Morgunblaðið - 14.09.1977, Qupperneq 23
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 14. SEPTEMBER 1977
23
undir orð barnsins og láta minn-
inguna um þessa góðu konu aldrei
deyja, og þakka henni góða sam-
fylgd á lífleiðinni. Sérstakar
þakkir skulu færðar frá ná-
grannakonu og syni hennar, sem
búsettur er í fjarlægu landi, fyrir
vináttu og vinsemd um margra
ára skeið.
Með Sigríði Magnúsdóttur er
horfin ein persónan af aldamóta-
kynslóðinni, sem með dugnaði og
elju leiddi okkur, sem miðaldra
erum, inn í þetta velmegunar-
þjóðfélag. Við mættum una vel, ef
okkar kynslóð skilaði svona vel af
sér hlutverkinu og hin svokallaða
aldamótakynslóð gerði.
Blessuð sé minning Sigríðar
Magnúsdóttur.
Margrét Sigþórsdóttir.
— Lance
Framhald af bls. 1
fræðingur Carters, hefðu i janúar
lesið FBI-skýrsÍu um Lance, þar
sem komið hefði fram yfirdráttur
Lance og konu hans á bankareikn-
ingi þeirra, sem mikill styr hefur
staðið um undanfarið, en Powell
sagði að þremenningarnir hefðu
ekki talið málið það alvarlegs eðl-
is að ástæða væri til að skýra
forsetanum frá því.
— Ashraf
Framhald af bls. 1
burð þennan. Útvarpið, sem er
ríkisrekið, skýrði stuttlega frá
árásinni f kvöld og var það
fyrsta frétt kvöldsins. Þar var
vitnað í fréttastofur og sagt að
árásarmennirnir muni hafa
baft í hyggju að ræna prinsess-
unni. Byssumennirnir drápu
konu sem var f fylgd með
prinsessunni, en haft er fyrir
satt að Ashraf prinsessa hafi
sjálf sloppið ómeidd.
Keisaranum, bróður hennar,
hefur tvívegis verið sýnt bana-
tilræði í þau 36 ár sem hann
hefur ríkt í íran. Ymsir telja
að íranskir andófsmenn er-
lendis hafi staðið að árásinni.
Sömuleiðis hafa ýmsir skæru-
liðahópar starfað í íran og
harkalegar aðgerðir verið gegn
mörgum þeirra. Er það talið
hafa magnað upp mikla
gremju einkum af hálfu
vinstrimanna og marxista og
leninista gegn keisarafjöl-
skyldunni.
— Uppljóstranir
Framhald af bls. 1
flokksformann, í fararbroddi
settu hvað mestan svip á kosn-
ingabaráttuna með því að
ljóstra upp við fjölmiðla ýms-
um trúnaðarmálum varðandi
samskipti Noregs og Atlants-
hafsbandalagsins, sem var liður
i langri baráttu til að reyna að
grafa úndan stuðning norsku
þjóðarinnar við NATO. Þetta
athæfi vakti mikla andúð i Nor-
egi, þar sem mikill meirihluti
landsmanna styður NATO og
vill sterk og vinsamleg sam-
skipti við Bandaríkin og vestur-
lönd eins og berlega kemur i
ljós i þeim dómi, sem kjósendur
kváðu upp yfir vinstri sósialist-
um.
Gunnar Staalset, formaður
Miðflokksins, sem féll í kosn-
ingunum, sagði er úrslit voru
kunn: „Við höfum verið tveim-
ur árum of snemma á ferðinni
með grænu stefnuna okkar um
umhverfismál, að spara nátt-
úruauðæfi okkar og aukið sam-
starf við þróunarlöndin. Það er
ljóst að við verðum að halda
áfram að endurskoða baráttu-
aðferðir okkar“. Miðflokkurinn
hafði það á stefnuskrá sinni að
Norðmenn legðu meiri áherzlu
á umhverfismál sín og færu sér
hægar við vinnslu Norðursjáv-
arolíunnar og tilraunaboranir
fyrir norðan 62. breiddargráðu
og hann reyndi að gera Ekofisk-
óhappið fyrr á þessu ári að
miklu kosningamáli. Greinilegt
var að norskir kjósendur vildu
ekki að nýtingu auðæfanna yrði
slegið á frest og þar með bætt-
um lifskjörum þeim til handa.
