Morgunblaðið - 14.09.1977, Síða 17
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 14. SEPTEMBER 1977
17
Callaghan
líkir sér
við Móses
London, 13. sept. Reuters
JAMES Callaghan, forsætis-
ráðherra Breta, sem líkti sjálf-
um sér nýlega við spámanninn
Móses, sagði í dag þjóð sinni að
guð hefði fært henni tækifæri
aldarinnar upp í hendurnar.
Þegar hann kom í heimsókn á
olíuborpall i Norðursjó úti fyr-
ir Skotlandsströnd sagði
Callaghan: ,,Við höfum tæki-
færi nú. Guð hefur gefið okkur
tækifæri sem við höfum ekki
átt í heila öld." Átti Callaghan
þar við oliufundina í Norður-
sjó, en búizt er við því að Bret-
ar verði sjálfum sér nógir með
olíu laust eftir 1980.
I umtalaðri ræðu í Washing-
ton í fyrri viku skýrði Peter
Jay, sendiherra Breta í Banda-
ríkjunum og tengdasonur
Callaghans, frá því að,
Callaghan hefði sagt sér frá
þvi, að honum fyndist sem
hann væri eins konar Móses.
Peter Jay sagði þetta á fundi
i blaðamannaklúbbi i
Washington og bætti því við,
að hann hefði verið á göngu
með Callaghan rétt eftir að
hann hefði tekið við embætti
forsætisráðherra Bretlands.
Hefði Callaghan þá sagt að
hann liti á hlutverk sitt ámóta
og hefði verið hlutverk Móses
á sínum tima: að leiða þjóð
sina frá Egyptalandi, yfir eyði-
mörkina og til fyrirheitna
landsins, jafnvel þótt honum
hefði aldrei auðnazt að berja
landið augum."
Formenn borgaraflokkanna þriggja i Ósló í morgun. Talið frá vinstri, Gunnar
Staalsett, form. Miðflokksins, sem beið mikinn ósigur og sjálfur féll út af
þingi, Erling Norvik, formaður Hægriflokksins, sem vann mikinn sigur, og Lars
Korvald, form. Kristilega þjóðarflokksins, en hann bætti við sig tveimur þingsæt-
um miðað við síðstu kosningar.
Schleyersmálið:
Skilaboð ganga
á milli aðila
Bonn 13. sept. Reuter.
MANNRÆNINGJAR
Schleyers, formanns v-
þýzka vinnuveitendasam-
bandsins, sendu í dag
tveimur erlendum blöðum
útskriftir á því sem þeir
sögðu vera rödd fanga
þeirra. Þessi bönd bárust
Kinshasa 13. sept. Reuter.
NGUZA, fyrrververandi
utanríkisráðherra Zaire,
var i dag dæmdur til lífláts
fyrir landráð. Nguza, sem
einnig er varaforseti Zaire,
og er 39 ára gamall, er gef-
ið að sök að hafa ekki skýrt
Mobúto forseta landsins
frá vitneskju sem hann er
sagður hafa búið yfir varð-
andi innrás í hérað það í
Zaire, sem áður hét Kat-
anga, í marx sl., en frá því
var skýrt á sínum tíma.
Nguza neitaði sakargiftum.
Hann kvaðst myndu áfrýja
til skrifstofu svissnesks og
ítalsks blað og virtust með-
fylgjandi bréf vera sams
konar og áður höfðu verið
send til lögreglunnar.
Boðin voru dagsett 12.
september og póstuð í
Mannheim.
til hæstaréttar landsins og
hann getur einnig sótt um
náðun til forsetans.
Ákærandinn í málinu
sagði að ráðherranum
hefði verið skýrt frá vænt-
anlegri innrás í Shaba, þeg-
ar hann var í Brússel í jan-
úar á sl. ári eða tveimur
mánuðum áður en Kat-
angamennirnir réðust inn
frá Angóla. Þeir voru
hraktir úr landinu eftir 80
daga bardaga við herlið
Zaire sem naut stuðnings
1500 marokkanskra her-
manna.
Niðurstöður skoðanakannana í
Vestur-Þýzkalandi sem birtar
voru í dag benda til að almenning-
ur hneigist til þess að í sumum
tilvikum sé réttlætanlegt að inn-
leiða dauðarefsingu á ný. 1 skoð-
anakönnunum sem gerðar voru
um vanda þann sem vestur-þýzka
stjórnin á við að glíma vegna
ránsins á Schleyer, kemur fram
að fólk hefur samúð með ríkis-
stjórninni vegna þeirrar alvar-
legu stöðu sem hún er í; að segja
af eða á um hvort Schleyer lifir
eða deyr. Þó virðist meirihlutinn
andvígur því að láta undan kröf-
um mannræningjanna.
