Morgunblaðið - 14.09.1977, Side 30
30
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 14. SEPTEMBER 1977
Valsmenn verða að vinna hér, þar
sem Irarnir eru góðir á heimavelli
ÞÓTT það leiki ekki á tveimur tung-
um að Glentoran norður írska liðið
sem mætir Valsmönnum í E vrópubik
arkeppni meistaraliða á Laugardals
vellinum á morgun, sé þekktasta lið
Norður-Írlands um þessar mundir,
má mikið vera ef Valsmönnum tekst
ekki að velgja því verulega undir
uggum, og jafnvel sigra í leiknum.
Ætla má að knattspyrna á íslandi og
Norður írlandi sé mjög svipuð að
styrkleika, og því til sonnunar má
nefna úrslit í landsleik íslands og
Norður-Írlands á Laugardalsvellinum
i sumar, en þar unnu Islendingar
1 — 0 sigur, eins og eflaust flesta
rekur minni til. í þeim leik tefldu
Irarnir fram mörgum leikmönnum
sem leika með enskum liðum, en
vandamál norður-írsku knattspyrn-
unnar hefur verið það, að þegar leik
menn eru farnir að ná árangri, eru
þeir nær undantekningarlaust keypt-
ir til knattspyrnuliða í Englandi og
Skotlandi.
Lið Glentoran hefur oft náð góðum
árangri og eigi sjaldnar en 16 sinnum
orðið norður-írskur meistari Bezti ár-
angur liðsins er ugglaust sá. að það
komst í undanúrslit Evrópubikarkeppni
bikarhafa á keppnistimabidinu
1973—19 74, en þá gerði það fyrst
jafntefli við rúmenska liðið Vilcea á
útivelli, 2 — 2, en sigraði síðan 2 — 0 í
Belfast, gerði siðan jafntefli við norska
Dr. Gunnar
heiðursgestur
Valsmanna
I)R. GUNNAR Thoroddson, fé-
lansmálarádhcrra, vcrdur
hciðursgcslur á lcik V'als og
norður-írska liðsins Glcntoran
í Kvrópukcppni mcistaraliða á
I.augardalsvcllinum á morg-
un. I)r. Gunnar var fclagi í Val
á sínum yngri árum og lck
knattspyrnu mcð Val fram til
1(> ára aldurs. IVlun ráðhcrra
hcilsa lcikmönnum bcggja lið-
anna fyrir lcikinn og fylgjast
síðan mcð lciknum úr hciðurs-
stúkunni. Er vonandi að Vals-
mcnn nái að sýna ráðhcrra og
öðrum áhorfcndum á Laugar-
dalsvdlinum á morgum sínar
hc/tu hliðar, og cr þá vissulega
ásta-ða til að a*tla að þeir vinni
írsku hálfatvinnumcnnina.
^ *
liðið Brann á útivelli í annarri umferð,
1 — 1, og sigraði 2 — 0 í Belfast í
undanúrslitunum mætti það svo vest-
ur-þýzka meistaraliðinu Borussia
Mönchengladbach og fékk þá slæman
skell Tapaði fyrst 0—2 í írlandi og
síðan 0—5 i Þýzkalandi
Yfirleitt hefur árangur liðsins í
Evrópukeppnmm verið þannig að það
hefur staðið sig mjög vel á heimavelli
og ýmist unmð þar eða gert jafntefli
og það við sterk lið, en tapað síðan á
útivelli Má nefna að Glentoran hefur
gert jafntefli við gríska liðið
upphafi keppmstímabilsms Meðal
þeirra leikmanna sem ekki hafa getað
leikið að undanförnu eru Warren
Feeney, Rab McCreery, Peter Dickin-
son og Tom McVeigh Er Feeney
þekktastur þessara leikmanna og hefur
hann verið fastamaður í norður-írska
landsliðinu Hann er mjög fljótur og
marksækinn leikmaður og má til dæm-
is um það nefna að á síðasta keppnis-
timabili skoraði hann 58 mörk fyrir
Glentoran
Framkvæmdastjóri Glentoran um
þessar mundir er Arthur Stewart, fyrr-
Warren Feeney. „Leikmaður sem Valsmenn verða að passa sig á“ sagði
Colin McAlpin. Feeney var lang markhæsti leikmaðurinn í írlandi í
fyrra, skoraði þá um 60 mörk.
