Morgunblaðið - 14.09.1977, Qupperneq 12
12
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 14. SEPTEMBER 1977
Sovét:
Lögregla
beitti
trúada
ofbeldi i
þremur
borgum
samdægurs
Moskvu, 8. september — AP.
KRISTILEG samtök, sem herj-
ast fvrir því aö almenninfíur í
Sovétríkjunum fái að iðka trú
sína óáreittur, skýrðu frá því í
gærkvöldi, að 28. ágúst s.l.
hefði lögregla og öryggisverðir
gert atlögu að haptistum í
þremur horgum í Sovétríkjun-
um, Briansk, Rostov og Gorl-
ovka. Hefðu hundruö manna
komi/.t í kast við lögregluna í
þessum átökum, og margir
sætzt, sumir mjög alvarlega.
IVTest virðist hafa gengiö á í
Briansk f Hvíta-Rússlandi, þar
sem hahtistar hófu nýlega
kirkjuhyggingu. Hafði leyfi yf-
irvalda fyrir hyggingunni verið
fengið, en þegar útsendarar yf-
irvalda komu á vettvang til að
stöðva verkið voru þar um 60
manns, flest ungt fólk. Var
svæðið umkringt og fólkinu síð-
an haldiö þar til 20. ágúst, þeg-
ar 150 haptistar, margt af því
roskið fólk, höfðu safnazt þar
saman til að sýna samstöðu
með trúsystkinum sínum, sem
voru á valdi liigreglunnar.
Gekk lögreglan í skrokk á fólk-
inu og særðust margir alvar-
lega.
I Gorlovka voru 68 baptistar
handteknir þennan sama dag,
og urðu nokkrir þeirra fyrir
barsmið iögreglunnar, þegar
bænasamkoma var leyst upp. I
Rostov ruddist lögreglan einnig
inn á bænasamkomu. Þar voru
um 300 manns samankomnir og
misþyrmdi lögreglan mörgum
þeirra áður en allur hópurinn
var rekinn eftir götum borgar-
innar.
Talsmaður samtakanna, sem
skýrði vestrænum fréttamönn-
um frá þessum atburðum, kvað
ekki ljóst hvort trúfélög þau,
sem gengust fyrir bænasam-
komunum í Rostov og Gorlovka,
störfuðu með leyfi yfirvalda.
Öll trúfélög í Sovétrikjunum
eiga að vera skráð hjá hinu
opinbera, en talið er að óopin-
ber trúfélög baptista í landinu
hafi um 40 þúsund manns inn-
an vébanda sinna. Taldi mál-
svari samtakanna að þessar trú-
arofsóknir bæru því vitni að
um væri að ræða samræmdar
aðgerðir stjórnvalda þar sem
þær hefðu farið fram samtímis.
Þá skýrði hann frá þvi að í
Briansk hefðu háttsettir lög-
regluforingjar og leiðtogar
kommúnistaflokksins i borg-
inni verið viðstaddir ofbeldis-
aðgerðirnar.
3. apríl s.l. ruddist lögregla
inn í hús eitt í útjaðri Moskvu
þar sem 50 manns voru saman-
komnir til bænahalds, og var
samkoman leyst upp.
Nýr skrifstofu-
stjóri fjár-
málaráðuneytis
Forseti Islands hefur að tillögu
fjármálaráðherra skipað Þorstein
Geirsson, núverandi deildarstjóra
tolladeildar fjármálaráðuneytis-
ins, til að gegna embætti skrif-
stofustjóra ráðuneytisins frá og
með 1. nóvember n.k., sbr. 11. gr.
laga um Stjórnarráð fslands nr.
73/1969.
Þorsteinn Geirsson er fæddur
15. febrúar 1941, eand. jur. frá
Háskóla Islands 1966, og hæsta-
réttarlögmaður 1972. Hann hefur
verið starfsmaður fjármálaráðu-
neytisins frá 1. desember 1971 og
var-settur skrifstofustjóri frá 1.
ágúst 1974 til 1. nóvember 1976.
Dr. Bjarni Þjóðleifsson lækn-
ir ritar tvær greinar um matar-
æði og hollustuhætti i Morgun-
blaðið nýlega, aðra hinn 31.
ágúst, en hina 1. september, og
eru báðar svör við greinum
mínum um þessi mál fyrr i sum-
ar.
Mér finnst, að læknar og
Dr. Stefán Aðalsteinsson:
Athugasemdir við skrif dr.
Bjarna Þjóðleifssonar læknis
Ég get líka eftir atvikum sætt
mig við yfirlætistóninn hjá dr.
Bjarna, en á erfitt með að átta
mig á þvi hvers vegna prófess-
orarnir Yudkin og Astrup eru
svona varasamur félagsskapur.
