Morgunblaðið - 29.07.1977, Page 40

Morgunblaðið - 29.07.1977, Page 40
165. tbl. 64. árg. FÖSTUDAGUR 29 JULÍ 1977 Krafla: Mikil kalkútfell- ing stíflar holumar Fóðurrör holu 7 skemmt VIÐ þær athuganir, sem gerðar hafa verið á borholum við Kröflu að undanförnu, hefur komið f ljós að mjög mikil kalkútfelling er í holunum, sem gerir það að verk- um að þær stíflast mjög fljótt, ennfremur hafa komið fram skemmdir á fóðurröri holu 7 og er óvfst hvort tekst að ná þvf upp. Nú mun vera ákveðið að dýpka holu 9 og sjá hvað gerist þá og ennfremur hefur komið til greina að hreinsa holu 6 og holu 10 og athuga hvort gufumagn úr þeim eykst þá ekki. Valgaróur Stefánsson, eðlis- fræöingur hjá Orkustofnun, sagöi í viðtali við Morgunblaðið i gær, að nú væri búið að rannsaka fóðr- ingar holanna á svæðinu og hefði komið fram að mjög mikil kalkút- felling væri í holunum, sem ylli því að gufurennsli minnkaði mjög. Þessi kalkútfelling væri miklu meiri en dæmi væru um og gæti það valdið miklum tæknileg- um erfiðleikum að leysa málið. Þá sagði Valgarður, að neðra kerfið í holu 10 væri lokað vegna kalkúttfellingarinnar og væri það ástæðan fyrir þvi að rennslið hefði minnkað og liklega hefði það sama gerzt í öðrum holum. Kvað Valgarður enga leið til að komast í veg fyrir kalkútfelling- una, en þó væri hægt að sneiða hjá henni, með þvi að hreinsa holurnar upp með vissu millibili og það yrði að gerast með bor. Kostnaðurinn færi eftir þvi á hvaða dýpi útfellingin yrði, ef Framhald á bls 22. Franski kafbáturinn Requin S—634 frá Lorient á Bretagne- skaga kom til Reykjavfkur í gær og verður hér til kvölds. A meðan á heimsókninni stendur munu skipverjar skoða sig um f Reykjavík og nágrenni. Mynd- ina af kafbátnum tók Ól. K. M. f vesturhöfninni f gær. Stöðvast kaupskip á sunnudagskvöld? Hásetar hafa þá boðað verkfall Skattskráin í Reykjaneskjördæmi: Gjöld einstaklinga hækka um 25,7%—fyrirtækja um 61,2% Sjá miðopnu blaðsins. SKATTSKRA Reykjanes- umdæmis er lögð fram f dag og nema heildargjöld 8.3 milljörðum króna. Skiptist sú upphæð á 21.230 einstaklinga og 1.240 félög. Hækkun heild- arálagningar frá fyrra ári ¥ Utgerðarmennirnir bera mest gjöld í Vesturlan dsumdæmi ÁLÖGÐ gjöld f Vesturlandsum- dæmi nema alls tæplega tveimúr milljörðum króna, bera 6881 ein- staklingar 1560 milljónir, en 458 félög 383 milljónir. Skattskráin á Vesturlandi er lögð fram f dag og gjaldhæstur einstakiinga í um- dæminu er Kristján Guðmunds- son, útgerðarmaður á Rifi, sem er með 8.7 milljónir f gjöld. Af félögum á svæðinu er Skipa- smfðastöð Þorgeirs og Ellerts á Akranesi með mest gjöld, tæpar 15 milljónir. Gjaldhæstir einstaklinga í um- dæminu eru eftirtaldir: Kristján Guðmundsson, útgerðarmaður, Háarifi 11, Rifi, 8.685.586, Soffanías Cecilsson, útgerðarmað- ur, Grundarfirði, 7.798.178, Víg- lundur Jónsson, útgerðarmaður, Lindarholti 7, Ólafsvík 5.679.518, Sæmundur Sigmundsson, sér- leyfishafi, Kveldúifsgötu 17, Borgarnesi, 4.381.381. Guðbrand- ur Kjartansson, héraðslæknir, Sandabraut 8, Akranesi, 2.793.818. Akranes er eini kaupstaðurinn í umdæminu og á Skattstofu Vesturlands á Akranesi fékk Morgunblaðið þær upplýsingar i gær að eftirtaldir einstaklingar bæru mest gjöld þar: Guðbrandur Kjartansson, læknir 2.793.818, Guðjón Bergþórsson, skipstjóri, Jaðarsbraut 31, 2.688.875, Runólf- ur Hallfreðsson, sk^stjóri, Krókatúni 9, 2.683.759, Þórður Þórðarson, bifreiðástjóri, Sóleyj- Framhald á bls 22. nemur 30.40%, en hún var rúmir 6.4 milljarðar á sfð- asta ári. Hæst gjöld einstaklinga í Reykjanesumdæmi ber i ár Sveinn Skaftason, framkvæmdar- stjóri, Víðigrund 45 i Kópavogi, alls 9.7 milljónir óg Jakob Árna- son, húsasmiður, Miðtúni 2 í Keflavík, 9.4 milljónir. 