Morgunblaðið - 14.09.1977, Blaðsíða 2
2
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 14. SEPTEMBER 1977
Erfitt að losna við
svart-hvítu tækin
Eina ráðið að innsigla tækin ef þau seljast ekki
SVIIKIL sala hefur verið í litsjón-
varpstækjum að undanförnu og
jafnframt hefur verið Keysimikið
framboð af notuðum svart-hvítum
ta-kjum ofi hefur fólk átt í erfið-
leikum með að selja tækin, þar
sem framboðið hefur verið meira
en eftirspurnin.
Morgunblaðið hafði í gær sam-
band við Axel Ölafsson inn-
heimtustjóra Ríkisútvarpsins og
spurði hvort fólk þyrfti að borga
afnotagjöld af gömlu tækjunum
þótt það notaði þau jafnhliða nýj-
um litsjónvarpstækjum t.d. í
Fargjöldin
hækka vegna
gengissigsins
FARGJÖLD Flugleiða til útlanda
munu hækka nokkuð frá og með
15. september, það er að segja
fargjöldin í íslenzkum krónum.
Að sögn Martin Petersen hjá
Flugleiðum eru millilandafar-
svefnherbergjum hjá sér eða
sumarbústöðum.
Axel hvað þá reglu gilda að
borga þyrfti afnotagjald fyrir
hvert tæki og væri engin undan-
tekning gerð þar á. Sagði Axel að
fólk gæti fengið gömlu tækin inn-
sigluð gegn 300 króna gjaldi og
ókeypis ef það kæmi sjálf með
tækin niður á innheimtu. Af inn-
sigluðum tækjum þarf ekki að
greiða afnotagjöld.
Axel sagðist hafa orðið greini-
lega var við það að notuð svart-
Framhald á bls. 19.
gjöld Flugleiða skráð í erlendum
gjaldeyri, ýmist dollurum eða
pundum, og hafa þau því jafnan
breytzt í samræmi við þær breyt-
ingar sem orðið hafa á íslenzka
genginu í samanburði við þessa
gjaldmiðla. Hækkunin nú er því
til samræmis við það gengissig
sem varð á dögunum i kjölfar
gengisfellingar norrænu gjald-
miðlanna. Gengissig íslenzku
krónunnar var 2,7% gagnvart
dollar.
5 félög hafa gengið
frá samningum, en
frestað kaupliðnum
SKÖMMU eftir miðnætti í fyrri-
nótt undirrituðu starfsmannafé-
lög sveitarfélaga á Reykjarnesi
samhljóða samkomulag og undir-
ritað var í Kópavogi í fyrri viku.
Starfsmannafélögin undirrituðu
samkomulag við bæjarstjórn
Keflavíkur, Garðabæjar og Sel-
tjarnarness, svo og við sveitar-
stjórnina í Mosfellssveit. Sam-
komulagið er fullkominn kjara-
samningur að öðru leyti en því að
kaupliðurinn er ófrágenginn og
er honum frestað.
Haraldur Steinþórsson, fram-
kvæmdastjóri BSRB, sagði í sam-
tali við Morgunblaðið í gær, að
þessuni viðscmjendum starfs-
mannafélaganna hefði verið boð-
ið upp á Kópavogssamkomulagið
og engar breytingar og hefðu þeir
gengið að því. Hafa þvi 5 af 17
starfsmannafélögum landsins,
sem hafa sjálfstæðan samnings-
rétt, lokið þessum þætti kjara-
samninganna.
Enginn sáttafundur hefur enn
verið boðaður milli BSRB og
samninganefndar ríkisins, en eins
og getið var í Morgunblaðinu í
gær, mun sáttanefnd ríkisins vera
farin að undirbúa gerð sátta-
tillötu, en hún verður að hafa
komið fram eigi siðar en 21. sept-
ember, eða eftir nákvæmlega eina
viku.
Nokkur
sjónvörp
ósótt
Heimilissýning-
unni lokið:
Þannig var umhorfs í Laugardalshöll í ga>r þegar unnið var að þvi
að taka niður sýninguna Heimilið ’77.
UM HADEGI í dag verður
væntanlega búið að fjarlægja
öll ummerki sýningarinnar
Heimilið '77 úr Laugardalshöll-
inni. Sýningunni lauk á sunnu-
dagskvöld og höfðu þá 80.500
gestir komið á hana og er það
nýtt sýningarmet.
