Morgunblaðið - 29.07.1977, Qupperneq 23

Morgunblaðið - 29.07.1977, Qupperneq 23
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 29. JULI 1977 —JónArnason - Minningarorð Framhald af bls. 15 mynda sér sjálfstæðar skoðanir á hinum fjölbreytilegustu vanda- málum. Hann var glöggur að greina milli aðalatriða og auka- atriða og gæddur ríkri réttlætis- kennd. Hreinskiptni hans og orð- heldni efaði enginn, þeir þættir voru svo ríkur hluti af manninum sjálfum, að ekki þurfti um að tala. Hress og glöð lund, reglusemi og frábær starfselja áttu giftu- drjúgan þátt i að móta góðan sam- starfsvilja og heilbrigt andrúms- loft i fjárveitinganefnd, svo að oft varð vart greint hvernig menn skiptust í stjórnmálaflokka þegar Jón leiddi nefndina til ákvarðana- töku um hin flóknustu vandamál. Áhugamál Jóns Arnasonar voru fjölþætt og kom það vel fram í þvi, hversu náið hann fylgdist með framkvæmdum á vegum ríkisins viðs vegar um landið. Sjávarútvegur og úrvinnsla sjávarafurða hygg ég að hafi ver- ið honum hugstæðari en önnur atvinnumál, en allt sem að hans dómi horfði til bættra lífskjara og betra lifs í landinu lét hann sig miklu varða. Þá voru honum sér- staklega hugleikin vandamál þeirra sem á einhvern hátt voru illa settir til að taka fullkomlega eðlilegan þátt í önn hins daglega lifs. Við fráfall Jóns Árnasonar er manni efst í huga söknuður yfir því, að svo góðum dreng og starfs- sömum skyldi ekki vera lengra lífs auðið, og þakklæti fyrir þær minningar, sem manninn lifa. Jón var örlátur maður að gefa af sjálf- um sér. Þess munu margir njóta, þótt maðurinn sé allur. Fyrir hönd fjárveitinganefndar leyfi ég mér að flytja Jóni Arna- syni þakkir fyrir frábært sam- starf og heillaríka forystu. Eigin- konu hans og börnum og öðrum vandamönnum flyt ég einlægar samúðarkveðjur. Ingi Tryggvason Andlát Jóns Árnasonar alþm. frá Akranesi kom okkur vinum hans, sem áttum því lífsláni að fagna að starfa með honum og hafa af honum náin kynni, ekki alls kostar á óvart. Hann hafði átt við mikil veikindi að stríða um skeið og gengið undir marga erfiða uppskurði og að lokum varð okkur ljóst hvert stefndi. Engu að síður er okkur sár harm- ur í hug við fráfall þessa svip- mikla, sístarfandi heiðursmanns og í raun ljósara en ella hversu skarð það sem hann skilur eftir sig verður vandfyllt. Kynni mín af Jóni Árnasyni hófust þegar ég tók sæti á Alþingi haustið 1971 og fór ég þá fljótlega að leita ráða hjá honum i nýju starfi, enda fáir menn, sem betra var til að leita með hugðarefni sin og vandamál en hann. Síðustu ár- in starfaði ég með honum í fjár- veitinganefnd, en hann gengdi formennsku hennar. Það var mér ógleymanlegur skóli að kynnast Jóni i þessu vandasama og eril- sama starfi þar sem mannkostir hans nutu sín til fullnustu;dreng- skapur og heiðarleiki gagnvart andstæðingum jafnt og samherj- um, ljúfmannleg kimni ásamt með ákveðni og röggsemi, enda ávann hann sér óskorað traust og vináttu meðnefndarmanna sinna. Aðrir munu verða til þess að minnast æviatriða Jóns og marg- vislegra starfa innan þings og ut- an. Ég vil sérstaklega minnast hans og þakka honum störf hans i þágu islenzks lagmetisiðnaðar og samtaka hans. Jón Arnason hafði mörg hugðarefni. Ein hugsjóna hans var að fullvinna islenzk hrá- efni fremur en flytja þau óunnin úr landi. Þannig vildi hann m.a. stuðla að blómlegum og vaxandi atvinnurekstri í landinu til efling- ar atvinnu og tekjuauka fyrir þjóðarbúið. Hann kom á fót Fisk- iðjunni Arctic h.f. á Akranesi árið 1967, en hún framleiðir einkum kaviar úr grásleppuhrognum og sýður niður þorskhrogn. Þor- steinn, sonur Jóns, hefur haft þar á hendi verkstjórn og unnið að uppbyggingu fyrirtækisins með föður sinum. Vegna forystuhæfileika sinna varð Jón snemma einn af forvígis- mönnum framleiðenda lagmetis og var einn ötulasti frumkvöðull að stofnun samtaka þeirra á árinu 1972 og undirbúningi á stofnun Sölustofnunar lagmetis á því ári. Hann var annar af tveim fulltrú- um