1 Reykjanesumdæmi bera Is- lenzkir aðalverktakar á Keflavík- urflugvelli hæst gjöld félaga sam- kvæmt skattskrá, samtals 110 milljónir króna. íslenzka álfélag- ið í Straumsvik er þó í raun stærsti gjaldandinn í umdæminu, en á skattárinu 1976 greiddi ISAL í gjöld kr. 319 milljónir, en aðeins Framhald á bls 22. EF EKKI hafa náðst samningar f kjaradeilu háseta á kaupskipa- flotanum og skipafélaganna fyrir kl. 24 á sunnudagskvöld skellur á verkfall á kaupskipaflotanum, sem þýðir að 50 skip munu stöðv- ast smátt og smátt, en alls eru um 700 manns á þeim, þar af 260 hásetar og starfsmenn f vél. Samkvæmt þeim upplýsingum, sem Morgunblaðið aflaði sér í gær, var fyrsti samningafundur deiluaðila haldinn 20. maí s.l. en hjá sáttasemjara ríkisins hefur deilan verið til meðferðar frá 30. júní s.l. og hafa hann og sátta- nefnd haldið 16 fundi meó deilu- aðilum, suma mjög langa en alls hafa samningafundir staðið í 200 klukkustundir. í fyrrinótt var borin fram frá Loðnuafli orðinn um 9000 lestir LOÐNUAFLINN, það sem af er sumarvertfð, er nú orðinn í kring- um 9000 lestir, en f gær tilkynntu nfu bátar afla, samtals 3560 lestir. Fóru flestir til Siglufjarðar með aflann, en nokkrir fóru til Faxa- flóahafna. Loðnuna fá bátarnir sem fyrr norður af Straumnesi. Alls eru nú 23 skip byrjuð loðnu- Framhald á bls 22. sáttanefnd innanhússhugmynd sem var felld af báðum deiluaðil- um. Var Morgunblaðinu tjáð að forssvarsmenn skipafélaganna teldu sig vera búna að bjóða kaup og kjarabætur sem fyllilega væru á við það bezta sem samið hefði verið um frá þvi að allsherjar- samningarnir tókust 22. júni s.l. Ef til langvarandi verkfalls Framhald á bls 22. Sjússinn” hækkar um 50—55 kr. VEGNA þeirra verð- hækkana sem hafa orðið á sterkum drykkjum hjá Áfengis- og tóbaksverzl- un ríkisins hækkar verð þessara drykkja á vín- veitingastöðum, að meðaltali um 50 — 55 kr. hver einfaldur drykkur. Samkvæmt þeim upplýsing- um sem Morgunblaðið fékk hjá Konráð Guðmundssyni, hótelstjóra á Sögu, i gær þá hækkar einfaldur vodka úr 330 kr. í 385 kr. einfaldur whiskey úr 345 i 395 kr., einfaldur brennivín úr 250 í 300 kr. og einfaldur gin hækkar úr 340 kr. i 390. 40 skissur og teikn- ingar eftir Kjarval til sýnis og sölu í EDEN FJÖRTlU myndir eftir Jóhann- es Kjarval, mest skissur og teikningar, eru nú til sölu á sýningu í Eden f Hveragerði. Stendur sýningin fram yfir helgi og er verð myndanna frá 25 þús. kr. upp f 300 þús. kr. Nokkur ár munu liðin frá þvf að jafnmargar myndir eftir meistara Kjarval hafa verið til sýnis og sölu á sömu sýning- unni. Bragi Einarsson, . eigandi Eden, sagði i samtali við Morgunblaðið i gærkvöldi að myndirnar væru komnar úr mörgum áttum, mest þó frá tveimur aðilum. Hann gæti ekki neitað því að hann ætti sjálfur einar 3 myndir og Guð- mundur Axelsson, listaverka- sali í Klausturhólum, staðfesti i viðtali við Morgunblaðið í gær- kvöldi að hann væri eigandi fjölmarga mynda á sýningunni. Þegar Morgunblaðið ræddi við Braga kvað hann sýninguna hafa verið opnaða s.l. föstudag eða fyrir viku. Hann og þeir sem að sýningunni stæðu hefðu ákveðið að auglýsa sýn- inguna ekkert sérstaklega. „Það koma svo margir í Eden Framhald á bls 22. Fjórar Kjarvalsmyndanna Ljósm.: Georg Michelsen. á sýningunni f Eden.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.