Morgunblaðið - 14.09.1977, Side 25
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 14, SEPTEMBER 1977
25
félk f
fréttum
Hér er öll fjölskyldan saman komin. Aftari röð frá vinstri, Magda. Julie mamma og Eva. Fremri röð,
Zsa Zsa, Vilmos pabbi og Francesca.
Þið megið aldrei
verða fátækar
+ Þið skulið ná ykkur í rfkan
mann. Þið megið aldrei verða
fátækar. Auðvitað eigið þið að
gifta ykkur af ást, en þó ekki
fyrr en hlutaðeigandi maður
hefur dregið demantshring á
fingur ykkar. Þannig hljóðaði
ráð móður til dætra sinna
þriggja, Magda, Zsa Zsa, og
Evu. Og dæturnar þrjár, sem
nú eru 60, 58, og 54 ára, hafa
svo sannarlega fylgt ráðum
móður sinnar. Samanlagt eiga
móðirin og dæturnar þrjár að
baki 22 hjónabönd. „Mamma
Gabor“ hefur þrjú á sam-
viskunni, Magda 7, Zsa Zsa 7 og
Eva 5. Sjálfar segja þær: Við
höfum gift okkur svo oft vegna
þess, að við höfum mikla þörf
fyrir ást. 1 hvert skipti sem við
giftum okkur héldum við að við
elskuðum manninn. Vinir
systranna þriggja segja, að þær
séu eyðilagðar af eftirlæti.
Komi þær auga á eitthvað sem
þær langar til að eignast hvort
sem það er bfll eða eiginmaður
verða þær að fá það hvað sem
það kostar. Einu áhugamál
þeirra eru lúksus-ferðalög,
næturklúbbar og falleg föt en
til þess að hægt sé að veita sér
þetta er nauðsynlegt að eiga
ríkan eiginmann. Zsa Zsa
Gabor á eina dóttur, Francescu.
Hún er mjög ólfk móður sinni
og finnst líf hennar tómt og
tilgangslaust. Hún hefur
hvorki áhuga á pcningum.
skartgripum eða hjónabandi.
Þetta hefur valdið móður
hennar miklum vonbrigðum og
hún hefur gefist upp við að
innprenta dóttur sinni þau vísu
orð sem hún sjálf hefur lifað
eftir.
+ APALEGUR MÓTHERJI: Rúmenski tennisleikar-
inn Ilie Nastase sem er þekktur fyrir skapofsa sinn og
ýmis apakattarlæti á tennisvellinum horfir hér á eftir
sjimpansanum Kelley. Myndin var tekin er Nastase
var að hita upp fyrir sjónvarpskeppni sem hann tók
nýlega þátt í vestan hafs.
+ Lillian Skauen í Tors-
nes í Noregi keypti sér
gróft nælongarn í
veiðarfærabúðinni. Hún
ætlaði að prjóna hengi-
rúm. En hvar átti hún að
fá nógu grófa prjóna.
Hún dó ekki ráðalaus
heldur fékk sér tvær ár-
ar, fitjaðir upp 74
lykkjur. Það munar
mikið um hverja umferð
þegar garnið er gróft og
prjónarnir sverir og við
sjáum ekki betur en
Lillian sé aö verða búin
með hengirúmið.
Alþýðuleikhúsið
sýnir á Norðurlöndum
ALÞÝÐULEIKHUSIÐ lagði af
stað i sex vikna leikför um
Norðurlönd 10. september með
Skollaleik eftir Böðvar Guð-
mundsson.
Sýningarnar byrja i Þórshöfn
í Færeyjum 12. sept. en þær
verða alls 19. Siðan verður farið
til Noregs, Bergen og Oslo og
þaðan yfir til Finnlands, Hel-
singfors og Vasa, en þ.ar hafa
íslandsvikur verið skipulagðar
þar sem m.a. fer fram kynning
á islenzkum skáldum. Næst fer
Alþýðuleikhúsið til Svíþjóðar
og sýnir í Gautaborg, Lundi,
Málmey og Uppsölum, en ferð-
inni lýkur i Danmörku með sýn-
ingum í Arósum, Öðinsvéum og
Kaupmannahöfn.
Norræni mennjngarmálasjóð-
urinn veitir styrk til fararinn-
ar.
Aðalfundur
Bílgreinasam-
bandsins 1977
Aðalfundur Bílgreinasambandsins verður
haldinn að Hótel Loftleiðum Kristalsal
laugardaginn 1 7. sept. n.k. og hefst kl. 9
til 9.25. Afhending fundargagna. Kl.
9.30 —10.45 sér greinafundir.
1 . Bílamálarar og bílasmiðir
1 Bílamálarar og bílasmiðir frásögn
Sigurðar Hanssonar af norrænum
fundi í Sviþjóð. Fræðslumál og verð-
lagsmál.
2. Bílaverkstæðiseigendur samningamál
— aðbúnaður og hollustuhættir.
Fræðslumál og verðlagsmál.
3. Bílainnflytjendur bílasýning 1978 o.fl.
4 Gúmmíverkstæðiseigendur álagning og
sala á hjólbörðum. Aðbúnaður og
hollustuhættir o.fl.
ö.Smurstöðvaeigendur varðlagsmál o.fl.
Kl. 11—12 almennar umræður. Kl.
12 — 1 2.30 Gunnar S. Björnsson seg-
ir frá starfsemi Iðnlánasjóðs.
Matarhlé.
Kl. 13.30 til 15 verðlagsmál verkstæða
Guðjón Tómason framkvæmdastjóri
S.M.S. hefur framsögu. Panelumræður.
Kl. 15 aðalfuodur B.G.S. venjuleg aðal-
fundarstörf.
Kl 1 7 aðalfundur véla og tækjakaupa-
sjóðs Bílgreinasambandsins.
Kl. 19.30 dansleikur í Lækjarhvammi
Hótel Sögu.
Sambandsaðilar eru hvattir til að fjöl-
menna á aðalfundinn og tilkynna þátttöku
í síðasta lagi til skrifstofu Sambandsins
fyrir kl. 17 hinn 15. sept n.k. í síma
10650.
Þeir sambandsaðilar sem eigi geta mætt
geta gefið öðrum félagsmönnum umboð
eða starfsmönnum sínum á hjálögðu um-
boðseyðublaði.
Samkvæmt 10 grein laga Sambandsins
getur:
„Enginn farið með atkvæði fleiri en 2ja
aðila auk síns (sinna) eigin".
Stjórn Bílgreinasambandsins.