Morgunblaðið - 14.09.1977, Side 1
32 SIÐUR
203. tbl. 64. árg.
MIÐVIKUDAGUR 14. SEPTEMBER 1977
Prentsmiðja Morgunblaðsins.
Nordli mun fara fram
á traustyfirlýsingu
Tveir þingmenn Venstre ráða næstu ríkisstjórn
Odvar Nordli, forsætisráðherra
Norðmanna, og Reiulf Steen,
form. þingflokks Verkamanna
flokksins. Myndin var tekn er
þeir töldu sig fagna sigri rikis-
tjómar sinnar og áframhaldandi
setu hennar. Skömmu siðar kom
þó i Ijós að Kristilegi þjóðarflokk
urinn vann sæti sem Verka
mannaflokkurinn hafði reiknað
sér og þar með var meirihluta
staða stjórnarinnar að engu orð-
in.
Bhutto sleppt
tryggingu
hann yrði Iálinn laus yi'án tryKíí-
Osló 13. st-pl.
Einkaskeyti til Mbl. frá AP.
NOKKUR tími kann að líða unz
Ijóst verður hverjir voru kosnir
til valda í Noregi næstu fjögur
árin. Norðmenn gengu til náða í
gærkvöldi í þeirri trú að Verka-
mannaflokkurinn hefði sigrað og
yrði áfram við völd, en þegar leið
á þriðjudaginn kom í ljós að
borgaralegir flokkar í landinu
höfðu náð valdastöðu — og þó var
ekki hægt að fá úr því skorið
endanlega. Við talningu nokkur
hundruð utankjörstaðaatkvæða á
IVlæri og Komsdalfylki kom í ljós
að Kristilegi þjóðarflokkurinn
fékk þingmann kjörinn sem útlit
hafði verið fyrir að Verkamanna-
flokkurinn hefði tryggt sér. Þar
með höfðu Verkamannafiokkur-
inn og SV misst meirihlutaað-
stöðu sfna.
Afhroð það sem SV beið í kosn-
ingunum varð og meira en leit út
fyrir sl. nótt og má segja að flokk-
urinn hafi þurrkazt út á þingi,
hefur nú aðeins einn þingmann.
Odvar Nordli, forsætisráðherra,
gerði það þó lýðum ljóst að hann
liti á það sem eðlilega skyldu sína
að gegna embætti forsætisráð-
herra unz þing hefur komið sam-
an og borgaraflokkarnir þrir sem
stefndu í stjórnarsamstarf hafa
komið sér endanlega saman. Sið-
ast en ekki sízt verður að bíða
formlegrar yfirlýsingar Venstre
um stuðning við borgaraflokka-
stjörn, en slíkur stuðningur á
hvorn veginn sem væri ræður úr-
slitum um stjórn.
Helztu stjórnmálaleiðtogar
Washington, 13. september.
Reuter.
RANNSOKNARNEFND banda-
rísku öldungadeildarinnar til-
kynnti í dag að hún tæki sér tvo
daga til að spyrja Bert Lance,
fjárlaga- og hagsýslustjóra
Bandaríkjanna, um fjármál hans.
Byrjar þetta á fimmtudag með
því að Lance les upp 2 klukku-
stunda ræðu, sem hann hefur
samið sér til varnar, en síðan sit-
ur hann fyrir svörum hjá
nefndarmönnum fimmtudag og
ullan föstudag.
Talið er víst, að Lance muni
segja af sér er vitnaleiðslunum
lýkur og Robert Byrne, leiðtogi
demókrata i öldungadeildinni,
sagði í dag að óhjákvæmilegt væri
að Lance léti af störfum. Carter
forseti frestaði sem kunnugt er í
gær að halda blaðamannafund um
mál Lance, sem átti að vera á
morgun, miðvikudag, og hefur
enn ekki verið ákveðið hvenær
fundurinn verður. Sætir forset-
inn nú mjög vaxandi þrýstingi að
láta þennan gamla vin sinn víkja
úr embætti.
.Jody Powell, blaðafulltrúi Cart-
Noregs virtust og sammála Nordli
í því að sjálfsagt væri að hann
segði ekki af sér að sinni og beðið
Framhald á bls. 18
Ashraf
Palhevi
sýnt bana-
tilræði
KVÖLDBLÖÐ í Iran gáfu út
sérstakar útgáfur til að skýra
frá árás byssumanna á Ashraf
Palhcvi prinsessu, tvíburasyst-
ur keisarans, í Suður-
Frakklandi snemma í morgun.
