Morgunblaðið - 14.09.1977, Page 7
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 14. SEPTEMBER 1977
“1
Efnahags-
ástand á
Norðurlöndum
og hér
Menn hafa tilhneigingu
til þess að bera saman
efnahagsástand og lífs-
kjör á Norðurlöndunum
og hér og finnst þá flest
um að allt sé betra í garði
nágrannans. í forystu-
grein Timans í gær er vak-
in athygli á því, að ekki er
allt gull sem glóir hjá
frændþjóðum okkar og að
þær eiga allar við marg-
visleg vandamál að etja.
Um það segir Tfminn:
. Þannig gerðu Danir sér-
stakar efnahagsráðstafan-
ir í ágústmánuði i fyrra,
sem dugðu ekki lengur en
fram yfir áramótin, en þá
varð að efna til þingkosn-
inga, þvi að samkomulag
náðist þá ekki um nýjar
ráðstafanir sem þóttu
nauðsynlegar. Eftir kosn-
ingarnar náðist svo sam-
komulag, sem entist ekki
nema fram á sumarið. Fyr-
ir nokkrum dögum varð
danska þingið að sam-
þykkja nýjar efnahagsráð-
stafanir, sem eiga að
nafni til að gilda til þriggja
ára, en flestum kemur þó
saman um, að ekki muni
duga nema fram á næsta
vetur. í Svíþjóð er búið að
tvifella gengi krónunnar á
þessu ári og þykir þó fjarri
þvi, að efnahagsvandi
Svia sé leystur. í Noregi
hefur vandinn verið leyst
ur að undanförnu með
miklum halla á ríkisrekstr
inum og sivaxandi við-
skiptahalla i trú á, að
væntanlegur oliugróði
geri kleift að greiða skuld
irnar. Þannig er ástatt hjá
hinum norrænu frænd-
þjóðum okkar, en víðast i
vestrænum löndum er
ástandið þó verra. Margir
kenna hinu frjálsa mark-
aðskerfi um þetta, en ekki
mundi þó taka betra við,
ef horfið yrði að hinu
sósialíska hagkerfi i Aust-
ur-Evrópu. Þar eru lifs-
kjörin á flestan hátt verri
að ógleymdu ófrelsinu."
Vaxandi
framleiðsla
Siðan segir Timinn: „Ef
litið er á stöðu islenzka
þjóðarbúsins um þessar
mundir er hún engan veg
inn slæm. Framleiðslan
hefur farið vaxandi og út-
flutningsverð fremur
hækkandi. Þjóðin hefur
sjaldan haft meiri tekjur
til ráðstöfunar. Það sem
mest er að er skortur á
heildarsamkomulagi um
skiptingu þjóðarteknanna
milli stétta og atvinnu-
greina. Það er hægara
sagt en gert að ná slíku
samkomulagi, þótt aðeins
sé i höfuðdráttum. en
meðan það næst ekki og
stéttirnar og atvinnuveg-
irnir glima um tekjuskipt-
inguna, mun svipaður
efnahagsvandi og nú er
fengizt við. alltaf vera fyr-
ir hendi."
Atvinnuleysi
og önnur
vandamál
Það er ákaflega fróðlegt
fyrir okkur íslendinga að
kynna okkur ástand I
efnahags- og atvinnumál-
um á Norðurlöndum
vegna þess samanburðar,
sem mönnum er svo
gjarnt að stunda hér. í
Danmörku ríkir mikið at-
vinnuleysi og ekki er að
sjá, að ráðin verði bót á
því i framtíðinni. Sviar
hafa á síðustu árum veitt
sérstökum ráðstöfunum
til þess að koma i veg fyrir
atvinnuleysi. Það hafa
þeir m.a. gert með því að
sænska rikið hefur gert
atvinnufyrirtækjum kleift
að framleiða vörur, þótt
þær hafi ekki selzt á er-
lendum markaði með
þeim árangri, að nú eru
allar vöruskemmur i Svi-
þjóð troðfullar af vörum,
sem ekki hafa selzt á
alþjóðlegum markaði. Og
nú er svo komið að Svíar
hafa ekki lengur efni á þvi
að halda uppi þessari
stefnu. Það er þvi fyrir-
sjáanlegt að einhver
breyting verður á i Sví-
þjóð og alla vega er ekki
við því að búast, að Svi-
þjóð verði á næstu árum
það gósenland i atvinnu-
og tekjuöflun, sem margir
hafa viljað vera láta hér á
íslandi. Um Norðmenn
gildir út af fyrir sig allt
öðru máli. Oliuvinnsla er
að komast i fullan gang i
Norðursjónum og það er
að sjálfsögðu tekjuauki,
sem er svo sérstakur, að
aðrar Norðurlandaþjóðir
geta tæpast borið sig
saman við Norðmenn af
þeim sökum. Hér á íslandi
hefur tekizt að halda fullri
atvinnu meðan atvinnu-
leysi hefur rikt i nálægum
löndum. Við höfum ekki
þurft að grípa til sams
konar ráðstafana og Sviar
hafa gert til þess að
tryggja næga atvinnu.
enda mundum við tæpast
hafa efni á þvi. Hins vegar
má kannski segja, að við
höfum haldið fullri at-
vinnu á kostnað þess að
ná meiri árangri i barátt-
unni gegn verðbólgunni.
En þá ber að meta það á
þann veg, að ríkisstjórnin
á íslandi hefur lagt mun
meiri áherzlu á að halda
fullri atvinnu en rikis-
stjórnir S ýmsum Vestur-
Evrópulöndum, jafnvel
þótt jafnaðarmenn hafi
verið þar við stjórn en
ekki hér. Allt mætti þetta
verða þeim nokkurt
ihugunarefni, sem halda
þvi fram, að betra sé að
lifa i öðrum löndum en á
í slandi.
Núerþaö
Allt
nýlegar
vörur
Látið ekki
happ úr
hendi sleppa.
Hafir þú gert góð kaup
á útsölu okkar gerir þú enn
betri kaup núna
Nýjar útsöluvörur teknar fram
í dag og næstu daga.
r
Otrúlegt vöruúrval
Bilsby Skurvogne A-S
Industribakken 1, Sengelöst*. 2630 Taastrup.
Danmark. Talsimi 09- 02-99 47 08
Starfsfólksvagnar. skrifstofuvagnar.
ibúóarvagnar. geymsluvagnar. hroinlætisvagnar.
(•óófúslega hiójið um upplýsingapésa.
LOÐAFRAMKVÆMDIR
Tek að mér að helluleggja, þekja, standsetja
lóðir og hlaða brothelluveggi. — Þrælvanir
menn.
Brandur Gíslason
Skrúðgarðameistari sími 84378.
Steiktar kartöf/uf/ögur og mataro/ía (hnetuo/ía)
Hei/dsölubirgðir:
Agnar Ludvigsson h.f.
Nýlendugötu 21, sími 12134.
Sumir versla
dýrt-aðrir versla
hjá okkur.
Okkar verð eru ekki tilhoð
^ heldur árangur af
hagstæðuni innkaupuni.
Víðis kaffi
360.-
pakkinn
(kr. 1.440.-1 kg.)
simi frá skiptiborði 28155
ffýíÐicg
Austurstræti 17 Starmýri 2