Panathanaikos, við Benfica og við
Glasgow Rangers og unnið eigi ómerk-
ari iið en Arsenal, og FC Basel frá Sviss
í Evrópubikarkeppninni
Á nýbyrjuðu keppnistímabili hefur
Glentoran hins vegar vegnað fremur
illa Hefst keppnistímabilið í írlandi
með svokallaðri Ulster bikarkeppni en í
henni taka þátt 12 lið Varð Glentoran
sigurvegari í þessari keppni í fyrra, en
er nú hins vegar ekki í hópi efstu
liðanna Aðalástæða þess hve liði/iu
hefur vegnað illa að undanförnu er
sögð sú, að margir lykilleikmenn liðs-
ms frá i fyrra eru nú meiddir og hafa
ekki getað leikið með, auk þess sem
liðið skipti um framkvæmdastjóra í
um leikmaður með Derby County og
Glentoran Voru það leikmenn liðsins
sem völdu hann, er fráfarandi fram-
kvæmdastjóri, Bobby McGregor, sem
nú er aðstoðarmaður norður-írska
landsliðsins, hætti
Þetta er í annað sinn sem Valur
mætir norður-irsku liði í Evrópukeppni
1974 var Portadown mótherji Vals og
fóru þá leikar svo að jafntefli 0—0
varð i Reykjavik, en Irarnir unnu síðan
á heimavelli sinum 2—1 í mjög jöfn-
um leik Að sögn Colin McAlpins,
iþróttaritstjóra í Belfast, er Glentoran
töluvert sterkara lið en Portadown var
er það lék við Val, og einkum og sér í
lagi hefur Glentoran yfir sterkari ein-
staklingum að ráða Auk þeirra leik-
manna sem nefndir hafa verið má
nefna Billy Caskey sem er í norður-
írska landsliðshópnum, en hann var
kjörinn ..Knattspyrnumaður ársins” í
írlandi í fyrra Þá er einnig bakvörður-
inn Ronnie McFall mjög sterkur leik-
maður, en hann kom hingað með
Portadown-liðinu á sínum tíma
Allir leikmenn Glentoran-liðsins eru
hálfatvinnumenn Þ.e.a.s þeir stunda
aðra vinnu en knattspyrnu, en fá greitt
fyrir æfingar, og siðan ákveðna bónusa
fyrir frammistöðu s«na í leikjum Hefur
sú greiðsla verið mjög rífleg að undan-
förnu, enda staða félagsins góð
Lið Glentorans i leiknum við Val á
morgun verður sennilega þannig
Markverðir Dennis Matthew og
Trevor McCullough
Bakverðir Vic Moreland, Ronnie
McFall, Roy Walsh, Alex Robson og
Andy Dougan
Miðsvæðismenn Tom McVeigh,
Stephen O'Neill, Johnny Jamison
Sóknarleikmenn Billy Caskey.
Quinton McFall. Warren Feeney
VALSMENN VERÐA AÐ VINNA:
Þegar litið er á frammistöðu Glentor-
an-liðsins á heimavelli sínum i Evrópu-
leikjum undangenginna ára, má Ijóst
vera að erfitt verður fyrir Valsmenn að
sækja gull í greipar þeirra þangað
Valsmenn verða því að vinna á Laugar-
dalsvellinum á morgun, eigi þeir að
hafa möguleika að komast áfram í
keppninni Og það eiga Valsmenn lika
að geta gert Sigur í bikarúrslitaleikn-
um gegn Fram hefur örugglega tekið
hrollinn úr Valsmönnum og það er
vitað mál að þegar Valsliðinu tekst vel
upp stendur það jafnfætis betri liðum
en ætla má að Glentoran sé Valssigur
í leiknum á morgun, er þvi ekki fjar-
lægur draumur, og er vonandi að ís-
lenzkir áhorfendur láti sig ekki vanta á
leikinn og hvetji rösklega sina menn
Valur hefur nokkrum sinnum tekið
þátt i Evrópukeppni og jafnan staðið
sig með ágætum, sérstaklega á heima-
velli, þar sem liðið hefur aðeins einu
sinni tapað leik
Billy Caskey, — var kjörinn
„Knattspyrnumaður ársins“ í
Norður-lrlandi í fyrra, og er fast-
ur maður í írska landsliðinu.