Engin opinber tilkynning var
gefin út frá hirðinni um at-
Framhald á bls. 23
Ashraf Palhevi prinsessa, tví-
burasystir Iranskeisara.
ers, sagði í dag að hann, Hamilton
Jordan og Robert Lipschutz, lög-
Framhald á bls. 23
gegn
Lahore. 13. sepl. Reuter.
ZULFIKAR Ali Bhutto, fyrrver-
andi forsætiráðherra Pakistans,
var látinn laus úr fangelsi gegn
tryggingu í dag, og kom það mörg-
um á óvart, þar sem tilkynnt hafði
verið að þær sakir sem á hann eru
bornar væru svo alvarlegs eðlis að
óhugsandi væri að hann fengi að
fara frjáls ferða sinna.
Bhutto sem var steypt af stóli í
herforingjabyltingu í júlímánuði
sagði að hann óttaðist að hann
yrði handtekinn aftur. Hann
hafði árangurslaust heðið um að
réttarhöldum í máli hans yrði
frestað þar til kosningarnar þann
18. október væru um garð gengn-
ar en því var neitað. Bhutto
kvaðst nú mundu nota hverja
stund tii að sinna kosningaundir-
búningi af kappi og hann vonað-
ist til að geta beitt sér að krafti,
flokki sínum til framdráttar.
Sagt hefur verið frá sakargift-
um á hendur Bhutto, en þær eru
meðal annars meðsekt að drápi á
pólitískum andstæðingi, mann-
ráni og fleira.
Lögregla og her höfðu mikinn
viðbúnað við dómshúsið þar sem
krafa lögfræðings Bhuttos um að
ingu var tekin fyrir. Þar var og
formlega farið fram á frestun i
niálinu. Dömarinn sagði að ekki
hefði teki/.t að færa frant endan-
legar sannanir fyrir því að Bhutto
væri flæktur i manndráps- og
mannránsmálið og því væri niður-
staðan að Bhutto yrði um sinn
látinn laus. Ekki vai' tekið fram
hversu lengi hann fengi að fara
frjáls ferða sinna, en þrir sam-
starfsmenn hans sem sátu líka í
fangelsi voru látnir lausir fram til
24. september.
Framhald á bls. 23
í brennidepli norsku kosninganna:
Uppljóstranir vinstri manna
gegn NATO urðu þeim að falli
Osló. 13. september,
einkaskeyti til Mbl. frá AP.
UPPLJÖSTRANIR vinslri
sósíalista I Noregi um ýmis
þingtrúnaðarmál í samhandi
við Atlantshafsbandalagið urðu
þeim að falli í kosningunum í
gær og sunnudag og stefna IVIið-
flokksins I umhverfismálum og
ha>gari þróun olfuvinnslunnar í
Norðursjó á kostnað hættra
Iffskjara ollu hinu mikla fylgis-
tapi hans. Þessi tvö atriði eru
meginskýring kosningaúrslit-
anna og virðast allir stjórn-
málaleiðtogar og stjórnmála-
skýrendur fylgjandi henni. Að
auki hefur það átt sinn þátt að
Norðmenn eru nú að kjósa í
fyrsta skipti til þings eftir að
stjórnmálaástandið f landinu
þróaðist aftur í eðlilegt horf í
kjölfar umrótsins, sem varð í
þjóðmálum þar í landi í kjölfar
atkvæðagreiðslunnar um aðild
að Efnahagsbandalagi Evrópu
1972, sem orsakaði ýmiss konar
flokkaklofning og stofnun smá-
flokka. Er dæmi um það að 14
flokkar huðu fram í kosningun-
um nú, en aðeins fí náðu að
koma manni á þing, þar af tveir
með þrjá menn samanlagt,
vinstri sósíalistar einn og
frjálslyndi flokkurinn Venstre
með 2.
Langmesta kosningaáfallið er
óumdeilanlega það mikla af-
hroð, sem vinstri sósialistar
urðu að þola og eiga þeir nú
aðeins 1 mann á þingi, dag-
skrárstjóra við norska útvarpið,
sem hlaut kosningu í (Isló.
Þingmenn þessa flokks með þá
Reidar L:rsen, fyrrum for-
mann norska kommúnista-
flokksins, og Berge Furre,
Framhald á hls. 23
Óhjákvæmilegt
ad Lance fari
— segir leidtogi demókrata