Morgunblaðið - 29.07.1977, Qupperneq 3

Morgunblaðið - 29.07.1977, Qupperneq 3
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 29. JULl 1977 3 Forsvarsmenn Landsvirkjunnar: Dráttur á endurskoðun gjaldskrár kallar á enn meiri hækkun síðar .. ÞVÍ ER ekki að neita að dráttur á endurskoðun gjaldskrér Landsvirkjunar rýrir fjárhagsstöðu fyrirtakisins og getur veikt linstraust þess út i viS. Slfkt drægi úr möguleikum Landsvirkjunar i a8 fjirmagna virkjanafram- kvæmdir sinar meS hagkvæmum erlendum linum og væri þróun í þi itt mjög varhugaverS meS tilliti til þess hlutverks sem Landsvirkjun hefur aS gegna S raforkumilum þjóSarinnar." sögSu forsvarsmenn Landsvirkjunar, þeir Eirikur Briem, framkvæmdastjóri. og Halldór Jónatansson. aSstoSar- framkvæmdastjóri, i viStali viS MorgunblaSiS S gær, þar sem þeir voru spurSir ninar um röksemdir Landsvirkjunar fyrir hækkunarbeiSni þeirri, sem mjög hefur veriS til umræSu aS undanförnu. og ýmis önnur atriSi þar aS lútandi auk þess sem fjallaS var i viStalinu um fjirhag Landsvirkjunar almennt. Eiríkur Briem, framkvæmdastjóri Landsvirkjunnar (t.v.) og Halldór Jónatansson, aSstoðarframkvæmdastjóri. Ljósm. Mbl. Fr.H. Stjórn Landsvirkjunar ákvað að hækka rafmagnsverð fyrirtækisins til almenningsrafveitna um 1 5% frá 1. ágúst nk en er vegna rikjandi verð- stöðvunar háð samþykki rikis- stjórnarinnar. Hækkunin kom þvi fyrir gjaldskrárnefnd, sem ríkis- stjórnin skipaði nýlega til að fjalla um hækkunarbeiðnir opinberra fyrir- tækja og hafnaði nefndin hækkun- inni fyrir sitt leyti. Hins vegar voru bæði iðnaðarráðuneytið og fjármála- ráðuneytið meðmælt hækkuninni, þannig að það kom til kasta rikis- stjórnarinnar að úrskurða i málinu. Á siðasta fundi rikisstjórnarinnar var frestað að taka ákvörðun i málinu, eins og komið hefur fram i fréttum. ýt Viðræður við Alþjóðabankann Það kom fram hjá þeim Eiriki Briem og Halldóri Jónatanssyni, að bæði fjármálaráðuneytið og iðnaðar- ráðuneytið hefðu kynnt sér gaum- gæfilega fjárhagsstöðu Landsvirkj- unar og röksemdir hennar fyrir hækkunarþörfinni, m.a. með þátt- töku í viðræðum við fulltrúa Alþjóðabankans, sem fóru fram sið- ast í Reykjavik í lok mai og snerust um fjármál Landsvirkjunar almennt og þar með arðgjöf fyrirtækisins undanfarin ár með tilliti til skuld- bindinga Landsvirkjunnar sam- kvæmt lánssamningum við bank- ann. Hefði það verið sjónarmið for- svarsmanna bankans að enn vantaði töluvert á að fjárhagsleg afkoma Landsvirkjunnar væri jafn góð og bankinn teldi æskilegt, ef ná ætti þeim markmiðum lánssamnings bankans og Landsvirkjunar, að Landsvirkjun sé nægilega traust fyrirtæki fjárhagslega til að geta fjár- magnað virkjanaframkvæmdir sinar með hæfilega miklu eigin fé úr rekstri sínum og þá jafnframt án þess að þurfa að taka lán meira en góðu hófi gegndi. Niðurstaða þess- ara viðræðna hafi orðið sú, að fyrsta skrefið til úrbóta væri að hækka rafmagnsverð Landsvirkjunnar til al- menningsrafveitna um minnst 1 5% frá og með 1. ágúst til að auka hlutdeild eigin fjár Landsvirkjunar í fjármögnun framkvæmda fyrirtækis- ins, mæta auknum rekstrarkostnaði á þessu ári og tryggja jafnframt hæfilega arðgjöf í ár og vinna upp arðgjafarhalla áranna 1974—76. Aðilar að þessum viðræðum hefðu að lokum orðið sammála um þessa