Halldór Guðmundsson, blaða-
fulltrúi sýningarinnar, sagði i
samtali við Mbl. í gær, að for-
ráðamenn Kaupstefnunnar
Framhald á bls. 23
„Tryggir það að Skák-
sambandið getur unnið
að fjölbreyttari yerkefnum,,
- segir Einar S. Einarsson um breytinguna á 6-landa keppninni
— MEÐ ÞVl að beita okkur fyrir
hre.vtingum á 6-landa keppninni i
skák erum við að létta álagi af
sjóðum Skáksamhandsins og
tryggja það að samhandið geti
staðið að fjölbreyttari verkefn-
um, sagði Einar S. Einarsson, for-
seti Skáksamhands lslands, f gær,
þegar Mbl. spurði um ástæður
þess að Skáksambandið stóð að
samþykkt tillögu um að 6-landa
keppnin skuli framvegis haldin
annað hvert ár, en fram til þessa
hefur hún verið haldin árlega.
sem Ölympíumót eru ekki haldin.
Við getum því sent lið i bæði
mótin en það getur kostað skild-
inginn að senda sveit á Ólympiu-
mót, síðast var það Israel og nú er
talað um að halda mótið næst í
Argentínu.
Þá sagði Einar að þessi breyting
á keppninni þýddi að hægt væri
að styrkja unga og efnilega skák-
menn á mót, sem veittu einhver
réttindi, en það gerði 6-
landakeppnin ekki. Ennfremur
væri hægt að nota eitthvað af
peningunum sem spöruðust til
þess að finna íslenzka kvenfólk-
inu verkefni.
— Loks er þess að gæta, að það
hefur viljað brenna við að þátt-
tökuþjóðirnar hafa ekki getað
sent fullskipað lið til keppninnar
en það ætti að verða auðveldara
þegar hún verður aðeins annað
hvert ár. Þannig ætti vegur
keppninnar að aukast fremur en
hitt, sagði Einar S. Einarsson.
Einar kvað þetta ekki nýja til-
lögu, Norðmenn hefðu áður verió
flutningsmenn að henni. — Við
teljum þetta lang skynsamlegasta
fyrirkomulagið, sagði Einar. Það
kostar okkur hálfa milljón að
senda sveit i þessa keppni og það
er ansi stór biti fyrir févanda
samband, sérstaklega þau árin,
sem Ölympíumót eru haldin. Nú
er meiningin að halda 6-landa
keppnina annað hvert ár, árin
Slátrun hefst hjá
KS á Sauðárkróki
Grípum ekki til aðgerða að sinni, en
auglýsum eigin kauptaxta, segir for-
maður verkalýðsfélagsins
Menningarmiðstöð
rís á Grenivík
Akurcyri. I.t. septombor.
FYRSTA skóflustunga að
grunni nýrrar menningarmið-
stöðvar Grýtubakkahrepps var
tekin á Grenivík kl. 10 í morg-
un. Það gcrði Pétur Axelsson,
formaður skólanefndar, að við-
stöddum skóla- og byggingar-
nefndarmönnum, Valgarði
Haraldssyni, fræðslustjóra
Norðurlands eystra, og nokkr-
um öðrum gestum. Strax að
þessari athöfn lokinni tók ýta
að grafa fyrir húsinu.
A hæðinni fyrir ofan byggð-
ina i Grenivík eiga að rísa á
næstu árum tvö hús samtengd,
skólahús barnaskóla, 620
fermetrar á tveimur hæðum, og
iþróttahús, sem einnig verður
félagsheimili, líka á tveimur
hæðum, 960 metrar að grunn-
fleti. Þar að auki er sundlaug
fyrirhuguð í þessari samstæðu
og möguleikar eru á stækkun
skólahússins i framtíðinni.
Að þessu sinni var byrjað á
skólahúsinu, sem á verða tilbú-
ið til notkunár haustið 1980.
Arkitekt er Ágúst Berg, en
teikningar eru unnar á Teikni-
stofu Hauks Haraldssonar á
Akureyri. Þorgeir Jóhannesson
er ráðinn byggingameistari að
Pétur Axelsson tekur fyrstu
skóflustunguna að Menningar-
miðstöð Grýtubakkahrepps.
fyrsta áfanga verksins, sem er
bygging grunns og e.t.v.
kjallaraveggja, ef tíð hel?t góð
fram eftir haustinu. Ætlunin er
að bjóða út aóra hluta verksins.