framleiðenda i stjórn sölu- stofnunarinnar frá upphafi til dauðadags. Eftir að ég var skipað- ur formaður þeirrar stjórnar á árinu 1975 kynntist ég störfum Jóns þar, óþreytandi elju hans og ósérplægni í baráttunni fyrir vel- ferð iðngreinarinnar og sölustofn- unarinnar. Hann lét sér svo annt um stofnunina, að hann mátti heita þar daglegur gestur og kynntist þar öllu starfsfólki. Hans er þar nú sárt saknað. Stjórn Sölustofnunar lagmetis og starfsfólk þakka Jóni Árnasyni af alhug ómetanleg störf hans í þágu stofnunarinnar og lagmetis- iðnaðarins og færa konu hans, Þorsteini syni hans og öðrum að- standendum innilegustu sam- úðarkveðjur. Persónulega þakka ég Jóni að leiðarlokum ógleyman- leg kynni, einlæga vináttu og sam- starf. Eg færi Ragnheiði konu hans og börnum þeirra innileg- ustu samúðarkveðjur mínar og konu minnar. Guð blessi okkur öllum minningu Jóns Árnasonar. Lárus Jónsson. Leiðir okkar Jóns Árnasonar lágu saman á Alþingi sumarið 1959. Við vorum þá báðir ný- kjörnir á þing. Jón var kjörinn alþingismaður Borgfirðinga og síðan Vesturlandskjördæmis og hafði því er hann lést 23. júli s.l. setið á Alþingi í 18 ár. Þá þegar hófst náið samstarf og vinátta á milli okkar Jóns, sem reynst hefur mér mikils virði. Við fráfall hans horfi ég þvi á bak góðum vini og sam- verkamanni, sem ég bar þeim mun meira traust til sem sam- skipti okkar urðu nánari. Störf formanns fjárveitinga-: nefndar eru tvimælalaust með erfiðari störfum, sem unnin eru á Alþingi. Þau eru og afar um- fangsmikil en að sama skapi áhrifarík. Jón Árnason valdist fljótt til þeirra starfa og fyllti að allra dómi sæti formanns fjárveit- inganefndar með þeim hætti að vart verður á betra kosið. Það staðfestir og sýnir hið mikla traust sem Jón Árnason naut á Alþingi að hann var fulltrúi sjálfstæðismanna í fjárveit- inganefnd allan' sinn þing- mannsferil og gegndi for- mennsku nefndarinnar í heilan áratug eða lengur en nokkur annar alþingismaður hefur gert, og var þannig áhrifamikill í mótun og framkvæmd fjár- mála ríkisins á því tímabili. Þegar Jón Árnason tók sæti á Alþingi hafði hann um árabil verið forystumaður i heima- byggð sinni Akranesi og valinn þar til fjölmargra opinberra trúnaðarstarfa af samborgur- um sinum, auk þess hafði hann kornungur gerst forystumaður i atvinnulífinu og á þeim vett- vangi verið þátttakandi i heild- arsamtökum atvinnuveganna. Drengskapur og trygglyndi samfara háttvisi og hreinskilni var það veganesti sem Jón Arnason og bræður hans höfðu þegið i föðurgarði hjá Arna tré- smið Arnasyni og konu hans Margréti Finnsdóttur og reynd- ist það honum happadrjúgt til brautargengis eins og lífsferill hans ber vitni um, jafnframt sem við hlið hans stóð eigin- kona hans Ragnheiður Þórðar- dóttir Ásmundssonar og reynd- ist honum hinn trausti lífsföru- nautur sem með dugnaði sínum og árvekni gerði honum kleift að sinna þeim fjölmörgu störf- um sem hann var kvaddur til að gegna. Samstarf fjármálaráðherra og formanns fjárveitinganefnd- ar hlýtur ætíð að vera mjög náið og á miklu veltur að það byggist á gagnkvæmu trausti. Það var mér þvi mikils virði þegar ég tók við embætti fjár- málaráðherra að Jón Árnason var á ný kjörinn formaður fjár- veitinganefndar. Heilsteyptari mann gat ég ekki hugsað mér til samstarfs sem oddvita fjár- veitinganefndar enda ein- kenndust störf hans öll af ósér- hlífni og drengskap. Þannig mun ég ætið minnast með þakklæti vinar mins Jóns Árnasonar alþingismanns frá Akranesi, og bið honum bless- unar Guðs. Við Sigrún sendum samúðarkveðjur til Ragnheiðar og fjölskyldunnar. Matthias Á. Mathiesen. Nokkur kveðjuorð til vinar míns Jóns Arnasonar, er lézt 23. þ.m. hér á sjúkrahúsinu á Akra- nesi. Þakka ég honum fyrir sam- veruna í starfi og i leik í 50 ár. Fyrir utan aðalstarf okkar Jóns við verzlun og útgerð, áttum við sameiginleg áhugamál í fþróttum, söng og mörgum félagsmálum, ferðalög hér heima og erlendis, þar féll aldrei neinn skuggi á. Jón var alltaf hin