niðurstöðu og í framhaldi af því hafi stjórn Landsvirkjunnar samþykkt hækkunina fyrir sitt leyti að tilskil- inni staðfestingu ríkisstjórnarinnar. ýý Gjaldskrárnefnd hafði ekki samband við Landsvirkjun. í Ijósi þess aðdraganda sem rakin hefur verið á málinu, spurði Morgunblaðið þá Eirík Briem og Halldór Jónatansson hvort þeim hefði komið á óvar afstaða gjald- skrárnefndar. þar sem hún synjaði hækkuninni, og svöruðu þeir því báðir játandi. „Við erum þeirrar skoðunar að 1 5% hækkun frá 1. ágúst n.k megi ekki minni vera með tilliti til aukins kostnaðar við rekstur og fram- kvæmdir vegna þróunar verðlags- mála það sem af er árinu, auk þess að sem hækkunin felur í sér lausn á vandamáli, sem Landsvirkjun hefur átt við að glíma undanfarin þrjú ár í sambandi við framkvæmd láns- samninga sinna við Alþjóðabankann þá dregur hækkun sem þessi mjög úr hækkunarþörfinni á næsta ári. Til að skýra þetta nánar er rétt að eftirfarandi komi fram. í lögum um Landsvirkjun er kveð- ið svo á, að rafmagnsverð Lands- virkjunar skuli við það miðað, að eðlilegur afrakstur fáist af því fjár- magni, sem á hverjum tíma er bund- ið í rekstri fyrirtækisins. Einnig er í sama lagaákvæði lögð sú skylda á hendur Landsvirkjun að stefna að því að skila nægilegum greiðsluaf- gangi til þess að fyrirtækið geti jafnan með eigin fjármagni og hæfi- legum lántökum tryggt notendum sinum næga raforku. Þessi ákvæði hafa hingað til verið í heiðri höfð með þeirri undantekningu að á ár- unum 1974—1976 náðist ekki að mæta arðgjafarkröfum lánssamn- ings Landsvirkjunar og Alþjóða- bankans, en þær voru á sinum tima og eru enn taldar hæfilegar með tilliti til þeirra almennu sjónarmiða, sem lögum samkvæmt ber að leggja til grundvallar við ákvarðanir á raf- magnsverði Landsvirkjunar á hverj- um tima og vikið hefur verið að Arðgjafarhallinn, sem myndaðist á árunum 1974—1976 nemur 529 millj. króna. Landsvirkjun hefur gert hlutaðeigandi ráðuneytum fulla grein fyrir úrlausn þessa vandamáls, en einn liður i henni var umrædd 15% verðhækkun. Á hinn bóginn hefur nefndin ekki óskað eftir við- ræðum við Landsvirkjun um hlutað- eigandi hækkunarbeiðni og ekki hafl samband við Landsvirkjun um mál þetta, svo Landsvirkjun hefur ekki gefizt tækifæri til að skýra málavexti fyrir nefndinni nema fyrir milligöngu hlutaðeigandi ráðuneyta og getur því ýmislegt hafa farið á milli mála Beiðni Landsvirkjunar fylgdi rekstraráætlun fyrirtækisins 197 7 og 1978 og í sérstöku fylgiskjali með henni er gerð grein fyrir fjár- hagsstöðu fyrirtækisins. Þá hefur Landsvirkjun átt viðræður við fjár- málaráðherra og iðnaðarráðherra og ráðuneytisstjóra þeirra. sem hafa fengið ýmsar viðbótarupplýsingar frá Landsvirkjun og hafa ráðuneytin ekki talið skorta rökstuðning fyrir hækkunarbeiðninni'* ýt Ekki víst að eins hag- kvæm lausn gefist aftur. í viðtali Morgunblaðsins við verð- lagsstjóra á dögunum kom fram sú röksemd gjaldskrárnefndar, að Landsvirkjun ætti án verðhækkunar að geta varið 400 milljónum króna á þessu ári til að vinna upp arð- gjafarhallann, óeðlilegt væri að vinna hann upp að öllu leyti á þessu ári og ef svo væri gert þá væri væntanlega möguleiki á því að bók- færa meira af bótum frá Járnblendi- félaginu sem tekjur á þessu ári í stað þess næsta. Þeir Eiríkur og Halldór