Morgunblaðið - 14.09.1977, Síða 5
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 14. SEPTEMBER 1977
5
AsgerLund Christiansen.
Sellóleikur
í Norræna
húsinu
Á morgun leikur hinn kunni
danski sellóleikari ASGER
LUND CHRISTIANSEN í Nor-
ræna húsinu við undirleik Þor-
kels Sigurbjörnssonar. A efnis-
skránni eru verk eftir Samraar-
tini, Beethoven, Vagn Holmboe
og Peter Heise.
Asger Lund Christiansen er
fæddur áriö 1927 i Kaupmanna-
höfn og er af gamalli tónlistarætt.
Hann nam sellóleik við konung-
lega tónlistarháskólann í Kaup-
mannahöfn hjá Paulus Bache og
við Accademia Chigiana í Siena á
Italíu hjá C: spar Cassado árin
1943—1948. Eftir fyrstu tónleika
sína í Bern 1947 hefur Asger
Lund Christiansen verið einleik-
ari í Danmörku og Evrópu, m.a.
leikið með Filharmóníusveit
Berlínar.
Hann lék um tiu ára skeið með
Erling Bloch kvartettinum og
fyrsta Danska kvartettinum og
1956 tók hann þátt í stofnun hins
heimsfræga Strokkkvartetts
Kaupmannahafnar (Köbenhavns
Stygekvartet), sem hefurleikið
víða í Evrpópu og Ameríku.
Asger Lund Christiansen var
Framhald á bls. 23
þarf þó ekki að þýða að megin-
kvikan hafi verið á þessu dýpi,
það er nóg að sprunga eða kvisl
hafi misgengið og einhver kviku-
ögn hafi spýtzt eftir þeirri
sprungu og upp í holuna. Það þarf
ekki að hafa verið mikill massi,
en sýnir okkur að það er ekki
djúpt á kvikunni.
— Við erum að gera núna ná-
kvæmar mælingar á landrisinu en
það er alltaf gert eftir hvert sig.
Hæðarmælingar eru i gangi vitt
og breitt um Námafjallssvæðið,
Ásgeiri I>.
Árnasyni
gengur illa
ÁSGEIRI Þ. Árnasyni skákmanni
hefur gengið mjög illa i heims-
meistaramóti unglinga ýngri en
20 ára, en það skákmöt fer nú
fram i Innsbruck í Austurríki. Að
loknum átta umferðum hefur As-
geir tvo vinninga og er í einu af
neðstu sætunum en keppendur
eru 48 að tölu. Ásgeir hefur tapað
fimm siðustu skákum sinurn. As-
geir er sem kunnugt er bróðir
Jóns L. Árnasonar, sem um þess-
ar mundir tefiir í heimsmeistara-
móti unglinga 17 ára og yngri í
Cagnes i Frakklandi.
ÞORSTEINN Geirsson deildar-
stjóri hefur verið skipaður skrif-
stofustjóri fjármálaráðuneytisins
frá 1. nóvember n.k. Tekur hann
við starfinu af Höskuldi Jónssyni,
sem sama dag tekur við stöðu
ráðunevtisstjóra.
Þorsteinn Geirsson er 36 ára
gamall, fæddur 15. febrúar 1941.
Hann lauk lögfræðiprófi frá Há-
skóla íslands árið 1966 og hæsta-
réttarlögmaður varð hann árið
1972. Þorsteinn hefur verið
starfsmaður fjármálaráðuneytis-
ins frá 1. desember 1971 og hann
hefur verið settur skrifstofustjóri
síðan 1974.
Axel Björnsson, jarðeðlisfræðingur:
Hlíðardalinn og Kröflusvæðið og
haldið er áfram þyngdarmæling-
um, sem verið er að gera á svæð-
inu. Aðrar stofnanir vinna við ná-
kvæmar lengdarmælingar og það
verður ekki fyrr en um næstu
helgi, að við fáum almennilega
mynd af þvi sem var að gerast. Þá
getum við fyrst sagt hvenær næst
má búast við nýrri hrinu, hvort
það verður eftir einn, tvo eða þrjá
mánuði. pyrsta ágizkun sagði að
það yrði eftir þrjá mánuði, en
landmælingar þar sem verið er að
gera gefa okkur væntanlega ná-
kvæmari tímasetningar, sagði
Axel Björnsson jarðeðlisfræðing-
ur að lokum.