í dag skýrði svissneski lögfræð-
ingurinn Payot frá þvi, að hann
hefði fengið skilaboð og komið
öðrum boðum á milli aðila, þar
sem gerð var grein fyrir nákvæm-
um kröfum og upplýsingum þar
að lútandi.
Ekki kom þó fram
hvort hann hefði heyrt frá ræn-
ingjum Schleyers siðan i gær-
kvöldi þegar frestur ræningjanna
rann út á miðnætti. Talið er
sennilegt að þeir hafi ákveðið að
lengja frestinn og sé þvi trúlegt
að Schleyer sé enn á lifi. Ræningj-
unum sé mikið í mun að reyna að
þvinga stjórnina til að verða við
kröfum sínum og muni því sýna
nokkurt langlundargeð unz ljóst
verður til hvaða ráða verður grip-
ið.
Fyrrv. ráðherra Zaire
dæmdur til lífláts
Fangelsi í A-Þýzkalandi
fullt af pólitískum föngum
Segir próf. Nitsche
A-ÞÝZKI prófessorinn Hell-
muth Nitsche, sem nýlega var
rekinn úr landi eftir að hafa
sctið 5 mánuði í fangelsi sakað-
ur um njósnastarfsemi og
undirróður, sagði f viðtali við
fréttamann Times í Berlín um
helgina, að ástæðan fyrir því að
honum hefði verið sleppt í stað
þess að vera dreginn fyrir rétt
hefði verið mannréttindaher-
ferð Carters Bandarfkjaforseta.
Nitsche sagði að allar ásakan-
ir á hendur sér væru hreinn
uppspuni og sú aöferð, sem
stjórnvöld í A-Þýzkalandi not-
uðu til þess að varpa skugga á
gagnrýnendur sina. Hann sagói
það álit sitt eftir 5 mánaða
fangelsisdvöl að fangelsi í A-
þýzkalandi væru full af pöli-
tízkum föngum og að baráttan
gegn stjórnvöldum yrði að
halda áfram þar til allir slíkir
fangar væru frjálsir ferða
sinna. Prófessorinn lýsti fyrir
fréttamanninum hvernig 20 ára
starf hans hefði hægt og sig-
andi verið eyðilagt og tekjur
hans skornar niður um meira
en helming. Verst af öllu hefði
þó verið að sitja undir ásökun-
um og geta ekki svarað fyrir
sig.
VEÐUR
víða um
heim
Amsterdam 17 bjart
Aþena 28 bjart
Berlín 16 bjart
Kaupmannahöfn 16 skýjað
Chicago 18 rigning
Genf 24 bjart
Helsingfors 7 rigning
Honolulu 32 bjart
Lissabon 31 bjart
London 20 bjart
Los Angeles 26 skýjað
Madrid 34 bjart
Mallorka 28 bjart
Moskva 16 rigning
New York 24 skýjað
Ósló 12 bjart
Parls 26 bjart
Parls 26 bjart
Róm 27 bjart
Stokkhólmur 12 bjart
Vancouver 18 skýjað
■■■
, ERLENT,
L. ■ Á
Turchin
fær að
flytja frá
Sovét
Moskva, 13. sept. Reuter.
EINN frægasti andófsmaður f
Sovétríkjunum, dr. Valentin
Turchin, tilkynnti í morgun að
hann hefði fengið formlegt leyfi
yfirvalda til að flytjast búferlum
til Bandaríkjanna og mun hann
fara um tsrael.
Turchin er tölvusérfræðingur
og stofnaði Moskvudeild Amnesty
International. Hann sagðist ætla
að taka tilboði um kennslu i
stærðfræði við Columbiaháskól-
ann í Bandaríkjunum. Turchin
var sagt upp störfum við Tölvu-
stofnun Moskuborgar árið 1974,
eftir að hann hafði gengið fram
fyrir skjöldu og haldið uppi vörn-
um fyrir Andrei Sakharov. Hann
hefur ekki fengið vinnu síðan. I
júlí skrifaði hann Leonid
Brezhnev forseta einkabréf, þar
sem hann bar fram ósk um að fá
að flytja um tíma til Bandaríkj-
anna. Fyrir nokkru var honum
síðan stefnt á Aðalvegabréfaskrif-
stofuna i Moskvu og tilkynnt að
hann gæti fengið að flytjast úr
landi, ef hann færi fyrir fullt og
allt. Hann yrði að fara um Israel,
enda þótt hann ætti þar ekki ætt-
ingja og Hann er ekki af Gyðinga-
ættum. Þá dr. Turchin boðið.
Hann sagði að honum hefði verið
sett það skilyrði að vera farinn úr
landi innan mánaðar. Kona hans
og tveir synir fara með honum.
Turchin hefur iðulega átt í úti-
stöðum við sovézk stjórnvöld og
lögreglu síðustu árin vegna af-
stöðu sinnar og hefur þótt sýna
hugrekki og skörulegan málflutn-
ing.