voru spurðir álits á þessari röksemd. „Hér er þess í fyrsta lagi að geta, að 15% hækkunin í ár er liður i möguleika á úrlausn þessa vanda- máls í eitt skipti fyrir öll á mjög hagkvæman hátt fyrir viðskiptavini Landsvirkjunar og er ekki víst, að Landsvirkjun gefist á nýjan leik kost- ur á svo hagkvæmri úrlausn Frest- un á vandanum gerir hann ein- göngu vandleystari Með umræddri hækkun hefur Landsvirkjun gert sér vonir um að þurfa ekki að hækka rafmagnsverðið aftur fyrr en seint á næsta ári, en sú hækkun verður þeim mun hóflegri því fyrr, sem sú hækkun, sem nú er beðið um. kem- ur. í umræddum- 400 millj. króna felast 73 millj. króna, sem eru hluti af bótum frá Járnblendifélaginu, sem greiddar voru Landsvirkjun 1976 en bókfærast sem tekjur i ár. Bæturnar námu alls 360 8 millj kr. og að frátöldum fyrrnefndum 73 millj. króna verður mismunurinn eða 287.8 millj. kr. færðar til tekna 1978, en bæturnar voru að öllu leyti greiddar Landsvirkjun 1976 Tekjufærsla þeirra með þessu móti er hins vegar í samræmi við bók- haldsreglur sem gera ráð fyrir tekju- færslu milli ára í samræmi við skipt- ingu tekjutapsins frá ári til árs " Áður var komið fram, að forsvars- menn Landsvirkjunar telja 15% hækkunina einn lið í þvi að stuðla að hagkvæmri úrlausn arðgjafar- vandamálsins, en í framhaldi af því voru þeir Eiríkur og Halldór spurðir að því að hvaða leyti úrlausn þessi teldist sérstaklega hagkvæm fyrir Landsvirkjun. „í viðræðum við Alþjóðabankann fellst hann á að breyta útreikningi arðgjafarinnar Landsvirkjun í hag þannig að hann telur aðra vélasam- stæðu Sigölduvirkjunar ekki með eignum í rekstri á þessu ári, enda þótt sýnt þyki að hún komi i rekstur 1. desember n.k. Þá tekur bankinn fyrstu vélasamstæðuna í eignir í rekstri frá og með 1. júli 1 977 i stað 1. april 1977, er hún raunverulega kom í rekstur. Fyrrnefnda ráðstöf- unin lækkar meðaleign i rekstri úr .um 28 milljörðum króna i tæpa 25 milljarða króna og sú síðarnefnda flytur um 52 millj. króna úr afskrift- um til hækkunar á nettó hagnaði Tíl þessa hefur Landsvirkjun þurft að ganga út frá því, að vél eitt komi i rekstur hinn 1. april 1977 og vél 2 hinn 1. desember 1977 og miða afskriftir og meðaleign í rekstri við það, en eins og kunnugt er reiknast arðgjöfin sem hundraðshluti hagn- aðar (áður en vextir eru greiddir) af meðaleign í rekstri. Samþykki bank- Framhald á bls 22. „Norrænir kristn- ir menningardagar” Horfur á mik- illi kartöfluupp- skeru í haust Fjöldi þekktra fyrirlesara—fjöl- breytt dagskrá NORRÆNIR, kristnir menningardag- ar verða haldnir í Norræna húsinu dagana 3. — 5. ágúst. en það er stjórn Samnorrænu kirkjustofnunar- innar (Nordiska Ekumeniska Institutet) sem efnir til þessara menningardaga i tengslum við a8al fund sinn. sem haldinn er á Akureyri þann 31. júlí. Biskup fslands. herra Sigurbjörn Einarsson. boðaði til blaðamannafundar og skýrði frá þessu. Samnorræna kirkjustofnunin stofn- uð i Sviþjóð árið 1940. með þann tilgang fyrir augum að halda kirkjulegu sambandi Norðurlandanna á striðsár- unum og virkja kirkjuna til aðstoðar, en hún vann mikið starf áiþeim timum við flóttamannaþjónustu og einnig voru haldnir nokkrir leynifundir brezkra og þýzkra kirkjumanna hjá stofnuninni i striðinu. Upphaflega stóðu einungis þjóð- kirkjur