styrka stoð og vildi allt fyrir alla gera, sannur leiðtogi hér á Akranesi í bæjarmálum og á alþingi, og sparaði aldrei krafta sina til þess er betur mátti fara. Jón var sérstaklega barngóður og nærgætinn við gamalt fólk og alla er minna máttu sín, og hafði fölskvalausa ánægju af að hjálpa þeim sem hjálpar þurftu með, hver sem í hlut átti. Að leiðarlok- um vil ég og fjölskylda mín færa þakkir fyrir öll árin sem við átt- um samleið. Margs er að minnast og margar ánægjustundir áttum við saman sem munu ylja okkur í framtíðinni. Siðast en ekki sízt þökkum við Jóni fyrir hvað hann var ávallt góður börnum okkar og barnabörnum, sem munu ætíð minnast hans sem hins skemmti- lega og góða vinar. Að síðustu vildi ég óska ástvinum hans að sú bjartsýni, sem ávalt fylgdi Jóni, jafnvel síðustu og erfiðustu dag- ana, þegar hann sá bláan himin bak við drungaleg ský, megi fylgja ykkur öllum um ókomin ár. Ég óska honum góðrar ferðar til æðri heima, þar sem andi hans mun starfa á lífsins vegi, í trú von og kærleika. Ölafur F. Sigurðsson. Kveðja frá Rótarýklúbbi Akraness. Er það sannleikur? — Er það drengilegt? — Eykur það velvild og vinarhug? Er það öllum til góðs? — Þannig hljóðar hið svonefnda fjórpróf Rótarýhreyfingarinnar. I ljósi þessara orða er okkur Rótarýmönnum ætlað að lifa og starfa. Þetta vissi hinn látni fé- lagi okkar, Jón Arnason alþingis- 23 maður, manna bezt. Þessi orð og þjónustuhugsjón Rótarý var hon- um leiðarljós og vegvisir í lífi og störfum. Hann lagði i hvivetna áherzlu á sannleika og dreng- lyndi, velvild og vinarhug og allt það, sem gat orðið öðrum mönn- um til góðs og byggð hans og þjóð til blessunar og heilla. Jón Arnason var einn af stofn- endum Rótarýklúbbs Akraness fyrir tæpum þrjátíu árum og for- seti klúbbsins 1954— 55. Hann var alla tíð áhugasamur, ötull og góður félagi. Lengst af hafði hann 100% mætingu á fundum. Jafnvel þótt hann dveldist langdvölum i Reykjavík vegna starfa sinna á Alþingi, hugsaði hann ávallt um að mæta á Rótarýfundum, ef ekki í eigin klúbbi, þá annars staðar. Hann vildi lyfta klúbbnum sínum upp, ekki aðeins með þvi að mæta manna bezt, heldur einnig með ötulu starfi og góðum félagsanda. Hann var traustur og ósérhlífinn félagsbróðir, lagði jafnan gott til mála og var ávallt reiðubúinn til starfs og fórnar. I dag drúpum við Rótarýbræður hans höfði í hjartans þökk og bæn. Með þessum fáu orðum vilj- um við leggja lítinn þakkarsveig að minningu látins bróður og heiðursmanns. Við minnumst hans með mikilli virðingu og þakklæti sem eins hins bezta félagsbróður og vinar. Hann fann það og vissi, að „það gleður og þroskar að hugsa og vinna vel“, eins og segir i Rótarýsöng klúbbs- ins okkar, og hann hafði svo oft sungið með sinni miklu og góðu söngrödd. Hann var vissulega i hópi þeirra góðu og framsýnu fé- lagsbræðra, sem hófu merkið og ruddu brautina fram á leið til meiri hamingju og bjartara og fegurra mannlífs. Við Rótarýfélagar þökkum hon- um störfin, kynnin og. samfylgd- ina. Við blessum minningu hans og tökum heilshugar undir orðin: „Gott er að signa göfuKmenni, gjalda blessun minning hans, dreifa skini yfir enni, ilmi um brjóst hins fallna manns. Guð blessi minningu Jóns Árna- sonar og gefi eiginkonu hans, börnum og öðrum ástvinum styrk og huggun. F.h. Rótarýklúbbs Akraness. Jón Einarsson. Saurbæ. Vinur minn Jón Árnason, al- þingismaður, er látinn. Það koma margir til með að sakna hans. Þjóðin þekkti hann sem alþingis- mann, formann fjárveitinga- nefndar Alþingis og af fleiri störfum i þágu þjóðarinnar. En nánustu vinir hans vita að hann var mikið meira. Hann vildi öllum vel og Var mjög félagslyndur. Þrátt fyrir hin miklu störf hans á Alþingi, gegndi hann störfum sín- um sem heimilisfaðir afburða vel. Þeir furða sig á því, sem þekktu hann og vissu hverju hann afkast- aði í þjóðmálum, að hann skyldi Framhald á næstu sfðu 6ALLABUXUR FRA FALMERS LAUGAVEGI 47 SÍMI17575

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.