1 tilefni þess, að byggingar-
framkvæmdir eru nú formlega
hafnar, bauð bygginganefndin
til kaffisamsætis í gamla skóla-
húsinu, sem byggt var árið
1925, og er því orðió alltof litið
og úrelt. Þar fluttu ávörp Pétur
Axelsson, formaður skóla-
nefndar, Valgarður Haralds-
son, fræðslustjóri, og Björn
Ingólfsson, skólastjóri. Létu
þeir allir í ljós mikinn fögnuð
yfir því, að þetta langþráða
verk skyldi vera hafið. Loks
skýrði Haukur Haraldsson upp-
drætti húsanna fyrir viðstödd-
um. Sv.P.
Byggingarnefndin ásamt húsameistara. Frá vinstri: Haukur Har-
aldsson, Sigríður Sverrisdóttir, Björn Ingólfsson, skólastjóri, Bald-
ur Jónsson, Pétur Axelsson, form. skólanefndar, og Jakob Þórðar-
son, sveitarstjóri og framkvæmdastjóri byggingarinnar.
SLATRUN hefst í Sláturhúsi
Kaupfélags Skagfirðinga á Sauð-
árkróki í dag þrátt fyrir að ckki
hafi náðst samkomulag milli
verkalýðsfélaganna á staðnum og
kaupfélagsins um röðun starfs-
manna í launaflokka. Jón Karls-
son, formaður Verkalýðsfélagsins
Fram á Sauðárkróki, sagði í sam-
tali við Mbl. í gær, að stjórn og
trúnaðarmannaráð félagsins
hefðu rætt stöðu þessa máls á
fundi sínum á mánudagskvöld og
var þar ákveðið að grípa ekki til
neinna aðgerða að sinni til að
stöðva starfrækslu sláturhússins
en hins vegar ætlaði félagið að
auglýsa röðun í launataxtana og
láta á það reyna hvort kaupfélag-
ið grciddi eftir þeim eða samn-
ingum frá fyrra ári.
Helgi Rafn Traustason, kaupfé-
lagsstjóri, sagði þegar Mbl. ræddi
við hann í gær, að þegar væri búið
að flytja fé í fjárrétt sláturhúss-
Belgísku kon-
ungshjónin
r
til Islands
á mánudaginn
BELGtSKU konungshjónin, Bald-
vin I og Fahiola drottning, koma
við á tslandi á mánudaginn á leið
til opinberrar heimsóknar í Kan-
ada.
Áætlað er að einkaflugvél
þeirra lendi á Keflavíkurflugvelli
klukkan 11,45 á mánudaginn. Er
ráðgert að belgísku konungshjón-
in heimsæki íslenzku forsetahjón-
in á Bessastöðum og haldi síðan
áfram ferð sinni til Kanada
klukkan 13.30 sama dag.
ins og slátrun hæfist árdegis i
dag. Um deiluna við verkalýðsfé-
lögin sagði Helgi, að ágreiningur
væri aðeins um röðun einstakra
starfsmanna í launaflokka en i
meginatriðum væru aðilar sam-
mála um niðurröðunina. Helgi
sagði að laun í sláturhúsinu væru
greidd eftir þremur töxtum og þá
með mismunandi álagi. Greitt
Framhald á bls. 18
Eina heila þró
Kisiliðjunnar
gaf sig í gær,
en viðgerð tók
skamman tíma
SPRUNGA kom í gærmorgun í
einu þró Kísiliðjunnar við Mý-
vatn, sem var heil, og rann allt
vatn úr henni. Að sögn Vésteins
Guðmundssonar, framkvæmda-
stjóra Kísiliðjunnar, tðkst að
þétta þessa sprungu síðdegis í
gær og var þá strax byrjað að
dæla kísilgúr í hana á nýjan leik.
Sú þró, sem gaf sig í gærmorg-
un, var full af kísilgúr, en mikið
af gúrnum hafði setzt á botn þró-
arinnar, þannig að hann rann
ekki út með vatninu. Sagðist Vé-
steinn álíta að um helmingur þess
gúrs, sem var í þrönni, væri enn
eftir og það væri því innan við
mánaðarframleiðsla, sem farið
hefði við lckann í gær.
Vonazt er til að viðgerð ljúki í
dag eða á morgun á þró þeirri,
sem gaf sig strax í umbrotunum á
fimmtudagskvöld. Skemmdirnar
á þessum tveimur þróm eru trú-
lega vegna gliðnunar á sömu
sprungu, sem siðan teygir sig upp
í hæðirnar norður af verksmiðj-
unni.