Norðurlanda að þessari stofn- un, en fyrir nokkrum árum var ákveðið að bjóða öðrum kristnum deildum að- ild og var það þegið Nú er tilgangur Samnorrænu kirkjustofnunarinnar að vinna að skipulegu samstarfi kristninn- ar i heiminum íslendingar gerðust formlegir aðilar að stofnuninni árið 1950 Stjórnarfundur hefur einu sinni áður verið haldinn á íslandi, en það var 1972, en aldrei áður hefur verið efnt til sérstakra menningardaga i tengsium við aðalfund stofnunarinnar Norræni menningarmálasjóðurinn hefur styrkt að nokkru þessa menningardaga Yfirskrift daganna er: Norræn kristni í menningarumhverfi samtim- ans (Nordisk kristenhet i samtidens kulturmiljö). Dagskrá er í stórum dráttum sú að Vilhjálmur Hjálmarsson, menntamála- ráðherra setur dagana á miðvikudag kl 10 00 f.h. Þann dag verða haldnir þrir fyrirlestrar og tala þá Haraldur Ólafs- son, Jóhannes Metrópoliti, yfirmaður orþódoxa á Norðurlöndum, og Anne- Marie Thunberg Um kvöldið verða tónleikar i Háteigskirkju, en þar flytja kirkjuleg verk Marteinn Friðriksson og Þorgerður Ingólfsdóttir. Á fimmtudag verða fluttir fyrirlestrar af Anne-Marie Aagaard, Ingmar Ström, Peter Wilhelm Böckman og herra Sigurbirni Einarssyni Föstudaginn 5. ágúst flytja Hörður Agústsson og Margareta Wirmark fyrirlestra Alls koma 1 7 manns frá Norðurlönd- um á aðalfundinn og til fyrirlestraflutn- ings Aðgangur að öllum dagskrárliðun- um er ókeypis og öllum heimill Herra Sigurbjörn Einarsson. biskup. HORFUR eru á mjög góðri kartöfluuppskeru á öllum kartöfluræktarhéruðum landsins ef ekki verða næt- urfrost í ágústmánuði. I hinum stærri kartöflu- ræktarhéruðum var meira sett niður af karöflum í vor en oftast áður, t.d. var nú sett niður í 330 hektara lands í Þykkvabænum og hefur aldrei áður verið svo mikið land undir kartöflu- ökrum þar. Jóhann Jónasson, forstjóri Grænmetisverzlunar landbúnað- arins, sagði í viðtali við Morgun- blaðið i gær, að útlit væri fyrir mjög góða kartöfluuppskeru sem stæði, en himnafaðirinn réði úr- slitum eins og fyrri daginn. Kvað hann menn hafa sett kartöflurnar frekar seint niður i vor, en frá þeim tíma hefði spretta verið ein- staklega góð, bæði á Norður- og Suðurlandi. Fyrir norðan hefði að visu verið mjög þurrt lengi fram eftir og fyrir sunnan vætusamt. Magnús Sigurlásson i Þykkva bæ kvað uppskeruhorfur þar vera góðar, og mætti það þakka að ekk- ert áfall hefði nú komið eins og í fyrra. Þá eyðilagði hávaðarok um vorið stóran hluta uppskerunn- ar.“ Sagði Magnús að nú hefði verið sett niður í 330 ha. lands og hefði aldrei áður verið sett niður í yfir 300 hektara, þannig að mjög mik ið af kartöflum ætti að koma frá Þykkvabænum ef næturfrost yrðu ekki í ágúst. ÍSAL með 318 miUjón- ir kr. í opinber gjöld ÍSLENZKA álfélagið í Straumsvík greiddi á skattárinu 1976 liðlega 318 milljónir króna. Af þessari upphæð nam framleiðslugjald 271.5 milljónum króna, en í því gjaldi eru reiknuð þing- gjöld, aðstöðugjald o.fl. samkvæmt samningi Sviss Aluminium við ríkisstjórnina. Auk þess- ara gjalda eru innifalin í upphæðinni önnur gjöld, svo sem launaskattur, um 27.8 milljónir króna. í skattskrá Reykjanes- umdæmis fyrir 1977 kem- ur aðeins fram lítill hluti þessarar upphæðar, eða 30.7 milljónir.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.