Fer tilveruréttur manna eftir
því, hvort þeir eru sammála dr.
Bjarna?
eins með fituna úr kúamjólk-
inni árið 1900 en sleppir sauða-
mjólkinni og dregur svo þá
ályktun að framleiðsla á mjólk-
urfitu hafi stóraukizt á þessari
öld.
Um aldamótin síðustu voru
fráfærur algengar og sauða-
smjör verulegur hluti af smjör-
neyzlunni.
Látum rökin tala
manneldisfræðingar ættu að
standa svo vel að vígi í þessum
umræðum, vegna sérmenntun-
ar sinnar, að þeim ætti að vera í
lófa iagið að sækja og verja mál
með rökum.
En hvað gerist?
Það er ekki farin sú leiðin að
nota rökin ein til að sýna fram á
hvar ég fari villur vegar, held-
ur er líka farið út í aðra sálma.
Breytt orðalag
í beinni tilvitnun
í greinum dr. Bjarna ber dá-
lítið á hortugheitaslettum í
minn garð, og þar eru líka ýms-
ar tilvitnanir í greinar minar
slitnar úr samhengi og túlkun á
viðhorfum mínum úr lagi færð
með því.
Það er hvimleitt í fyrri grein
dr. Bjarna hvernig hann býr til
„Stefánskenninguna" með þvi
að breyta orðalagi á ummælum
í grein eftir mig frá 6. ágúst s.l.
og cndurbirta þau þannig
hreytt sem bein ummæli mín.
Siðan er „kenningin" hrakin.
Allir hlynntir
landbúnaði
— nema és
í seinni grein dr. Bjarna kem-
ur fram, að allir þeir, sem hafa
fjallað um mataræði og heilsu-
far í fjölmiðlum á Islandi
undanfarna mánuði, eru stuðn-
ingsmenn íslenzks landbúnað-
ar, nema hvað ég er einn slak-
astur. Ég fagna stuðningnum
og sætti mig við það að vera
eftirbátur annarra í þvi efni.
Smjörát í góðæri —
hungurdauði
í hallæri
Ég get ekki skilið hvers
vegna ég mátti ekki tala um
mikið smjörát i góðæri og hung-
urdauða i hallæri á Islandi. Er
eitthvað ósamrýmanlegt i þvi?
Ég skil ekki heldur dr.
Bjarna þegar hann virðist
leggja að jöfnu orkuþörf illa
búins erfiðismanns í vetrar-
hörkum fyrr á tímum og orku-
þörf kyrrsetumanns nútímans,
sem býr í upphituðu húsi, ferð-
ast sitjandi i upphituðum bíl og
vinnur sitjandi í upphitaðri
skrifstofu.
Mig furðar líka dálítið á dr.
Bjarna, þegar hann tekur að-
Forðumst óhóf,
ofát og offitu
Dr. Bjarni vill vita hvenær
mér finnist tímabært að hefjast
handa um baráttu fyrir stór-
felldri breytingu á mataræði
þjöðarinnar.
Baráttu gegn óhófi, ofáti og
offitu getum við min vegna
byrjað strax.
Hins vegar finnst mér enn að
ekki sé tímabært að hefja harð-
vítuga baráttu gegn neyzlu bú-
fjárafurða.
Mér finnst meira að segja sér-
stök ástæða til að spyrna við
fótum og athuga hvert stefnir,
þegar öll andmæli við mataræð-
isbreytingum, erlend sem inn-
lend, eru barin niður með þeim
fítonskrafti, að rökin ein eru
ekki látin duga, heldur er þeim
fylgt eftir með hártogunum,
hnútukasti og rangfærðum til-
vitnunum.
Vörugeymslu og
við Geirsgötu til leigu
Sex hæðir í Sambandspakkhúsinu við
Reykjavíkurhöfn eru til leigu. Samtals
er flatarmál hæðanna um 5000 fer-
metrar.
Húsið hefir verið notað til vörugeymslu
og fyrir söluskrifstofur.
Nánari upplýsingar gefur Jón Jónsson,
umsjónarmaður fasteigna Sambands-
ins - sími 28200 -108-.
$ SAMBAND ÍSLENZKRA SAMVINNUFÉLAGA
l|t wT Tr
JÍBL m III 11
JCC XJ II
IT TT I l TT
■ TT ■i TT
Alla daga vikunnar
Alla daga vikunnar kemur Flugfrakt
að austan og vestan.
Að morgni næsta vinnudags
eru pappírarnir tilbúnir.
Sem sagt: Með Flugfrakt alla daga
vikunnar.
FLUGFÉLAG
ÍSLAMDS
ffDHogfrakl
LOFTLEIBIfí
Sunnuda Mánudaj Þríðjudai Miðvikui Fimmtut Föstui
Laugardagur