Morgunblaðið - 14.09.1977, Side 13
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 14. SEPTEMBER 1977
13
Nýtt leikrit, Gary kyartmilljón,
frumsýnt í kvöld hjá Leikfélaginu
GAMANLEIKURINN Gar.v
kvartmilljón eftir Allan
Edwald verður frumsýndur hjá
Leikfélagi Reykjavíkur í kvöld
klukkan 20.30.
Gamanleikurinn um Gary var
saminn árið 1970 og hefur síð-
an verið leikinn í meira en 20
leikhúsum áöllum Norðurlönd-
unum og um þessar mundir er
verið að undirbúa uppfærslu á
Ieiknum í Lundúnum.
Höfundurinn Allan Edwald
er einn af kunnustu leikhús-
mönnum Norðurlanda, jafnt
sem leikari og höfundur. Hann
hefur skrifað þrjú leikrit fyrir
svið, auk þess nokkrar revíur
og sjónvarpsþætti. Nú nýlega
lauk hann við myndaflokk i níu
Gefur góða mynd af þjóð-
félaginu eins og það er
t samhandi við frumsýning-
una ræddi Morgunblaðið stutt-
lega við Soffíu Jakobsdóttur,
einn af aðalleikurum verksins,
og bað hana að segja í stuttu
máli sitt álit á leiknum.
Þessi sjónleikur er á vissan
hátt þjóðfélagsádeila. Gary veit
ekki hver staða hans í þjóð-
félaginu er í raun og veru.
Hann finnur sér eilíflega ein-
hverjar afsakanir og horfist
ekki í augu við staðreyndir.
En hvað varðar þá persónu
sem ég leik, þá er það „voða
góð“ stelpa. En hún hugsar
fremur stutt og hefur miklar
tilfinningar. Þó bregzt hún oft
á tíðum skynsamlega við vanda-
málunum. En ég er nú ekki
alveg sammála hennar lifsskoð-
unum.
Sofffa Jakobsdóttir I hlutverki
sfnu.
Annars hefur það verið geysi-
lega skemmtilegt að taka þátt i
að setja upp þetta verk. Mitt
Framhald á bls. 23
þáttum fyrir sænska sjónvarp-
ið. Nefnist hann Engillinn og
hefur hann hlotið miklar vin-
sæluir á Norðurlöndum. Þar
leikur Alian aðalhlutverkið.
Þannig að hægt er að fullyrða
að hér er á ferðinni mikilhæfur
maður í sinni grein.
Aðalpersóna leiksins er ung-
ur maður, sem biður eftir þvi
að komast áfram i lífinu, vinn-
ur í stóru fyrirtæki, en situr
þar i sama stólnum ár eftir ár.
Hann er kominn yfir þritugt og
býr ennþá heima hjá foreldr-
um. Hann ér iðinn, hlýðinn og
samvizkusamur, en hjakkar
samt i sama farinu. Leikurinn
fjallar að mestu um samskipti
hans við sína nánustu. Hvers-
dagslegt líf sem hefur sinar
spaugilegu hliðar og vekur
ýmsar efasemdir um ágæti sam-
keppnisþjóðfélgsins.
Leikurinn gæti gerzt í hvaða
velferðarþjóðfélagi sem er.
Hann hefur hins vegar í is-
lenzku uppfærslunni verið stað-
færður í samvinnu við leikend-
ur og leikstjóra og gerist i
Reykj avík.
Þótt að Gary sé fyrst og
fremst spaugileg persóna, þá er
hann á vissan hátt hættulegur.
Hann er ekki virkur i samfélag-
inu, spyr ekki óþægilegra
spurninga, hlýðir yfirmönnum
og valdhöfum skilyrðislaust.
Svipmyndir frá „lokaæfingu" I fyrrakvöld.
JónH.Bergs
fimmtugur
Jón H. Bergs, forstjóri Sláturfé-
lags Suðurlands og formaður
Vinnuveitendasambands íslands,
er fimmtugur i dag, fæddur í
Reykjavík 14. september 1927.
Eftir embættispróf í lögfxæði
frá Háskóla Islands 1952 stundaði
hann framhaldsnám í lögfræði,
einkum verzlunarrétti, við Colum-
bia University, New York,
1953—1954. Hann réðst fulltrúi
hjá Sláturfélagi Suðurlands
haustið 1951 og var ráðinn for-
stjóri þess i janúar 1957.
Hann var fyrst kjörinn í fram-
kvæmdastjórn Vinnuveitenda-
sambands Islands í mai 1961, en
formaður þess hefur hann verið
síðan í júlí 1971. Hann hefur átt
sæti í Framleiðsluráði landbúnað-
arins síðan 1968. Einnig hefur
hann átt sæti í ýmsum opinberum
nefndum svo sem um málefni líf-
eyrissjóða, orlofsmál og fleira
sem of langt yrði upp að telja.
Jón var sæmdur riddarakrossi
fálkaorðunnar 1. janúar 1973 og
skipaður aðalræðismaður Kanada
á íslandi í júní 1975.
Af framansögðu sést, hversu
mörg og mikilvæg verkefni Jóni
hafa verið falin og ber það ótví-
ræðan vott um mikinn dugnað
hans og óskorað traust sem hann
nýtur hvarvetna í starfi.
Fyrir störf sin sem formaður
Vinnuveitendasambands Islands
er hann þó kunnastur meðal þjóð-
arinnar, endg þar um ,að ræða eitt
ertioasta verketm a sviði telags-
mála sem orðið getur eins og að-
stæður allar hafa verið hér und-
anfarin ár. Við, sem bezt þekkjum
til þessara starfa hans, teljum, að
hann hafi innt þau af hendi með
einstakri prýði og þau viljum við
þakka honum sérstaklega nú á
hálfrar aldar afmælinu. Einnig
þökkum við honum og hinni
ágætu eiginkonu hans, Gyðu, ein-
staklega góð persónuleg kynni og
árnum þeim hjónum og börnum
þeirra allra heilla í tilefni af
fimmtugsafmælinu.
G.J.F,
Fjölsóttur fundur skóla-
stjóra og yfirkennara
FÉLAG skólastjóra og yfirkenn-
ara á grunnskólastigi var stofnað
fyrir skömmu, en framhaldsstofn-
fundur var haldinn 10. sept. s.I.
Fundinn sóttu um 100 manns en í
félaginu eru nú 160 manns af 260
skólastjórum og yfirkennurum á
grunnskólastigi.
Formaður var kjörinn Asgeir
Guðmundsson, Hlíðaskóla,
Reykjavík, en aðrir í stjórn voru
kjörnir Böðvar Stefánsson, Ljósa-
fossi, Arn., Ólafur H. Óskarsson,
Valhúsaskóla, Seltj., Pétur Orri
Þórðarson, Hvassaleitisskóla,
Rvík og Vilbergur Júliusson,
Flataskóla, Garðabæ.
Fun durinn samþykkti m.a.
eftirfarandi ályktun um samein-
ingu kennara í eitt félag:
Aðalfundur Félags skólastjóra
og yfirkennara haldinn 10. sept.
1977 skorar á stéttarfélag kenn-
ara að vinna að sameiningu kenn-
ara á öllum skólastigum i eitt fél-
ag. Astandið í launamálunt kenn-
ara og kennaraskortur sýnir svo
Framhald á bls. 23
ÚTSALAN
í FULLU FJÖRI