Verkamannaflokkurinn og
Hægriflokkurinn hrifsuðu til
sín öll sætin, sem fyrrnefndir
flokkar töpuðu, og eru stjórn-
málafréttaritarar sammála um
að hin þunga áherzia, sem
Verkamannaflokkurinn lagði á
atvinnumálin hafi átt stærstan
þáttinn í hans sigri, en Hægri-
flokkurinn með hinum harða
áróðri, sem hann rak gegn því
sem hann kallaði óhófleg rikis-
afskipti og áframhaldandi út-
þensla almannatryggingakerf-
isins.
Enginn treystir sér í dag til
að spá um hver þróun verður i
norskum stjórnmálum i fram-
tíðinni, en fjölmargir stjórn-
málafréttaritarar eru þeirrar
skoðunar að hér hafi verið stig-
ið umtalsvert skref í átt til
tveggjaflokka kerfis í landinu.
— Gefur góða
mynd
Framhald af bls. 13
hlutverk er svo gerólikt öllum
öðrum hlutverkum sem ég hef
leikið. Þá hefur verið mjög mik-
ið frjálsræði í öllum samskipt-
um við Allan, hann matar okk-
ur ekki á öllu sem á að koma
fram heldur eru hlutirnir
ræddir og bezta lausnin fundin
i sameiningu. Þá er það alveg
ómetanlegt að fá tækifæri til að
starfa með svo reyndum og
hæfum manni sem Allan er.
Það ætti að vinna að því að fá
fleiri slíka snillinga hingað.
Að lokum Soffía, er þetta ein-
hver lausn á þeim þjóðfélags-
vanda sem við er glímt. — Nei,
þetta er engin lausn, heldur er
þetta nokkuð góð mynd af þjóð-
félaginu eins og það birtist á
mjög mörgum stöðum. En þetta
vekur kannski áhorfendur til
einhverrar umhugsunar um
þessi vandamál. sagði Soffía að
lokum.
— Sjónvörp
ósótt
Framhald af bls. 2
væru mjög ánægóir með þær
undirtektir, sem sýningin
hlaut. Sýningar sem þessar
væru að komast í fastmótað
form og sýnendur notfærðu sér
orðið mjög vel þá möguleika,
sem sýningin byði uppá, enda
hefðu viðskipti verið meiri á
þessari sýningu en nokkurri
hinna fyrri.
Þess skal getið að lokum að
ósótt eru 8 litsjónvarpstæki,
sem voru vinningar á sýning-
unni svo og Flóridaferð, sem
dregió var um síðasta sýningar-
daginn. Ösóttu tækin komu á
miða númcr 5066, 27501, 43661,
50644, 54074, 57732, 61187 og
73143 og Flóridáferðin kom
miða númer 51417. Númerin
eru birt án ábyrgðar. Vinninga
skal vitja til Kaupstefnunnar í
Reykjavík.
— Bhutto
Framhald af bls. 1
Bhutto ræddi við' fréttamenn
eftir að hann var látinn laus og í
Rawalpindi sagði yfirmaður
herforingjastjórnarinnar, Zia, að
hann myndi ekki leggja til atlögu
gegn Bhutto fyrst lögmætur dóm-
stóll hefði sleppt honum. En hann
sagðist áskilja sér rétt til að taka
þá afstöðu í sakamálinu gegn
Bhutto sem hann teldi sannasta ef
til kæmi.
Zia sagði þetta eftir fund með
ýmsum stjórnmálaleiðtogum, þar
á meðal Nusrat Bhutto, eiginkonu
Bhuttos, en hún tók við forystu
flokks manns sins eftir að hann
var tekinn höndum.
Fylgismenn Bhuttos í Lahore
segja að hann hafi nokkra von til
þess að sleppa við ofsóknir ef
hann reyni að halda sér á mott-
unni og vekja ekki upp pólitiskan
æsing, sem gæti gefið lögreglu
átyllu til að handsama hann á ný.
— Sellóleikur
Framhald af bls. 5.
nokkur ár sellóleikari i „Det kgl.
Kapel“, en varð síðan prófessor
við Det Jydske Musikkonser-
vatorium i Arósum. Hann hefur
samið nokkur hljómsveitarverk
og verk fyrir kammersveitir.