Þorsteinn
Geirsson
skipaður
skrifstofu-
stjóri
Líkur á gosi í Bjarnarflagi
minnkuðu við síðustu umbrot
VIÐ SIÐUSTU atburði telja ýms-
ir jarðfræðingar, að líkur á eld-
gosi í Bjarnarflagi hafi minnkað.
Hins vegar hafi líkur aukizt á að
eldgos kunni að verða nær
Kröfluvirkjun en varð í síðustu
viku er eldgos varð um 3 km.
norðan við Leirhnjúk og um 10
km norðan við Kröflu. Vísinda-
menn vinna þessa daga að ná-
kvæmum mælingum á umbrota-
svæðinu nyrðra og í viðtali við
Morgunblaðið í gær sagði Axel
Björnsson, jarðeðlisræðingur, að
í lok þessarar viku yrði væntan-
lega unnt að segja með meiri ná-
kvæmni en áður fyrir unt hvenær
tíðinda mætti vænta á þessu sviði.
Morgunblaðið átti í gær viðtal
við Axel Björnsson um þróunina
nyrðra og fer það hér á eftir:
Hugmynd okkar er sú að hraun-
kvikan hlaupi úr kvikuhólfinu
undir Kröflusvæðinu til norðurs
eða suðurs og hún hljóp í fyrsta
skiptið þegar hún hljóp alla leið
norður í Kelduhverfi, sagði Axel.
Siðan hljóp hún að Hrútafjöllum,
næst að Gæsafjöllum og siðan allt-
af skemmra og skemmra til norð-
urs þangað til að ekki var meira
pláss fyrir norðan, þá hljóp hún i
suður.
— I apríl í vor hljóp hún suður
í Bjarnarflag og miðja virka svæð-
isins var þá í Bjarnarflagi, núna
er miðja hins virka svæðis norðan
við Bjarnarflag í Hrossadal eða
Hlíðarfjalli. Greinilega norðan
við miðju þess svæðis sem var
virkast í apríl og þetta bendir til
að þetta sé komið upp undir brún
Kröfluöskjunnar. Út frá þessu
mætti álíta að sprungusveimur-
inn til suðurs sé að fyllast lika,
eins og til norðurs. Nú ef virknin
heldur áfram, aðstreymi kviku að
neðan heldur áfram eins og und-
anfarin tvö ár, þá gæti maður
hugsað sér að ekkert pláss væri
nema beint upp i loftið.
— Eldgosið nú þremur kíló-
metrum norðan við Leirhnjúk
varð á Öskjubrúninni, sem nær
þetta langt norður. Gígurinn er i
raun á brún öskjunnar, þannig að
segja má að þetta gos á fimmtu-
daginn hafi orðið innan öskjunn-
ar. Langlíklegast er að verði eld-
gos, verði það á sprungunni, sem
liggur í gegnum Leirhnjúk og
þarna norður eftir og þvi ekki
alveg við Kröfluvirkjunina.
Hraunið hefur alltaf komið upp á
þessari gossprungu og ef það
kemur þarna upp hraun, þá er
líklegast að það komi upp á henni,
en ég held að við höfum enga
möguleika ennþá til að segja hvar
á henni, norðan til eða sunnan til.
Nálægt Kröfluvirkjun eða fjær.
— Það má segja, ef þessi hug-
mynd er rétt, að líkurnar á gosi í
Bjarnarflagi hafi eitthvað minnk-
að við siðustu atburði. I síðustu
umbrotum var kvikan ekki langt
undir yfirborðinu og kemur
reyndar upp um borholu, sem er
að ég held 1200 metra djúp. Það
Torgið efst á blaði,
þegar fariö er í bæinn til fatakaupa!
AUGLVSiNGADEILDIN < LJOSM STUDtO 28
Hentugur
skólafatnaður
UNITEX MITTIS MARGAR STÆRÐIR KR. 9.220,- EITT VERÐ
UNITEX SÍÐAR MARGAR STÆRÐIR KR 7.500." EITTVERÐ
HEKLU ÚLPUR SÍÐAR STÆRÐIR 2-20 kr 3.690.-til 8.165.-
HEKLU ULPUR MITTIS STÆRÐIR 2-20 kr 4.990.-til10.280.-
Munið okkar ódýru gallabuxur og peysur.
sími: 27211