Morgunblaðið - 14.09.1977, Qupperneq 19
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 14. SEPTEMBER 1977
19
Vindurinn skoraði
sigurmark Þróttar!
ÞRÓTTUR sigraði Reyni frá
Sandgerði á Neskaupstaðavelli í
gærkviíldi 3:2. Þróttur hefur þar
með hlotið 14 stig og á einn leik
eftir en Revnir hefur hlotið 15
stig og hefur lokið sfnum leikj-
um.
Hávaðarok var þegar leikurinn
fór fram og sandstormur annað
slagið. Reynismenn léku undan
vindinum i fyrri hálfleik og skor-
uðu tvö mörk, fyrst Pétur Steins-
son og siðan Ari Arason.
I seinni hálfleik herti vindinn
og var hann undir lokin orðinn
um 10 vindstig að talið var.
Heimamenn jöfnuðu metin með
mörkum Þórhalls Jónassonar og
Helga Benediktssonar og kom síð-
ara markið fimm minútum fyrir
leikslok. Sandgerðingarnir hófu
leikinn en þá kom geysisterkur
sandstormur þannig að allir leik-
menn Reynis sneru sér undan og
Loftbelgs-
menn til
London
LOFTBELGSFLUGMENNIRNIR
Abruzzo og Anderson fara af
landi brott í dag og er ferðinni
heitið til London, að því er
Anderson tjáði Mbl. i gær. I
London hitta þeir eiginkonur sin-
ar. Var ætlunin að þær kæmu
hingað til lands en þær áætlanir
breyttust. Varðskipið Óðinn, sem
hirti körfu loftbelgsins upp af
sjónum, er væntanlegur með
hana til Reykjavíkur um eða eftir
helgina.
markvörðurinn líka. En þá gerð-
ist það óvænta. Vindurinn hrifs-
aði boltann og bar hann í stórum
sveig að marki Reynis og í net-
möskvana. Enginn tók eftir neinu
fyrr en sandfokið gekk yfir og
menn fundu boltann í markinu.
Sigurmark Þróttar var staðreynd,
án þess nokkur Þróttari kæmi við
boltann!
Forest
kaupir
Shilton
STOKE seldi enska landsliðs-
markvörðinn Peter Shilton til
Nottingham Forest í gærkvöldi
fyrir 270 þúsund sterlingspund.
Stoke keypti Shilton frá Leicester
fyrir nokkrum árum síðan. Hann
hefur ntargsinnis leikið í enska
landsliðinu undanfarin ár.
Austri í
2. deild
LEIKNIR og UMFG léku I gær-
kvöldi i úrslitakeppni 3. deildar
og fór leikurinn fram á Kapla-
krikaveíli i Hafnarfirði. Leiknum
lauk með sigri Leiknis 3:1, eftir
að staðan hafði varið 1:1 í hálf-
leik. Þessi úrslit þýða það að
Austri frá Eskifirði er sigurveg-
ari þessa riðils og mun þvf leika i
2. deild að ári ásamt annaðhvort
Fylki eða Knattspyrnufélagi
Siglufjarðar.
— Skák
Framhald af bls. 32.
as P. Erlingsson vann Heggheim,
Helgi Olafsson vann Wibe og Guð-
mundur Sigurjónsson gerði jafnt
gegn Örgaard.
í samtali við Morgunblaðió
sagði Ingi R. um þessa skák sína,
þegar hún fór í bið: ,,Ég set þetta
í bið. Það er ekkert líf í þessu
fyrir mig. Ég er tveimur peðum
undir í hróksendatafli." Hins veg-
ar barðist Ingi eins og ljón og
reyndi að skapa sér tækifæri, en
það tókst þvi miður ekki. En ís-
land vann Noreg með 4‘A vinningi
gegn l‘A. Vestur-Þýzkaland vann
Finnland með 3‘A gegn 2‘A og Sví-
þjóð vann Danmörku með 4'A
gegn 1 'A.
Röðin er þá þessi: Svíar hafa 12
vinninga, íslendingar hafa 11
vinninga og eina biðskák, sem er
biðskák Ólafar Þráinsdóttur gegn
Þjóðverjanum Berglitz, og er hún
talin unnin fyrir Ólöfu, Vestur-
Þjóðverjar hafa 10 vinninga og
eina' biðskák, Norðmenn hafa 7‘A
vinning, Danir hafa 7 og Finnar
6'A vinning.
I dag tefla Islendingar við Svía
og hefur Guðmundur Sigurjóns-
son hvítt á fyrsta borði.
— Ekki rafmagn
Framhald af bls. 32.
vegna skorts á gufu á fimmtudag
hefur vérið unnið að hreinsun á
vélum stöðvarinnar. llafði safnast
saman mikil úrfelling í leiðslum
hennar og lýkur hreinsuninni i
dag eða á morgun. Hvenær gufa
fæst fyrir gufuaflstöðina er ekki
vitað, en aðeins ein hola af sex í
Bjarnarflagi er virk og fær Kisil-
iðjan gufu frá henni. Sagði Knút-
ur Otterstedt að ýmislegt hefði
farið úr skorðum í hrinunni i sið-
ustu viku og sagðist Knútur álíta
að nokkur timi myndi liða áður en
nægileg gufa fengist til raforku-
framleiðslu.
Eins og áður hefur komið fram
er það aðeins hola 10, i Bjarnar-
flagi, sem haldið hefur svipuðum
styrkleika og fyrirumbrotin i síð-
ustu viku, en sýrustig virðist eitt-
hvað hafa breytt sér í þeirri holu.
Holur 6 og 8 hafa ekki verið í
gangi síðan í umbrotunum i apríl,
hola 4 gaus gjalli nú i umbrotun-
um og hola 5 gekk upp. Hola 9
hefur í raun verið ónýt frá upp-
hafi og holur 1, 2 og 3 eru aðeins
tilraunaholur.
— Spænskir
hóteleigendur
Framhald af bls. 32.
stjóra Ferðaskrifstofunnar Ur-
vals, og spurði hann álits á þessari
hækkunarbeiðni. Steinn sagðist
nýverið hafa gengið frá samning-
um um ibúðir fyrir næsta sumar,
og hefðu þeir samningar falið i
sér um 5% hækkun á okkar gengi
rniðað við að ekki heföi komið til
þetta gengissig er varð á dögun-
um.
Steinn sagði, að hækkunarkrafa
spænskra hóteleigenda væri i
pesetum og ætti augsýnilega að
vinna upp 20% gengisfellinguna,
sem varð á dögunum, en þar að
auki kæmi síðan til 10—15%
hækkun milli ára, sem væri ekk-
ert óvanalegt.
— Jón vann
Framhald af bls. 32.
og Jansson frá Noregi, en hann
hefur 4 vinninga og biðskák.
Margeir kvað Jón L. Árnason
hafa verið þreyttan, þegar hann
mætti Kappe I gær. Um morgun-
inn hafði hann teflt biðskák sina
við Whitehead í 3'A klukkustund.
Kappe kom Jóni í raun á óvart i
bvrjun skákarinnar. Jón hafði
hvitt, en andstæðingnum tókst
f.ljótlega að jafna taflið og ná sið-
an örlitið betri stöðu. I endatafli
hafði Þjóðverjinn biskupaparið
og urðu Jóni þá á smávægileg
mistök, er hann lék peðum sinum
fram. Þegar skákin fór siðan í bið,
hafði Þjóðverjinn talsvert meiri
möguleika. Biðstaðan er svohljóð-
andi og á svartur (Kappe) leik.
Lék hann biðleik, sem sennilegast
er g5xh4.
Svart: Kappe, Vestur-
Þýzkalandi
Biðstaðan
ii
i.
A iii
Á a
& n
&
Hvítt: Jón L. Árnason.
— Svart-hvít
sjónvörp
Framhald af bls. 2
hvit tæki seldust illa. Hann hefði
unt daginn sett fimm góð tæki á
uppboð, sent tekin hefðu verið af
innheimtunni vegna vanskila og
hefðu þau farið á 3—18 þúsund
krónur, svo verðið væri mjög lágt.
Aðspurður um það hvort ekki
væri betra að leyfa fólki afnot af
sjónvarpstæækjunum i stað þess
að láta þau liggja ónotuö svaraði
Axel því tii, aö ekki væri í bigerð
að breyta reglunum. Þetta hefði á
sínum tíma verið gert i sambandi
við útvarpstækin og hefði það
leitt til þess að farið var í kring-
um lögin og óttuðúst forráðamenn
Ríkisútvarðsins að það sarna yrði
uppi á teningnum ef leyft yrði að
skrá fleiri en eitt sjónvarpstæki á
menn en þeim gert að greiða að-
eins eitt gjald fyrir.
Þegar þú kaupir
málningu fyrir
tugþúsundir
þarf hún aó vera
peninganna virði
Nýtt Kópal
er ný plastmálning frá Málningu hf., framleidd eftir
nýjustu forskrift Dyrups.
Nýtt Kópal
býður nýtt litakerfi meó fjölbreyttari tónalitum en
nokkru sinni fyrr.
Nýtt Kópal
er niösterkt og eftir því endingargott!
Nýtt Kópal
hylur betur en aðrar sambærilegar málningartegundir.
Nýtt Kópal
er létt í vinnu, og gefur fletinum fallega áferð.
Nýtt Kópal
lengirtímann þar til þú málarnæst!
Þegar þú leggur saman verð, gæöi og endingu
veróur útkoman peninganna virði: Nýtt Kópal!
málninglt