Morgunblaðið - 14.09.1977, Blaðsíða 4
4
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 14, SEPTEMBER 1977
10FTLEIDIR
W!«!
-E- 2 n 90 2 11 38
5IMAK
28810
24460
bílaleigan
GEYSIR
BORGARTÚNI 24
FERÐABÍLAR hf.
Bflaleiga, simi 81260.
Fólksbilar, stationbilar, sendibíl-
ar, hópferðabílar og jeppar.
iR
car rental
&
SKIPAÚTGCRÐ RÍKISINS
m/s Hekla
fer frá Reykjavik mánudagmn
1 9. þ.m. austur um land í hrmg-
ferð. Vörumóttaka: þriðjudag,
miðvikudag og fimmtudag til
Vestmannaeyja, Austfjarðahafna,
Þórshafnar, Raufarhafnar, Húsa-
víkur og Akureyrar.
TAP-flug-
menn í
verkfalli
Lissahon 12. scpl. Rrulor. AP.
MIKI.IR erfiðlcikar urðu á flu>;i
porlÚKalska flugfélaíísins TAP nú
um helgina vegna verkfalls flug-
manna og varð að breyta áætlun-
um alls um níu þúsund farþega
sem átlu pantað far með TAP til
Evrópu, Amerfku og Afríku. Tals-
maður TAP í Lissahon sagði, að
eina flugið frá Lissabon á sunnu-
dag hefði verið til Suður-Afrfku.
TAP-vélum crlendis var ekki
flogið heim og varð því ekki að-
eins röskun á flugi fólks frá
Portúgal heldurogtil landsins.
Þetta verkfall kemur sér sér-
staklega illa, þar sem ferða-
mannatíminn í landinu stendur
sem hæst og bágur efnahagur
landsins má naumast við áföllum
að því er segir í fréttum. TAP
heldur uppi áætlunarflugi til
Bandaríkjanna, Kanada, Brazilíu,
Argentfnu, Venezuela, níu
Evrópulanda og Angóla og
Mosambik í Afríku.
Stéttarfélag atvinnuflugmanna
sagði að samníngaviðræður við
TAP hefðu siglt í strand vegna
ágreinings um laun, svo og vinnu-
aðstöðu. Talsmaður flugmanna
sagði að Boeing-727 flugstjórar,
sem nú fá um 130 þús. kr. á mán-
uði fyrir 40 flugtíma á mánuði,
hefðu átt að bæta við sig 20 tím-
um til viðbótar fyrir um aðeins 25
þús. krónur.
Talsmaður TAP sagði, að flug-
stjórar TAP gætu ekki unað við
þetta mál, enda myndu starfs-
menn TAP vera lægstlaunuðu
flugmenn í heimi. í alþjóðlegri
könnun, sem gerð var á öryggi
flugfélaga um víða veröld og hef-
ur nýlega verið birt, kemur fram
að TAP er langöruggasta félagið.
81 þús. sáu
Heimilið 77
Sýningunni Heimilið ’77 lauk í
Laugardalshöll um s.l. helgi og
sáu alls 81 þús. gestir sýninguna.
Um 140 aðilar sýndu á sýningunni
sem stóð i 17 daga.
Útvarp ReyKjavík
A1IÐMIKUDKGUR
14. september
MORGUNNINN
7.00 Morgunútvarp
Veðurfregnir kl. 7.00, 8.15 og
18.10
Fréttir kl. 7.30, 81.5 (og
forustugr. daghl.) 9.00 og
10.10
Morgunbæn kl. 7.50.
Morgunstund harnanna kl.
8.00: Armann Kr. Einarsson
les sögu sína „Ævintýri í
borginni" (7).
Tilkynningar kl. 9.30. Létt
lög milli atriða.
Kirkjutónlist kl. 10.25:
Búlgarskur samkór syngur
þætti úr Tíðagerð eftir Tsjaí-
kovský. Hljóðritun frá kirkju
Alexanders Nevskys i Sofíu.
Söngstjóri: Dimiter Rouskov.
