálf.
Undirtektir bæði forstjóra
S.I.S. Erlendar Einarssonar og
formanns Eysteins Jónssonar við
málflutning minn og tillöguna
áleit ég jákvæðar. Eysteinn Jóns-
son lýsti því yfir að tillagan ýrði
tekin til athugunar og málið skoð-
að því að þörf væri á breytingum.
Ég taldi því ekki ástæðu til að
ræða þetta mál frekar á aðalfundi
S.I.S. þar sem ég leit svo á að
þessir forystumenn samvinnu-
hreyfingarinnar væru opnir fyrir
jákvæðri gagnrýni og vildu taka
hana til greina. Og vilji félags-
mannanna til aukinnar virkrar
þátttöku i starfi samvinnuhreyf-
ingarinnar væri tekinn fegins
hendi. Það væri litið á sem eðli-
lega þróun mála að bændur hefðu
vaxandi áhuga á málefnum Bú-
vörudeildar og ættu rétt á ein-
hverri aðild að stjórnun hennar.
Einnig fengju þeir tiltækar upp-
lýsingar um sölu afurða innan-
iands sem og erlendis. Þvi að
óneitanlega horfa bændur með
ugg til þess hve erfiðlega gengur
að selja dilkakjöt og fleiri afurðir
erlendis fyrir viðunandi verð.
Þrátt fyrir að stjórnarformaður
S.Í.S. telji það sama og enga gagn-
rýni þótt einn óbreyttur bóndi,
félagsmaður norðan úr landi
fjarri höfuðstöðvum samvinnu-
hreyfingarinnar ræði málin með
nokkrum þunga á aðalfundi S.I.S.
vona ég að formaðurinn hafi full-
an vilja á aukinni þátttöku bænda
í stjórnun og starfsemi Búvöru-
deildar. Hann lýsir því og yfir í
lok orða sinna sem vitnað er til í
upphafi þessarar greinar að ekki
þyrfti að leggja tillögur um breytt
stjórnarfyrirkomulag deildarinn-
ar fyrir aðalfund S.I.S. heldur
væri hægt að gera breytingu án
þess. Þar sem svo er litið á verður
væntanlega ekki beðið til næsta
árs með að gera jákvæðar breyt-
ingar í þessu máli.
Þá vil ég minna á að sérmál
aðalfundar S.I.S. var „Fræðslu-
og félagsmál samvinnuhreyfing-
arinnar". I umræðum um þetta
sérmál fundarins komu hvað eftir
annað fram i ræðum manna
áhyggjur yfir þvi hvað áhugi hins
almenna félagsmanns virðist fara
dofnandi, hann sæki illa fundi og
sé lítt virkur í starfi samvinnu-
hreyfingarinnar. Fram kom mik-
ill áhugi forystumanna jafnt sem
annarra er til máls tóku um þetta
mál að gera átak til þess að fá
hinn almenna félagsmann til virk-
ari þátttöku.
Ég vil benda á að tillaga Sölu-
féiags Austur-IIúnvetninga felur
í sér eina raunhæfa leið til auk-
innar þátttöku hins almenna
félagsmanns í starfi samvinnu-
hreyfingarinnar.
Margt fleira mætti um þetta
segja og önnur mál sem athyglis-
verð voru á aðalfundi S.Í.S. og
sum hver ollu nokkrum skoðana-
skiptum og orkuðu tvimælis, en
út á þá braut verður ekki gengið.
Læt ég svo útrætt að sinni um
málefni Búvörudeildar, þótt
ástæða væri til að skrifa miklu
lengri grein um þessi mál og ræða
þar á víðari grundvelli um við-
skipti innanlands og útflutning
til einstakra landa. Enn ber ég þá
von að hægt sé að fá úreltu skipu-
lagi breytt og jákvæðara og opn-
ara félagsform verði tekið upp,
svo að ekki verði fámenn stjórn
embættismanna sem fari með og
hafi i hendi sér öll ráð þeirra er
framleiðslustörfin vinna vítt og
breitt um landið inn til dala og út
til nesja. Þeir sem þessi störf
vinna eru ekki sikvartandi og eru
seinþreyttir til vandræða en vanir
þvi að fylgja málum þéttingsfast
eftir ef þess gerist þörf til þess að
ná rétti sínum.
Aðalframkvæmdastjóri
UNESCO
Dr. Amadou-Mahtar M’Bwo, að-
alframkvæmdastjóri Menningar-
málastofnunar Sameinuðu þjóð-
anna, kom í heimsókn til Islands í
fyrradag í boði íslenzku ríkis-
stjórnarinnar. Hann mun dveljast
hér í nokkra daga og m.a. hitta að
máli forseta Islands, forstæisráð-
herra, menntamálaráðherra og
ýmsa vísindamenn. Viðræður
munu fara fram um samskipti
Islands og UNESCO, m.a. um
Háskóla Sameinuðu þjóðanna, en
UNESCO annast að nokkru fram-
kvæmd þess máls, áætlun
UNESCO um þýðingar bók-
á Islandi
mennta af frummáli á ýmis
tungumál, jarðvisindi o.fl.
Framkvæmdastjórinn mun
heimsækja Háskóla Islands og
Stofnun Arna Magnússonar, fara
til Þingvalla, Geysis og Gullfoss
og til Vestmannaeyja. Hann mun
ávarpa heimsþing Alþjóðasam-
bands esperantista, er hefst i
Reykjavík sunnudaginn 31. júlí
n.k. og sama dag opnar hann ljós-
myndasýningu í Norræna Húsinu
um starf UNESCO undanfarin 30
ár.
Dr. Amadou-Mahtar M’Bwo er
Framhald i bls. 27