Morgunblaðið - 29.07.1977, Síða 31

Morgunblaðið - 29.07.1977, Síða 31
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 29. JÚLl 1977 31 Carter vill selja Sadat her flugvélar Washinglon, 27. júlí. Heuter-AP. STJÖRN Carters á um þessar mundir viðræður við þingið um sölu á herflugvélum til Egypta- lands, að þvf er bandarfska utan- rfkisráðuneytið skýrði frá f dag. Sagði forsvarsmaður ráðuneytis- ins að hér yrði um að ræða varn- arútbúnað einvörðungu, og lagði áherzlu á að Sadat Egyptalands- forseti væri ekki lengur háður Sovétrfkjunum og hefði í þvf sam- bandi látið í Ijós ósk um að fá hernaðartæki víðar að. >?æri það augljóslega hagur Bandarfkj- anna, að láta Sadat f té þá aðstoð, sem unnt væri. Um leið var frá þvf greint, að Súdönum, sem hafa náin tengsl við Egypta, stæðu til boða vopn í þágu varna landsins. Að sögn The New York Times eru flugvélar þær, sem stjórn Carters vill selja Egyptum, 14 Herkúles herflutningavélar og 12 eftirlitsvélar, auk þess sem ætlun- in er að láta í té fullkominn eftir- litsútbúnað til notkunar í vélum, sem Egyptar eiga fyrir, svo og fjárhagsaðstoð til þjálfunar fyrir menn þeirra í bandarískum her- skólum. í fyrradag gerði stórn Carters þingnefnd grein fyrir því að þrátt fyrir tilmæli Roberts Byrd, þing- flokksformanns demókrata í öld- ungadeildinni, um að ákvörðun um sölu sjö Boeing 707 þotna með fullkomnum radarútbúnaði — AVACS — til írans yrði frestað þar til á næsta ári, væri ætlunin að af sölunni yrði á næstunni. Bæði utanríkisráðuneytið og varnarmálaráðuneytið í Washing- ton hafa mælt með því að Iran fái AVACS-vélarnar, og segir stjórn- in að mótmæli stofnunar þeirrar er hefur eftirlit með opinberum fjárveitingum í Bandaríkjunum, séu villandi og byggð á ónákvæm- um upplýsingum. Færeysku handfærabátarnir Fjöldinn ekki takmarkaður — Verða að fara eftir samningnum „FJÖLDI handfærabáta frá Fær- eyjum hér við land er ekki tak- markaöur og reyndar er engin takmörkun á fjölda veiðiskipa þar innan 200 milna fiskveiðilög- sögunnar. Hins vegar er aðeins ákveðið magn sem þeir mega veiða hér árlega en það er 8000 lestir af þorski og 9000 lestir af öðrum tegundum, eða 17000 lestir alls,“ sagði Jón B. Jónasson, deildarstjóri í Sjávarútvegsráðu- neytinu, þegar Morgunblaðið spurði hann hvernig veiðum fær- eyskra handfærabáta á tslands- miðum væri háttað. Jón B. Jónasson sagði, að þegar handfærabátarnir væru á veiðum við Island þyrftú þeir að tilkynna sig daglega til Landhelgisgæzl- unnar og fengi hvert skip leyfi hverju sinni til veiða hér. Kvað hann sjávarútvegsráðuneytið ekki hafa fengið tölu frá Færeyj- um um hvernig afli handfærabát- anna skiptist milli skipa, heldur kæmu þaðan aðeins heildarveiði- tölur. AUGLÝSINGASÍMINN ER: 22480 2H0r0unþI«þiþ Ætla að framleiða eigin snyrtivörur Ný snyritvöruverzlun hefur verið opnuð undir nafninu Nana og er hún til húsa við Völvufell í Breiðholti. Eig- endur hennar eru Bryndís Friðþjófsdóttir og Edda Sigurðardóttir og tók Ijósm. Mbl. ÓI.K.M. þessa mynd af þeim í nýju verzluninni. Segjast þær Edda og Bryn- dís munu leggja áherzlu á góða þjónustu og eru með á boðstólum snyrtivörur unnar úr efnum beint úr náttúr- unni, svo sem Germain Monteil, Juvena, og Yves Rocher. Með haustinu verður opn- uð snyrtistofa í sama hús- næði og mun sú veita sams- konar þjónustu og aðrar snyrtistofur. Þá hyggjast þær stöllur bráðlega hefja fram- leiðslu á eigin vörum, unnum úr náttúrulegum efnum og jurtum. Koma nýjar Vórur • Kjólar • Mussur • Blússur » • Banídaskór • Töskur T OfUOfl. Ofl sími 25580

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.