Morguntónleikar kl. 11.00:
Barokk-tríóið i Montreal
leikur Tríó í D-dúr fyrir
flautu, óbó og semhal eftir
Johann Friedrieh Faseh /
Ilans-Martin I.inde og Schola
Cantorum Basiliensis hljóm-
listarf lokkurinn leikur
Konsert i C-dúr fyrir flautu
og strengjasveit op. 7 eftir
Jean-Maris Leclair; August
Wenzinger stj. / Karlheinz
Zöller, I.othar Koch, Thomas
Brandis, Siegbert Uebersh-
aer og Wolfgang Böttscher
leika kvintett fvrir flautu,
óbó, fiðlu, lágfiðlu og kné-
fiðlu op. 11 nr. 6 eftir Johann
Christian Bach. Manfred
Kautzky og Kammersveitin 1
Vín leika Konsert í G-dúr
fyrir óbó og strengjasveit eft-
ir Karl Ditters von Ditters-
dorf; Carlo Zecchi stj.
12.00 Dagskráin. Tónleikar.
Tilkynningar.
12.25 Veðurfregnir og fréttir.
Tilkynningar.
Við vinnuna: Tónleikar.
14.30 Miðdegissagan: „tllf-
hildur" eftir Hugrúnu.
Höfundur les (11).
SIÐDEGIÐ
15.00 Miðdegistónleikar
Concertgebouw-hljómsveitin
20.00 Fréttir og veður
20.25 Auglýsingar og dagskrá
20.30 Nýjasta tækni og vfsindi
Umhverfisvernd 1 Amerfku
Heilaaðgerðir
Mengunarvarnir í pappírs-
iðnaði
Rafgas (plasma)
Umsjónarmaður Örnólfur
Thorlacius.
20.55 Skóladagur (L)
Leikinn, sænskur sjónvarps-
myndaflokkur í sex þáttum
um nemendur i níunda bekk
grunnskólans. foreldra
þeirra og kennara.
2. þáttur.
Efni fyrsta þáttar:
t skóla f Gautaborg er ein
f Amsterdam leikur
„Alborada del gracioso",
hljómsveitarverk eftir
Maurice Ravel; Bernard
Haitink stj. Sinfóníuhljóm-
sveit Moskvu-útvarpsins, ein-
stögvararnir Ludmilla
Legostaeva og Anatoly
Orfenoff og kór flytja Sin-
fóníu nr. 1 í E-dúr op. 26 eftir
Alexander Skrjabín; Nikolaj
Golovanoff stj.
16.00 Fréttir. Tilky nningar.
(16.15 Veðurfregnir).
16.20 Popphorn. Halldór
Gunnarsson kynnir.
bekkjardeild áerlega óstýri-
lát, og eru sumir kennar-
arnir f stökustu vandræðum
með að halda uppi aga.
Einkum er það trúarbragða-
kennarinn, Marianna, sem
lögð er í einclti, svo að hún
er hvað eftir annað komin
að þvf að gefast upp. Ungur
forfallakennari ræðst að
skólanum, og virðist hann
hafa ýmsar nýjar hugmynd-
ir, sem Katrínu yfirkennara
gest vel að.
Þýðandi Óskar Ingimarsson.
(Nordvision — Sænska
sjónvarpið
21.55 Gftartónlist (L)
Julian Bream og John
Williams leika einkum
gömul lög.
22.20 Dagskrárlok.
17.30 Litli barnatíminn. Finn-
borg Scheving sér um tím-
ann.
17.50 Tónleikar. Tilkynning-
ar.
18.45 Veðurfregnir. Dagskrá
kvöldsins.
KVÖLDIÐ
19.00 Fréttir. Fréttaauki. Til-
kynningar.
19.35 Vfðsjá. Umsjónarmenn:
Silja Aðalsteinsdóttir og
Ólafur Jónsson.
20.00 Einsöngur: Elsa Sigfúss
syngur fslenzk lög. Valborg
Einarsson leikur á pfanó.
20.20 Sumarvaka
a. Ur bréfum Torfa f Olafs-
dal. Ásgeir Asgeirsson les
bréf rituð í Kanadaferð fyrir
rúmri öld; — síðari lestur.
b. Óskin mín. Valdimar
Lárusson les Ijóð og vísna-
mál eftir Gunnlaug F. Gunn-
laugsson.
c. Brautryðjandi í sauðfjár-
rækt. Torfi Þorsteinsson
bóndi í Haga í Hornafirði
segir frá Bjarna Guðmunds-
syni fyrrum kaupfélags-
stjóra á Höfn. Guðjó Ingi Sig-
urðsson les.