Hann var á sínum tíma ritstjóri
tímaritsins Musik, er félagi i tón-
listarráði ríkisins og einn • for-
vígismanna að hinni nýju mót-
andi tónlistarlöggjöf í Danmörku.
— Fjölsóttur
fundur
Framhald af bls. 13.
ekki verður um villzt þörfina fyr-
ir slika sameiningu. Eitt sterkt
kennarasamband hlýtur að verða
sterkara afl sem stéttarfélag og
sem leiðandi afl í skólamálum en
sú sundrung er nú ríkir.
— Nýja valda-
baráttan í Kína
Framhald af bls. 10
um völdum, líkt og hann hafði
áður átt þátt í útskúfun Tengs
þegar uppþotin urðu í Peking á
síðasta ári.
Fyrirsjáanleg togstreita er
líka milli Hua og Wang Tung-
hsing, sem varð hinn sterki
vöðvi við að brjóta niður upp-
reisnarseggina fjóra. Vegna
þáttar hans i því og hefðarstöðu
hans nú má líkja honum við
Alexander Shelepin, sem
stjórnaði leyniþjónustunni til
hjálpar Brezhnev í baráttu
hans gegn Khruschev — en
varð síðar helzti andófsmaður
Brezhnevs. Þar sem Hua og
Wang eru yngstir æðstu ráða-
mannanna hlýtur baráttan um
völdin til langframa að verða á
milli þeirra.
Ef á undan slíkri valdabar-
áttu verður einvígi milli Hua og
Teng Hsiao-ping, þá eru öll Iik-
indi til þess að Wang fylgi Teng
að málum aðeins til að veikja
hættulegasta andstæðing sinn.
Þannig hefur öll valdabarátta
og stjórnmálaerjur samtvinnazt
hjá leiðtogum kommúnista og
engin ástæða er til að ætla að
kerfið hafi skyndilega breytzt
við dauða Mao.
En Teng Hsiao-ping, sem hef-
ur áður sýnt sig fúsan til að
leita samkomulags við Moskvu,
getur vel verið valdur að nokkr-
um sáttatóni i tilboði Hua til
Ráðstjórnarríkjanna um að
taka upp eðlileg samskipti við
Kína. Ef úr þvi verður getur
þrýstingurinn á flokkinn i Pek-
ing í þá átt að byggja fljótlega
upp hernaðarmáttinn hæglega
orðið að engu vegna þeirra sem
vilja efnahagslegar framfarir.
Baráttan um hernaðarstyrk-
leika er náskyld umræðunum
um hvernig stjórnvöld í Peking
ættu að haga sér við Rússa, —
og jafnframt við Bandarikja-
menn.
— Það sem
Vance lærði
Framhald af bls. 10
anlegur, óábýggilegur og öðr-
um háður.
Lýðveldi Kina á Taiwan, sem
býst við formlegum viðskipta-
tengslum milli Peking og Wash-
ington hvenær sem er, mundi
áreiðanlega taka undir orð Len-
ins er hann sagði: „Öáreiðan-
leg, óábyggileg og öðrum háð.“
Kinverjar höguðu svo til að
koma Vance til Peking varð
einmitt i miðjum sýningargöng-
um fjöldans um strætið við lok
Flokksþingsins.
En endalaus fólksstraumur-
inn, sem ráfaði annarshusar um
stræti Peking og bar yfir höfð-
um sér andlitsmyndir af Mao og
Hua, sýndist minna á tvær
grundvallarreglur um Kina
sem Bandarikjamenn minntust
í þessari ferð: Aðalstyrkur
Kína er geysilegur en þjálfaður
mannfjöldi, sem er nær billjón
(1,000 milljónir) að tölu, eða
um fjórðungur alls mannkyns.
En helztu vandræði Kína eru
þau að þar eru um billjón opnir
munnar, sem fjölgar með ógn-
arhraða, og þeir búa i landi þar
sem allir hinir búa líka.
Slikur samsetningur myndar
nú stærstu timasprengju ver-
aldar.
KraítniikUr
strákar 7 75
borða
ss
gæðafæðu
Við óskum Valsmönnum til hamingju með
bikarinn um leið og við væntum góðs
gengis í leik Valsmanna gegn Glentoran
á Laugardalsvellinum á morgun,
fimmtudag kl. 6.
Þökkum samstarfið
á liðnu sumri
Sláturfélag Suðurlands