1967 tók Valur þátt í Evrópubikar-
keppni meistaraliða i fyrsta sinn Mót-
herji liðsins í 1 umferð var Jeunesse
d'Esch frá Luxemburg og fóru leikar
svo að jafntefli varð í Reykjavik 1 — 1,
en 3—3 í Luxemburg, og komst Valur
þar með i aðra umferð, þar sem liðið
skoraði fleiri mörk á útivelli en and-
stæðingurinn í annarri umferð lék Val-
ur við ungverska liðið Vasas og fóru
báðir leikirnir fram ytra Þeim tapaði
Valur 0—6 og 1 — 5 Árið eftir,
1968, keppti Valur við portúgalska
liðið Benfica í 1 umferð meistara-
keppninnar Jafntefli 0—0 varð i
sögufrægum og eftirminnilegum leik á
Laugardalsvellinum, en í Portúgal tap-
aði svo Valur 0—8
1975 var Valur þátftakandi í
Evrópubikarkeppni bikarhafa og lék við
skozka liðið Celtic í fyrstu umferð
Tapaði Valur báðum leikjunum 0 — 2 i
Reykjavik og 0—7 i Glasgow
Tvívegis hefur Valur svo tekið þátt í
Evrópubikarkeppni UEFA Fyrst 1969
er belgiska liðið Anderlecht var mót-
herji Þá var leikið í Belgiu og tapaði
Valur leikjunum 0—6 og 0—2 1 974
var svo keppt við Portadown og hafa
úrslit þeirra leikja verið rakin
JAFNTEFLIVÆRU GOÐ
ÚRSLIT FYRIR ÍA OG
FRAM Á MÓTIBRANN
... t*n Valsmenn geta Ifka skorað. Mvndina tðk Friðþjðfur í úrslitaleik Vals og Fram í bikarkeppninni.
„Markavélin" í Valsliðinu, Ingi Björn Albertsson, fagnar marki sínu, en Sfmon Kristjánsson, Framari
fórnar höndum f örvæntingu.
OG START A UTIVELLI
NORSKU bikarmeistararnir
BRANN hafa verulega rétt úr
kútnum að undanförnu og eru nú
í 4. sæti í norsku 1. deildinni með
18 stig. 1 dag klukkan 18 hefst á
stórgóðum leikvangi Brann í
Bergen viðureign þessa norska
liðs og Islandsmeistara Akraness
í Evrópukeppni bikarhafa. Verð-
ur að telja að um jafna baráttu
verði að ræða, en nái Skagamenn
jafntefli í þessari glímu verður að
telja líkiegt að Skagaliðið komist
áfram i 2. umferð keppninnar
með sigri á heimavelli. Framarar
leika gegn Start i Kristiansand og
hefst sá leikur klukkan 16 að ís-
lenzkum tíma, þar sem engin flóð-
ljós eru í Kristiansand, en hins
vegar verður leikið í flóðljósum i
Bergen. Eins og Skagamenn eiga
Framarar góða möguleika á að
komast í aðra umferð, en leikur
þeirra við Start er í UEFA-
keppninni.
Brann lék um síðustu helgi við
Víking í Stafangri og var þar um
mjög skemmtilega og æsispenn-
andi viðureign að ræða. Viking
leiddi í leikhléi með 2 mörkum
gegn engu. Leiknum var þó engan
veginn lokið, i seinni hálfleík
sneru leikmenn Brann dæminu
við og unnu verðskuldað 3:2.
Start lék hins vegar um helgína
gegn Molde og tapaði 1:2. Er Start
í 5. sæti norsku 1. deildarinnar.
Lilleström trónar sem fyrr átoppi
deildarinnar með 30 stig og á ekk-
ert lið möguleika á að ógna veldi
þeirra. Molde er í öðru sæti i
Noregi og Bodö/Glimt i þriðja
sæti.
Þjálfari Brann er Englending-
urinn Bill Elliott og gæti því orðið
um spennandi einvígi hans og
George Kirbys að ræða í kvöld.
Þjálfari Start er hins vegar Norð-
maður og sem kunnugt er er það
einnig heimamaður, sem þjálfar
lið Fram, Anton Bjarnason.
1 landsleik Norðmanna og Svia i
síðustu viku átti Brann engan
mann í landsliðinu, en tveir leik-
menn frá Start voru í landsliðinu.
Skal þar fyrst nefna Trond Peter-
sen, varnarmanninn, sem þótti
einn bezti leikmaðurinn á vellin-
um i þessari viðureign frændþjóð-
anna. Lék hann þarna „sinn lífs-
ins leik“ eins og Norðmenn segja
það. Þá var miðframherjinn Stein
Thunberg einnig í landsliðinu,
rauðhærður markaskorari, ekki
ósvipaður Sumarliða Guðbjarts-
syni. — áij.