21.30 Utvarpssagan: „Víkur-
samfélagið" eftir Guðlaug
Arason. Sverrir Hólmarsson
les (5).
22.00 Fréttir.
22.15 Veðurfregnir.
Kvöldsagan: „Dægradvöl"
eftir Benedikt Gröndal. Flosi
Olafsson leikari les (5).
22.40 Nútímatónlist. Þorkell
Sigurbjörnsson kynnir.
y 23.25 Fréttir. Dagskrárlok.
SKJANUM
MIÐVIKUDAGUR
14. september
Sjónvarp kl. 21.55:
TVær gítarkempur
fara á kostum
Klukkan 21 55 í kvöld fá
unnendur klassískrar gítar-
tónlistar að heyra og sjá í
sjónvarpi tvo af virtustu
flytjendum þessarar tónlistar
i dag. Það eru Bretarnir Juli-
an Bream og John Williams
sem munu leika gítarlög í 25
mínútur, en þeir munu eink-
um leika eldri lög, lög sem
eru eftir hina ýmsu meistara
tónlistarheimsins.
Margir sjónvarpsáhorfend-
ur hafa séð John Williams
fara á kostgm með gítar sinn
•því hann er gamall góðkunn-
ingi okkar, kom m.a. í heim-
sókn hingað fyrir nokkrum
árum. Það væri því að bera í
bakkafullan lækinn að fara
mörgum orðum um hann
hér, en færri þekkja þó til
Julian Bream. Julian Bream
er þó sennilega virtari tón-
listarmaður sem slikur, enda
lengur verið í sviðsljósinu en
Wílliams. Er Bream fæddur
1933 í London. Snemma hóf
hann nám í Royal College of
Music i London, fyrst um
sinn á ásláttarhljóðfæri. Síð-
an einbeitti hann kröftum
sínum að gítarnum og lútu
og hóf að sérhæfa sig í tónlist
frá Endurreisnartímabiiinu,
þ e. tónlist saminni á árunum
1300—1600 Margir tón-
listarfrömuðir hafa gengið
það langt að segja að Julian
Bream væri verðugur arftaki
gítarleikarans Segovia, en
Segovia hefur lengi verið tal-
inn mestur allra gítarleikara.
Bream var eiginlega upp-
götvaður af Segovia, því
Segovia sá Bream eitt sinn
spila er Bream var 12 ára
gamall og varð þá svo upp-
numinn af leik Breams að
hann bauðst til að taka
Bream upp á sína arma og
kenna snáðanum listina. Það
ætti því ekki að vera af verri
endanum það efni og sú
meðferð sem boðið verður
upp á i þættinum í sjónvarp-
inu kl. 21.55 í kvöld.
Hér leikur John Williams (t.h.) ásamt vini sfnum Paco Rena
klassfsk gftarverk. f kvöld leikur John með öðrum gftarsnilfingi,
Julian Bream.
Elsa Sigfúss
syngur einsöng
I HLJÓÐVARPI kl. 20.00 i
kvöld syngur ein af fyrrum
helztu söngkonum landsins
nokkur lög eftir nokkur kunn-
ustu tónskáld þjóðarinnar. Hér
er um að ræða söngkonuna
Elsu Sigfúss en lögin mun hún
syngja 'við undirleik móður
sinnar, Valborgar Einarsson.
Þessi uppfaka er ekki ný, en
er nokkuð um liðið siðan út-
varpshlustendur hafa fengið að
heyra Elsu Sigfúss. Meðal
þeirra laga sem Elsa mun
syngja eru Mamma ætlar að
sofna og Kata litla i Koti eftir
Sigvalda Kaldalóns, Kirkju-
hvoll, Rósin og Nótt eftir Árna
Thorsteinsson, Haustljós eftir
Jónas Þorbergsson fyrrum út-
varpsstjóra, Smávinir fagrir
eftir Jónas Jónasson, og ef timi
reynist nægur þá mun Elsa
einnig syngja Hrafninn eftir
Karl O. Runólfsson og Um
haust, Dauðinn ríður um rudd-
an veg og Brátt mun birta
dofna eftir föður sinn, Sigfús
Einarsson.
Elsa Sigfúss.
Hljódvarp kl. 20.00: